Vísir - 24.07.1965, Blaðsíða 6

Vísir - 24.07.1965, Blaðsíða 6
6 VIS IR . Laugardaginn 24. júlí 1965. Við byggjum — Framh. at dis i ma'nn, Eggert Gíslason,“ sagði eigandi Jóns Garðars, í hófi sem haldið var á skrifstofum útgerðar Guðmundar Jónsson- ar eftir komu skipsins. „Við gátum selt samning að smíði skipsins en vildum ekki, enda þótt Eggert hefði ákveðið að hætta skipstjórn hjá okkur. Að vísu lítur ekki vel út í dag á komudegi Jóns Garðars, lítil sem engin síldveiði fyrir Aust- urlandi og lítil við Eyjar, en við munum starfa sem fyrr á þeirri bjargföstu trú að allt gangi vel“. JÓN GARÐAR, GK 475, er næst stærsti síldarbátur lands- ins. Aðeins Reykjaborg RE er stærri eða 336 lestir brúttó, en hið nýja skip mun vera 317 lestir, en hann er búinn öllum nýjustu skipsstjórnartækjum og að auki ísvél til að halda aflan um frískari ef hann þarf að bíða lengi eftir löndun og það sem e.t.v. er nýstárlegast er síldardæla at nýjustu gerð. Síldardæla í Höfrungi III frá Akranesi reyndist ekki sem bezt í stórri síld, en dælan sem nú er um borð er talin mun betri en sú sem var í Höfrungi. Jón Garðar var smíðaður í skipasmíðastöðinni í Harstad í Noregi. Samið hafði verið um að ljúka smíðinni fyrir septem- ber, en skipasmiðirnir luku við smíði tveim mánuðum áður og því er skipið nú komið til landsins og getur á sunnudag- inn hafið eltingarleikinn eftir sfldinni, þeim furðulega og ó- útreiknanlega fiski. Þegar Jón Garðar kom að bryggju um kl. 18 £ gær var fjölmenni á bryggjunni í Sand gerði. Allir sem vettlingi gátu valdið höfðu safnazt saman til að fagna komu hins nýja skips Gunnar Guðmundsson sonur Guðmundar Jónssonar frá Rafn kelsstöðum sá um móttöku skipsins í Harstad en skipstjóri er Víðir Sveinsson ungur mað- ur, maður sem var skipstjóri á Vfði II í 2 ár. Blómabnllið í Hveragerði í kvöld Hið árlega Blómaball, sem Kvenfélag Hveragerðls heldur til ágóða fyrir leikskólann, sem sett- ur var á stofn í fyrra, verður hald ið í Hótei Hveragerði í kvöid og hefst klukkan 9. Salur hótelsins verður prýddur blómum, og hafa garðyrkjumenn staðarins reynzt kvenfélagskonum ákaflega hjálplegir við uppsetn- ingu og gefið blóm. Þama verður eins og áður kjörin blómadrottn- ing ársins", og verður hún kjörin úr hópi þeirra stúlkna, er á ball- inu verða. Það hefur komið fyrir að fegurðardrottning ís- lands hefur hafið feril sinn sem blómadrottning f Hveragerði. Saksóknari í máli Bretans Ger- alds Brooke, sem handtekinn var i Moskvu, krafðist þess fyrir rétt- inum í gær, að hann yrði dæmdur í 7 ára fangelsi eða harðasta dóm, sem lög leyfa fyrir það afbrot, sem hann er sakaður um (áform um dreifingu áróðursrita og slíkt). Saksóknari sagði, að kveða yrði upp dóm, sem reyndist alvarleg aðvörun til allra útlendinga, sem I reynsluför gekk skipið 11 I sjómílur að sögn skipstjóra og reyndist að öllu leyti mjög vel. Umboðsmaður Verksted A/S Harstad, Nielsen að nafni, sagði að þetta væri 6. skiptið sem skipasmíðastöð þeirra smíðaði fyrir íslendinga. Eitt skip væri nú í smíðum til viðbótar, það er skip fyrir Einar Árnason og Eggert Gíslason fyrrverandi sikpstjóra á bátum Guðmundar á Rafnkelsstöðum.. Verð hins nýja báts var 18 milljónir króna. Síldin Framhalö -I ->'■ i. en nýlega hefur verið unnið að stækkun verksmiðjunnar. Hjá verksmiðjunni starfa í sumar milli 70 og 80 manns. Undanfarið hefur mjög lítil síld borizt hingað aðeins litið magn hverju sinni, en hins veg ar er sildin prýðileg. Þegar fitu magnið var mælt síðast reyndist það vera 21%. Eins oger.erekki hægt að segja að útlitið sé gott, en flestir vona að ástandið fari að skána fljótt eftir aðra helgi“, sagði Einar. RAUFARHÖFN. „Hingað kom í gær bátur inn með 300 til 400 mál og er það fyrsti báturinn sem við höfum fengið hingað inn til Raufarhafn ar með sfld í meira en hálfan mánuð, en alls hefur verksmiðj an brætt um 77 þús. mál“ sagði Eiríkur Ágústsson, verksmiðju- stjóri Síldarverksmiðju rfkisins á Raufarhöfn, þegar Vísir átti stutt viðtal við hann í gær. Hjá verksmiðjunni vinna um 80 manns en meðal afköst eru um 5 þús. mál á sólarhring. NESKAUPSTAÐUR. „Við erum búnir að taka á móti 120 þús. málum og bræðslu lýkur hér sennilega á rnorgun", sagði Kristinn Sigurðsson for- svarsmaður síldarbræðslunnar f Neskaupstað, þegar við ræddum við hann f gær. Við verksmiðj una starfa milli 30 og 40 manns og bræðir verksmiðjan 4500 til 5000 mál á sólarhring. I Neskaupstað hefur verið saltað á hverjum degi undanfar- ið og einnig brætt allan sólar hringinn, en hins vegar hefur lítið magn af sfld borizt þangað undanfama daga. Kristinn sagði að margir bátar lægu nú þar f höfninni og biðu eftir fréttum frá síldarmiðunum „en við er- um vongóðir um að þetta lagist í ágúst“, sagði Kristinn að lok um. VOPNAFJÖRÐUR. „Hér hefur ekkert verið brætt í lengri tíma“ sagði Sigurður Jónsson forsvarsmaður sfldar- bræðslunnar þar. Alls hefur verksmiðjan á Vopnafirði brætt um 67 þús. mál og er það heldur minna magn en á svipuðum tíma í fyrra. Um 60 manns starfa við verksmiðjuna og eru meðal afköst hennar á sólarhring um 4 þús. mál. Bræðsla hófst í verksmiðj unni 10. júní. „En hér bfða allir vongóðir um að það rætist úr hugleiða að hafa afskipti af innan- landsmálum Sovétríkjanna. Brooke játaði fyrir rétti fyrsta dag réttarhaldanna (s.l. fimmtu- dag) að hann hefði tekið að sér hlutverk sitt fyrir rússneskan æskulýðsfélagsskap. f v ’ , Framhaldsrétt hermir, að Brooke hafi verið dæmdur til 5 ára „frels- isskerðingar". , þessu á næstunni, annars virð ist síldin annað hvort komin til Vestmannaeyja eða útlanda!" sagði Sigurður. ESKIFJÖMJUR. Síldarbræðslan á Eskifirði hef ur tekið á móti 90 þús. málum frá þvf 28. maf Hraðfrystihúsið þar stóð fyrir uppbyggingu verk smiðjunnar og rekur þar einnig síldarsöltun. Undafarna daga hafa hafa nokkrir bátar lagt upp síld á Eskifirði, en um mjög lítið magn hefur verið að ræða og er nú verksmiðjan þar að bræða síðustu síldina. Meðal af köst hennar á sólarhring eru um 2300 mál. Leiðrétting í frétt um fiskirannsóknr í Vísi 17. þ. m. féll niður heil lína, og auk þess slæddist inn meinleg prentvilla, þar sem greint var frá veiðiaðferðum Breta og I’slendinga. Þannig á málsgreinin að hljóða: „Hann sagði, að Islendingar beittu fiskveiðiaðferðum ólíkum þeim brezku; þeir hefðu tekið í þjón- ustu sína kraftblakkirnar. Ekki væri svo að skiija, að aðferðir brezkra væru meira gamaldags, o.s.frv.“. Bandaríkin — Framhald af bls. 5. Robert McNamara hefir nú gert Johnson forseta grein fyr- ir horfunum. Og er beðið birting ar opinberrar greinargerðar um tillögur MacNamara og hvað gert verði. Seinustu fréttir herma, að Johnson forseti hafi í gær (föstudag) haldið áfram að ræða ástand og horfur í Viet- nam við helztu ráðúnauta sína.- Samkvæmt áreiðanlegum heimildum mun forsetinn til- kynna ákvarðanir sínar í næstu viku — ef til vill í byrjun vik- unnar. Hann mun áður ráðgast við helztu þingleiðtoga bæði demokrata og republikana. Meðal þeirra, sem þátt tóku í viðræðunum í gær voru: Mc- Namara, Dean Rusk, Earle Wheeler hershöfðingi og McGeorge Bundy sérlegur ráðu nautur L.B.J. í málum sem varða þjóðaröryggi. Einnig ræddi hann við aðalleiðtoga flokkanna á þingi: Mik Mans- field (dem.) og Everett Dirksen (rep.). Ekkert er vitað með vissu um viðræðurnar, nema að það er meginatriði hvort auka skuli stórlega herafla Bandaríkjanna í Suður-Vietnam. íþróttir — Frb at bls. 2 Flavio. Ekki er talið víst að Garrinca verði með. Hann getur það, ef hann vill sjálfur, — en spurn- ingin er bara: Vill hann vera með? Margir telja að hann muni ekki vilja það, hann hafi aðrar ráðagerðir. Enda þótt Braziliumenn séu taldir sigurstranglegir er þó langt frá þvf að þeir virði ekki aðrar þjóðir. Þeir segja að þeir muni sérstaklega vara sig á Englandi og Portúgal með Eusebio, þá er það hið nýja landslið Spánar. Rússar, Ung- verjar og Austur-Þjóðverjar. Og ekki eru það síður Svíar, ef þeir ná saman öllum atvinnu mönnum sínum fr_á útlöndum. Þá gæti farið svo að HM i Englandi yrði endurtekning á HM 1958. Svfþjóð - Brazilía í úrslitum. — Sem sagt peningar skipta ekki máli hjá Brazilíumönnum. Saltfiskur — Framhald af bls. 16. Soffía og voru hinar ötulustu við verk sitt. Einn eigandi fyrirtækisins var þarna líka staddur. Hann heitir Skúli Þorleifsson og hef- ur alið allan sinn aldur við sjó- inn og útveginn, uppi á Skaga, síðan um langt skeið austur í Þorlákshöfn. Hann segist nú engan bát gera út og ekki sagðist hann hafa lengur áhuga á að reka mikla fiskverkun, hann keypti fisk af bátunum, þetta væri mátulegt fyrir mann þegar komið væri yfir miðjan aldur. Við spurðum hann hvort hann væri einj maðurinn á ís- landi sem enn sólþurrkaði salt- fiskinn. Hann hélt að einhverjir fleiri gerðu þetta. Það væri í sjálfu sér vitleysa að vera að þessu því að ekkert fengist meira fyrir fiskinn þannig. En þetta er miklu betri og hollari vara. Sólskinið gæfi fiskinum alveg sérstakt bragð og líkast til vítamín lfka. Svo mikið er víst að fisksalarnir sækjast mikið eftir þeim sólþurrkaða. Við fiskverkunarstöðina Þóri má einnig sjá talsvert mikla skreiðarhjalla. ¥afasleiðsla — Framh. af bls 16 vissu um þessar lindir, en þær hafa ekki komið til tals fyrr þar sem menn héldu að of langt væri að sækja vatnið þangað. Málið er nú í athugun. Ef að úr þessu yrði og þetta talið fram- kvæmanlegt myndi ekki þurfa að dæla vatninu, þar sem hæðarmis- 'múhfúr ér hógur. Ef til fram- kvæmda kæmi er líklegt að vatns- leiðsla myndi vera lögð niður í Reykjahverfið og svo áfram um sveitina niður að Lágafelli. Enn er von — Framh. af bls. 16 Rétt er að benda á það í sam bandi við ummæli Jakobs, að þó síld fari að veiðast vel fyr- ir austan yrði það vart hin stóra góða söltunarsíld, heldur yngri og minni síld. Enda mun hluti af síldarsölusamningunum hafa verið þannig formaður að ef stóra síldin fengist ekki mætti þess í stað salta minna sfld. , Um ferðir íslenzkra síldveiði skipa á miðin við Hjaltlands- eyjar sagði Jakob að þær væru athyglisverðar. Þær sýndu hve þýðingarmikið það væri að hafa stór og vel út búin síld- veiðiskip, sem gætu leitað á fjarlæg mið þegar afli bregzt hér heima. Dr. Jakob vildi gjalda varhug við auknum veiðum af stofnin- um sem nú er verið að veiða við Suðurland. Hann taldi að ekki væri hægt að segja bein- línis, að stórhætta stafar af þessum veiðum. En nú væri verið að veiða í „gúanó“ síld af stofni sem gæfi okkur söltunar- síld að vetrinum. Þessi stofn er ekki það stór að hann geti bor- ið aukið álag. Ef hann er veidd- ur í stórum stíl að sumarlagi, þegar hann er að hrygna, gæti það haft sínar afleiðingar fyrir vetrarsíldveiðina. Þannig verð- ur þetta spurning um hvort er þjóðhagslega mikilvægara að veiða þessa síld í bræðslu nú, eða til manneidis að vetrinum. Hestamenn — ■mI' ai t tjöldum og fjallakofum. Ferðin gekk í alla staði vel, en veðr- átta var þó heldur votviðrasöm I þessari ferð voru m.a. Einar Sæmundsen, Jón H. Bjarnason, Haraldur Sveinsson, Grímur Guðmundsson og Birgir Krist- jánsson. Annar hestamannahópur er nú á leiðinni yfir hálendið. Þeir lögðu af stað af Fljótsdalshér- aði og ætluðu síðan að fara norðan jökla og koma niður að Kalmanstungu. Því var jafnvel fleygt að til mála kæmi að þeir létu kasta til sín niður úr flug- vél heykögglum þegar þéir væru á því svæði sem haglaus- ast var. Með þessum hóp er m. a. Sverrir Sch. Thorsteinsson, jarðfræðingur. Enn hefur blaðið fregnað að hópur reykvískra hestamanna sé í ferð kringum Vatnajökul. R’iðu þeir austur Skeiðarársand og austur um Skaftafellssýslu og síðan átti að koma til baka vestur á bóginn yfir hálendið norðan jökla. I þeim hóp’i eru m.a. Þorlákur Ottesen og Öm O. Johnson. Barnaspítali Hringsins I gær var hér í blaðinu frétt um barnaspítala þann sem verið er að setja upp í Landsspítalanum. Var hann þar kallaður barnadeild Landspítalans, en rétt heiti hans er Barnaspítali Hringsins, en það er kvenfélagið Hringurinn sem hef ur um langt árabil unnið að bví að koma honum upp. Messur á morgun Grensásprestakall. Guðsþjón- usta f Breiðagerðissk. kl. 10.30 séra Felix Ólafsson. Elliheimilið Grund. Guðsþjón- usta kl. 2 e. h. Heimilisprestur- inn. Haligrímskirkja: Messa kl. 11 Cand. theol Bragi Benediktsson prédikar. Séra Jakob Einarsson þjónar fyrir altari. Fríkirkjan: :Messur falla niður næstu sex sunnudaga. Séra Þor- steinn Björnsson. Neskirkja: Messa kl. 10. Séra Jón Thorarensen. Kvenfélag Laugamessóknar. Munið saumafundinn mánudag- inn 26. júlí kl. 8.30. — Stjórnin. Æskulýðsfélag Bústaðasóknar. Áríðandi fundur á mánudagskvöld kl. 8.30 í Réttarholtsskóla. Rætt um sumardvölina að Löngumýri. Stjórnin. Þökkum ynnilega auðsýnda samúð við fráfall og útför eiginkonu minnar, móður okkar, tengdamóður og ömmu GUÐBJARGAR GÍSLADÓTTUR, Freyjugötu 45, Jóhann Kr. Hafiiðason Hjálmar Jóhannsson Hafliði Jóhannesson Vigdis Jóhannesdóttir Gunnsteinn Jóhannesson Valgerður Guðmundsdóttir Svanfríður Ingibergsdóttir Einvarður Halivarðsson Steinvör Eigilsdóttir Jón Jóhannsson og barnabörnin. BROOKE dæmdur ■ 5 ára „frelsisskerðingu## iB

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.