Vísir - 02.01.1965, Síða 1
VtSIR
55. árg. — Laugardagur 2. janúar 1965. — 1 tbl.
Thors
látinn
j\ð morgni gamlársdags andaðist Ólafur Thors.
Með honum er genginn einn hinn mikil-
hæfasti stjómmálaskörungur íslands á þessari
öld, þjóðarleiðtogi og einstæður persónuleiki.
Ólafur Thors fór oftar með forystu ríkisstjóma
en nokkur annar maður. Stjómarár hans mörk-
uðust af mesta framfaraskeiðinu í sögu þjóðar-
innar. Öll störf hans einkenndust af stórhug,
festu, og mikilli ósérhlífni. Ekki sízt verður hans
minnzt sem farsæls formanns stærsta stjórn-
málaflokks þjóðarinnar, Sjálfstæðisflokksins, um
þriggja áratuga skeið.
Við fráfall Ólafs Thors minnast menn um land
allt, í öllum stjómmálaflokkum, góðs drengs og
glæsilegs foringja. Vísir vottar frú Ingibjörgu,
bömum þeirra hjóna og öðmm ættingjum samúð
og hluttekningu á þessari stundu.
ÓLAFUR THORS
Ólafur Thors andaðist á
Landakotsspítala snenuna að
morgni hins 31. desember.
Hann hafði Iengi átt við van-
heilsu að búa en veiktist
skyndilega og var fluttur á
sjúkrahús þungt haldinn þann
30. desember. Var hann á
sjötugasta og þriðja aldurs-
ári er hann lézt.
Forseti islands, Ásgeir Ás-
geirsson, minntist Ólafs
Thors í ávarpi sínu til þjóðar-
innar á nýársdag með eftirfar
andi orðum:
„Það eiga margir ástvina
að sakna, og í gær barst
fregnin um andlát Ólafs
Thors, mikilhæfs stjómmála-
manns, góðs drengs og ágæts
félaga. Ég votta frú Ingi-
björgu og fjölskyldu hans
dýpstu samúð.“
★
Forsætisráðherra, Bjami
Benediktsson minntist Ólafs
Thors í útvarpsræðu sinni á
gamlársdag með eftirfarandi
orðum:
„Og á síðasta degi ársins
andaðist Ólafur Thors. Þó að
hann hafi átt við langvarandi
vanheilsu að búa, bar and-
lát hans að með skyndilegum
hætti. Ég er þess vegna ekki
viðbúinn að veita honum í
kvöld verðug eftirmæli. Við
áttum langt, og ég Ieyfi mér
að segja óvenju náið sam-
starf. Ég á honum ósegjan-
lega mikið að þakka fyrir öll
okkar kynni. F.rfitt er að
segja hvað mér hefur fund-
ist mest til um i fari hans.
Ef til vill var það bjartsýni
hans og sá eiginleiki að ætla
öðrum gott, þangað til hann
reyndi annað. Ólafi kom al-
drei til hugar að Iáta hendur
fallast, þótt móti blési. Hann
var allra manna fyrstur að
átta sig og úrræðagóður
flestum fremur. Hann var
sjálfkjörinn foringi og menn
lutu leiðsögn hans með Ijúfu
geði. Mörgum fleiri en mér
mun finnast verða svipminna
og daufara á íslandi eftir að
ÓÍafur Thors er héðan, horf-
inn.
ÖIl sendir þjóðin eiginkonu
hans og ættingjum alúðar-
kveðjur og biður hinum látna
höfðingja blessunar.
Með tryggð til máls og manna
á mátt hins góða og sanna
þú trúðir traust og fast.
Hér er nú starfsins endi.
1 æðri stjómarhendi
er það, sem heitt í hug þú
barst.“
Þessi orð Einars Benedikts
sonar um föður sinn tek ég
mér í munn um minn látna
vin.
Og út yfir það æfikvöld
skal andinn lifa á nýrri öld.
★
Ólafur Thors fæddist í Borg
amesi 19. janúar 1892, sonur
hjónanna Margrétar Þorbjarg
ar Kristjánsdóttur og Thors
Jensen.
Hann lauk stúdentsprófi
1912 og hóf störf við fyrir-
tæki föður síns. Árið 1925 var
hann kjörinn á þing fyrir
Gullbringu- og Kjósarsýslu
og átti sæti óslitið síðan á
þingi.
í miðstjóm Sjálfstæðis-
flokksins var hann kjörinn
frá stofnun flokksins 1928.
Formaður miðstjómar og
þingflokks Sjálfstæðismanna
varð hann 1934 og allt til árs
ins 1961 er hann baðst lausn
ar frá þeim embættum og
Bjami Benediktsson var kjör-
inn í hans stað.
Ráðherra varð Ólafur
Thors í fyrsta sinni 1932 í rík-
isstjóm Ásgeirs Ásgeirssonar
Árið 1939 varð hann atvinnu-
málaráðherra í bjóðstjóminni
og gegndi því embætti til
vors 1942 er hann varð í
fyrsta sinn forsætisráðherra.
Auk þess gegndi hann störf-
um atvinnumálaráðherra í
stjóm Steingríms Steinþórs-
sonar 1950-1953.
Vorið 1942 myndaði Ólafur
Thors flokksstjóm Sjálfstæð-
isflokksins sem fór með völd
til ársloka það ár.
Árið 1944 myndaði hann
nýsköpunarstjómina og
gegndi þar bæði embætti for
sætisráðherra cj utanríkisráð
herra. Sú stjóm sat að völd-
um þar til í ársbyrjun 1947.
í byrjun desember 1949 mynd
aði Ólafur Thors þriðja ráðu
neyti sitt. Var það minnihluta
stjóm Sjálfstæðisflokksins og
fór hún með völd þar til í
marz 1950.
Sumarið 1953 myndaði Ó1
afur Thors fjórða ráðuneyti
sitt se i var samsteypustjórn
Sjálfstæðisflokksins og Fram
sóknarfiokksins. Sat sú stjórn
að völdum þar til á miðiu ári
1956. Fimmta ráðuneyti ÓI-
afs Thors er núverandi ríkis
stjóm, sem farið hefur með
völd síðan haustið 1959, Hef-
ur Ólafur Thors því gegnt for '
sætisráðherraembætti í 5 rík
isstjómum eða oftar en nokk-
ur annar íslendingur. Þann
12. nóvember í fyrra baðst
Ólafur Thors lausnar frá em-
bætti forsætisráðherra ao
læknisráði.
í viðtali við Vísi þá sagði
hann: „Ráðherrastarfið er líkt
framkvæmdastjórastöðu í
stóru fyrirtæki. Því starfi hef
ég haft ánægju af og mun
sakna þess. En ég gat ekki
innt af hendi skyldustörfin
án Iangrar hvíldar og var þá
ekki um annað að ræða en
að hætta, því forsætisráð-
herra er til að stýra förinni.“
Þótt Ólafur Thors legði
niður ráðherradóm settist
hann ekki í helgan stein því
hann var áfram þingmaður
þótt veikindi hans vörnuðu
honum þingsetu um hríð. Var
hann nú aldursforseti þings
ins og hafði setið á 47 þing-
um r hann lézt.
★
Hér hafa aðeins helztu at-
riðin i opinberum störfum Ó1
afs Thors verið rakin, en hon
um var auk þess falinn
fjöldi annarra trúnaðarstarfa
í þágu þjóðarinnar. Mun hans
verða ítarlega minnst hér í
Vís siðar, en um ævi hans
og störf er rætt í forystu-
grein blaðsins í dag.