Vísir - 24.05.1965, Side 11
V1S IR . Mánudagur 24. maí ..
RITSTJORI JON BIRG’R PETIIRSSON
Úthaldið færði heimaliðum sigurinn
Sigurbj'órn Bjarnason simar frá Akureyri:
2=1 SIGUR í
ÍSNEPJUNNI
Nöpur ísgola af norðri næddi um leikmenn Akur-
eyrar og Fram og um 1500 áhorfendur á grasvelli Ak-
ureyringa í fyrsta leiknum þar nyrðra í 1. deild, sem
fram fór í gær. Harka, hraði og spenna einkenndi
þennan leik, en það fór hér eins og í Njarðvík, þar sem
Akranes og Keflavík börðust, að úthald heimaliðsins
varð til að færa sigur. Einnig hér var sigurmarkið
skorað 5 mínútum fyrir leikslok og leiknum lauk 2:1
rétt eins og í Njarðvík.
Mér fannst að Akureyringar hafi
verið úthaldsbetri og það hafi ráð
ið úrslitum. Hraði í leiknum var
gífurlegur, þegar frá byrjun og þeg
ar 20 mínútur voru eftir af leik
var greinilegt að Framarar gátu
ekki meira. Hins vegar áttu Akur-
eyringar nóg eftir að leik lokum.
I byrjun hálfleiks áttu Akureyring
ar allgóð skot og Valsteinn átti
ágætt tækifæri, sem' hann misnot
aði. Framarar voru óheppnir í upp
hafi leiks að missa út af hinn
ágæta framvörð Ólaf Ólafsson, sem
meiddist á fæti, brákaðist á ökla.
Fyrsta markið kom á 14. mínútu
og skoraði Sævar Jónatansson það
með fallegu skoti af löngu færi og
fór boltinn undir Hallkel, mark-
vörð Fram.
Um miðjan hálfleikinn fyrri náði
Fram undirtökum í leiknum á móti
norðanstrekkingnum. Lauk þessu
svo að Hallgr. Scheving skoraði
með laglegu skoti af stuttu færi,
1:1 og stóð þannig í hálfleik.
Til að byrja með hafði Fram yfir
höndina í seinni hálfleik. En smám
saman tókst Akureyringum að snúa
vörn í sókn. Eitt skot Framara var
mjög hættulegt, Helgi Númason
skaut hörkuskoti í slána svo small í
og Samúel varði rétt á eftir vel.
Síðustu 20 mínúturnar voru
gleðilegustu mínúturnar fyrir áhorf
endur því þá sýndu Akureyringar
virkilega hvað í þeim býr og áttu
nú alls kostar í fullu tré við mót-
herjann. Steingrímut Björnsson
með því að afgreiðá boltann ská-
hallt upp í markið, 2:1.
Guðjón Jónsson og Hallkell björg
uðu vel þessar mínútur og voru þeir
að mínum dómi beztu menn Fram
ásamt Helga Númas. í heild sinni
tel ég Framliðið betra en Akureyr
arliðið.
Af Akureyringum voru þeir Skúli
Ágústsson og Guðni Jónsson dug
legir og jákvæðir og Samúel mark
vörður slapp vel frá sínu. Liðið
hefir ágætt úthald, en ýmislegt
vantar enn á, sem eflaust á eftir
að lagast. Einstaklingar Akureyrar
voru aftur á móti betri en Fram-
ara.
Valur Benediktsson dæmdi þenn
an leik. Ég hitti hann ásamt fleir
um í búningsherbergi að leik lokn-
um og spurði hann um álit sitt á
leiknum: „Ég get ekki dæmt leik
inn þar sem ég var ekki áhorfandi
í venjulegum skilningi og treysti
mér ekki til þess að meta úrslitin.
En þetta var mikil baráttuleikur og
mjög hraður“, sagði hann.
Jón Stefánsson, fyrirliði Akureyr-
inga: Þetta var kærkominn sigur
fyrir okkur. Ég var hálft í hvoru
farinn að sætta mig við jafntefli,
þegar Steingrímur komst í gegn“.
Skúli Nielsen, fararstjóri og þjálf
ari Fram: Jafntefli eða 2:1 fyrir okk
ur hefði verið sanngjarnt eftir
gangi leiksins, en Akureyringar
voru úthaldsbetri og unnu á því“.
— sbj —
Jón B. Pétursson skrifar:
2:1 SIGUR í
VARMASKÚRUM
íslandsmeistararnir í knattspyrnu unnu sín fyrstu
stig í 1. deild í hlýrri, léttri rigningu á heimavelli sín-
um í Njarðvík í gærdag. Lið þeirrá er eins skipað og
í fyrra í öllum aðalatriðum, kröftugt lið og stórhættu-
Iegt, — og úthaldið var þeirra megin og sigurinn fylgdi
með. Akranesliðið var heldur kraftalítið í samanburði
við Keflvíkinga og sigurinn hefði eins getað orðið
stærri en 2:1 fyrir Keflavík. Fjölmenni var af áhorf-
endum, líklega hátt á 2. þúsund.
Ekki var leikurinn mikið meira en
mínútu gamall, þegar boltinn lenti
í neti Kjartans Sigtryggssonar í
Keflavíkurmarkinu. Það var Eyleif
ur, sem skallaði stórglæsilega í
markið.
Þetta hefði átt að vera liðinu
nægileg uppörvun, en svo varð þó
ekki. Keflvíkingar sóttu mun
meira, en Akurnes'ingar drógu sig
heldur til baka. Vörn þeirra var
nokkuð góð, en hinn ungi mark-
vörður þó langbezti og traustasti
hlekkur hennar, þótt enginn Virt-
ist þora að treysta á hann. Hins-
vegar var vörn Keflavíkur nokk-
uð fumandi og allt virtist opnast,
þegar framherjar Akurnesinga
birtust skyndilega.
Keflvíkingar jöfnuðu í fyrri hálf
' leik. Það var á 37. mínútu sem
Rúnar Júlíusson, með sinn loðna
bítlakoll, blautan af rigningunni og
ataðan aur'i af vellinum, fékk bolta
fyrir markið og fram hjá því utan
af hægri kantinum. Rúnar notfærði
sér þetta tækifæri einkar skemmti
lega. Færið var mjög lokað að
því er virtist, því Jón Ingi, mark-
Framh. á bls. 6
Guðmundur Hermannsson þeytir
kúlunni rúma 16 metra.
Gott veður ein-
kenndi iR-mótið
— árangur mótsins var frekar slæm-
ur, en einstakir menn lofa góðu
Halldóra Helgadóttir sígrar í 100 m hlaupi kvenna. Á eftir henni koma Linda og Sólveig.
Vormót ÍR fór fram á Melavell-
inum í hinu bezta veðri í gærdag.
Það er synd, að áhorfendur skuli
ekki hafa verið fleiri en reyndist —
liðlega 100, því frjálsíþróttamót
geta verið hin bezta skemmtun,
ekki hvað sízt í svo góðu veðri
sém í gær.
Árangurinn í heild var ívið lak
ari en á sama móti í fyrra, en var-
hugavert er að byggja spádóma á
árangri fyrsta frjálsíþróttamóts
sumarsins.
Fremur er lítið um stjörnur á
himni frjálsíþróttanna, Valbjörn
mætti ekki til keppni, Olfar Teits-
son stökk lengst 6.73 og Jón Þ.
Ólafsson stökk hæst 1.93 m.
ÚrslA mótsins urðu sem hér seg
ir:
100 m hlaup:
1. Ólafur Guðmundsson, KR 10.9
2. Einar Gíslason, KR 11.2
3. Ragnar Guðmundsson, Á 11.5
4. Einar Hjaltason, Á 11.6
400 m hlaup:
1. Ólafur Guðmundsson, KR 51.0
2. Sigurður Geirdal, UBK 54.4
3. Hjörleifur Bergsteinsson, Á 58.8
j 800 m hlaup
j 1. Halldór Guðbjörnsson, KR 1:58.5
j 2. Þórarinn Arnórsson, ÍR 2:05.0
j 3. Marinó Eggertsson UNÞ 2:10.2
j 3000 m hlaup:
| 1. Kristleifur Guðbjörns. KR 8:47,4
i 2. Halldór Jóhanness. HSÞ 9:03,6
4x100 m boðhlaup
1. Sveit KR (Halldór, Ulfar,
Ólafur, Einar) 46.1
2. Sveit ÍR 49.5
Kúluvarp:
1. Guðm. Hermannsson KR 16.22
2. Ármann J. Lárusson UBK 13.30
3. Erlendur Valdimarsson, IR 13.16
4. Arnar Guðmundsson, KR 12.70
5. Ingvi Guðmundsson UBK 12.10
6. Bogi Sigurðsson 12.06
Kringlukast:
1. Þorsteinn Löve, IR 45.72
2. Erlendur Valdimarsson, ÍR 44.29
3. Þorsteinn Alfreðsson, UBK 42.34
4. Jón Þ. Ólafsson, IR 42.16
Sleggjukast:
1. Jón Ö. Þormóðsson, IR 50.23
Framh. á bls. 6