Vísir - 16.01.1965, Blaðsíða 6
£ VI S IR . Laugardagur
■nrwriiiwiirrwwwwiTTiiiirTTtHnwMwi■■ i»ii.i,i ................................................. 11 1 |||l■llllllliiimi«ihibi1iih 1 l■lllllll■■———1 llillll 1 liliinm 11 11 n -
NiðursuðuverksmJ Kópavogi
Þessar myndir eru teknar af niður-
suðuverksm'iðjunni að Kársnes-
braut 128 í Kópavogi, sem sagt var
frá f blaðinu í gær. Áætlað er, að
niðursuðuverksmiðjan fari af stað
um mánaðamótin febrúar-marz um
Pramh at Ols I
heiði í nótt en áætlunarbíllinn og
mokstursvélarnar snúa samstundis
til baka til að teppast ekki vestan
heiðar Óvíst er með öllu hvenær
brotizt verður næst yfir Öxnadals-
heiði því með þessum ruðningi
sem nú hefur verið gerður mynd
ast hár hryggur á veginum ef skef
ur í brautina eða fennir, og verð
ur þá hálfu dýpri snjór á honum
en áður. Er Vegagerðinni mjög ó
ljúft um slíkar aðgerðir á meðan
veðurbreyting er ekki í aðsigi,
sagði Hjörleifur Ólafsson við Vísi
■ gærkvöldi, en það hefði verið
mjög fast sótt að fá aðstoð í gær
til að koma bílunum yfir, og því
hefðu mokstursvélar verið sendar
með bilalestinni i gær.
Nær ófært er á vegum á Norð-
austurlandi og á Austurlandi var
stórhríð í fyrrinótt og allar leiðir
ófærar.
Kvikmynd —
Framhald af bis. 16.
mínútna sýningartíma og verða
9/10 hlutar hennar teknir hér á
land'i að sjálfsögðu verður að taka
myndina í snjó og þess vegna þyk
jr æskilegt að hafa jökul í nálægð
a.m.k. ef jörð er að öðru leyti auð
Að óathuguðu máli hefur helzt
'romiS til mála að taka myndina
annaðhvort í nágrenni Kaldadals
og Oks, eða þá í nágrenni Mýrdals
jökuls, en úr þvi verður senni-
iega skorið fljótlega.
leið og þorskvertiðin og á hún i
fyrstu aðallega að sjóða niður
hrogn og lifur. Verksmiðjan hefur
þegar samið um sölu á danskan
markað fyrir um 18 milljónir kr.
árlega. Vélarnar eru flestar úr nið-
Hesta þarf til kvikmyndarinnar
og verða þeir látnir draga sleða
í snjónum, hvort heldur kvikmynd
að verður á jökli eða á láglendi.
Kvikmyndaleiðangurinn er vænt
anlegur til íslands um eða eftir
miðjan marz n.k. og verða líklega
f honum 15 manns. Er búizt við
að hægt verði að ljúka myndatök
unni á 1-2 vikum.
Þess má að lokum geta að ann
ar leiðangur var hér á sl. sumri
frá sama sjónvarpsfyrirtæki
„Zweites Deutsches Fernsehen“ til
að taka kvikmynd af sambúð varn
arliðsins og íslendinga. En inn í þá
kvikmynd er fléttað ýmsum at
vinnuháttum Islendinga. Leizt
Þjóðverjum þann veg á sambúð
ina að þeir kölluðu sjónvarpsþátt
þennan „Frostige Freundschaft“
eða Köld vinátta. Honum var sjón
varpað í Þýzkalandi fyrrihluta des
embermánaðar sl.
Skipstjórinn —
Framhald af bls. 1
skylda sín í Fleetwood hefði
fylgzt með þessu máli í blöðun-
um í Fleetwood og eins hefði
hann haft samband við hana í
síma. Hann ætlaði að reyna að
komast í samband heim til sín
strax og hann gæti fengið sím-
talið í gegn til að segja konu
sinni og börnum gleðitíðindin.
Hann sagði okkur ennfremur
t'rá þvi, að útgerðarfélagið HE
WITT, sem á togaran og 4 aðra
hefði átt merkisafmæli nvlega,
það varð 200 ára gamalt og
elzta togarafélag í heiminum.
Á skipum Hewitt-félagsins
ursuðuverksmiðjunni Mata, sem
hætti starfsemi fyrir nokkru, en
alls er áætlað, að verksmiðjan kosti
tvær og hálfa milljón króna í sinni
upphaflegu mynd.
kvaðst Hutcheon hafa verið í
15 ár sem skipstjóri. „Þessi ár
hef ég verið mest á veiðum
héma í kringum landið ykkar
og hér vildi ég helzt halda á-
fram að veiða, — þó aldrei inn
an landhelginnar,“ bætti hann
við.
„Togararnir ykkar hafa aldeil
is selt vel undanfarið,“ segir
skipstjóri allt í einu. „Þa5 er
mikill skortur á fiski heima í
Bretlandi núna og við verðum
að fá fisk hvað sem hann kost
ar. Fiskur er mjög vinsæl fæða
í Bretlandi. Fiskleysið stafar
mikið til af því, að togararnir
okkar eru langflestir að veiðum
í Hvita hafinu og þar hefur
veðrið verið afar slæmt að und
anfömu og veiði lítil sem eng
in.
Þegar ljósmyndarinn mundaði
vél sína kom lítill hvolpur trítl
andi til húsbónda síns og hopp
aði upp í fangið á honum.
„Hann er Islendingur, — Fritz
köllum við hann, fengum hann
hérna í Reykjavík fyrir nokkr
um mánuðum. Hann er stórkost
legur félagi. Annars erum við
tveir „íslendingarnir“ hér um
borð, — hann og ég. Já, því
skyldi ég ekki vera íslendingur
búinn að lóna hér eins nærri
landsteinunum og lög leyfa í um
20 ár.“
Robert Hutcheon og áhöfn
hans sigldu út úr höfninni strax
og skipspappírarnir höfðu ver
>'ð afare'ddir Ferðinni var heitið
á m:ðin aftur eftir nokkurra
daga trut'lun. Það þurfti að bæta
við þau 12 tonn sem komin voru 1
í lestarnar af fiski.
Flýði —
Framh. af bls 16
hlut sinn og kvaddi lögregluna sér
til hjálpar..
En áður en hún kom á staðinn
hafði viðkomandi ökumaður komið
sér bakdyramegin út úr húsinu og
enginn hafði hugmynd um hvert
hann hafði farið. Ekki kom hann
heldur heim til sín. um kvöldið eða
nóttina, en í gær lét hann lög
regluna vita hvar hann væri stadd
ur og þangað var hann sóttur.
Maður þessi liggur undir ákveðn
um grun um að hafa verið ölvað
ur við akstur. Því neitar hann ger
samlega, en viðurkennir hins veg
ar að hafa ekið brott af áreksturs
stað. Fyrir það á hann heldur ekki
gott með að þræta. því að þeim at
burði hefur lögreglan næg vitni.
Rannsókn málsins stóð yfir
seinni hluta dags í gær og varð alls
ekki lpkið. Á meðan situr ökumað
urinn í fangageymslu lögreglunnar
Norðurlandaróð —
1 1*0’ uíw Vramír a? ois 1
ráðs verða haldnir í kennslu-
stofu Háskólans.
Þingið á að standa dagana 13.
—18 febrúar og er gert ráð fyr
ir því að hlé verði á fundum
Alþingis á meðan.
★
Það er fjölmennur hópur er-
lendra gesta, sem mun gisfa
Reykjavík þessa daga. Þingfull-
trúar eru 69, en til viðbótar
þeim munu um 24 ráðherrar
koma frá Norðurlöndum til að
sækja þingið. Þar við bætist
fjöldi sérfræðinga og síarfsliðs
og blaðamenn, en öll helztu
blöðin á Norðurlöndum senda
sína menn hingað til að fylgj-
ast með því, sem þarna gerist.
Þegar allt kemur saman, er
búizt við að erlendir gestir
verði nálægt því 190 talsins.
Hefur það fallið á herðar skrif-
stofu Alþingis og skrifstofu-
stjóra Friðjóns Þórðarsonar, að
sjá um alla framkvæmd þing-
haldsins. Fékk Vísir upplýsing-
ar hjá skrifstofustjóranum um
það hve mikið verk hér er um
að ræða.
Sérstakar leiguflugvélar frá
íslenzku flugfélögunum munu
flytja hina erlendu fulltrúa til
og frá landinu. Flugvél frá Flug
félaginu sækir sænsku og
finnsku fulltrúana en flugvél frá
Loftleiðum sækir dönsku full-
trúana og önnur frá Loftleiðum
sækir þá norsku.
★
Þá er næst að leysa gisti-
vandamálið. í sjálfu sér eru til
gistirúm fyrir um 190 manns.
En ekki þykir hægt að láta þing
menn frá hinum Norðurlanda-
rikjunum búa tvo saman í her-
bergi, og því skortir gistirúm.
Eina vonin er sú, að hægt verði j
að ljúka við að gera hið nýja
Hótel Holt tilbúið fyrir komu
fulltrúanna hingað Þá verður
nægilegt gistipláss Annars yrði
sennilega að leysa he..ta
því að láta einhvern hluta st
liðsins búa í einkaherberg u
úti í bæ. Allt rými í gistihúsu.
borgarinnar var pantað veg
Norðurlandaráðs einu ári fyri -
fram.
Upplýsingar liggja fyrir hendi
um það, að á gistihúsum c"
veitingahúsum hér er nóg rým
til borðhalds fyrir alla fulltrúana
og verður engi'nn vandi með
það mál.
★
Því ber ekki að neita, að
hátíðasalur Háskólans er of lít
ill fyrir svo fjölmenna sam-
komu, en á öðru betra húsnæði
er ekki völ hér. Vonandi tekst
þinghaldið þrátt fyrir þrengslin,
því að þröngt mega sáttir sitja.
Mestur hluti þingskjala er til
búinn fyrirfram, prentaður í
Svíþjóð, en tillögur sem fram
koma á þinginu verður að fjöl-
rita hér. Umræður verða teknar
upp á segulband með sama hætti
og gerist á Alþingi, en annars
eru hraðritarar að starfi, þegar
fundir Norðurlandaráðs eru
haldnir í hinum ríkjunum. Ræð
ur verður að flytja annað hvort
á dönsku, sæ>,sku eða norsku.
★
— Ég er sannfærður um það,
saglii Friðjón Þórðarson, að þó
undirbúningur slíkrar ráðstgfnu
sé mikið verk, þá munu engin
vandamál koma upp í sambandi
við þinghaldið, seríi ekki verður
hægt að leysa.
Sendiherrafrúr —
Framhald at bls. 1
þær, hvort hann mætti taka
mynd af þeim. svaraði banda-
ríska konan frú Penfield, að það
værballt í lagi, nema bara ekki
ef við dettum. En þess þurfti
ekki með, því að auðséð var, að
þær voru alvanar á skautum.
Skautaferð sendiherrafrúnna
ætti að vera fólki hér á landi
til fyrirmyndar. Erlendis tíðk-
ast það miklu meira en hér, að
fullorðið fólk iðki útiíþróttir. —
Hér ætti fullorðna fólkið að
hætta að kúldrast inni af feimni
og fáskiptni, þegar það gæti liðk
að líkamann og hresst upp á
sálina með þvi að fara á skauta.
Barnaleikrif —
Framhald af bls. 16.
sig grímuna en fleiri dýr koma
við sögu því að þarna voru ljón,
tígrisdýr, kýr, hundur og asni.
Æfingunni var lokið og við
náðum sem snöggvast tali af
Helga Skúlasyni, sem stjómar
leiknum. — Það er góður mórall
í þessu segir Helgi. Leikurinn
er byggður á austurlenzku æv-
intýri, um konungsson, sem
vegna vonzku sinnar við dýrin
er settur í þau álög af álfa-
fólki að vera í hundsgervi í 6
mánuði, en sem asnj i aðra sex.
Eftir þessa þolraun hefur kon-
ungssonur gjörbreytzt. Höfund-
ur leikritsins er Ólöf Ámadótt-
ir, og er þetta fyrsta barnaleik-
ritið, sem sett er á svið eftir
hana en áður hefur hún samið
bamaleikrit fyrir útvarp. Frum-
sýningin verður í næstu viku.
Hlutverkin í leiknum em fjöl-
mörg eða um 30 talsins. Með
aðalhlutverkið sem Almansor
konungssonur fer Borgar Garð-
arsson, en auk hans eru Guð-
rún Stephensen, sem leikur
drottninguna, móður hans, Mar-
grét Ólafsdóttir, sem leikur álfa
drottninguna, Sigmundur Örn
Arngrímsson leikur hirðfíflið. —
Einnis leika þeir Jóhann Páls-
son, Guðmundur Pálsson. Stein-
dór Hjörleifsson, Karl Guð-
mundsson og margir fleiri.