Vísir - 28.11.1964, Blaðsíða 1

Vísir - 28.11.1964, Blaðsíða 1
VÍSIR 54. árg. — Laugardagur 28. növember 1964. — 264. tbl. ( [ Fró ciðfxlfundi ( útvegsmanna 1 Emil Jónsson sjávarútvegsmála- 1 ráðherra flytur ræðu sína á J LÍÚ-fundi í gær. Við hliðina á ^ honum situr Jón Árnason, al- t þingismaður og fundarstjóri. Bifreiðaeigendur vilja reisa mótel fyrir innan Elliðaár Þar á einnig að verða tjaldstæði og stæði fyrir hjólhýsi Félag íslenzkra bifreiðaeig- enda hefur sótt um til borgar- ráðs allstóra lóð fyrir innan Elliðaár. Ætlunin er að þar verði bækistöð fyrir félagið, geymsla fyrir bíla þess, sjálfs- afgreiðsluverkstæði fyrir félags- menn, tjaldstæði fyrir utan- bæjarmenn og einnig mótei. Frá þessu er skýrt f nýú1 komnum Öku-þór, tímariti FIB. Starfsem'i félagsins hefur vaxið mjög mikið á undanförnum ár- um og hefur m. a. félagatalan tvöfaldazt á s.l. tveimur árum. Telur því félagið nauðsynlegt að það fái ákveðið athafna- svæði fyrir starfsemi sína. Á þessu svæði er ætlunin að hafa m. a. skrifstofur félagsins, og geymslur fyrir bíla þess, en félagið stefnir að því að eign- ast fleiri bíla til þess að ann- ast skyndiþjónustu fyrir félags- menn, bæði að sumri og vetri. Einnig er ætlunin að byggja þar sjálfsafgreiðsluverkstæði fyrir félagsmenn, þar sem þeir geta komið með bíla sína til athugunar og smærri viðgerða. Þá er einnig ætlunin að á þessu svæði/verði tjaldstæði fyrir ut- anbæjarmenn og einnig útbún- aður til þess að hafa hjólhýsi, Framh. á bls. 6 Ræða sjávarútvegsmálaráðherra á / athugun, hvort leyfa skuli togurunum að veiða innan 12 mílna markanna Nýjar tilraunir með togara til síldveiða Vandi togaranna hefur verið athugaður sérstak- lega á þessu ári, sagði Emil Jónsson sjávarútvegsmála- ráðherra á aðalfundi LÍÚ í gær. Sagði ráðherrann, að sú athugun hefði leitt í ljós, að vandamál þeirra yrði ekki leyst nema þeir fengju að veiða innan 12 VR segir samningsbrot hafa átt sér stað Á félagsfundi V.R. i fyrrakvöld voru eftirfarandi ályktanir gerðar: Félagsfundur í V.R. haldinn í Lidó 26. nóv. 1964 samþykkir aö óska eftir að vinnuveitendur setjisi ! nú þegar að samningsborði með V R. um lokunartímamálið með :il- liti til alvarlegra brota af hálf j ! viðsemjenda V.R. á 7. gr. kjara- ; samnings V. R., en sú grein er i erundvöllur þeirra kjara, sem af- -eiðslufólk býr við. Fundurinn krefst þess að meðan. | beðið er eftir svari v'iðsemjenda V BLAÐIÐ í DAG R. og viðræður fara fram, hindn Framh. á bls. 6 mílna landhelginnar á fleiri svæðum en nú ætti sér stað og á lengri tíma en nú væri heimilað. Kvað ráð- herrann það nú í athugun hvort Ieyfa ætti togurun- um frekari veiðar á þess- um svæðum. Emil Jónsson kvað það hafa blandazt inn í umræður um vanda mál to^ -anna, að hinir smærri bát ar ættu einnig við vanda að stríða en þeir hefðu sótt það mjög fast að fá að stunda togveiðar innan umræddra marka. Emil sagði: „Hér er um mjög viðkvæmt og vanda- samt mál að ræða og hefur engin ákvörðun verið tekin um það enn sem komið er. Er þar um svipað vandamál að ræða og dragnótar- vandamálið, sem alltaf er uppi og ekki fæst samstaða um. Norður- land hefur t. d. fram til þessa verið lokað fyrir dragnótaveiðum innan 12 mílna markanna þangað til í sumar, að Húnaflói og Skagafjörður að nokkru Ieyti hafa verið opnaðir. | Hefur niðurstaðan þar verið já- kvæð, að ég vildi telja þar sem dragnótabátar, sem stundað hafa veiðar á þessum svæðum hafa aflað sæmilega en lítil eða engin veruleg veiði hefur fengizt með öðrum veið arfærum. Togveiði innan 12 mílna I markanna hefur líka verið mjög um deild og ekki hægt að segja á þess | ari stundu hvernig leyst skuli“. Ráðherrann sagði tilraunir hafa verið gerðar með togarana til síld- veiða. Hefðu menn komið auga á, að þeir gætu verið hin ákjósanleg- ustu skip til síldveiða ef hægt væri að hota þá tjl þeirra veiða. En byggingarlag þéirra og erfiðleikar við að snúa þeim hefði komið í veg fyrir að unnt væri að nota þá við þessar veiðar. Hefði verið gerð til- raun í þessu skyni en hún mis- tekizt. Skipaskoðunarstjóri hefði haft mál þetta til athugunar og hefði hann nú til athugunar nýja aðferð sem gæfi vonir um að lausn þessa máls væri ekki langt undan. Ef það tækist með litlum áukaút- búnaði að koma þvi til leiðar að snúningsmöguleikar togaranna yrðu auknir og þeir þannig gerðir að góðum síldveiðiskipum væru þeim skapaðir möguleikar til bættr- jar afkomu, sagði. sjávarútvegsmála 1 ráðherra. Reykjavíkurborg starfrækir heima- vistarskóla að Hlaðgerðarkoti i>ar dveljast stúlkur, sem átt hafa í erfiðleikum í skóla eða á heimilum sínum Reykjavíkurborg hefur nú komið á fót heimavistarskóla fyrir stúlkur á skólaskyldualdri, sem átt hafa í erfiðleikum í skól anum eða á heimilum sfnum. Verður skólinn starfræktur með svipuðu sniði og heimavistar- skólinn, sem Reykjavikurborg rekur fyrir drengi að Jaðri. Peg ar eru komnar fimm stúlkur ! skólann og næstu vikur koma 2—3, en að Hlaðgerðarkoti er aðstaða til þess að hafa alls um 20 stúlkur. Skólastjóri er Jóna Hansen. Stofnun heimavistarskóla fyr- ir stúlkur á skólaskyldualdri hef ur verið í deiglunni undanfarin ár, en það var svo á s.l. ári sem Sigríður Sumarliðadóttir, starfs- maður Reykjavikurborgar, var látin kanna þörfina á slíkum skóla. Talaði hún þá við skóla- stjóra allra barna og gagnfræða skóla borgarinnar og fékk upp- gefin nöfn þeirra stúlkna, sem ættu í sérstökum erfiðleikum. Átti hún síðan viðtal við kenn- arana, fór inn á heimilin og tal aði við foreldrana og stúlkurnar sjálfar. Heimavistarskólinn að Hlað- gerðarkoti, sem er eign Mæðra- styrksnefndar tók svo til starfa 1 nóvember s.l. Allar þær stúlk ur sem fara að Hlaðgerðakoti, fara þangað eftir að Sálfræði- deild skólanna hefur haft með mál þeirra að gera, en yfirmaður deildarinnar er Jónas Pálsson, sálfræðingur. Vísir átti í gær stutt samtal við Jónu Hansen, skólastjóra og spurði hana um starfsemi skól- ans. „Það er alltof fljótt að segja um árangurinn, en okkur líkar vel hérna og aðstaðan hér er öll mjög góð, Gera má ráð fyrir að hægt sé að hafa hér um 20 stúlkur og eru þrjár stúlkur saman i herbergi. Auður Elísdótt ir, er hér mér til aðstoðar og er hún m. a. úti með telpurnar i fjallgöngu og þegar snjór er, er gott skíðafæri hér fyrir ofan. Þá er einnig mjög stutt í sund- laug héðan, sagði Jóna. Áætlað er að í skólanum verði stúlkur á skólaskyldualdri, en ætla má að flestar verði á aldr- inum 11 — 14 ára. Stúlkurnar eru bæði í bóklegu og hagnýtu verklegu námi. Þær matreiða að miklu leyti fyrir sig sjálfar, unc’ ir stjórn matráðskonu og einnig er sérstök kona sem leiðbeinir þeim við sauma og gera þær sjálfar við sín föt og ræsta her- bergi sín.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.