Vísir - 10.07.1965, Side 2

Vísir - 10.07.1965, Side 2
2 V í S I R . Laugardagur lOi júlí 1BIÍ5. KRAFTUR SIM K HJÁ KEFLA VlKURUB Vann FRAM 5:0 og færði sig upp úr næst neðsfusæti í 3. sæti KEFLAVÍK, íslandsmeistararnir 1964, sem mæta ungversku meisturunum, Ferencvaros í Ung- verjalandi og hér á íslandi í haust, mættu sannar- Iega í góðu keppnisskapi og miklum vígamóð gegn botnliðinu í 1. deild, Fram. Það urðu hvorki meira né minna en 5 mörk, sem Keflvíkingar skoruðu gegn þeim og mörkin hefðu raunar getað orðið miklu fleiri, en fimm fóru sem sagt í netið. Það er ekki ósennilegt að keppinautunum í deildinni þyki þetta uggvænlegt, eftir að Kefla- vík hefur aðeins safnað sér 4 stigum í fyrri um- ferðinni. Því hvað getur ekki gerzt? Það er vitað, að íslandsmót getur unnizt á 14 stigum og það GETA Keflvíkingar, en þá verður talsverð heppni að vera með í spilinu. VÍKINGUR VANN F.H. MEÐ 4:1 Fyrsti sigurinn í sumar Víkingur vann í fyrrakvöld sinn fyrsta leik í 2. deild. Sigurinn var heldur en ekki stórkostlegur, loks- ins þegar hann fékkst, 4:1 yfir FH, sem í upphafi keppninnar var talið lík- legt til sigurs í b-riðlinum. Þær vonir eru fyrir nokkru hrundar. Víkingar skoruðu öll sín mörk í fyrri hálfleik og áttu oft skínandi góða samleikskafla og árangurs- rika svo sem sjá má. Gunnar Gunnarsson skoraði fyrsta markið, en Jón Ólafsson bætti öðru við. Enn skoraði Gunn ar og loks Jóhannes Tryggvason með bráðfallegu skoti efst upp í markhornið. í seinni hálfleik gerðist leikur inn jafnari og þófkenndari, en eina rnarkið skoraði FH, Geir Hallsteins son hnoðaði boltanum heldur ó- hönduglega í markið, 4:1. Víkingar eru eftir sem áður neðstir í b-riðlinum með 3 stig. Efst eru Vestmannaeyjar og Jsa- fjörður með 8 stig. — jbp. Keflvíkingar voru mun betri að ilinn allan leikinn f fyrrad. á Njarð víkurvelli, ef undan eru skildar 15 fyrstu mínútur seinni hálfleiks, sem voru nokkuð jafnar. Hins veg- ar tókst Frömurum ekki að koma sér í almennileg marktækifæri og leikurinn var ákaflega auðveldur fyrir vörn Keflavfkur og markvörð. Bakverðirnir voru jafnvel farnir að skjóta á Fram-markið. MÖRKIN: 23. mín.: Fyrsta markið upp úr innkasti Jóns Jóh. til Karls Her- mannssonar, sem gaf fyrir til Rún ars Júlíussonar, sem skorar með föstu og góðu skoti viðstöðulaust,- og engin tök fyrir markvörð að verja. 30. mín.: Aukaspyrna Sigurðar A1 bertssonar og Karl Hermannsson skorar en Sigurður Einarsson var nærri búinn að bjarga, hinsvegar töldu dómari og línuverðir að bolt inn hefði verið inni. 32. mín.: Og þriðja markið kem ur eftir að Jón ÓÍ. einleikur yfir völlinn frá hægri kanti yfir á vinstri en sneiðir boltann til Grét ars sem er í góðu færi og rennir í netið. 60. min.: 1 seinni hálfleik kom 4:0 en í fyrri hálfleik var eitt mark dæmt af Keflavík, fallegt skot Rúnars af löngu fáeri, en Jón Jóh. dæmdur rangstæður án þess þó að hafa áhrif. Markið á 60. mín kom eftir þrumuskot Sigur- vins, bakvarðar, sem markvörður hálfvarði en Rúnar sótti að hon um og kom boitanum á sinn stað. f netið. 72. mín.: Jón Jóh. skaut á mark ið og Hallkell hálfvarði en Grétar skoraði. BEZTU MENN. Keflavíkurliðið var gott I þess- um leik og verður án efa erfitt ef það leikur þannig það sem eftir er af umferðinni. Beztu menn voru j þeir Karl Hermannsson, Grétar Magnússon og Sigurður Alberts son. Af Frömurunum, sem voru ákaf lega daufir var Hreinn Elliðason líflegastur og markvörðurinn Hall kell sömuleiðis ágætur, og gat ekki að mörkunum gert. Hinsvegar bjargaði hann liðinu frá stærra tapi. Dómarinn, Magnús Pétursson, var mjög mistækur. — a- Staðan r 1 1 • deild í Valur 5 3 1 i 12:8 7 i K. R. 5 2 2 i 10:8 6é Keflavik 6 2 2 2 9:6 6S Akranes 5 2 1 2 11:11 5> Akureyri 5 2 1 2 8:10 5 < Fram 6 1 1 4 7:14 3 S Staðan í 2 . deiid | a-riðill: Þróttur 5 4 i 0 9 22:8 c Siglufj. 3 1 i 1 3 8:7 S Haukar 4 1 i 2 3 7:9 ( Reynir 4 0 i 3 1 2:15 > b-riðill: Vestm. 6 4 0 2 8 18:11«! ísafj. 6 4 0 2 8 19:13 5 Breiðab. 5 3 0 2 6 10:18 c FH 7 2 1 4 5 17:15 S Víkingur 6 1 1 4 3 9:16 > GÓÐIR KNATT- SPYRNUGESTIR Irland, Ferencavaros, Rosen- borg, Stanley Matthews Margt góðra gesta er vænt- anlegt hingaö til Reykjavíkur í knattspyrnuheimsóknir síðar f sumar. 0 írar keppa hér 9. ágúst landsleik við islendinga á Laugardalsvellinum. 0 Ungversku meistarnir FER ENCVAROS koma hingað f haust og leika við Keflvíkinga í Evrópubikarnum, en fyrst munu Keflvíkingar fara utan og leika. 0 RÓSENBORG, bikarmeistar amir norsku koma og leika hér við K. R., en fyrri leikurinn er hér heima og er liður f bikar keppni bikarmeistara. 0 SIR STANLEY MATT- HEWS er svo væntanlegur 22. júlí. í bréfi til fþróttafrétta manna segir hann svo:......af- sakið dráttinn, sem orðið hefur á því að svara ykkur. Ég var að koma heim frá Kanada. Mér mundi þykja mikill heiður að því að þiggja boð ykkar. Yðar einlægur, Sir Stanley Matt- hews.“ Er það mikil og góð frétt að við skulum nú fá að sjá Matthews, sem án efa er frægasti knattspymumaður, sem uppi hefur verið. FARA í FJÖLLIN" Þessi hópur var að leggja af stað i kerlingarfjöll á miðvikud. þegar blaðamaður Vísis fór fram hjá Menntaskóianum í Reykjavik. Ferðir þangað inn- eftir em orðnar mjög tíðar og útlendingar sækja þangað i æ ríkara mæli. Valdimar Örnólfsson, farar- stjóri og „hótelstjóri“ f fjöllun um stendur lengst til vinstri á myndinni (ljósm. jbp.).

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.