Vísir - 09.09.1965, Blaðsíða 9
VISIR . Fimmtudagur 9. september 1965.
O
BE
Hjá Évrópuráðimi newr stórfeildur árangur
unnizt í kyrrþey í uB auka evrépskt sumsturf
Mr. Smithers framkvæmdastjóri Evrópuráðsins. Hann var áður
en hann réðist til þess starfs aðstoðar-utanríkisráðherra í brezku
stjóminni. Myndin var tekin á blaðamannafundinum í ráðherra-
bústaðnum. Ljósm. B.G.
Nú er staddur í heimsókn
hér á landi framkvæmdastjóri
Evrópuráðsins í Strassborg,
enskur maður, Peter Smithers
að nafni. Hann dvelst hér í
rétta viku. Var hann að koma
frá New York, þar sem hann
ræddi m. a. við U Thant fram-
kvæmdastjóra Sameinuðu þjóð-
anna, en í bakaleiðinni sá
hann að hann myndi hafa tæki-
færi til að kynnast íslandi ,sem
er eitt af 18 aðildarríkjum
Evrópuráðsins. Hann hefur m.
a. rætt við forsætisráðherra,
utanríkisráðherra og félags-
máiaráðherra og borgarstjórann
I Reykjavík og farið allvíða um.
í fyrradag átti hann fund með
fréttamönnum blaðanna. Frá
honum hefur verið skýrt stutt-
lega í fréttum, en verður nú
rakið nánar það sem hann
sagði þar, sem er til kynningar
á starfsemi Evrópuráðsins. ís-
land hefur haft mikið gagn af
þátttöku í því og má t.d. nú
síðast minnast þess að fengizt
hefur 2 milljón dollara lán úr
viðreisnarsjóði Evrópuráðsins
og er það framlag m. a. notað
til framkvæmda á Vestfjörðum.
Á blaðamannafundinum voru
auk Mr. Smithers aðstoðarmað-
ur hans Heinrich Klebes og ís-
lendingarnir Pétur Eggerz sem
er fastafulltrúi okkar hjá Evr-
ópuráðinu, Þór Vilhjálmsson
fulltrúi upplýsingadeildar Evr-
ópuráðsins og Bjami Guð-
mundsson blaðafulltrúi utan-
ríkisráðuneytisins.
Hvað verður um Evrópu
á tímum risa-stórvelda?
Mr. Smithers hóf máls með
því að skýra upptök Evrópu-
ráðsins. Hugmyndin um stofnun
þess kom upp eftir síðari styrj-
öldina, þegar mönnum fór að
verða það ljóst að öld risastór-
veldanna væri að renna upp.
Það var sýnt að stórveldi eins
og Bandaríkin og Sovétríkin
myndu verða alls ráðandi og
síðar kæmu stórveldin Kína og
í Indland. Menn fóru að spyrja
I' sig, hvað yrði um Evrópu í sam-
anburði við þessi risastórveldi,
Evrópa var sundurskipt í mörg
minni ríki, og útlit fyrir að þau
f, myndu missa hin gömlu áhrif
l; sín í heimsmálunum. Þótti
mörgum það því liggja beint
við að þau sameinuðu krafta
sína. Það væri líka nauðsynlegt
til þess að Evrópa hefði efni
á því að halda uppi nútíma
. þjóðfélagsskipun, með allri
þeirri sérhæfingu sem hún
krefst og þess mikla kostnaðar
sem tæknilegar framfarir nú-
tímans útheimta.
Nú hafði samstarf tekizt
með Evrópuþjóð á sviði efna-
hagsmála, þar sem var Efna-
hagsstofnunin eða OEEC.
Stofnun þessi vann að viðreisn
álfunnar eftir stríðið og einn
liður í því var að gera viðskipti
milli Evrópulanda auðveldari,
með því að beita sér fyrir af-
námum verzlunarhafta.
j Starfsemi OEEC gaf mjög
] góða raun en virtist um leið
opna ný svið. Hægt myndi að
koma á líku samstarfi í ótal
mörgum öðrum efnum, svo sem
samræma ýmiss konar atvinnu
löggjöf, á sviði félagsmála,
heilbrigðismála, menntamála o.
s. frv. Og það var hlutverk
hinnar nýju stofnunar Evrópu-
ráðsins að koma samstarfi á um
þessa hluti. Smithers kom með
augljóst dæmi um þetta. Lítum
t. d. á matvælaverzlun milli
landanna, það getur verið að
innflutningshöft í henni séu af-
numin, en þá kemur í ljós að
allt aðrar heilbrigðisreglur gilda
um matvæli í einu ríkinu en
öðru, sem verka eins og við-
skiptahöft. Þá er það líka mjög
mikilvægt verkefni að sam-
ræma heilbrigðislöggjöfina.
Skipulag Evrópuráðsins
Næst var vikið að skipulagi
Evrópuráðsins. Það starfar í
þremur deildum.
1) Ráðherranefndin, sem ut-
anríkisráðherrar allra þátttöku-
ríkjanna eiga sæti í. Er siður
að hún haldi einn fund á ári
þar sem ráðherramir sjálfir
maeta, en fleiri fundi heldur
hún bar sem fulltrúar ráðherr-
anna sitja. Nefnd þessi tekur
ákvarðanir um allar fram-
kvæmdir í samráði við ríkis-
stjómimar.
2) Ráðgjafarþing, sem í eiga
sæti þingmenn af þjóðþingum
þátttökuríkjanna. Þetta þing
hefur ekkert vald, það er aðeins
umræðuvettvangur. En engum
dylst nú lengur, að áhrif þess
eru geysimikil. í umræðum á
því hafa komið fram ótal marg
ar hugmyndir um evrópskt sam,
starf sem síðan hafa orðið að
veruleika. Áhrif þess á þjóðþing
hinna einstöku ríkja hafa og
reynzt mjög mikil, þar sem
nokkrir þingmanna í hverju
landi kynnast þannig af eigin
raun og eru inni i sjálfu megin
hreyfiafli evrópsks samstarfs.
Kvaðst Smithers m.a. geta vott-
að um það af eigin raun, að
það hefði fyrst og fremst ver
ið þátttaka brezkra þingmanna
á Ráðgjafarþingi Evrópu, sem
olli þeirri gerbyltingu á brezk
um viðhorfum og gerðu það
mögulegt að þeir æsktu inn-
göngu í Efnahagsbandalagið á
sínum tíma. Slíkt hefði verið al
gerlega útilokað ef ekki hefðu
til komið áhrifin frá Strassborg
arþinginu.
3) Loks ber svo að nefna fram
kvæmdastjóm Evrópuráðsins,
sem annast daglegan rekstur og
vinnur stöðugt að.
Erfiðleikar í
efnahagsmálum
Þá var að víkja næst að þeiri
klofningu sem hefur orðið í
efnahagsmálum Evrópu í Efna-
hagsbandalag og Fríverzlunar-
svæði.
Mr. Smithers sagði að fyrstu
umræður um stofnun Efnahags
bandalagsins hefðu orðið á
Evrópuþinginu. Þar hefði það
fljótt komið í Ijós, að nokkur
ríki voru reiðubúin að ganga
miklu lengra en önnur í sam
einingu efnahagskerfa sinna og
vildu jafnvel ganga fyrstu skref
in í áttina að ríkjasambandi.
Það hefði svo orðið úr, að þessi
riki, sex að tölu hefðu undir
ritað Rómarsáttmálann og Efna
hagsbandalagið verið stofnað.
En þá hefðu þau ríki sem utan
við það stóðu farið að óttast um
sína hagsmuni og mörg þeirra
myndað önnur samtök EFTA,
sem hafði m.a. eitt það aðal-
hlutverk að efna til viðræðna
við Efnahagsbandalagið um sam
vinnu. Það hefði einmitt verið
liður í þeirri viðleitni að koma á
umræðunum í Brússel sem fóru
út um þúfur.
Bæði þessi efnahagssamtök
eiga nú í miklum erfiðleikum,
Efnahagsbandalagið vegna þess
að öll ríkin þar eru ekki eins
fús á að Ieggja mál sín undir
annarra vald og Fríverzlimar-
bandalagið vegna efnahagsörð-
ugleika Breta.
Stórfelldur árangur
hjá Evrópuráðinu
Mr. Smithers sagði að vegna
þessara erfiðleika hefðu þessi
tvö efnahagsbandalög mjög
komið við sögu í fréttum, blöð
in hefðu birt stórar fyrirsagnir
um þessar deilur. Á sama tíma
hefur Evrópuráðsins lítið verið
getið í fréttum, en það væri þá
frekar vegna þess að þar hefði
verið minna um deilur. Sannleik
urinn væri sá að þar hefði stór
kostlegur árangur náðst á ýms-
um sviðum þótt minna hefði
verið um það rætt.
Þetta starf er m.a. unnið í
þeim 60 sérfræðinganefndum
sem starfa á vegum Evrópu-
ráðsins. En þar koma saman
færustu sérfræðingar frá öllum
18 ríkjunum í ótal viðfangsefn
um, en starf þeirra miðast að
þvf að samræma starfshætti á
sem flestum sviðum í þátttöku
ríkjunum til að gera samstarf
auðveldara.
Stefnir ekki að völdum
Mr. Smithers var að því spurð
ur, hvort Evrópuráðið vildi ekki
stefna að því að auka áhrif sín
og völd, svo að það gæti á
endanum orðið eins konar ríkis
stjórn og þing sameinaðrar Evr
ópu.
Hann kvað það ekki vera.
Evrópuráðið hefði aldrei reynt
að auka völd sín með þeim
hætti. Það ætti fytst og fremst
að vera samtök til að örva til
evrópskrar samvinnu. Mörg mál
sem það hefi fitjað upp á og
komizt hefðu í framkvæmd
hefðu síðar verið tekin upp af
öðrum stofnunum og væri því
fagnað, því að allt stuðlaði það
að auknu evrópsku samstarfi.
Nú væru aðrar stofnanir sem
hefðu með efnahagssamvinnu
að gera svo að Evrópuráðið
skipti sér ekki eins mikið af
þeim efnum. En nóg önnur verk
efni væru til að vinna.
Sjálfur sagði Mr. Smithers
að seta á Ráðgjafarþingi Evrópu
hefði orðið honum persónulega
hin bezta kennsla í alþjóðasam
starfi og þá sérstaklega til að
skilja hin evrópsku viðhorf. Áð
ur en hann hefði hafið setu á
þinginu kvaðst hann eins og
flestir Bretar lítið hafa skilið
viðhorf meginlandsbúanna. Það
hefði verið sér mikilvæg fræðsla
að taka þátt í umræðum og kom
ast í persónuleg kynni við þing
fulltrúa frá öðrum þjóðum. Og
sjálfur kvaðst hann ekki vera
í vafa um það að framtíð Bret
lands lægi f evrópsku samstarfi.
Austur-Evrópa með?
Mr. Smithers var spurður um
viðhorf gagnvart kommúnista-
ríkjunum í Austur-Evrópu og
greindi hann þá frá þeim merki
legu tíðindum, að mjög margar
fyrirspumir hafa komið í sum
ar frá Austur-Evrópu um starf
Evrópuráðsins. Kemur í ljós af
þessum fyrirspurnum að Austur
Evrópumenn hafa sérstakan á-
huga á að komast í samband
við sérfræðinganefndir Evrópu-
ráðsins, um hin ólikustu vanda
mál. Einmitt á slíkum takmörk
uðum tæknilegum sviðum væri
líklegast að samstarf mætti tak
ast fyrst við Austur-Evrópu,
tökum sem dæmi, aðgerðir til að
halda árvatni hreinu. Það er
algerlega tæknilegt atriði sem
engin stjómmál blandast inn í.
Erfiðara yrði svo að hefja sam
starf í menntamálum vegna
hinna ólíku sjónarmiða.
En Mr. Smithers kvaðst von
góður um að með tíð og tíma
kæmu Austur-Evrópuþjóðimar
inn í þetta samstarf. Þær myndu
vfirvinna hina pólítisku örðug-
leika með afnámi kalda stríðs
ins, aðalatriðið á þessum tímum
væri hið tæknilega samstarf
sem nútíma þjóðfélag útheimti
og svo hinn sögulegi bakgmnn
ur, þar sem löndin í austur-
hluta álfunnar hafa frá fornu
fari átt víðtæk samskipti við
Vestur-Evrópu og þau samskipti
eru þeim enn hagkvæm, jafnvel
nauðsynleg,. þegar hinum póli-
tísku hindrunum er rutt úr vegi.
Sagt trá blaðamannafundi Mr.
Smithers framkvæmdastjóra ráðsins