Vísir - 31.08.1965, Page 3
V1 S IR . Þriðjudagur 31. ágúst 1965,
3
' '• <
W8L 5í -4
iii
Uryggisráðstafanir og snyrti-
mennska eru nauðsyn við byggingar
Eftir slysafréttum að
dæma, eru nýbyggð hús,
eða hús í byggingu mik-
ið hættusvæði, jafnt
starfandi mönnum sem
og ungum bömum, er
mikið leita þangað til
að leika sér.
Eins og myndirnar hér á síð
unni gefa til kynna, er aðstaða
vinnandi manna við byggingar
svo og frágangur við þessi hús
vlða algerlega ófullnægjandi,
þótt skýrt sé tekið fram í Bygg
ingarsamþykkt Reykjavíkur,
hversu frágangi nýbygginga
skuli háttað og hverja aðsöðu
skuli veita starfsmönnum við
bygginguna. 1 flestum tilfellum
liggur sökin hjá verktökum þeim
er annast framkvæmdir, svo og
væntanlegum húseigendum, er
byggja á eigin spýtur. Þótt heim
ild sé til fyrir byggingarfulltrúa,
að svipta þá menn byggingar-1
leyfi, er ekki fullnægja settum
skilyrðum, þá hefur verið til
þess reynt að forðast þá ráð-
stöfun. En hin tíðu og stöðugt
vaxandi slys á vinnustöðum
þessum hljóta að leiða til þess
að gripið verði til róttækra ráða.
Einkum eru hörmuleg þau slys,
sem börn hafa orðið fyrir á
byggingarlóðum.
Trassaskapur þessi er ekki
einungis hættulegur, heldur og
veldur hann viðkomandi verk-
taka eða húsbyggjanda fjár-
hagslegu tjóni, beinu eða ó-
beinu, vegna þeirra tafa á fram
kvæmdum sem orsakast af
skipulagsleysi og skemmda á
byggingarefni er liggur i hirðu-
leysi úti við. Það er til að
mynda nokkuð algengt, að
gluggar séu geymdir úti heilt
sumar, hvernig sem viðrar, og
er þá varla hægt að reikna með
að þeir séu jafn góðir þegar á
að fara að láta þá í að hausti,
og þeir voru nýir. Bindijárn og
mótavír liggur títt eins og vöru-
flutningabifreiðin skildi við
það þegar komið var með það
að húsinu, og þegar á að nota
jámið eru bílar búnir að aka
yfir það og afiaga. Mótatimb-
ur liggur sem hráviði umhverf-
is sum hús, og þegar þungir
steypubílar koma að húsinu
aka þeir yfir heilleg borð og
planka og valda skemmdum.
Myndimar á síðunni eru frá
skrifstofu Byggingarfulltrúa
Revkjavíkurborgar og sýna,
sem fyrr segir, dæmi um ófull-
nægjandi frágang við nýbygg-
ingar. Á efstu myndunum
tveim má sjá, tvö stórhýsi hér
í borg, þar sem verktakar hafa
ekki gengið frá gluggum, svo
stórhætta er á að böm, sem
þangað fara eða starfsmenn við
byggingarnar kunni að fara sér
að voða. Hinar myndimar sýna
slæman frágang utanhúss, sem
einnig getur valdið slysum og
tjóni.
það er þvl ekki að ástæðu-
lausu, að borgaryfirvöldin em
að hefja herferð gegn þessari
ómenningu og munu að öllum
líkindum beita þeim viðurlög-
um, sem heimilt er samkvæmt
Byggingarsamþykktinni.
Á fundi sínum fyrr f þessum
mán. lagði formaður Byggingar
nefndar Reykjavíkur, Páll Lín-
dal, fram eftirfarandi tillögur:
„Þar sem byggingarnefnd
telur að umgengni á byggingar-
vinnustöðum, sé víða stórlega
ábótavant og öryggisráðstafan-
ir ófullnægjandi, felur hún
byggingarfulltrúa í framhaldi
af bréfi hans frá í júní síðastl.,
að hlutast til um að bætt verði
úr, meðal annars með því, að
tilkynna hlutaðeigandi bygging-
armeisturum, sem ábyrgð bera
á slíku, að þeir geti átt á hættu
áminningu eða sviftingu rétt-
inda, ef ekki er bætt úr, þannig
að viðunandi sé“.