Vísir - 11.09.1965, Page 5
fVtMB Laugardagur 14. september 1965.
utlí.'nd. í npr^un útlönd £ morgisii utlond 1 rnorgun utlönd {■ morgnn
índverjar játa undanhald
á LAHORE- vígstöBvunum
— Pakistanar segja aðstöðu sína þar hafa sfórbatnað
CHAVAN
t í»r var jSíað í fyrsta sTnn af
hð’.u' Indlandsstjömar frá því Ind
ve.'.ir réðust Inn f Paklstan fyrir
5 að indverskar hersveitir
hef • crðið að hörfa undan við
Lahore, og voru þar með stað-
festar tilkynningar frá Karachi
þess efnis, að hersveitir Pakistana
hefðn gert gagnáhlaup og hrakið
indverskar hersveitir yfir landa-
mærin á vígstöðvunum.
Chavan landvarnarráðherra Ind-
lands játaði á þingfundi I gær, að
á einum vígstöðvum af þremur,
þar sem sótt er fram til Lahore —
sem er þriðja stærsta borg Pakist
an — hafi Indverjar orðið að hörfa
undan eftir að Pakistanar höfðu
gert öflugt gagnáhlaup. Pakistanar
höfðu sótt þarna fram með skrið
drekum, Chavan hélt því fram, að
önnur fylking Indverja, sem fram
sótti, hefði hrundið öflugum gagn
áhlaupum Pakistana, eða á Wagah
vígstöðvunum. Þriðja fylking Ind-
verja er í sókn, sagði hann í nánd
bæjar’ins Jamu í suðurhluta Kash-
mir. Kvað hann þeirri fylkingu
hafa gengið vel, hrundið áhlaup-
urp Pakistana, og valdið þeim
miklu tjóni.
Chavan kvað yfirleitt hafa tekizt
að ná þéim árangri, sem til var
ætlazt, og Indland „væri áfram
reiðubúið að horfast í augu við
hverja ógnun frá Austur-Pakist-
an“, sem er landfræðilega aðskil
ið frá Vestur-Pakistan.
Indverska fréttasofan tilkynnti í
gær, að flugvélar frá Pakistan
hefðu gert árás á farþegalest á
Rajasthansvæðinu og hafj 10 menn
beðið bana og 8 særzt. Einnig
hafi sprengjuflugvélar frá Pakistan
gert árás aðfaranótt föstudags á
þorpið Salch í Punjab 70 km. frá
Amritsar, en indverskar flugvélar
gert árásir á flugvelli í Vestur-
Pakistan sömu nótt og hæft flug
vélar þar á vellinum.
1 tilkynningu Pakistanstjórnar
segir, að undanhald Indverja við
Lahore hafi gerbreytt horfunum á
95 km vígstöðvum, og hafi Pakist-
anar sótt fram á syðstu vfg-
stöðvunum, þar sem Indverjar
höfðu gert árás á landamærabæinn
Ladra.
Loks er því haldið fram í út-
varpi frá Pakistan, að Pakistanflug
vélar haf; í gær gert árásir með
góðum árangri á flutningalestir
Indverja og stöðvað með þeim Iið
flutninga á þessu svæði.
Hvor styrjaldaraðili um sig tel-
ur sig hafa valdið hinum miklu
mann og hergagnatjóni.
Flóttafólk frá Kashmir. — Stórkostlegt flóttamannavandamál er komið til sögunnar í báðum lönd-
unum — Indlandi og Pakistan.
Verður Popovic kjöríun for-
seti Allsherjarþingsins ?
Nafni Koco Popovics fyrrverandi
utanríkisráðherra Júgóslaviu hefir
nú aftur skotið upp kollinum sem
forsetaefnis Allsherjarþingsins og
talið að hann standi all vel að vígi
til þess að fá drjúgt fylgi.
Samkvæmt áreiðanlegum heimild
um hafa Sovétríkin fallizt á hann
sem forsetaefni. Það er búizt við,
! að Popovic muni bráðum tilkynna (
að hann verði í kjöri þegar Alls- \
j herjarþlngið kemur saman 21. þ. I
| m. Popovic mun fá fylgi kommún- j
; istaríkjanna í Austur-Evrópu að lík j
; indum, en Suður-Ameríkuríkin hafa !
ekki enn tekið afstöðu í málinu. j
Vestur-Evrópulönd hafa stungið j
upp á finnska sendiherranum £ Svi
þjóð, Ralph Enckell, en hannhefur
bandi við Popovics, sem gerir það
ólíklegra að Enckell verið I kjöri.
Bandarikjastjóm kvað ekki vera
hlynnt júgoslavneskum forseta Alls
herjarþingsins ,en verði ekkert for
setaefni af hálfu Vestur-Evrópu, er
vafasamt að Bandaríkjastjóm haldi
til streitu afstöðu sinni.
Popovic er af kunnri júgóslav-
neskri ætt, var stuðningsmaður
5 herbergja íbúð
Höfum til sölu í blokk við Laugarnesveg 5
herb. og eldhús, eitt forstofuherb. með salerni
og 20 ferm. geymsla í kjallara. Bílskúrsréttur.
Höfum einnig 4 herb. íbúð í blokk við Álf-
hólsveg í Kópavogi, mjög falleg íbúð.
TRYGGINGAR OG FASTEIGNIR
Austurstræti 10 V. Sími 24850. — Kvöldsími 37272
Tito gegn nazistum, menntaður £
ekki enn tekið ákvörðun um hvort j Sorbonne í París, og talar öll „op-
hann gefur kost á sér. í NTB-frétt • ;nber mál“ á vettvangi Sameinuðu
segir, að ýmislegt hafi gerzt i sam | þjóðanna — nema kínversku.
Ný stjórn í Grikk-
landi eftir helgina?
Þegar Tsirimókos forsætisráð-
herra Grikklands kom af fundi Kon
stantins konungs í gær svaraði
hann fyrirspurnum fréttamanna.
Hann kvaðst vonast til þess, að
eftir helgina færi allt að færast í
eðlilegra horf og að takast myndi
að mynda trausta ríkisstjórn. Hann
kvað konung'nn reyna að finna
varanlega lausn eins fljótt og auð-
k.hl rMfxmm
ið væri. Tsirimókos var eina og
hálfa klukkustund á konungsfundi.
Konungurinn ræddi í gær við
Stavros Costophoulos landvama-
ráðherra og Stylianos dómsmála-
ráðherra. Tsirimókos kvað konung-
inn hafa rætt við þá mál sem varða
embætti þeirra sérstaklega.
Samkomulagsumleitunum verður
haldið áfram í dag og á morgun.
► Haile Selassie Eþíopíukeis-
ari leggur til, að allir þjóðhöfð
ingja og stjómarleiðtogar
aðlldarlandanna að Samelnuðu
þjóðunum sitji fund Allsherjar-
þingslns, er það verður sett 20.
þ.m. til þess að stuðla að því,
að endir verði bundinn á styrj-
aldirnar í Indlandi og Vietnam.
► Skriðdrekaframleiðsla er haf
in i Vestur-Þýzkalandi í fyrsta
sinn eftir styrjöldina. Nemur
framleiðslan 50 skriðdrekpm á
mánuði nú þegar.
► Wessin hershöfðingi, sem
felldi Juan Bosch forseta Dom-
iniku í byltingu 1962, fór þaðan
í gærkvöldi. Stuðningsmenn
hans segja, að hann hafi verið
handtekinnn og knúinn til burt-
farar, en siðar tilkynnti Godey
forseti að Wessin hefði verið
skipaður aðalræðismaður i
Mlami
► Bandaríkjamenn segja, að
á 17 stöðum í kringum Hanol, sé
allt sem til þarf að skjóta eld-
flaugum að flugvélum. Rússar
hafa komið þessum skotstöðv-
um upp.
► Tito forseti var viðstaddur
í gær opnun vörusýningar, sem
er hln mesta sem haldin hefir
verið i landinu. Hún er haldin
í Zagreb höfuðborg Króatiu.
Sýnendur eru 6300 frá 59 lönd-
um. Janos Kadar forsætisráð-
herra Ungverjalands var við-
staddur.
► í frétt frá ísrael segir, að
skotið hafi verið á farþegalest
£ grennd við Jerusalem, og kenn
ir Jórdönum um. Ein kona særð
ist.
► Samkvæmt tilkynningu frá
Englandsbanka í gær hefur ver-
ið gert samkomulag vlð þjóð-
banka í 10 löndum, sem hafa
lýst sig fúsa til þess að hjálpa
Bretlandl í efnahagserfiðleikum
þess. Tilkynningin leiddi til
hækkunar sterlingspunds á pen
ingamarkaðinum í gær — hinn-
ar mestu síðan f júni.
iiscEsunssess