Vísir - 15.11.1965, Side 3

Vísir - 15.11.1965, Side 3
V1S IR . Mánudagur 15. nóvember 1965. 3 KR tapaði Spánarfarmiðanum Alvik vann stóran sigur 89:61 eftir KR-ingum var visað af velli með 5 að þrem tæknivillur Ekki tókst KR-ingum að krækja í farmiðann til Spánar og leik þar gegn hinu fræga liði Real Madrid í Evrópubikarkeppninni í körfuknattleik. KR-ingar töpuðu með miklum mun gegn sænsku meisturunum í leik sínum í Ákeskovshallen í Bromma við Stokk- hólm. ALVIK heldur áfram í 2. umferð keppninnar og fer gegn þessum spönsku meisturum í greininni en þeir eru jafnframt handhafar Evrópubikarsins og má því búast við skjótum endalokum Svíanna í keppninni. KR-ingum tókst lengi vel að gera leikinn spennandi fyrir áhorfendur í Ákeskovshallen. Að vísu voru fyrstu 6 stigin frá Svíunum og munurinn skömmu síðar 9 stig, en KR tókst þó að ná sér á strik og jafnaði um miðjan fyrri hálfleik, en aldrei komst KR þó yfir. 1 hálf- leik var munurinn 6 stig fyrir Svi- ana. Hinir erlendu dómarar dæma langt frá þeim reglum, sem við erum vanir, enda er bandariski körfuknattleikurinn og túlkun reglna þeirra, sem þar gilda þekkt- ari hér. Það er þetta sem KR-ing- ar hafa flaskað á í fyrstu alþjóða- keppninni, sem‘ þetta unga lið tekur þátt í. Þetta munu þeir án efa taka sem alvarlega ábendingu og hina beztu kennslustund. Næst þegar liðið fer í Evrópukeppni mun það leika í samræmi við þær reglur, sem I gildi eru í Evrópu, en ekki i Ameriku, enda er það tverjnt ó- líkt. í leiknum á laugardaginn var þetta einmitt uppi á teningnum. Svíarnir fara eins langt og þeir komast gagnvart dómurunum, en það er lengra en bandarískir og ísl. Valur hafði yfir 10:7 þeg- ar 3 míBútur voru eftir — en FRAM komst yfir og vann 11:10 Valsmenn voru sannar- lega klaufskir að tapa ör- uggri forystu í leik sínum í Handknattleiksmóti Reykjavíkur gegn Fram í gær á Hálogalandi 10:7. Síðustu 4 mörk leiksins skoraði Fram og vann á marki frá Guðjóni Jóns- syni með 11:10. Valsmenn áttu ágæt tækifæri á að skora tvö mörk í röð þegar þrjár mínútur voru eftir af leik, þ. e. 11:7 og 12:7, en Hermann og Sigurður Dagsson misnotuðu upp- lögð tækifæri tíl að skora. Þess í stað skoraði Sigurður Einarsson af línu mjög skemmtílega og Guð- jón bæti við 10:9 úr vítakasti, en Gunnlaugur tók annað vítakast rétt á eftir og skaut i stöng. Sigurður Einarsson jafnaði 10:10 og rétt áð- ur en Bjöm Kristjánsson, hinn á- gæti dómari leiksins, flautaði af, kom sigurmark Guðjóns Jónssonar 11:10 Leikurinn var mjög skemmtilegur frá fyrstu mínútu til síðustu og áhorfendur létu ekki standa á sér að hvetja liðdn, en aðdáendur Fram höfðu fylkt sér öðrum megin í salnum en Vals hinum megin og var húsið svo til fullt. 1 hálfleik var staðan 5:5, en í seinni hálfleik hafði Valur jafnað 7:7 og komizt yfir i 10:7 með góðum leikkafla og fallegum mörkum, sem reyndar hefur getað orðið fleiri. Beztu menn liðanna voru Guðjón Jónsson, Sigurður Einarsson, Gunn laugur Hjálmarsson og Þorsteinn Bjömsson hjá Fram, en Sigurður Dagsson, Bergur Guðnason og Hermann hjá Val, en markvörður- inn gerði margt vel. ÞRÓTTUR VANN IR MED 13:8 B ALLETTV ÖRUR Þróttumm hefur vaxið ásmegin eftir því sem liðið hefur á Hand- knattleiksmót Reykjavíkur og í gær vann Þróttur sigur yfir ÍR með 13:8. Leikurinn var heldur jafn framan af eða þar tll um miðjan seinni hálfleik að Þróttarar tóku öll völd og skoruðu 5 síðustu mörk- in. Þróttarar komust snemma 4:1 yfir og leiddu i hálfleik með 6:4. Ólafur Tómasson jafnaði fyrir ÍR með tveim ágætum mörkum og skoraði þrlðja markið, og þá varíR komið yfir. Þróttarar jöfnuðu en Ólafur skorar 8:7. Þarna var enda- punkturinn settur á mörk ÍR þetta kvöld og nú fylgdi yfirburðakafli Þróttar, sem skoraði 5 mörk i röð. Beztu menn Þróttar vom þeir Axel Axeisson og Haukur Þorvalds son, en mjög efnilegir voru mark- vörðurinn og Halldór Bragason. Hjá ÍR bar mest á Ólafi Tómassyni og Ágústi Ólafssynl, en mikið vant ar í llðið, þegar Hermann Samú- elsson er ekki með, en hann mun ekki hafa æft með liðinu i vetur. Táskör og æftngaskór frá GAMBA og FREED Stretch-nylon fyrli BALLE1 FIMl frá Oúnlngai og LEIK- DANSKIN og LASTONET Smábafnafatnaður Snyrti -og gjafavör- — Kvensokkar Leikföng VtRítLMN REYNIMELUR Bræðmnorgarsng 22 Stmi i -3(i rf dómarar munu leyfa og þetta verð- ur til þess að KR-ingarnir verða of grófir. í seinni hálfleik urðu 3 af beztu leikmönnum KR að fara að velli með 5 villur og var Einar Bollason einn af þeim. Eftir það var leikurinn ekki skemmtilegur og Svíamir áttu auð velt með að finna leiðina upp að körfunni og hvað eftir annað skor- uðu þeir á KR. Leiknum lauk með stórum sigri þeirra 89:61 og hafa þeir því unnið með samtals 149: 109, eða 40 stiga mun. ' \ íslenzka liðið náði aldrei því sem búast mátti við, og hark- an leiðir þetta ágæta lið út á villigötur í leik sínum. Svíarnir eru harðir og búa að auki yfir hraða og kerfisbundnum leik. Ny- man þjálfari þarf ekki annað en nefna tölu, — „Átta“, kallar hann og liðið hefur breytt um leikaðferð. Stigahæstir af KR-ingum urðu • Kolbeinn Pálsson með 13 stig, : Hjörtur Hansson með 12, Einar 1 Boliason með 11 og Guttormur Ól- afsson með 10. — jbp — Frá leik Fram og Vals. Bergur Guðnas.on með boltann. Vikiumr náðu / fyrstu stigin Víkingar sóttu sín fyrstu stig i hendur KR-inga, Reykjavíkurmeist aranna í fyrra, sem töpuðu nú .sínum fyrsta leik i þessu móti og eru- Framarar því eina taplausa liðið eftir. Víkángur vann 11:9 og voru það sanngjörn úrslit eftir gangi leiksins, sem var mjög jafn. í hálfleik hafði Víkingur yfir 7:5 en alian leikinn tókst Víkingi að hafa forystuna og KR jafnaði í 1:1, 2:2, 3:3, en síðan ekki aftur, voru hins vegar marki undir í 8:7, en þá skora Víkingar tvö mörk, sem ungur og efnilegur leikmað- ur, Gunnar Gunnarsson skoraði. Gunnar skoraði einnig 11:8 fyrir Víking en þá var mjög stutt eftir af ieik og sigurinn tryggður, en Karl Jóhannsson bætti marki við fyrir KR 11:9. Helgi markvörður Víkings var mjög góður í þessum leik, Gunn- ar Gunnarsson athyglisverður leik- maður, en hann skoraði 4 mörk fyrir liðið, og Þórarinn ágætur. Af KR-ingum var Karl Jóh. beztur eins og svo oft áður, en Herbert Haraldsson vakti athygli og Sigurð ur Óskarsson lék prýðis góðan leik.

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.