Vísir


Vísir - 15.11.1965, Qupperneq 5

Vísir - 15.11.1965, Qupperneq 5
V1SIR . Mánudagur 15. nóvember 1965. 5 i Arbækur — Framh. af bls. 16 rektor. Þá var 1 sumar gefinn út skyggður uppdráttur af Þórsmörk til leiðbeiningar Þórsmerkurförum, sem kynna vilja sér ömefni og gönguleiðir í mörkinni. Þeir Sigurður Jóhannsson forseti Ferðafél. og Einar Guðjohnsen framkvæmdastjóri þess skýrðu 1 meginatriðum frá annarri starfsemi félagsins í sumar. Mesta átak þess var kaup á húseign á Öldugötu 3, og þangað hefur það nú flutt bæki stöðvar sínar. Voru gefin út skulda- bréf til að létta undir fjárhagslegri byrði og em þau til sölu á skrif- stofu félagsins. Meiri eða minni viðgerðir hafa fan'ð fram á sæluhúsunum f Kerl- inr t'j.'iUum, Hveravöllum og hjá Hví! r -ami, og allmikið keypt af nýju ' i /num bæði í þau og annars staðar sem þörf krafði. Forseti fé- lagsins og framkværpdastjórinn gátu þess að umgengni í og við sæluhúsin færi hrakandi, og hefði hún, af gesta hálfu, verið með versta móti f sumar. Menn skildu eftir matarleifar og msl ýmist inni í húsunum eða fyrir utan dyrnar, sumir tækju ýmsa muni úr sælu- húsum með sér og í sumar hefur einhver stolið sparibauk úr Hvftár- neshúsinu með öllu því, sem í hon- um var, og ennfremur var stolið úr sparibauk í Hagavatnshúsinu. í sumar sem leið efndi Ferðafé- lagið til 107 ferða, lengri og skemmri, með um 2650 þátttakend- um. Skemmtifundir em þegar hafnir í Reykjavík og verður einn til jafn- aðar á mánuði vfir veturinn. Næsta kvöldvaka verður núna f vikunni og þá sýndar ýmsar myndir sem teknar hafa verið f ferðum félags- ins á s.I. sumri. Hafnfirdingar — Framh. af bls. 16 húsgagnasmíðameistara í Reykja- vfk, að heiðursfélögum Landssam- bands iðnaðarmanna, en þeir áttu báðir sæti í stjóm Landssambands- ins um árabil og hafa lengi staðið í forustu samtaka iðnaðarinanna. Iðnþingsfulltrúar sátu hádegis- verðarboð bæjarstjómar Hafnar- fjarðar en síðan var fundum haldið áfram og kosið f stjórn Landssam- bandsins, og í ýmsar milliþinga- nefndir. igfús Sigurðsson, húsa- smíðameistari í Hafnarfirði var kjör inn forseti Landssambandsins til eins árs í stað Guðmundar Hall- dórssonar, sem lézt á árinu. Þá var kjörinn í stjórnina Sigurður Krist- insson, Hafnarfirði, og endurkjöm- ir þeir Jón E. Ágústsson, málara- meistari, og Þórir Jónsson framkv.- stjóri, en þeir áttu báðir að ganga úr stjóm. Endurskoðendur vom kjörnir þeir Helgi Hermann Eiríks- son og Sigurður Árnason. Enn- fremur var kosið í ýmis önnur trún aðarstörf fyrir Landssambandið og í milliþinganefndir. Skóli — INNLENT LÁN RÍKISSJÓÐS ÍSLANDS 1965 2.FL. VERÐTRYGGÐ SPARISKÍRTEINI UTBOÐ Fjármólaráðherra hcfur ákvcðið að nofa hcimild í lögum nr. 59 frá 20. nóvember 1964, sbr. lög nf. 23 frá 4. maí 1965, til þess að bjóða úf 28 milljón króna innlent lán ríkissjóðs með eftirfarandi skilmálum: SKILMÁLAR 1 . GREI N Hlutdeildarbréf lánsins eru nefnd spariskírteini, og eru þau öll gefin út til handhafa. Þau eru í tveimur stærðum, 1.000 og 10.000 krónum, og eru gefin út í töluröS eins og segir í aðalskuldabréfi. 2. GREl N Skírteinin eru lengst til 12 óra, en frá 20. janúar 1969 er handhafa í sjálfsvald sett, hvenær hann fær skírteini innleyst. Vextir greiðast eftir á og í einu lagi við innlausn. Fyrstu 4 árin nema þeir 5% á ári, en meðaltalsvextir fyrirallan lánstímann 'eru 6% á ári. Innlausnarverð skírteinis t'vöfaldast á 12 árum og verður sem hérsegir að meðtöldum vöxtum og vaxtavöxtum: Skírteini 1.000 kr. TO.ÖOO kr. Eftir 3 ár 1.158 11.580 — 4 ár 1.216 ' 12.160 — 5 ár 1.284 12.840 — 6 ár 1.359 13.590 — 7 ár 1.443 14.430 — 8 ár i.535 15.350 — 9 ár 1.636 16.360 — 10 ár 1.749 17.490 — 11 ár 1.874 18.740 — 12 ár 2.000 20.000 Við þetta bætast verðbætur samkvæmt 3. gr. 3. GREIN Við innlausn skírteinis greiðir ríkissjóður verðbót á höfuðstól, vexti og vaxtavexti í hlutfalli við þá hækkun, sem kann að hafa orðið á vísitölu byggingarkostnaðar frá útgáfudegi skír- teinis til gjalddaga þess (sbr. 4. gr.). Hpgstofa íslands reiknar vísitölu byggingarkostnaðar, og eru núgildandi lög um hana nr. 25 frá 24. apríi 1957. Spariskírteinin skulu innleyst ó nafn- verði auk vaxta, þótt vísitala byggingarkostnaðar lækki á tímabilinu frá útgáfudegi til gjalddaga. Skírteini verða ekki innleyst að hluta. 4. GREIN Fastir gjalddagar skírteina eru 20. janúar ár hvert, í fyrsta sinn 20. janúar 1969. Innlausnarfjárhæð skírteinis, sem er höfuðstóll, vextir og vaxtavextir auk verðbótar, skal auglýst í nóvember ár hvert í Lögbirtingablaði, útvarpi og dagblöðum, í fýrsta sinn fyrir nóvemberlok 1968. Gildir hin auglýsta inn- lausnarfjárhæð óbreytt frá og með 20. janúar þar á eftir j 12 mánuði fram að næsta gjálddaga fyrir öll skírteini, sem inn- Ieyst eru á tímabilinu. 5. GREIN Nú rís ágreiningur um framkvæmd ákvæða 3. gr. um greiðslu verðbótar á höfuðstól og véxti, og skal þá málinu vísað til nefndar þriggja manna, er skal þannig skipuð: Seðlabanki íslands tilnefnir einn nefndarmann, Hæstiréttur annan, en hagstofustjóri skal vera formaður nefndarinnar. Nefndin fellir fullnaðarúrskurð f ágreiningsmálum, sem hún fær til með- ferðar, Ef breyting verður gerð á grundvelli vísitölu byggingar- kostnaðar, skál néfnd þessi koma saman og ákveða, hvernig vísitölur samkvæmt nýjum eða breyttum grundvelli skuli tengdar eldri vísitölum. Skulu slíkar ákvarðanir nefndarinnar vera fullnaðarúskúrðir. 6. GREIN Skírteini þetta er undanþegið framtalsskyldu og er skattfrjálst á sama hátt og spárifé, samkvæmt heimild í 3. gr. nefndra laga um lántöku þessa. 7. GREIN Handhafar geta fengið spariskírteini sín nafnskráð í Seðla- banka íslands gegn framvísun þeirra og öðrurn skilríkjum um eignarrétt, sem bankinn kann að áskilja. 8. GREIN Innlausn spariskírteina fer fram í Seðlabanka íslands. Eftir íokagjalddaga greiðast ekki vextir af skírteinum, og engin verðbót er greidd vegna hækkunar vísifölu byggingarkostn- aðar eftir 20. janúar 1978. 9. GREIN Allar kröfur samkvæmt skírteini þessu fyrnast, sé þeim ekki i lýst hjá Seðlabanka 'íslands innan 10 ára, talið frá 20. janú- ar 1978. 10. GREIN Aðalskuldabréf lánsins er geymt hjá Seðlabanka fslands. Spariskírteinin verða til sölu í viSskiptabönkum, bankaúti- búum, stærri sparisjóSum og hjá nokkrum verðbrcfasölum í Reykjavík. Vakin er athygli á því, aS spariskírteini eru einnig scld í afgreiSsIu ScSlabankans, Ingólfshvoli, Hafnarstræti 14. Salan hefst 15. nóvember n.k. 12. nóvember 1965 SEÐLA6ANKI ÍSLANDS Framh. af bls. 16 arnir á um skólasetu, verða hálfan mánuð í hvert sinn. Skóla stjóri er Sigurður Helgason.. Hinn nýi skóli er á þrem hæðum, með útbyggingu, sem er borðsalur fyrir 70 manns, er skólinn teiknaður á teikni- stofu húsameistara rikisins. Er skólinn alls 5150 rúmmetrar að stærð og nemur byggingarkostn aður nú um 17 millj. króna og eru þar af tæpar tólf milljón ir framlag rikissjóðs. Vígsluathöfnin hófst með því að Gunnar Guðbjartsson for- maður byggingarnefndar skól- ans bauð gesti velkomna og j flutti kveðjur, sem skólanum j höfðu borizt m. a. frá fjármála ráðherra Magnúsi Jónssyni og konu hans og landbúnaðarráð- herra Ingólfi Jónssyni. Rakti Gunnar byggingarsögu skólans en teikningum var lok- ið árið 1961 og fyrsta framlag veitt það ár. Teikningar að skólanum gerði Guðmundur Þór Pálsson arki- tekt. Byggingameistari var Jón Guðmundsson, Akranesj en tré smíði annaðist Hörður Kristjáns son trésmíðameistari, var fram lag þeirra sérstaklega þakkað. > Upphaflegur heildarkostnaður j við skólabygginguna var áætl- aður 18,4 milljónir króna en vegna ýmissa aukaútgjalda m. a raflínulagnar má gera ráð fvrir hærri heildarsoktsnaði. Fyr ir utan framlag ríkissjóðs lagði Gistihúsasjóður fram 200 þús- und krónur til húsgagnakaupa gegn því að skólahúsið yrði not að til gistinga að sumri til. Lýst var frekar byggingu skólans, nemendafjölda og kenn j araliði en auk skólastjóra munu ! starfa við skólann þrír kennar I ar og hafa tveir þeirra þegar verið ráðnir en hinn þriðja vant ar ennþá. Afhenti síðan formaður bygg ingarnefndar sr. Árna Pálssyni, Söðulholti formanni skólanefnd ar skólann til umráða. Fluttar voru síðan margar ræður og skólanum ámað heilla. Töluðu m. a mennta- málaráðherra Gylfi Þ. GíslasOn, forsætisráðherra Bjarni Bene- diktsson, fræðslumálastjóri, húsameistari ríkisins, formaður skólanefndar og skólastjórinn Sigurður Helgason. FELAGSUF Aðalfundur Skíðadeildar K.R. verður haldinn miðvikudaginn 17. nóv. kl. 8.30 I félagsheimili KR. Stjómin. Frjálsíþróttadeild K R. Kvikmyndafundur verður í dag I KR-heimilinu kl. 3 e. h. Sýndar verða kennslumyndir um frjálsí- þróttir. Allir KR-ingar og gestir þeirra velkomnir. — Stjóm F.K.R.

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.