Vísir - 09.09.1965, Blaðsíða 7

Vísir - 09.09.1965, Blaðsíða 7
V1 SI R . Fimmtudagur 9. september 1965, 7 AF UPPBOÐINU Á KJARVALS-VERKUM: Dýrasta myndin var slegin á 47 þúsund eða sem sagt fimmtíu þús- und með söluskattinum. Þetta var nýjasta lands- lagsmynd Meistara Kjar vals í olíulitum. Kliður fór um salinn bæði á und an og eftir. Uppboðið byrjaði talsvert seinna en ákveðið hafði verið. Súlnasalurinn var troðfullur og er erfitt að geta sér til um, hve margir voru þama viðstaddir, en bað skipti þúsundum. Meistarinn gekk upp á hring- sviðið og heilsaði upp á mann- mergðina með hjarta lítillæti snillingsins — það var elskulega flott forspil. Svo tók upboðs- haldari Sigurður Benediktss. við og stjómaði sýningunni og söl- unni og reyndi að hafa hraðan Sigurður uppboðshaldari gekk rösklega að verki. (Ljósm. B. G.) Hæsta boð: 47 ÞÚSUND Lægsta boð: 2 ÞÚSUND á. „Fyrsta . . . annað . . . og . . . þessi mynd hefur vakið athygli sýningargesta". — Við hverja mynd fylgdi yfirleitt smá- athugasemd. Fyrstu myndirnar fóru ekki á himinháu verði — hver dag- launamaður hefði haft efni á þeim kaupum. Fyrsta myndin var slegin á 2500 og sú næsta aðeins tvö þúsund, sem var ó- dýrasta myndin. Svo fóru þær stighækkandi fremur en hitt, en duttu þó niður í verði annað kastið. Þegar komið var aftur að nr. 20 fóm verkin að fara fyrir 15 þúsund og þar yfir — rð vísu hafði nr. 15 „Yfirborð mosa og manns" verið slegin fyrir 20 þús. En meðalverð myndanna hélzt lengst af um 8 þús. Það var ekki fyrr en við myndina „Blóm og blá fjöll" (nr. 49) að verulegt líf fór að færast í uppboðið. „Skáldsins andi flaug“ fór fyrir gott verð, miðað við gæði. Barizt var um „Minnisvangi á vinnustofu I og 11“ „Síbreiði" fór fyrir óskiljan- lega lítið að margra hyggju. En athyglisverðasta myndin, „Landslag spilað á píanó“ var slegin Listasafni ríkisins fyrir 37 þúsund. „Spottprís", ságði einhver. Hressilega var slegizt um myndina „Skúta“, sem einn góðborgari hreppti fyrir 42 þús. Uppboðið varaði rúmar tvær klukkustundir, og að því loknu sagði Sigurður Benediktsson: „Þakka ykkur innilega fyrir í dag og ég bið ykkur lengstra orða að taka myndirnar". Meistarinn sjálfur hafði staðið að sviðsbaki allan tímann utan eitt sinn. Hann skundaði fram á sjónarsviðið og varaði væntan legan kaupanda við því, að til- tekin mynd væri ennþá blaut. Kjarval sagði, þegar þetta var afstaðið: „Mér fannst mynd- imar yfirieitt helmingi of dýr- ar“. (Um eina mynd sagði hann: „Hún var ekki billeg þessi“) „Fannst þér erfitt að horfa upp á þetta, Kjarval?“ „Ég er svo óalþýðlegur um þetta leyti, sagði hann. „Það er nú helzt“, sagði einn vina hans. „Ég er lokaður inni í tákn- rænu aristokratíi, sem er að ein hverju leyti skylt álfum og fag- urfræði . . . í minni vinnu . . . en þegar ég er innan um fólk er ég eins og svampur, sem . ..“ — stgr. Myndirnar voru slegnar fyr- ir hótt ú 9. hundrað þúsund Fólkið fylgdlst af ákafa með því, sem fram fór. (Ljósm. B.G.) Meistari Kjarval sat að sviðsbaki allan tímann sem uppboðið fór fram. Hann hafði fyrrverandi bfl- stjóra frá B.S.R. Þorstein Slgurðsson sér við hlið tll sálubótar (Ljósm. B.G.)

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.