Vísir - 16.10.1964, Side 8

Vísir - 16.10.1964, Side 8
s V I S I R . Föstudagur 16. október 1964. VÍSIR ^igeianth. Blaðaútgatan v'ISIB Ritstjöri: Gunnai G. Schram ASstoðarritstjóri: Ajtel Thorsteinson Fréttastjórar Þorsteinn Ö. Thorarensen Björgvin Guðmundssor Ritstjómarskrifstofur Laugaveg: 178 Auglýsingar og afgreiðsla Ingólfsstrætí 3 Áskriftargjald er 30 tcr á mánuði í lausasölu 5 kr eint. - Simi 11660 (5 línur) PrentsmiSja Visis - Edda h.t Raunhæfur samanburður gtjómarandstöðublöðin hafa í sumar og haust haldið uppí. miklum áróðri þess efnis, að íslendingar væru oinhver skattpíndasta þjóð veraldar. Ef til vill hafa linhverjir tekið mark á þessum áróðri, þótt hann eigi harla lítið skylt við sannleikann eða staðreyndir máls- ins. Hið sanna er, að skattar eru hér á landi lægri en í flestum nágrannalöndunum. Það þekkja allir þeir íslendingar, sem búsettir hafa verið erlendis og aðrir, sem málin hafa kynnt sér. Fjármálaráðherra Gunnar Thoroddsen gerði skattamálin að umræðuefni á fundi Sjálfstæðismanna nú í vikunni. Vék hann nokkuð að þessu atriði og gerði samanburð á sköttum hér og í nágrannalöndunum. Tölur liggja nú þegar fyrir um slíkan samanburð hér á landi og í Noregi. Hér á landi greiðir meðalfjölskylda kr. 3.600 í skatta af 150.000 króna tekjum, en í Noregi 7.244 krónur. Af 200 þús- und króna tekjum greiðir hún hérlendis 16.900 krónur, en í Noregi 18.000 krónur. Útsvörin í þessum tveimur löndum eru hins vegar svipuð. Þessi óvefengjanlegi samanburður sýnir, að skattar eru hér verúlega lægri en hjá Norðmönnum. J,á hefir stjómarandstaðan einnig haldið því fram, að opinberar álögur í heild væru hér mun hærri én í öðr- um löndum. Slíkur samanburður er miðaður við þann hluta, sem opinberir aðilar, ríki og sveitarfélög, taka til sín af þjóðarframleiðslunni með beinum og óbein- um sköttum, tollum og almannatryggingargjaldi. At- hugun hefir leitt í ljós, að þetta hlutfall var á s.l. ári 40 af hundraði í Svíþjóð, 37 í Vestur-Þýzkalandi, 36 í Noregi, 33 í Bretlandi, 29 í Danmörku og lægst hér á íslandi, eða 27 af hundraði. Fjármálaráðherra benti á, að þetta hlutfall yrði ekki óhagstæðara í ár og álög- ur ekki hærri prósenta þjóðarframleiðslunnar en í fyrra. Það væri því síður en svo rétt að álögur væru hér hærri en annars staðar. Þessar tölur sýna, hve fráleitur og óskammfeilinn áróður stjórnarandstöðunn- ar í skattamálum hefir verið, — ekki sízt þegar það er haft í huga, að nú stendur fyrir dyrum ný breyt- ing skattalaganna, sem miðar að því að skattar lækki á lágtekjum og fjölskyldufólki. Fall Krúsévs Rússum er greinilega að fara fram. Þeir fangelsa ekki lengur fyrrverandi valdhafa sína og lífláta. Stjórnar- byltingin í gær fór friðsamlega fram. Ugglaust hefir hin harða deila við Kínverja átt ríkastan þáttinn í falli Krúsévs, þótt enn sé erfitt að segja hver sé. orsök ein- ræðisstjómarskiptanna. Gróflega dapurlegt er hlut- skipti íslenzku kommúnistadeildarinnar. Á einni nóttu verða þeir að skipta um hollustu sem húsbónda. Það er von að Þjóðviljinn sé áttavilltur i morgun. ERLENDAR BÆKUR Dýpst í þankans djúp, þótt köfum og dýpst í námum fróðleiks gröfum, í botninn aidrei andinn sér. Svo er fyrir að þakka að marga hefur islenzk þjóð átt þá góða leiðsögumennina, en þó fáa slíka sem Grím Thomsen. Sá sem hans Ieiðsögu hlítir. Hins lét ég ógetið, að í bréfi sem fylgdi henni, sagðist hann mundu senda mér aðra bók, þeg ar hún kæmi út, en hún var þá í prentun; kvaðst ætla að ég mundi hafa ánægju af að lesa hana. Vitaskuld stóð hann við orð sín. Bók þessi: J.G. Bennett: A Spiritual Psychology (Hodder & Stoughton Ltd., 21 sh), kom út í júní og barst mér strax. Ég var um þær mundir sokkinn niður i önnur efn; og sinnti bók inni lítið; leit þó í hana og virtist sem hún mundi strembin, lagði hana til hliðar og tók hana ekki fram aftur fyrr en í september. Þá varð allt ann að uppi á teningnum og ég hafði ekki lengi Iesið er mér varð ljóst að bókin var harla hug- næm og vekjandi. Eftir að hafa lokið henni tel ég rétt að benda lesendum Vísis á hana. Endur fyrir löngu, fjörutíu árum og meir, hafði ég lesið tvær bækur um sálarfræði, aðra á ensku, hina á íslenzku og þótt báðar nokkuð þurrar. Ég græddi lítið á lestrinum. Þessi bók er með mjög öðrum hætti, Bók Johnsons get ég ekki betur séð en að eig; erindi til allra þeirra manna, er ensku lesa og um andleg mál hugsa, en ég hygg að sumir kaflarnir í bók Bennetts muni þreyta ýmsa þá, sem lítt eru vanir að lesa um heimspekileg efni. Þeim, sem lesið hafa ensk guðspekirit mun varla reynast hún erfið og fer því þó fjarri að höfundurinn þræði leiðir guðspekinga — að svo miklu leyti sem mfn harla takmarkaða þekking ieyfir mér um að dæma. Það er ekki efamál að margt er merkilegt í þessari nýju bók, en margt er þar, sem ekki er á mínum færum að kveða upp dóm um. Sumt efni hennar mun óþekkt I vestrænum bókmennt- um þar til núna síðasta ára- tuginn ,— eða a.m.k. mjög lít- ið þekkt. Við sumar kenningarn ar er ég hræddur um að ég og mfnir líkar verði að svo komnu að setja spurningamerki. Ekki kemur annað til mála en sumt það, sem hér er sagt eigi eftir að draga að sér tals- verða athygli og sumt af því LEITIN ÞROTLAUSA rnun naumast reika skaðlega langt af réttum vegi. Og næsta fá munú þau reynast vegamót- in á iífsleiðinni að ekki hafi hann hlaðið þar vörðu, ef vel er skyggnzt um á lanr'abréfinu hans. Erum við ekki öll, allur þessi ótölulegi hópur samferðafólks, að svipast um eftir réttri leið gegnum þann myrkvið sem við höfum verið dæmd til að fara um? Máske ekki öll, en án efa meginþorrinn, og þó ákaf- lega mörg án þess uð gera okk' ur það' ljóst. Ailir munu leit- endurnir finna eitthvað; en eins og Grímur segir í Hnunum hér að ofan, er það vonlaust að ætia sér að finna leiðarendann. Hitt segir hann skyldu okkar að leita, beita huganum. Og sammála eru þeir um það, Ein ar Benediktsson og Grímur, að þar sem skilninginn þrjóti, þar verði trúin að taka við. Út á gróðurlausa eyðimörkina vill hvorugur þeirra leiða okkur — enda illt verk að leiða nokk- urn þangað. Einhverja lesendur Vísis mun reka minni til þess, að um miðjan vetur síðastliðinn skrif- aði ég nokkrar línur um bók eftir R.C. Johnson. A Religious Outlook for Modern Man. Þær urðu til þess, að alls ekki fáir öfluðu sér hennar, og engan hef ég enn fyrir hitt er iðraði þess. Ég gat þess að gamall vinur f London hefði sent mér hana. enda nefnir höfundurinn hana „andlega“. En hann er stærð- fræðingur að ménntun, aldrað- Snæbjörn Jónsson. ur maður, sem skipað hefur virðingarstöðu. Ekki hefir hann takmarkað sig við stærðfræðina heldur sökkt sér niður í aust- rænar tungur, austræna heim- speki og margt annað að þvf er virðist. Lærdómur hans er bersýnilega mjög víðtækur. Þessi bók er að vonum harla frábrugðin hinni fyrri, og jaðra þær þó saman á sumum sviðum ætla ég vandmeðfarið, enda síð ur en svo að höfundurinn dragi dul á það. Ég mundi ætla að fyrir presta væri það vel, að kynna sér kenningar Bennetts. Um lækna þori ég ekki að segja en augljóslega er þarna um merkilegar lækningar að ræða, með hverjum hætti sem þær ger ast Og dæmi eru þess, að til þeirra hafa læknar vfsað þeim sjúklingum, sem hin almennu Iæknavísindi hlutu að dæma til dauða og áttu því ekkert á hættu. I sumum tiifellum hafa þessir menn læknast að fullu. Slíkra lækninga skyldi þó eng- inn leita fyrr en önnur sund eru lokuð. • Höfundurinn er fágætlega op inskár um sjálfan sig og sfn málefni. Mörgum mun þykja merkilegt að lesa það sem hann segir af sinni eigin trúarreynslu (bls. 24 og hinar næstu) Atburð urinn sem hann segir frá á bis. 19 er óneitanlega athyglisverð- ur. Má vera að sálfræðingar telji sig geta gert tilraun til þess að skýra hann, en hitt mun þó sannast að- hann sé mannlegum skilningi ofvaxinn: Þótt hátt vér hugsa ættum, hét guð ei að sjálfir mættum skammta oss af skilningstré. Já, merkileg bók. En ekki fyr ir hvern mann að gamna sér við Sn. J Ný Islandskvikmynd fyrir 1.2 millj. króna Samib um sýningar i sjónvarpi og kvikmyndahúsum viba um heim Kvikmyndatökufélagið Geysis- myndir h.f. hefur látið gera vandaða 35 mm cinemascope litkvikmynd af tslandi og ís- lenzku þjóðlífi. Kostar mynd- in um 1,2 milljónir kr. Hafa verið gerðir samningar um sýn ingu myndarinnar í kvikmynda húsum og sjónvarpi víðs vegar um heim og má telja vist, að milljónir manna muni sjá hana Gestur Þorgrímsson skýrði Vísi svo frá f morgun, að myndin yrði sýnd f Austurbæj- arbfói í Reykjavík fljótlega, ‘en unnið væri að þvf f Stokk- hólmi um þessar mundir að setja enskan texta f myndina fvrir sýningarnar erlendis. Talið er, að myndin muni hafa mikið landkynningargildi og hefur því verið lagt til f fjárlagafrumvarpinu, að veittur verði 300 þús kr. styrkur til myndarinnar. Umferðarslys Rétt eftir hádegið í fyrrad. varð umferðarslys á Langholtsvegi, á móts við hús nr. 103. Drengur, Þorbjörn Sverrir Krist insson að nafni, hljóp út á götu f veg fyrir bfl, sem kom aðvffandi. Drengurinn kastaðist f götuna og meiddist nokkuð, marðist m. a. tals vert á faeti og hlaut blððnasir.

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.