Vísir - 28.08.1964, Page 11

Vísir - 28.08.1964, Page 11
Yr 1 S IR . Föstudagur 28. ágúst 1964. Sjonvarpið Föstudagur 28. ágúst. 18.00 Skemmtiþáttur Danny Thomas: Danny finnst að hann þurfi endilega að kynnast nágrönnum sínum í Connecticut betur og ger ir sig liklegan til þess. 18.30 Þátturinn „Efst á baugi“ 19.00 Fréttir 19.15 Social Security in Action: Fræðsluþáttur. 19.30 Sea Hunt: í einni af hinum stóru höfnum verður vart við dularfullar skeytasend- ingar og í viðleitni sinni við að grafast fyrir um þær verður Mike veikur fyrir áhrif geislunar. 20.00 Five Star Jubilee: Lögfræð ingur berst harðri baráttu fyrir lífi skjólstæðings síns, sem ákærður er fyrir að hafa ætlað að myrða konu af ásettu ráði. 20.30 Rawhide: Úr lífi kúrekanna 21.30 Hnefaleikakeppni. 22.30 Headlines: Mark Stevens í hlutverki sakamálafréttarit- arans Steve Wilson kemiir upp um glæpinn. 23.00 Fréttir 23.15 Northern Lights Playhouse „Kristalskúlan.“ Ung stúlka gerist aðstoðarstúlka manns er spáir fyrir um framtíðina og finnur við það lausn á vandamálum sínum. Söfnin Borgarbókasafn Reykjavíkur. Aðalsafnið Þingholtsstræti 29A, sími 12508. Útlánadeild opin alla virka daga kl. 2-10, laugardaga kl. 1-4. Lesstofa opin virka daga kl. 10-10, laugardaga kl. 10-4. Lokað sunnudaga. Útibúið Hólmgarði 34 opið alla virka daga kl. 5-7 nema laugardaga. Útibúið Hofsvalla- götu 16, opið alla virka daga kl. 5-7 nema laugardaga. Útibúið Sólheimum 27, opið fyrir full- orðna, mánudaga, miðvikudaga og föstudaga kl. 4-9. Þriðjudaga og fimmtudaga kl. 4-7. Fyrir börn kl. 4-7 nema laugardaga. Félagiö GERMANIA Félagið Germanía hélt uppi þróttmikilli og fjörugri starfsemi á árinu sem leið. Þetta kom fram á aðalfundi félagsins sem haldinn var 23. júlí sl. % % % STJÖRNUSPÁ Arnarfjörður blasti við, bað- aður síðdegissólinni í miðjum ágúst. Hjallkárseyrarhlið lá að baki og lengra í burtu Mjólkár- hlíð og Dynjandisheiði. Þarna handan við fjörðinn klúktu bæ- irnir, flestir komnir í eyði. Maður gekk í hægðum sínum fram í fjörukambinn, og hund- urinn hans elti hann með dingl- andi rófu. Kænan hans vaggaði örfáa faðma undan landi. Bónd- inn á Rafnseyri var að fara í kaupstaðarferð til Bíldudals. Hann byrjaði að draga skelina að landi. Lengra i burtu eina tuttugu — þriátíu faðma frá fjöruborðinu var trillan. Árarn ar skuilu í sjóinn, og nú reri II maðurinn að trillunni. Hundur inn varð eftir á bakkanum og horfði með söknuði á eftir hús- | bónda sinum. Það glaðnaði yfir | honum, þegar komumaður henti í hann brjóstsykursmola, sem | - hann greip á lofti með trantin- um. Maðurinn vatt sér um borð og ræsti vélina. Hann sigldi út | fjörðinn, Ieit sem snöggvast til „ ' himins. Yfir Skarðanúpi bólstr uðu sig nokkur ský — að öðru Ieyti var heiðskírt. — (Ljósm.: stgr.) Gamli maðurinn og hafið Spáin gildir fyrir laugardag- inn 29. ágúst. Hrúturinn, 21, marz til 20. apríl: Þú kynnir að detta í lukkupottinn í dag á sviði fjár- málanna eða þá fá einhverja gjöf, eða að minnsta kosti mögu leika á slíku innan skamms tíma Náutið, 21. apríl til 21. maí: Þú virðist vera í góðu, glöðu og bjartsýnu skapi um þessar mundir, og gætir komið miklu til leiðar, ef þú drifir þig snemma á fætur. Tvíburarnir, 22. maí til 21. júní: Viss persóna kynni að verða þess valdandi, að vanda mál þin leystust fyrr en á horfð ist. Þú ættir ekki að taka mikil vægar ákvarðanir, eins og stend ur. Krabbinn, 22. júní til 23. jú!í: Kunningi þinn kynni að opna þér nýjar leiðir til afkasta fyrri hluta dagsins. Sneiddu hjá fólki eða málefnum, sem kynnu að leiða þig í vandræði í kvöld. Ljónið, 24 júlí til 23. ágúst: Vellíðunarkennd ætti nú að geta farið um þig, og þú virðist vera áhrifamikill i vinahópi þínum. Vertu samt varfærinn í sam- skiptum þínum við vini og kunn ingja. Meyjan, 24. ágúst til 23. sept: Þér bjóðast ágætis tækifæri til að útvíkka þekkingarhring þinn varðandi tilhögun mála £ fjar- lægum landshlutum.. Forðastu aðgerðir, sem skaðað gætu vin- sældir þínar, er kvölda tekur. Vogin, 24 sept, til 23. okt: Þú ættir að gefa því gaum, sem vel hefur farið að undanförnu. Aðrir munu reynast rausnarleg- ir, ef um sameiginlegan kostn- að er að ræða. Drekinn, 24. okt til 22. nóv.: Sameiginlegt átak mundi verða heillavænlegast til fjárhagslegr- S ar farsældar í dag. Varastu að gefa tilfinningum þínum of laus an tauminn, því slíkt kynni að reynast dýrt. Bogmaðurinn, 23. nóv. til 21. des.: Taktu eftir tækifærum til að verða skylduliði þínu að liði. Athugaðu gang mála varðandi klæðaburð þinn og heilsufar. Nokkur spenna kynni að ríkja milli hjóna. Steingeitin, 22, des. til 20. jan.: Heppnin mun verða þér hliðholl ef þú sinnir vissu hjartlægu áhugaefni þinu. Of- gerðu ekki heilsunni eða sam skiptum þínum við aðra. Vatnsberinn, 21. jan. til 19. febr.: Þú getur lagt hornstein inn að einhverju því, sem getur orðið þér og fjölskyldu þinni til mikils liðs í framtíðinni. Heppnin er þér hliðholl í mál- efnum varðandi heimilið og sam félagið. Fiskarnir. 20. febr. til 20. marz: Þú ættir að segja öðrum góðar fréttir, ef mögulegt er. Varaðu þig á spennu innan heim ilisins og fjölskyldunnar, þegar kvölda tekur. Meðal viðfangsefna félagsins má nefna íslenzku myndlistarsýn- inguna, sem haldin var um tveggja ára bil í mörgum stór- borgum Vestur-Þýzkalands, en sýning þessi vakti hvarvetna mikla athygli. Allmargar mynd- ir voru seldar og keyptu þær ým- ist einstaklingar eða opinberir að ilar. -íiqqv£itt .þf verkefnum félagsins er upþi nlniim tengslufn við Islandsvinafélög í Þýzkalandi en starfsemi þessara félaga er allumfangsmikil, einkum í Köln og Hamborg, enda er þeim stjórn að af mörgum þjóðkunnum mönnum þar syðra. Forseti ís- landsvinafélagsins £ Köln er dr. Max Adenauer yfirbðrgarstjóri þeirrar borgar, en hann kom hingað til lands i ágúst í fyrra, ásamt dóttur sinni og dvaldi hér um fjögurra vikna skeið. Ferðað- ist hann um íslenzka hálendið norður til Akureyrar og alla leið til Austfjarða. Hafði Germanía á hendi allan undirbúning að komu dr. Adenauers og skipulagði ferð hans um landið og naut þar nokk urrar aðstoðar félagsdeildanna á Akureyri. Á árinu sem leið kom út nýtt hefti af ársritinu „Island", sem gefið er út af Germaniu og félög- unum í Þýzkalandi. Er þetta mjög myndarlegt rit. Hér heima hefur Ludvig Siemsen einkum haft veg og vanda af útkomu þessa rits. Eins og á undanförnum árum hélt Germanía uppi reglubundn- um kvikmyndasýningum í Nýja bíó, þar sem sýndar voru þýzkar frétta- og fróðleiksmyndir. Einnig voru haldnir nokkrir fjölsóttir skemmtifundir að Hótel Sögu. Dr. Jón E. Vestdal, sem löng- um hefur verið driffjöðrin í starf semi Germaníu var einróma end urkjörinn formaður félagsins, en með honum í stjórn voru kosnir Pétur Ólafsson hagfræðingur, ~" - —sw- —■ — Ludvig Siemsen stórkaupmaður, frú Þóra Timmermann og Þor- varður Alfonsson hagfræðingur. Á aðalfundinum hreyfði Leifur Ásgeirsson prófessor ýmsum ný mælum, sem stjórn félagsins mun taka til athugunar á næsta ári. M.a. mun í ráði að efla tengslin við íslenzka námsmenn í Þýzka- landi. v v nife-yu'TiM riÁ .fáþjls FRÆGT FOLK Hvernig á maður að fara að þvi að hafa heppnina með sér sem gimsteinaþjófur? Það er auðvelt, maður velur bara rétt fórnarlömb. Eins og til dæmis samkvæmisdömuna í New York sem tilkynnti lögreglunni fyrir skömmu að frá sér hefði verið stolið gimsteinum fyrir sem svar ar 25 milljónum ísl. króna. Hvernig hafði þetta skeð? Óh, hún hafði bara tekið skartgrip- ina fram til þess að sjá hvað hún ætti að bera í samkvæm- inu, sem hún var að fara í. Og þá sem hún ekki tók, skildi hún bara eftir á náttborðinu þegar hún fór út án þess að læsa húsinu. sneri sér loks að stráknum og sagði: — Hvað vilt þú eigin- lega? — Ekkert. — Hvers vegna í ósköpunum fylgir þú þá svona fast á eftir mér? — Skugginn yðar herra, útskýrði drengurinn, hann er svo dásamlega breiður. X- -K Eldri maður — fremur feitlag inn — var á ferð í Rómaborg, og þar sem hitinn var gífurleg- ur lak svitinn af honum þar sem hann gekk um borgina. Lit- ill drengur hafði nokkra stund fylgt honum fast eftir, og mann inum gramdist það mjög. Hann Allt sitt líf hafði hinn góði Brooklyn borgari, Joseph Grove man átt þá ósk heitasta að fá að renna sér niður stólpana á slökkviliðsstöð. Fyrir nokkrum dögum fék hann tækifæri til þess, og ferðln gekk mjög vel. En lendingin var ekki að sama skapi ánægjuleg, svo að í sjúkra bílnum á Ieiðinni í sjúkrahús, sagði Joseph: — Ég hefði eigin- lega átt að fara þetta ÁÐUR en ég varð sjötugur. Það er Wiggers á þessari mynd muldrar Penninn reiðilega, og hann er svo sannarl. umkringd ur milljónamæringum. En hann er að þjóna þeim. Hann er sem sagt þjónn. Úti i garðinum eru þau Wiggers og Fern á gangi, og hann hvíslar að henni. Ég vona að fjárhaldsmanni þínum hafi lit- izt sæmilega á mig. Ég er viss um það Jon, svarar Fern. Nú hverfur enn eln af hinum elskuðu bjórstofum Lundúna. Það er „The Yorkshire Stingo“ sem liggur við Marylebone Ro- ad, og sem hafði marga góða fastagesti. Það voru einnig margir ferðamenn sem alltaf komu þangað í hvert skipti sem þeir heimsóttu England og gerðu sér far um að vera þar eins mikið og þeir gátu. En í næsta skipti sem þeir koma þangað verða þeir að litast um eftir öðrum stað, því að þá verður ,Stingo‘ horfinn. Það efu vegaframkvæmdir sem ryðja bjórstofunni úr vegi, en „The Ghost Goes West“ því að snið- ugur Ameríkani keypti allt inn búið og ætiar að flytja það til síns heimalands og setja þar upp amerískan „Stí»go“. En það er jú fastagestunum engin huggun.

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.