Vísir - 11.09.1965, Blaðsíða 9
VÍSIR Laugardagur II. september 1965.
Kannski
verður þetta
svanasöngur
minn —
Þér megið ekki áh'ta, aS þa8 sé af hæversku gestsins, sem
ég segf aS mér falH einstaldega vel héma, bæði vlS land og þjóð,
aegir norska leikkonan og leikstjórinn GerBa Ring, þegar blaða-
maður frá Visi ræðir við hana um stund yfir kaffibollanum að
Hótel Holt. Þetta er falslaus meini'ng mfn. Ég kom fyrst hingað,
þegar ég stjómaðl sviðsetningu á „Pétri Gaut“ { Þjóðleikhúsinu
héma um árið, og minnist enn samstarfsins við leikarana með
mikilli ánægju — Gunnar Eyjólfsson var frábær í hlnu vand-
meðfama hlutverid Péturs Gauts. Og svo kom ég hingað öðru
sinnl að sumariagi svo að minna bar á — slóst í för með Kiev-
baHettinum, og sú dvöl héma varð mér ógleymanleg.
— Þá för bar brátt að. Þjóð-
leikhússtjóri hafði tekið á leigu
flugvél með ballettflokkinn til
íslands, og bauð mér að fljóta
með. Ég var nákunnug norska
ambassadomum héma, og konu
hans, og þau höfðu slegið upp á
þvf við mig, að ég ætti að
skreppa til Islands og dveljast
hjá þeim um tíma — nema hvað
ég tók þjóðleikhússtjóra á orð-
inu, bjó för mína í skyndi og
fyrr en ég vissi eiginlega orðið
af, sat ég í flugvéiinni á leið
til íslands ásamt Kievballettin-
um, tengdasyni Krústjoffs og
Jakob, túlkinum rússneska —
þér munið eftir honum? Undra-
verður tungumálasnillingur, sá
maður. Hann var meðal þeirra,
sem tóku á móti mér á braut-
arstöðinni í Moskvu, þegar ég
kom þangað f seinna skiptið,
1935. Gaman að hitta Norð-
mann héma, sagði ég. Og þegar
hann kvað_t ekki vera norskur,
heldur rússneskur, varð mér að
Iorði að hann hlyti að hafa dval-
izt lengi í Noregi, svaraði hann:
— Ég hef því miður aldrei kom
ið til Noregs! 1 þessari íslands-
;í ferð okkar komst ég að þvf, að
Ihann talaði islenzku ekki siður
en norskuna.
En sleppum þvf. Þessi kynni
mín af íslandi í ferðinni eru
með mínum kærustu minning-
r> um. Hér er allt svo þögult
þegar kemur út fyrir borgina,
frjálst og ósnortið — hátt til
lofts og vítt til veggja í bókstaf
1,1 legri merkingu. Ég er ekki norsk
á þann hátt, að ég tmi mér
hvergi nema í þröngum firði
| millí hárra og þverhnípta fjalla,
“ sem loka allri sýn nema upp í
takmarkað svæði af himninum.
k Og ég kann vel við fólkið, ekki
fyrst og fremst vegna þess að
þjóðin sé af norskum uppruna,
heldur fyrir það að hún er ís-
lenzk.
— Og nú eruð þér komin hing
að til að sviðsetja Afturgöng
■— Já, og ég vona aá það
takist vel. Þið eigið mjög góð
um leikurum á að skipa.
Kannski er það islenzkri leik-
list lika styrkur, þegar á allt er
litið, að hún byggir ekki á nein
um leikerfðum. Erfðir binda,
geta orðið listinni fjötur um
fót. Á stundum geta þær leitt
til harkalegrar uppreisnar, ger
byltingar, þar sem allt fer út í
öfgar. Byltingar geta verið ó-
hjákvæmilegar, en þá er einskis
svifizt, og þá tortlmist oft ekki
siður það, sem gildi hefur en
hitt sem sízt er eftirsjá að. Ein
mitt þessi hætta steðjar að leik
listinni víða á Norðurlöndum.
Þið þurfið ekki að óttast hana.
Þið getið byggt leiklistina á heil
brigðu mati á nýju og sígildu,
án uppreisnar og öfga. Valið um
án tillits til hefðbundinna forms
erfða. Það er ómetanlegt.
Fékk loks nóg af
Tennesse Williams.
Gerða Ring á sér glæsilégan
leiklistarferil að baki, bæði sem
leikkona og leikstjóri. Hún kom
fyrst fram á sviði árið 1911 i
Kaupmannahöfn, en réðist að
Þjóðleikhúsinu í Osló árið eftir
og starfaði þar upp frá því.
Fyrst f stað var hún kunnust
fyrir túlkun sina á hlutverkum
ungra kvenna, siðar sem mikil
hæf leikkona í skapgerðarhlut
verkum — Roxane í „Cyrano
de Bergerac"; Dorine í „Tartuffe
og konan í „Til Damaskus“ svo
að dæmi séu nefnd. En brátt
gat hún sér lika mikið orð sem
leikstjóri, og siðustu starfsár
sín við norska þjóðleikhúsið,
var hún talin með fremstu leik
stjórum, sém það hafði á að
skipa — setti m.a. á svið leik-
rit yngri bandarískra höfunda,
svo sem „Glerdýrasafnið" og
leikrit Millers.
— En ég fékk loks nóg af
Tennesee Williams, segir hún.
■— Bandariskir leikritahöfundar
eru konuiir út í öfgar, yfjrleitt;
mannlýsingar þeirra þeinast um
of að því abnormala. En „Gler-
Gerda Ring
dýrasafnið" er hugljúft lista-
verk; ég hafði mikla ánægju af
að setja það leikrit á svið. Og
leikrit Millers um galdraofsókn
imar er magnað leiksviðsverk
sem hefur tímabæran boðskap
að flytja. Ég setti það einnig á
svið.
— Þið hjónin vomð land-
flótta á styrjaldarárunum sfð-
ari?
— Já, við dvöldumst i Sví-
þjóð. En við lögðum ekki leik
listina á hilluna — þér vitið að
ég var gift Halfdan Christensen
þjóðleikhússtjóra — við komum
á fót norskum leikflokki, „Frá
Norsk Svene“, sem ferðaðist
víða um Svíþjóð og sýndi „Byg
mester Solnes“, eftir Ibsen. Eins
og þér kannski munið urðu átök
með leikumm norska þjóðleik
hússins og þýzku nazistunum
svo að það voru fleiri af starfs
liði þess en við hjónin, sem flúð
um yfir til Svíþjóðar. Fyrir
bragðið var þetta góður leik-
flokkur. En það var hörð reynsla
að verða að dveljast f útlegð,
eins og öllu var háttað þá. Með
ur hafði enga fótfestu; vissi
aldrei hvað verða mundi. Hörð
reynsla, en mikilvæg fyrir það,
að hún glöggvar skilning manns
á mörgu.
Sannleikurinn um
manninn.
Talið berst enn að Ibsen. —
Hann úreltist ekki, segir frú
Gerða Ring. — Á ámnum milli
styrjaldanna var fullyrt að verk
hans hefðu gengið sér til húð-
ar. Nei, ekki aldeilis. Nú eru
verk hans þekktari úti í hinum
stóra heimi og tíðar tekin til
meðferðar en nokkm sinni fyrr.
Af hverju haldið þér? Vegna
þess að þau fjalla um það, sem
mestu máli skiptir — sannleik
ann um manninn. Kannski er
manninum það aldrei nauðsyn
legra en einmitt nú, á þessum
umbrotstímum við upphaf geim
ferðaaldar, að vita sannleikann
um sjálfan sig. Það er að
minnsta kosti staðreynd, að Ib-
sen heldur velli. Auk þess sem
hann er lærifaðir þeirra leik-
ritahöfunda sem lengst hafa
náð, t. d. Eugen O’ Neill.
— Ibsen og Norðmenn mega
þakka fyrir hvað það dregst að
Bandarfkjamenn umbreyti
„Pétri Gaut“ í söngleik af létt
ara taginu, eins og þeir hafa
far’ið með Shaw sáluga í ,,My
Fair Lady“ verður mér að orði.
Frú Gerða Ring hlær. — Guð
forði okkur frá því, segir hún,
— en hver veit, og hvað er við
slfku að gera?
— Það er kannski óviður-
kvæmilegt að spyrja yður um
fyrirætlanir yðar varðandi svið-
setninguna á „Afturgöngun-
um“?
— Sfður en svo. Ég ætla að
byggja sviðsetninguna fyrst og
fremst á þvi, sem ég sagði áðan
að væri megin takmarkið í öll
um verkum Ibsen — sannleikan
um um manninn. Sviðið verður
eins einfalt og frekast er unnt;
ekki annað inni en einfalt borð
og nokkrir stólar; svo verða
dymar og glugginn og útsýni
til fjalla, því að þetta er fast
bundið gerð og gangi leiksins.
En veggimir verða þannig, að
þeir myndi sem óraunhæfasta
umgerð þeim raunhæfu átökum,
sem gerast á sviðinu. Dragi ekki
I neinu athyglina frá því, sem
þar skiptir mestu máli — sann
leikanum um manninn. Ég fagna
þvi að hafa fengið táekifæri til
að setja þetta stórbrotna leik-
rit á svið hér í Þjóðléikhúsinu
og vegna minna fyrri og ánægju
legu kynna af íslenzkum leikur
um hlakka ég til að starfa með
þeim.
Gerða Ring horfir fram irndan
sér. Þó að hún sé farin að eld-
ast, leynir sér ekki að hún hef
ur verið óvenju frið og glæsi-
leg kona. Og enn er yfir henni
göfug reisn hins sanna lista-
manns.
— Kannski verður þetta svana
söngur minn, segir hún, hálft f
hvoru við sjálfa sig. — Ég er
ekki ung lengur . .
En svo hlær hún glaðlega og
bætir við: — Ekki gömul held
ur. Ég kenni mér ekki nokkurs
meins, og held öllum starfs-
kröftum óskertum: þeim and-
legu líka. Hún brosir glettnis-
lega. — Að minnsta kosti veit
ég ekki betur!
☆
Nýr Suðurlandsvegur lagður
í austur frá Ártúnsbrekku
Ferðafólk sem kemur til Reykja-
víkur austan fyrir Fjall hefur
séð miklar byggingarfram-
kvæmdir í úthverfum Reykjavik
ur, þegar það nálgast borgina og
er komið vestur fyrir Rauða-
vatn. Þar á melunum fyrir aust-
an Árbæ er nú að rísa sem.óð-
ast heilt borgarhverfi, sem mun
veita þúsundum manna húsnæði,
þegar það er risið upp.
Margir hafa haft orð á þvf,
að staðsetning húsanna væri
undarleg, alveg ofan í hinni
rniklu umferðaræð og þjóðvegi
austur fyrir fjall, Suðurlands-
brautinni, beggja megin við
hana eru að rlsa ótal mörg íbúð
arhús, sumt af því stórar blokk
ir og eiga húsin að standa nærri
alveg fram við brautina sum
hver.
Nú hefur umferðardeild gatna
málastjóra gefið skýringu á
þessu. Ætlunin er sem sé, að
Suðurlandsbrautin verði afmim
in þarna og þessi gata gerð að
íbúðarhverfisgötu. Suðurlands-
vegurinn verður nú í vetur Iagð
ur annars staðar talsvert miklu
norðar, fyrir norðan háspennulin
una í Smálöndum.
Fram að þeim tíma að hægt
verður að taka nýjan Suðurlands
veg 1 notkun verður hámarks-
hraði á núverandi Suðurlands-
vegi lækkaður vegna byggingar-
starfseminnar og umferðarörygg
is.
Verður hámarkshraði á veg-
inum austur að Rauðavatni
lækkaður úr 60 km. í 45 km. á
klukkusfamd.