Vísir - 24.07.1965, Síða 16
Langardagur 2í. ]uli r
!'sliiiiilllllllllil
Yzt á nesinu sólþurrku þeir sultfísk
Saltfiskur breiddur til þerris f sólskininu á Seltjamamesi.
Sólskinið, hlýindin og góða
veðrið kom í góðar þarfir. Allir
sem vettlingi gátu valdið og
ekki vom bundnir við störf f
húsum inni fóm út í sólina til
að fá sér sóibað. En veðrið var
notað til fleira en sólbaðs.
Yzt á Seltjarnarnesi er lítill
fiskverkunarstöð, sem kallast
Pórir h.f. Þegar ljósmyndara
Vísis bar þar að, var starfs-
fólkið í óða önn að notfæra sér
góða veðrið með því að breiða
saltfisk út til þerris upp á
gamla , mátann og sólþurrka
hann.
Það er liðin tíð hér í Reykja-
vík, þegar saltfiskreitirnir náðu
yfir stór og víðáttumikil svæði
þar sem þá voru úthverfi bæj-
arins inni á Kirkjusandi, uppi
við Háteig og á Melunum. Enn
má þó sjá leifar stakkstæðanna
iíSvo sem á holtinu rétt fyrir
norðan hina nýrisnu Háteigs-
kirkju.
Nú er lítið um það, að salt-
fiskur sé sólþurrkaður. Megnið
af fiskinum fer nú í annað svo
sem frystingu og svo er farið
að þurrka fiskinn í húsum inni.
Unglingar störfuðu að þvf að
breiða fiskinn út, nú er ekki
lengur notuð venjuleg grjót-
hleðsla fyrir stakkstæði heldur
er fiskinum raðað á grindur.
Stúlkurnar tvær sem sjást á
myndinni heita Vilborg og
Framh. á bls. 6.
Jakoh Jakobsson bendir d að mikil síld er þar í sjónum
og vonar að hún gefi góðan afla þegar líður á sumarið
Enn einu sinni em allir orðn-
ir gáttaðir á þeim furðufiski
síldinni og skilja hvorki upp né
niður í henni. Júlímánuði er að
verða lokið, engin síld hefur
sézt f allt sumar norðan
land og síðustu daga veiðist
sama og engin síld fyrir austan.
í stað þess er síld mokáð upp
við Suðurlandið, auðvitað á
þeim eina stað, þar sem verk-
fall stendur, svo er hún flutt til
Faxaflóa þar sem vinnuafl skort
ir, en verksmiðjumar á Austur
landi að verða síldarlausar.
Rúsínan á pylsuendanum á
þessu er svo að íslenzk síldar-
skip em farin að streyma út til
að veiða síld suður undir Skot-
landi. Menn vita varla hvað úr
þessu verður, aðeins búið að
salta um 60 þús. tunnur upp í
Ný þyrla í
september
Andri Heiðberg, kafari, mun fá
í septembermánuði nýja þyrlu af
Brantley 305 gerð frá Bandaríkj-
unum. Þyrlan er með tvöföldum
stýrisútbúnaði, tekur fimm manns
í sæti og er fyrst og fremst ætluð
til aðstoðar við köfun, en mun
einnig notuð til leiguflugs. Flug-
hraði hennar er 120 mílur á klukku
stund og verður hún að öllum lík-
indum staðsett í Hafnarfirði. Þyrl-
an átti upphaflega að koma fyrr,
en vegna mikilla anna hjá verk-
smiðjunni verður hún ekki tilbúin
fyrr en 1 haust.
meira en 300 þús. sem búið er
að selja fyrirfram.
Til þess að reyna að fá ein-
hverjar reiður á þetta átti Vís-
ir í gær stutt samtal við Jakob
Jakobsson fiskifræðing, sem nú
var staddur hér í bænum í
stuttri ferð heim til sín og bað
hann um einhverjar skýringar á
háttalagi sildarinnar og hvað
væri hægt að gera sér vonir
um.
— Það er ekki gott ástandið
núna, sagði Jakob, en ég býst
við að þetta lagist í ágúst og
sérstaklega í september. Norski
sildarstofninn er í sjónum
austur af íslandi. Og það er
mjög stór stofn. Hann hefur
bara ekki komið á miðin og
ekki safnazt í torfur, en ég
geri mér vonir um að það lagist.
Það gæti orðið skyndileg breyt
ing á þessu og þá farið að veið-
ast mikið af sild.
Jakob kvaðst að vísu eiga
mjög erfitt með að spá alveg á-
kveðið um þetta. Aðstæðumar
í sjónum væm mjög óvenjuleg-
ar, hinn kaldi Austur íslands-
straumur væri enn mjög sterk-
ur. En sem sagt, hann taldi enn
sterkar líkur á að síldveiði yrði
góð fyrir austan land sérstak-
lega þegar líður á haustið.
Hann minntist þess að ýmsir
erlendir fiskifræðingar hefðu
stundum tekið að spá alllöngu
fyrirfram um síldveiði við ís-
land og markað það af stærð
stofnsins, en nú í sumar hefði
það komið greinilega í ljós, að
með því væri ekki öll sagan
sögð, síldin þyrfti líka að safn-
ast í torfur en ekki vera dreifð
í sjónum til þess að koma að
gagni.
Framh. á bis. 6.
Von um kaldavatns-
leiðslu í Mosfells-
sveit
Mosfellssveitarbúar eygja nú
möguleika á vatnsveitu um sveit-
ina, en all örðugt hefur verið með
vatnsbói þar. Hafa boranir sem
gerðar hafa verið nálægt Óskoti
bæorið lítinn árangur. Nú er hins
vegar meiri von, þar sem menn
hafa komið auga á þann möguleika
að virkja uppsprettulindir sem eru
inni í Seljadal, skammt frá Þor-
móðsdal. Gamalkunnugir menn
Framh. á 6. sfðu
Styrkur og fíutningur söltunursíldur
til að auku atvinnu á Norðurlundi
Atvinnumálanefnd Norður-
lands hélt fund á Siglufirði á
fimmtudaginn og hefur nú tekið
ákvarðanir um aðgerðir til að
bæta úr atvinnuástandi norðan-
lands. Hefur nefndin ákveðið
tvennt.
í fyrsta lagi að greiða niður
flutning á söltunarsíld til Norð
urlandsins og í öðru lagi að
taka á rekstur togarann Þor-
stein þorskabít og láta hann
hefja síldarflutninga til Norður
landsins í næstu viku.
Nefnd þessi var skipuð sam
kvæmt samkomulagi ríkisstjórn
arinnar og Alþýðusambands
Norðurlands 7. júlí s. 1. til að
hafa forustu um bráðabirgða-
aðgerðir til úrlausnar alvarlegu
atvinnuástandi á Norðurlandi.
Sitja í henni þessir menn: Vé-
steinn Guðmundss. framkvæcd-
arstj. sem er formaður nefnd-
arinnar, Jón Þorsteinsson alþm,
Stefán Friðbjarnarson bæj-
arritari, Óskar Garibalda-
son form. verkamannafélagsins
Þróttar og Bjöm Jónsson alþm.
Tveir þeir síðastnefndu voru
skipaðir skv. tilnefningu Alþýðu
sambands íslands og Alþýðusam
bands Norðurlands.
Nefndin hefur heimild rikis-
stjómarinnar til að verja 3—4
milljónum króna til aðgerða í
því skyni að bæta atvinnu-
ástandið á Norðurlandi.
Nefndin hefur nú ákveðið að
veita fyrst um sinn styrk til
einstakra skipa til flutninga á
síld sem veiðist sunnan Bakka-
flóadýpis vestur fyrir Tjörnes
og nemur styrkurinn 40 kr. á
uppsaltaða tunnu, að því til-
skyldu að söltunarstöðvarnar
greiði 20 krónur til viðbót-
ar. Sé síld flutt til Húsavfkur
skal greiðslan vera 10 kr. lægri.
Nefndin ákvað bráðabirgðaskipt
ingu á styrkfénu til einstakra
staða en saltendur á hverjum
stað ákveða skiptingu sfn á
milli.
Þá hefur nefndin ákveðið að
annast tilraunaflutninga á sfld
með sérstöku skipi og hefur
togarinn Þorsteinn þorskabítur
verið útbúinn í því skyni. Nefnd
in sér um útgerð skipsins, en
trúnaðarmaður síldarsaltenda
verður um borð og annast kaup
á sfldinni fyrir hönd síldarsalt
enda. Mun skipið hefja flutning
í næstu viku.