Vísir - 31.08.1965, Page 6
6
VÍSIR . Þriðjudagur 31. ágúst 1965.'
Sviss —
Framh. bls. ft
ísjaka, sem frekari hætta getur
stafað af. Jarðfræðingar hafa á-
hyggjur af því, að hreyfing er
enn á jöklinum.
Um allan Saasdalinn kvað við
klukknahljómur í gærkvöldi, en
kirkjuklukkunum var hringt til
þess að kalla menn til bæna og
við tálmanir á vegum sem liggja
að slysstaðnum stóðu þöglir hóp
ar.
Við vaktaskiptin kl. 18,30 er
ósköpin dundu yfir áttu um 60
menn að fara til vinnu, en um
30 voru í matstofu sem skriðan
reif með sér.
Eigandi Alpakofans „Britanj-
ia“, en þaðan sést vel til jökuls
ins, sagði í gærkvöldi, að ef
skriðjökullinn færi aftur af
stað, gæti þrefalt meira af Is,
grjóti og aur runnið fram en
í gær.
Augustus Lombard prófessor
sagði í gær í Genf, að ekki hefði
verið hægt að sjá fyrir ,að All-
alin-jökullinn myndi renna fram
þar sem hann hefur verið að
minnka undangengin 5 ár eins
og aðrir svissneskir jöklar.
Framhaldsfréttir herma, að
leitin að lfkum sé hætt í bili,
þar sem menn óttist frekara
hrun úr skriðjöklinum.
Tveir þaulvanir fjallgöngu-
menn hafa verið fluttir í þyrlu
upp á jökulinn og hafa samband
f talstöð við björgunarliðið f
dalnum.
Vikur geta liðið þa rtil öll lfk
finnast og seinustu fréttir
herma , að f ljós kunni að koma
um sfðir, að yfir 100 menn hafi
farizt.
Þetta eru mestu náttúruham
farir slíkar sem þessar f Sviss
síðan skriða hljóp á hæinn Elm
1881 og létu þá 197 manns lífið.
Bók eftir
Christie
Agathe gamla Christie er enn i
fullu fjöri. Á sl. ári send'i hún frá
sér enn eina bók, „The Carabbean
Mysterie" — leynilögreglusögu að
sjálfsögðu — og ekki nóg með að
hún hlyti góða dóma, heldur telja
sumir gagnrýnendur að gamla kon
an sé í framför, þetta sé með henn
ar beztu sögum. Nú er kvikmynd-
un sögunnar f undirbúningi ,og
þrátt fyrir James Bond æðið. hef-
ur bókin sett sölumet á brezkum
markaði, hvað snertir leynilög-
reglusögur síðustu sex mánuðina.
Þessi nýja saga Agathe Christie
er fyrir skömmu komin út f ís-
lenzkri þýðingu á forlagi Regn-
bogaútgáfunnar, og er þegar upp-
seld hjá útgefanda, svo að henni
er ekki síður tekið hér en annars
staðar.
Smygl —
Framhald af bls 1.
Tollgæzlustjóri sagði, að af-
greiðslu sumra þessara mála
væri enn ekki lokið og þar af
leiðandi ekki búið að gera allar
vörurnar upptækar ennþá, enda
þótt lagt hafi verið hald á þær
þar til afgreiðslu málsins væri
lokið.
Afmæli —
Framh. af bls. 8
á þrjátíu krónur yfir sumarið.
„Ég vann allan daginn og fékk
ekkert kaup. Þessu hef ég aldrei
getað gleymt".
æskufólk
Norræna félagið efnir til kynn-
ingarkvölds i TjamarbúS uppi mið
vikudaginn 1. september ld. 20.30
fyrir æskufólk, sem sótt hefur um
námsvist í norr. lýðháskólum
í vetur fyrir milligöngu félagsins.
Eins eru þeir velkomnir, sem áð
ur hafa stundað nám í slíkum
skólum og væri æskilegt, að sem
flestir gætu kom’ið á fundinn, bæði
til þess að leiðbeina þeim, sem nú
fara utan og til þess að nota tæki
færið og biðja fyrir kveðjur.
Aðgangur er ókeypis og heimilt
að taka með sér gesti. Magnús
Gíslason framkvæmdastjóri félags
ins, mun ræða v’ið æskufólkið um
nám á norrænum lýðháskólum og
gefa hagnýtar upplýsingar í því
sambandi.
Skógrækt —
Framhald af bls. 16.
ar ályktanir, sem hér hefur verið
sagt frá.
— Á laugardagskvöldið var hald
in kvöldvaka í félagsheimilinu á
Blönduósi og sóttu það þingfulltrú
ar og allmargir gestir úr nágrenn-
inu. Þar voru gerðir heiðursfé-
lagar þeir Gunnlaugur Briem ráðu-
neytisstjóri og Eiríkur Hjartarson
rafvirkjameistari, sá sem ræktaði
garðinn í Laugardal, sem nú er
verið að gera að grasgarði og gaf
Skógræktarfélagi Eyfirðinga jörð-
ina Hánefsstaði í Svarfaðardal,
eftir að hafa unnið þar mikið að
skógrækL Þá véitti félagið Stein-
grfmi Davfðssyni fyrrverandi skóla
stjóra á Blönduósi og konu hans,
Helgu Jónsdóttur, silfurbikar fyrir
góð störf í þágu skógræktar, en
þau gáfu m.a. jörðina Gunnfríðar-
staði til skógræktar. Ennfr. var
systkinunum frá Veisu veitt viður
kenningarskjal fyrir mikla skóg-
raekt á Végéirsstöðum f Fnjóska-
dal.
— Fulltrúar rómuðu mjög góða
aðstöðu í félagsheimilinu á Blöndu
ósi og gestrisni Húnvetninga,
sagði Hákon Guðmundsson að lok-
m
2 stjóm Skógræktarfélags Is-
lands eru nú: Hákon Guðmunds-
soo formaður, Einar Sæmundsen,
Haukur Jörundsson, Hermann Jón-
asaon og Sigurður Bjamason frá
Vignt. Formaður Skógræktarfélags
Awstur-Húnvetninga er Jón ísberg
sýstamaður.
8 sleppt —
Framh. at bls. 1:
Vörur þessar voru faldar á 13
stöðum í skipinu, yfirleitt á milli
þilja, þó voru faldar 1644 flöskur
af genever í farmi í lest.
Málið var kært til sakadóms j
Reykjavfkur 11. þ.m. og var skips |
höfn þá öll úrskurðuð f farbann;
og jafnframt 16 skipverjar úrskurð |
aðir í gæzluvist. Síðan hefir rann-;
sókn málsins verið haldið stöðugt i
áfram, 14 skipverjar hafa viður-
kennt að eiga áfengið og tóbakið,
sumir lítið, aðrir meira eða frá 11
flöskum og upp í 50 kassa af gene
ver, 8 skipverjum hefir þegar ver-
ið sleppt úr gæzluvist en þáttur
þeirra í málinu er nú ljós. 1 gæzlu
vist eru enn 10 skipverjar, þeir
áttu allir verulegt magn af áfengi,
m.a. áfengí það sem fannst í lest-
um skipsins.
Ljóst er að um samtök skip-
verja hefir verið að ræða, um að
kaupa áfengið og fela það í skip-
inu.
Dómsrannsókn heldur enn á-
fram.
Jóhann Nielsson.
Snjór —
Framh. af bls. 1:
til Vatnsdalsréttar og réttað þar
í gær. Þarna var um'mörg þús-
und fjár að ræða, eða að því
er bændur telja sem næst helm-
ing þess fjár, sem gengur á
afréttinum f sumar. Svíndælir
sóttu fé .inn fyrir heiðargirð-
ingu 1 gær og munu rétta f Auð-
kúlurétt í dag.
Á suma fjallvegi snjóaði svo
að þeir urðu ill- eða ófærir yfir-
ferðar. Þar á meðal var Kaldi-
dalsvegur og komust bflar ekki
leiðar sinnar eftir honum.
Lágheiði og Siglufjarðarskarð
voru aðeins fær stórum bílum í'
gær, en f morgun var Siglu-
fjarðarskarð ófært, en byrjað að
moka og mikill mokstur talinn
framundan. A.m.k. sólarhrings
mokstur -3a meira þótt vel
gangi. Lágheiði aftur á móti er
talin slarkfær bílum með keðj
ur.
Möðrudalsfjallgarður var orð
inn mjög þungfær f gærmorgun
en þá voru sendir vegheflar á
hann og mun vegurinn nú vera |
kominn f gott lag að nýju og
fær öllum bflum.
Samkvæmt upplýsingum frá i
Veðurstofunni í morgun er norð j
anáttin nú að ganga niður. Kom j
ið stillt og gott veður um allt j
vestan vert Norðurland, en enn-
þá er norðvestan kaldi, skýjað,
sumsstaðar jafnvel lítilsháttar
úrkoma á Norðausturlandi.
Kaldast var í Búðardal í Dala-
sýslu í nótt, 1 stigs frost, bæði
á Hellu á Rangárvöllum og Þing
völlum var hiti við frostmark.
Gert er ráð fyrir'veðurbreyt
ingu í dag og nótt. Búizt er við
að þykkni upp um vestanvert
landið f kvöld og má gera ráð
fyrir sunnan eða suðaustan rign
ingu í nótt.
TTúsið nr. 32 á Vesturgötunni
kallaðist Kapteinahúsið
Þar bjuggu jafnan skipstjórar.
Þeir byggðu það faðir Herdfsar,
Ásgeir og afi hennar Sigurður
Símonarson. Gamla húsið var
rifið 1916 og annað reist á
sama stað. Þegar frú Herdís
giftist Tryggva Ófeigssyni,
fluttust þau á efstu hæð húss-
ins og bjuggu þar til 1934 eða
samtals 14 ár.
Frú Herdís gekk í Kvenfélag-
ið Hringur í formennskutíð
frú Kristínar Jacobsen Vídalíns
og varð virkur þátttakandi. Hún
hefur beitt sér fyrir ýmsum
mannúðar- og velferðarmálum,
t. d. fengið kirkjufélögin til
þess að liðsinna gömlu fólki úr
sinni sókn; breytingu á fram-
færslulögunum, sem tryggir kon
um óreiðu- og drykkjumanna
% af Iaunum þeirra sé hægt
að sanna, að þeir drekki út
launin; byggingu fæðingarheim-
ilis, þar sem 1000 börn fæðast
árlega; orlofsmálinu; heilbrigðis
gæzlu í samvinnu við Krabba-
meinsfélagið.
„Ég er þakklát guði fyrir að
hafa þegið þá náð að fá að
vinna að málum, sem hafa verið
mér hugstæð og beinzt i þá átt
að vera systrum og meðbræðr-
um til gagns — ég vona, að
þetta hafi að einhverju leyti
tekizt stundum ...“ Hún sagði,
að hún hefði vitað frá þvi hún
var barn og lenti í veikindum,
hvert hún ætti að leita til að
verða sterk. Hún sagðist vera
minnug atviks, sem gerðist
norður á Ströndum, þar sem
faðir hennar ólst upp. Eitt
sinn gerði aftakaveður. Föður-
bræður hennar höfðu þá farið í
róður. Voru þau heima Þor-
steinn afi hennar og frú Herdís
kona hans, amma hennar. Var
hún farin að óttast um syni
sína. Þá gengur maður hennar
út og gáir tíl veðurs. Þegar hann
kemur inn aftur varpar hann
fram þessari stöku;
„Ekkert guði er um megn
ég hans náðir þekki.
Minna verður rok en regn
raunum kviði ég ekki“.
Storminn lægði stuttu á eftir
og síðan byrjaði að rigna. „Það
er kannski þessi arfur, sem ég
hef hlotið frá feðrum mínum,
að treysta á þann, sem öllu
ræður, sem hefur verið imdir-
staða míns innsta eðlis“, sagði
frú Herdís.
Hún hélt áfram:
„Mál málanna og undirstaða
undir velferð okkar allra, grund
völlur fyrir hamingju okkar er
trúin á það, að maður getur
alltaf reitt sig á handleiðslu
guðs“. stgr.
BLAÐBURÐUR
Barn vantar til að bera blaðið út í
KÓPAVOGI (Austurbæ)
Vinsamlegast hringið í síma 4 11 68.
VISIR
Aukavinna
Ungur maður óskar eftir vinnu á kvöldin og
um helgar. Margt kemur til greina. Uppl. í
síma 36242 eftir kl. 8 á kvöldin.
TILKYNNING
Skrifstofur lögreglustjóraembættisins í
Reykjavík verða lokaðar miðvikudaginn 1.
sept. n. k. vegna skemmtiferðar starfsfólks.
Lögreglustjórinn í Reykjavík, 30. ágúst 1965
Sendiferðabíll
Chevrolet sendiferðabíll lengri gerð árg. 1955
til sölu. Sæti fyrir 11 fylgja með. Selst ódýrt.
Uppl. í síma 50330 í kvöld og næstu kvöld.
íbúð óskast
Reglusöm og fámenn fjölskylda óskar eftir
2—3 herb. íbúð í 8—9 mán. frá 1. okt. eða 1.
nóv. Fyrirframgreiðsla fyrir tímabilið. Uppl.
í síma 21985.
Lækningastofa
mín verður frá og með 1. sept. í Fischersundi.
Sími og viðtalstímar eins og getur í símaskrá
Þórður Möller
Ný vörubíls „hausing"
„Hausing“ í Chevrolet ’49—’54 með drifi,
öxlum, bremsuborðum og börkum til sölu.
Sanngjarnt verð. Uppl. í síma 15812 eða 23479
Dugleg stúlka
óskast til verksmiðjustarfa.
PLASTPRENT, Skipholti 35