Vísir - 15.10.1964, Blaðsíða 6

Vísir - 15.10.1964, Blaðsíða 6
6 V í SIR . Fimmtudagur 15. október 1964. ÁRNASAFN - / Framh. at' 9. síðu izt starfi við safnið ef það hefði verið heima? — Jú, ég geri fastlega ráð fyrir því. — ]YJ‘S langar að spyrja yður um e’itt, pró- fessor Jón. Ég talaði í gær við Bröndum Nielsen. Hann bar þá sögu upp á yður, að þér .hefðuð fengið lánuð heiman frá íslandi nokkur af fornbréfa- handritunum eða diplomunum, sem íslendingar fengu úr dönsk um skjalasöfnum 1927. En þeg- ar þetta hefði kom'ið til yðar, þá hefði komið í ljós, að pakk- inn hefði aldrei verið opnaður á fslandi. Er þetta rétt? Jón Helgason stekkur upp af sæti sínu. — Hvílík endalaus vitleysa, það er eins og annað sem þessi gamli maður segir. Þetta er svo mikil fjarstæða, ég skal sýna yður hvernig fom- bréfin eru geymd á fslandi. Og hann fer og sækir pappaöskju, opnar hana og í henn'i liggja laus bréf og skjöl. — Svona era fornbréfin geymd heima á fslandi, hvernig í ósköpunum er hægt að sjá, hvort hreyft hefur verið við þeim. Þetta er eins og hver önnur vitleysa hjá gamla manninum og ég hefði aldrei getað látið mér slfkt um munn ,fara. — Get ég spurt yður, hvort þér viljið sjálfur persónulega, að handritin verði flutt heim? — Nei, þessi spurning er oft ■ lögð fyrir mig og afstaða mín er, að ég svara henni ekki. Þér verðið að skilja, að ég er f þeirri aðstöðu sem safnvörður og starfsmaður Árna Magnús- sonar stofnunarinnar og verð þe's8"Vegna að vera hlutlaus. Það e'ina sem ég geri er að gefa hlutlægar upplýsingar um safn- ið. — En finnst ekki bókasafns- mönnum eins og yður sárt, að láta taka safn eins og þetta og hluta það f sundur? — Þvf get ég ekki neitað mér sárnar sundurlimunin. Maður v'ildi helzt óska að safn- ið fengi að vera ein heild. En það er ekki mitt að ákveða neitt í þvf, né hafa áhrif á þá sem ráða. — Mætti °rða spurning- una öðru vísi. Ég hef heyrt orðróm og mér fannst Bröndum Nielsen Vilja láta í það skína,' að þér væruð mót- fallinn heimflutningi handrit- anna. Hann t.laði t.d. um að starf yðar við uppeldi ungra fræðimanna væri eyðilagt o.s. frv. Er það rétt. að þér séuð mótfallinn heimflutningi safns- ins? — Sé einhver slíkur orðróm- ur uppi vil ég gjarnan taka það fram, að hann er tilhæfi- laus með öllu. Það er hreinlega ósatt að ég sé á móti því. Meire vil ég ekki segja. — Ég leggja fyrir yður aðra úrslita- spurningu. Mótstöðumenn hand ritaafhendingar halda því fram að vís’indastarfið sem unnið er hér í höfn muni leggjast niður ef handritin eru flutt heim. Er- uð þér líka þeirrar skoðunar. — Nei, það er ekki rétt. Við segjum hér að rannsóknirnar haldi áfram hér, þó handritin verði send heim. Okkur hefur aldrei dottið f hug að halda því fram að verkið hér þurfi að stöðvast hér þrátt fyrir það. Það er fullt eins gott að rann- saka handritin af góðum ljós- myndum éins og frumhandrit- unum og sé um eitthvað vafa- mál að ræða þá er hægt að fá frumhandritið sent að heiman, eða skreppa heim og athuga það. — En þér viljið láta ljós- mynda allt safn'ið áður? — Já, við verðum að setja það ófrávíkjanlega skilyrði að handritin verði vandlega ljós- mynduð áður en þau eru send í burtu. — Hvað tekur það langan tíma? Er ekki hægt að gera bað í snatri á míkrófilmur? — Nei, það er mjög tíma- frek og vandunnin vinna. Það er ekki hægt að gera það á míkrófilmur. Með núverandi á- framhaldi myndi það taka 10— 15 ár, en hægt væri að hraða því með auknum fjárframlögum. — Verðið þér áfram í Kaup- mannahöfh, þó handritin fari heini? 'r>l i,,s; ' '' "í: : Já. ég geri ráð fyrir-'því °g ég geri lfka ráð fyrir að geta haldið rannsóknum áfram — Tjér sögðuð að það myndi * ekki stöðva rannsókn- arstörf hér, þó handritin væra send heim, en nú halda Dan’ir því sérstaklega fram, að starf við forníslenzku orðabókina myndi eyðileggjast ef handritin væru send heim. Og þeir áætla að það starf taki enn 25 ár. Hvað segið þér um það? — Ég get að vísu ekkert sagt um starfið við orðabókina, en ef við getum notað ljós- myndir við rannsóknarstörf okkar, ættu þeir við orðabók- ina að geta látið sér það nægja. Jgftir þetta samtal við pró- fessor Jón Helgason gekk ég u.n safn’ið. Inn af skrifstofu hans er sjálft handritasafnið f bremur bókaskápsreólum með Þessa ljósmynd tók Björn Pálsson í fyrradag f leit sinni að vélbátnum Sæfelli. Þannig var flogið víða meðfram ströndinni. Þessi mynd var tekin við Straumnes. Á henni sést á miðri myndinni flakið af gamla Goðafossi. «- hillum til beggja hliða. Meira en svo fer ekki fyrir öllu þessu Verðmæta safni, sem sumir hafa metið á 100 milljón krónur aðrir á 500 milljón krónur matsupphæðir út í loftið. Ég settist einnig um stund niður hjá Stefáni Karlssyni hann var að Vinna að textaút- gáfu á heilagramannasögum, en auk þess lá á borðinu hjá hon- um sú merkilega Möðruvalla- bók. Hann ræddi við mig um stund og sagði mér frá þvt, hvernig starfið við handritin líktist starfi leynilögreglu- manns, athugun á rithöndum, innbindingu og le'it í annálum. Þknnig mætti til’ déh’iis'Téiða líkur áð því að tíáíidtörejög- "r maður hefði skrifað Hauksbók á eins eða tveggja ára tímabili, þegar hann hvarf aftur til ís- lands frá Noregi þar sem hann var annars búsettur. hér hitti ég ungfrú Agnete Loth, unga fallega konu, sem starfar við safnið, en hef- ur lent I því, að hún er meðal þeirra sem undirrita endemis bæklinginn. Hún talaði ótrú- lega fallega íslenzku, rödd hennar blæmjúk svo maður fann að hún hafði ekki aðeins lært islenzka tungu, kona sem þannig talaði hlaut að elska þetta tungumál. Það sem hún hafði helzt við m'ig að segja, var að sér þætti mjög leitt að í bæklingnum hefði staðið að handrit á Lands bókasafn'inu hefðu legið þar í megnustu vanhirðu og undir skemmdum. Þetta hefði hún ekki viljað segja. — En þér eruð mótfallin því, að handritin verði send heim til íslands? — Já, ég held að ef það verð- ur gert, þá muni ég gráta í hálf- an mánuð á eftir Þorsteinn Thorarensen. Sigurvon — Framh at bls I norður af og hefði verið að leita að síld. 240 ÞÚS. KR. TJÓN Þá sagðist Guðmundur Ibsen hafa verið nýbúinn að fá matið ern hjáiijetarpeistaranum á Eskifirði, sem gerði við nót hans til bráða birgða á dögunum. Það er álit netame'istarans að það kosti 230 til 240 þúsund krónur að gera nótina jafngóða, fyrir utan bráðabirgðaviðgerð, sem fór fram á henni. MILLIRÍKJAMÁL? Visir spurði útgerðarmanninn, Sigijrð Pétursson, hvaða vonir hann gerði sér um að fá þetta tjón bætt. Hann kvað rafn og númer rússneska bátsins, sem sigldi inn í nót Sigurvonar á dögunum, hafa náðst, og yrði það sent til dómsmálaráðuneyt- is'ins og utanríkisráðuneytisins í Reykjavík ásamt útskrift af sjó- prófum, sem fram fóru á Eski- firði í þessu máli. Ráðuneytið mun síðan eflaust athuga þetta mál eftir diplómatiskri leið og freista þess að fá þennan skaða bættan, sagði útgerðarmaðurinn að lokum. Fundur var í sameinuðu þingi í gær. Á dagskrá var kosning fastanefnda, þ. e. fjárveitinga- nefndar, skipuð 9 mönnum, ut- anrikismálanefndar, skipuð 7 mönnum og 7 til vara, og alls- herjarnefndar, skipuð 7 mönnum og 7 til vara, svo og kosning þingfararkaupsnefndar, skipuð 5 mönnum. í fjárveitinganefnd voru kjörn- ir eftirtaláir þingmenn: Jón Árna son, Gunnar Gíslason, Jónas Pét- ursson, Matthfas Bjarnason, Bire ir Finnsson, Halldór Ásgrímsson. Hallfiór E. Sigurðsson, Ingvar Gíslason og Geir "unnarsson. Við kosningu í utanríkismála- nefnd komu fram 3 listar. Af A-lista voru kjörnir eftirtaldir menn: Ólafur Thors, Sigurður Bjarnason, Davíð Ólafsson og Emil Jónsson. Af B-lista Hermann Jónasson og Þórarinn Þórarins- son og af C-lista Einar Olgeirs- son. Varamenn voru kjörnir, af A-lista: Magnús Jónsson, Matthías Á. Mathiesen. Þorvaldur Garðar Kristjánsson og Gylfi Þ. Gísla- son, af B-lista: Ólafur Jóhannes- son og Helgi Bergs og af C-lista Gils Guðmundsson. Við kosningu í Allsherjarnefnd komu fram 3 iistar. Kjörnir voru' r A-Iista Pétur Sigurðsson, Matt hías Bjarnason, Sverrir Júlíus- son og Jón Þorsteinsson. Af B- lista Einar Ágústsson og Gísli Guðmundj-an og af C-lista Ragn ar Arnalds. 3 listar komu fram Við kosn- ingu þingfararkaupsnefndar. Með því að fleiri nöfn voru á þessum listum en kjósa skyldi, þurfti at- kvæðagreiðsla að fara fram. Fór hún þannig, að A-listi hlaut 31 atkv. og 3 menn kjörna, B-listinn hlaut 19 atkv. og 2 menn kjörna og C-listinn 3 atkv. og engan mann kjörinn. Af A-lista voru kosnir: Einar Ingimundarson, Jón as Pétursson og Eggert G. Þor- steinsson. Af B-lista voru kosnir: Halldór Ágústsson og Halldór E. Sigurðsson. Rafreigciiir Framh. af 1. síðu: um 4 þús. Rafreiknirinn er eink- um gerður til þess að vinna að hinum ýmsu vfsindastörfum og flóknum útreikningum, en skýrsluvéla-rafreiknirinn aftur á móti gerður meira fyrír skrif- finnskuna Þessir rafreiknar eru notaðir erlendis af háskólum, vísindastofnunum og minni fyr- irtækjum“, sagði Ottó. Rafreiknirinh var í morgun fluttur inn í Tollvörageymslu, þar sem hann verður geymdur þar til kjallari hins nýja húsnæð- is vísindastofnunarinnar verður tilbúinn, en þar verður rafreikn- irinn hafður í framtíðinni. Há- skóli íslands mun einkum nota þennan rafreikni til þess að kenna og þjálfa vísindamenn og tilvonandi visindamenn i með- ferð rafreiknivéla og jafnhliða því vinna að ýmsum vísinda- og rannsóknarstörfum. — Þessi nýi rafreiknir er í þremur ein- ingum og tekur svipað rúm og þrjú skrifborð. I.B.M.-umboðið mun að sjálfsögðu leggja til tæknimenntaða menn í sam- bandi við uppsetningu og eftir- lit með rafreikninum, en verk- fræðingarnir Oddur Benedikts- son og Helgi Sigvaldason munu m. a. annast kennslu og þjálfun. I dag eru í notkun fleiri þúsund rafreiknar svipaðir þessum og hefur I.B.M. selt háskólum og vísindastofnunum þessar vélar með allt að 60% afslætti, en þessi rafreiknir er sá síðasti, sem I.B.M. selur með svo mikl- um afslætti. að „og Bretland — Framh. af 1. síðu: ar. Blaðið Daily Mail segir, alger óvissa sé um úrslitin hvað sem er geti gerzt“ . Leiðtogar allra flokka voru sigurreifir í gærkvöldi og ræddu mest innanlandsmálin. Sir Alec Douglas Home forsæt isráðherra fiutti lokaræðu í kjördæmi sfnu í Skotlandi, en Harold Wilson f Liverpool og var báðum vel fagnað. Frjálslyndi flokkurinn gerir sér miklar vonir um aukið fylgi. 3 Faðir minn INGIMUNDUR GUÐMUNDSSON Lindargötu 32 andaðist í sjúkrahúsi aðfaranótt sunnudags 11. þ. m. Útförin fer fram frá Fossvogskirkju mánudaginn 19. þ. m. kl. 13,30 Ágúst Ingimundarson og aðstandendur.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.