Vísir - 15.10.1964, Blaðsíða 3
V IS IR . Fimmtudagur io. október !»«■*.
i'.V.WW.
v.v.v.
DAWN FRAZER með kengúr-
una, tákn lands síns, eftir sig-.
urinn í 100 m skriðsundi. Til
vinstri er Kathie EIIis, sem varð
3., og hinum megin er Sharon
Strouder, sem fékk silfrið.
íslenzk
Glímuæfingar ungmennafélaga
hefjast 1 íþróttahúsi Jóns Þor-
steinssonar við L'indargötu n. k.
föstudag kl. 7 síðdegis. Kennt verð
ur í minni salnum. Kennari verður
Kjartan Bergmann.
Æfingar verða alia mánudaga
og föstudaga kl. 7—8 s. d. öllum
heimil þátttaka.
Undirbúningsnefnd.
Frrnn missir Ingólf til Sviþjóiar
Fer þangað og leikur með 2. deildar liðinu
Malmberget — Ekki með 'i Evrópubikarnum
Ingólfur Óskarsson,
markhæsti maður ís-
landsmótsins í fyrra og
einn bezti handknatt-
leiksmaður íslandsmeist
ara FRAM, verður ekki
meðal „trompa“ liðsins
gegn Redbergslid í
Gautaborg í Evrópubik-
arleiknum, sem senni-
lega fer fram í lok næsta
mánaðar. Ingólfur mun
sennilega horfa á félaga
sína í þessum áhrifa-
mikla leik, en hann kem-
ur þá aðeins sem ferða-
maður norðan úr Sví-
þjóð frá smáborginni
Gállevara.
„Já, ég hef nú ákveðið mig.
Ég ætla utan 28. október n. k.
og ætla að le'ika með 2. deildar
liði í Gállevara a. m. k. í vet-
ur. Liðið heitir MALMBERGET
og leikur í norður-riðli 2. deild-
ar, var í 3. de'ild ’62—’63, reif
sig upp í fyrra og vann með
yfirburðum deildina. Mig lang-
ar til að reyna eitthvað nýtt,
fara utan og víkka sjóndeild-
arhringinn”, sagð'i hann.
„Auðvitað kem ég til með að
sakna míns góða félags og
strákanna í Fram, sem eru úr-
vals félagar. Hins vegar sakna
ég ekki aðstöðunnar að Háloga
landi, ég vona að það verði bú-
ið að rífa það, þegar ég kem
aftur heim og viðunandi að-
staða fengin“, sagði Ingólfur.
Ingólfur mun fá atvinnu hjá
stóru fyrirtæki og starfa á
skrifstofu fyrirtækisins. Þess
má geta, að ekk'i er ósennilegt
að félögin í Allsvenskan — 1.
deildinni I Svíþjóð — muni
sækjast eftir að fá Ingólf til
sín eftir árið og hann muni þá
jafnvel hefja leik með einhverju
þeirra.
<S------------------------------
Nómskeið hjó
ÁRMANNI
Frjálsíþróttadeild Ármanns gengst
fyrir námskeiði I frjálsum íþróttum
fyrir áhugasama drengi á aldrinum
12 — 15 ára. Námskeið þetta fer
fram í húsi Jóns Þorsteinssonar við
Lindargötu og hófst það miðviku-
daginn 14. október kl. 7 — 8 sfðd.
Verða æfingar svo áfram á sama
tíma og degi í a. m. k. einn og
hálfan mánuð.
Kennd verður undirstaða ýmissa
innanhússgreina frjálsra íþrótta,
svo sem í hástökki, langstökki og
þrlstökki. Einnig verður kennd í-
þróttaleikfimi. Þjálfari deildarinnar
er Þorkell S einar Ellertsson, sem
nýkominn er heim frá námi og
starfi í Svíþjóð.
Félagið vill hvetja alla drengi,
sem kynnast vilja frjálsum íþrótt-
um, að hefja æfingar nú þegar,
enda er hér um að ræða einstakt
tækifæri fyrir pilta á þessu reki.
Æfingar deildarinnar fyrir eldri
pilta eru á þriðjudögum og föstu-
dögum kl. 7—8 síðdegis, og þang-
að era vitanlega allir velkomnir,
sem áhuga hafa á æfingum, keppni
og árangri í frjálsum íþróttum.
Upplýsingar um námskeið og æf-
ingatíma eru veittar á skrifstofu
Ármanns n.k. föstud. kl. 8—9.30.
Simi 13356.
Þeir unnu öll verðlaunin fyrir Bandarikin f 200 metra baksundi: Bob
Bennet (brons) — Buddy Graef (guil) — Gary Dilley (silfur).
Loftleiðir —
Framh. af bls. 16
— Það er varla hægt að segja
það, málið er núna bara 1 öðru
ráðuneyti og engin skörp tak-
mörk þar á milli.
— Eruð þór með í skjalatösk-
unni kröfur um að fargjöld
Loftleiða verði hækkuð (veru-
lega?
— Ég vona að það sé ekki
litið á það sem kröfur. Þetta er
samninga- og samkomulagsat-
riði.
— Er hinn raunverulegi til-
gangur ykkar að reyna að drepa
Loftieiðir?
— Nei, það vill enginn drepa
hið íslenzka flugfélag.
— Er þá aðeins ætlunin að
ganga eins langt o ghagsmunir
SAS krefjast?
— Það má lýsa þessu í stuttu
máli þannig, að við samningu
loftferðasamnings þarf að fylgja
vissum grundvallarreglum. Ein
reglan er sú, að flugfélög beggja
aðilanna hafi sömu fjárhagslegu
skilyrðin og sömu samkeppnis-
aðstöðuna. Það er svo túlkunar-
atriði sem um er deilt, hvað
sé sama aðstaðan.
— Er það rétt, að þessi fund
arhðld ykkar séu haldin til að
undirbúa málið fyrir utanríkis-
ráðherrafund Norðurlanda síð-
ar f mánuðinum?
— Það getur verið að utan-
ríkisráðherrafundurinn taki
þetta mál fyrir. En hann er. nú
ekki haldinn f tilefni þessa máls
Þetta er fastur fundur utanríkis
ráðherranna til að ræða m.a.
samstöðu Norðurlandanna á
þingi Sþ og það vill aðeins svo
til að nú á að halda hann á ís-
landi.
— Hvað búizt þér við að
dveljast hér lengi.
— Það er erfitt að segja.
Ætli við verðum ekki hér þang
að til samkomulag hefur náðst.
Lufher King —
Framh. á bls. 6.
verðugri þess en King að fá frið-
arverðlaunin. maðurinn, sem í
nærri 20 ára hafi gnæft yfir aðra
sem leiðtogi bandarfskra blökku-
manna og baráttumaður fyrir jafn-
rétti þeirra við hvíta. I Áktuelt
segir að „verðlaunaveitingin til Lut
huli hafi haft lítil áhrif á að-
skilnaðar — (apartheid) — stjórn-
málastefnuna f Suður-Afrfku og
eins hafi það verið er Ossietzky
hlaut friðarverðlaunin á sínum
tíma. Það hafi ekki haft áhrif til
þess að hnekkja gengi nazista-
stefnunnar, en menn geti ef til vill
leyft sér að vona, að það hafi sín
áhrif í Suðurrikjunum, að dr.
King hlaut verðlaunin.
Niels Nörlund ritar um verð-
launaveitinguna í Berlingske Tid-
ende og segir, að Luthuli hafj orð
ið að fara til Osló með yfirlýsingu
frá Suður-Afrfkustjórn um, að
hann uppfyllti ekki þær kröfur,
sem gera yrði til Nobelsverðlauna
þega, en dr. King njóti viðurkenn
ingar og aðdáunar meiri hluta
hvítra manna í Bandaríkjunum og
sé mikils metinn af forseta og
stjórn Bandaríkjanna.
Extrabladet minnir á, að það
hafi þann 17. ágúst hvatt til þess,
að Martin Luther King fengi friðar
verðlaunin.
FÉLAGSLÍF
I kvöld tala á samkomu Æskulýðs
vikunnar Þórður Möller yfirlækn
ir ásamt Hrafnhildi Lárusdóttur og
Sigríði Pétursdóttur. Kvennakór og
einsöngur. Allir velkomnir
KFUM og KFUK
Helluofn óskast
Notaður Hellu-miðstöðvar-
ofn nokkuð stór óskast.
Uppl. i síma 4-13-61.
TIL LEIGU
Húseignin Vitastígur 13 er til leigu. í húsinu
eru tvær 3ja herbergja íbúðir auk kjallara. —
Húsið er laust strax. Til sýnis í dag frá kl. 5-7.
Hurðarísetningar
Smiður getur tekið að sér hurðarísetningar
og önnur smærri verk. Sími 14234 eftir klukk-
8 e. h.
Gullarmband tapað
Gullarmband tapaðist aðfaranótt miðviku-
dags s.l. á leiðinni Laugarásvegur, Langholts-
vegur inn i Bústaðahverfi. Skilvís finnandi
vinsaml. hringi í síma 37480. Há fundarlaun.