Vísir - 15.10.1964, Blaðsíða 4

Vísir - 15.10.1964, Blaðsíða 4
4 ' * * » i ■ * * f : • «* • VISI R . Flmmtuaagur ta. OKtouer n«. imdallur jórar: Gunnar Gunnarsson og Sverrir H. Gunnlaugsson Gjðr rétt — Þol AÐALFUNDUR HEIMDALLAR • Styrmir Gunnarsson endurkjörinn formaður • Eitt öflugasta starfsár í sögu félagsins Aöalfundur Heimdallar var hald inn f Sjálfstæðishúsinu s.l. mánu- dag og sótti hann fjöldi félags- manna. Fundinn setti formaður fé- lagsins, Styrmir Gunnarsson, stud. jur. og skipaði hann Birgi ísl. Gunnarsson, lögfræðing, fundar- stjóra, en fundarritari var Sigurð- ur Hafstein, stud. jur. f ræðu for- manns og skýrslu um starfsemi félagsins, sem dreift var meðal lundarmanna, kom vel í ljós sá mikli þróttur, sem einkennir allt starf Heimdallar. Öflug starfsemi Á starfsárinu voru haldnir sjö klúbbfundir, sem allir voru mjög fjölsóttir. Erindi á fundunuip fluttu þeir Svavar Pálsson, t>ór Vilhjálmsson, Valdimar Kristins- son, Eyjólfur K. Jónsson, Geir Hallgrímsson, Sverrir Hermanns- son, Óláfur Egilsson, Árni Grét- ar Finnsson og Gunnar Thorodd- sen. Fyrri hluta starfsársins starf- aði málfundaklúbbur með nýju sniði og höfðu umsjón með hon- um Eggert Hauksson og Valur Valsson. Voru haldnir 8 fundir, sá fyrsti 13. nóv., en sá síðasti 11. febr. Ráðstefna um stefnuskrá félags- ins var haldin 16. —17. nóv., auk framhaldsfunda, sem haldnir voru 23. nóv. og 2. des. Ræddir voru og afgreiddir alls 13 málaflokkar. 6 fyrirlestrar voru haldnir fyrir félagsmenn um þjóðfélagsmál. Er- indi fluttu Þór Vilhjálmsson, Þor- valdur Garðar Kristjánsson, dr. Benjamín Eiríksson, Magnús Ósk- arsson, Svavar Pálsson og Sig urður Líndal. Þann 12. febrúar var haldinn fundur með Heimdallarfélögum úr verzlunarstétt og ávarpaði Ingólf- ur Jónsson, ráðherra, fundar- menn. í marz var stofnaður innan Heimdallar Launþegaklúbbur og hélt hann 5 fundi, auk þess sem Alþingishúsið var heimsótt þar sem formaður Sjálfstæðisflokks- ins tók á móti klúbbmeðlimum. Þá heimsótti launþegaklúbburinn húsakynni Morgunblaðsins, kynnt ist starfsemi blaðsins og hlýtt var á erindi Eyjólfs K. Jónssonar, ritstjóra, um „Blöðin og stjórn- málin". Einnig voru á fundum klúbbsins sýndar fróðlegar kvik- myndir. Frummælendur á fundum klúbbsins voru m. a. Gunnar Helgason, Pétur Sigurðsson og Guðjón Sigurðsson. Umsjón með launþegaklúbbnum og starfsemi hans höfðu þeir Bjarni Guðbrands son, plpulagningamaður, Halldór Runólfsson, verkamaður, og Har- aldur Sumarliðason, trésmiður. Framkvæmdir-hófust við breyt- ingar á húsakynnum Heimdallar í Valhöll s.l. sumar og verður þar útbúinn stór salur til fundahalda og annarrar félagsstarfsemi, svo og ný skrifstofa fyrir félagið. Gert er ráð fyrir, að framkvæmdum Ijúki um áramót. Að undirbúningi framkvæmda unnu þeir Ásgeir Thoroddsen og Ólafur Jensson, en umsjón með verklegum fram- kvæmdum hefur Kristinn Ragnars son. Tómstundanefnd, undir forystu Páls Stefánssonar, gekkst fyrir bridgekeppni og hraðskákmóti í Valhöll, auk þess sem nefndin sá um árshátíð Heimdallar, sem hald in var 14. febr. í Sjálfstæðishús- inu, og var mjög fjölsótt. Ferðanefnd annaðist sumarferð- ir félagsmanna, en formaður nefndarinnar var Gylfi Þór Magn- ússon. Voru alls farnar 5 ferðir, sem tókust með afbrigðum vel. Auk þess, sem að ofan greinir, var á vegum Heimdallar haldið uppi margs konar starfsemi. Árs- þing B.Æ.R., sem haldið var í febrúar, var sótt af þremur Heim- dellingum, þeim Vilborgu Bjama- dóttur, Má Gunnarssyni og Ragn- Þegar lokið var umræðum um skýrslu stjórnar og gjaldkeri, Sverrir H. Gunnlaugsson, hafði gert grein fyrir reikningum fé iagsins, var gengið til stjórnar- kjörs. Formaður var endurkjörinn, Styrmir Gunnarsson, en auk hans eiga sæti í hinni nýju stjórn Bragi Kristjánsson, verzl.maður, Eggert Hauksson, stud. oecon., Grétar B. Kristjánsson, lögfr., Gylfi Þór Magnússon stud. oecon., Halldór Runólfsson, verkam., Har- aldur Sumarliðason, trésm., Jón Magnússon menntaskólanemi, Már Gunnarsson, verzlunarskóla- nemi, Steinar J. Lúðvíksson, kennaraskölanemi, Valur Valsson, stud. oecon., og Vilhjálmur Vil- hjálmsson, verzlunarskólanemi. Allmiklar breytingar urðu nú á stjórn félagsins, því sex af stjórn- armeðlimum gáfu ekki kost á sér til endurkjörs, þau Ásgeir Thor- oddsen, Ragnar Kristjánsson, Sig- urður Hafstein, SjteinarBerg Björnsson, Sverrir H. Gunnlaugs- son og Vilborg Bjarnadóttir. Þakk aði formaður þeim fyrir frábær störf þeirra í þágu félagsins, auk þess að laða að og uppfræða unga fólkið um þau vandamál, sem við er að glíma á sviði þjóðmálanna og skýra fyrir því Sjálfstæðis- stefnuna, gildi hennar og það, sem hún hefur fengið áorkað fyr- ir íslenzka þjóð, megum við ekki gleyma öðru hlutverki, sem okk- ar félagi er falið. Við megum ekki gleyma því, að það er okkar að tendra hugsjónaeldinn og efla bar- áttuhuginn meðal flokksmanna Sjálfstæðisflokksins. Hinar ungu kynslóðir eru framvarðarsveitir stjórnmálaflokkanna. Þeim er ætl- að að leiða þá inn í hinn nýja tíma, aðhæfa stefnu þeirra nýjum staðháttum, viðhalda þrótti og krafti f starfi þeirra. Það er mikil ábyrgð, sem Heim- dalli og öðrum samtökum ungra Sjálfstæðismanna er lögð á herð- ar í stærsta stjórnmálaflokki þjóðarinnar og ég er þeirrar skoð- unar, að þetta séu skyldur, sem við höfum vanrækt. Ef við erum óánægðir með stefnu flokksins og störf f dag, höfum við enga við að sakast nema sjálfa okkur, því að við höfum tækifærin og að- stöðuna til þess að hafa áhrif á gang mála. Okkur hættir stund- Nokkrir fundarmanna, ari Kjartanssyni. U. þ. b. 90 Heim- dellingar sóttu þing Sambands Ungra Sjálfstæðismanna, sem háð var í Reykjavík í lok febr. Kvikmyndanefnd fél. gekkst fyr ir nokkrum kvikmyndakvöldum, sem voru mjög vel sótt, en að auki var efnt til einnar sýningar í Nýja Biói um Jacqueline Kenn- edy. Var sú kvikmynd sýnd fyrir troðfullu húsi og komust færri að en vildu. Formaður kvikmynda nefndar var Ólafur Ragnarsson. þess sem hann flutti félagsmönn- um þakkir fyrlr sína hönd og ný- kjörinnar stjómar fyrir sýnt traust. Fer hér á eftir úrdráttur úr ræðu formanns, Styrmis Gunn- arssonar, sem hann flutti á aðal- fundinum. Hlutverk Heimdallar um til að deila á hina eldri menn fyrir það, sem aflaga fer, en höf- um við alltaf gert okkur grein fyr- ir því, hvernig betur má gera? Höfum við litið nægilega í eigin barm og spurt sjálfa okkur hvern- ig þjóðfélag við viljum byggja upp í þessu harðbýla landi, og höfum við barizt fyrir skoðunum okkar í þeim efnum? Ég hygg að svo sé ekki, að hér sé verkefni, sem við höfum vanrækt. Fyrir réttlátu Að lokum má geta ritgerða- samkeppni þeirrar, sem efnt var til á vegum Heimdallar um „John F. Kennedy — líf hans og starf í þágu heimsfriðar". Nær 20 rit- gerðir bárust og verða úrslit sam- keppninnar gerð kunn fyrir lok þessa mánaðar, en verðlaun eru flugferð til Bandaríkjanna og til baka. Ég geri ráð fyrir að flestir geti verið sammála um, að hið félags- lega starf Heimdallar hefur á liðnu ári verið blómlegt og öfl- ugt. Það má vafalaust enn bæta og auka fjölbreyttnina, koma’ fram með ný fundarform og fleira slfkt, en það er viðfangsefni, sem stjórn Heimdallar vinnur að svo að segja daglega. En um leið og við höld- um uppi öflugu félagsstarfi til og frjálsu þjóðfélagi. Það fer margt öðru vísi en ætl- að var hjá þjóð, serp hefur byggt upp á nokkrum áratugum, það sem aðrar og stærri þjóðir hafa byggt á öldum. Við þökkum forystumönnum Styrmir Gunnarsson. okkar, sem hafa haft forgöngu um stórhuga og byltingarkennda uppbyggingu íslenzks atvinnulffs á undanförnum áratugum, en á- skiljum okkur rétt til þess að berjast fyrir umbótum á því sem aflaga hefur farið. Sterkasta einkenni islenzks þjóðfélags í dag og jafnframt það hættulegasta, eru hin gífurlegu völd, sem sameinað ríkisvald og flokksvald hafa tekið til sín og í raun þýðir of mikil völd í of fárra höndum. Þetta samsafn valda og áhrifa á fárra hendur hefur orðið á kostnað einstaklingsins i þjóðfé Iaginu, þess einstaklings, sem við ungir Sjálfstæðismenn viljum upphefja og skapa tækifæri og möguleika til frjáls lífs, óháðu rikisvaldi og flokkavaldi. Við ungir Sjálfstæðismenn er um hluti af stærsta stjórnmála- flokki þjóðarinnar, samt sem áð- ur æskjum við ekki stjórnmála- flokkunum til handa meiri völd og áhrif en þeim ber og heilbrigt getur talizt. Við berjumst fyrir réttlátu og frjálsu þjóðfélagi, þar sem allir hafa sama rétt og sömu tækifæri en berjumst gegn því þjóðfélagi, sem mismunar þegnunum af póli- tískum ástæðum, hvort sem er við stöðuveitingar, lánveitingar eða annað. Við sjáum ekki ástæðu til af- skipta stjórnmálaflokka af menn- ingarmálum og menntamálum í þeirri mynd sem þau afskipti hafa verið hér á landi. Við viljum fela forystu þeirra áhugamönnum og sérmenntuðum, en ekki stjórn- málamönnum. VÍð mótmælum áhrifum rikis og flokkavalds yfir fjármagninu í landinu og viljum fela það ein- staklingum í hendur. Við viljum berjast fyrir alhliða og fjölbreyttri uppbyggingu ís- lenzks atvinnullfs hér 1 Reykja- vík og úti um landsbyggðina, en við viljum, að sú uppbygging fari fram á grundvelli einkaframtaks en ekki ríkisvalds eða annarra hálf opinberra aðila. Við viljum skapa hér skilyrði fyrir frjálsri skoðanamyndun. Hún er ekki til í dag. ísland vantar frjáls blöð. Fyrr en Island hefur fengið frjálsa pressu verður hér aldrei um að ræða frjálsa skoðanamynd un. Við viljum, ungir Sjálfstæðis- menn, skapa hér opið og frjálst þjóðfélag þar sem réttlæti og sanngirni ríkir og jöfn tækifæri Framh á Ms in □ . 75

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.