Vísir - 04.12.1965, Síða 7

Vísir - 04.12.1965, Síða 7
7 V1SIR . Laugardagur 4. desember' 1965. KIRKJAN og ÞJOÐIN FRÆKORN Landakotseignin, þar sem sr. Ásmundur próf. Jónsson hafði bú- ið sem dómkirkjuprestur, en eftir- maður hans hafði ekki viljað kaupa af honum, var á þessu ári seld katólsku trúboðsfélagi fyrir' milli- göngu Randrups lyfsala og,framm nesks könsuls'. Söluverðið var 4500 rdl og hörmuðu margir, að bær- inn skyldi hafa látið þessa eign sér úr greipum ganga. (Árbækur Rvíkur 1859.) £ Luther sagði: Biblfan er stór skógur með alls kyns trjám. Þar má finna margs konar aldin. Eg hef aldrei til einskis hrist neina grein í þeim skógi. & „Sé það ráðsályktun almáttugs og algóðs Guðs, að hlutverki þess- arar jarðar sé þá og þegar iokið, sem uppeldisstöðvar fyrir mann- legar sálir, þá er ekki vort að gera neinar athugasemd við það. Mannlífinu, er að vorri trú engan veginn lokið með því og óendan- legar veraldir Guðs standa oss vafa laust opnar alveg jafnt fyrir því, þótt einhvem tíma fyrr eða síðar sé lokið ætlunarverki þessa duft- korns i alheimi, sem vér nefnum jörð“. (Bj. M.: Aðventupredikun). hjarta, prýð... 1 guðspjalli fyrsta sunnu- dagsins í aðventu segir: Sjá konungur þinn kemur til þín, hann stendur vlð dymar og knýr á. Konungurinn er Jesú Kristur og, í líkingu talað, eru það dyrnar að hjarta þínu og mínu, sem hann knýr á og vill kom- ast inn um, Hann fæddist eins og vér, inn í þennan heim var ómálga hvítvoðungur, augasteinn móð- ur sinnar. Fáir vissu þá áð nokkuð sérstakt hefði ger^ við fæðingu haás. Þó voru þeir til. Vitrir menn höíðu fiéð himneskt ljós s<kína i skamm- degismyrkrinu. Þeir gerðu sér ferð langa vegu og spurð^; Hvar er hinn nýfæddi konung- ur? Vér höfuð séð stjörnu hans. Og þegar þeir fundu barnið veittu þeir þvi lotniggu eins og það væri konuqguv Og þetta sveinbaen *o. .4^5 og þroskaðist að vízíte 6g vexti. Fullorðinn gekk hann um kring og gerði gott. Mörgum þótti hann þá eins og Ijós sem skein í myrkri sorga, sjúkdóma og vantrúar. Þá var aftur spurt: Ert þú sá, sem koma á, eða eigum vér að vænta annars? Svarað var: Farið og kunn- gjörið: Blindir fá sýn, haltir ganga, líkþráir hreinsast og fátækum er boðað fagnaðar- erindi. .. • Margir já(uðust. .til Jylgifi ^ hánri og gerðu hann að kori- ungi lífs síns — og hann varð drottinn þeirra. Enn fleiri mis- skildu konungsköllun hans. Á fyrsta sunnudegi í aðventu er sagt frá innreið hans í hina fornhelgu höfuðborg, er mann- grúinn fagnaði honum eins og þjóðhöfðingja — eins og kon- ungi. En þá urðu þeir svieikir, sem með völdin fóru. Og enn segir frá því í öðru guðspjalli aðventunnar er hann var leidd- ur fjötraður fyrir þann, sem með æðsta veraldlega valdið fór. Og þá var enn spurt: Ert þú þá konungur? Já, ég er konungur, svaraði hann, til þess kom ég í heim- inn að bera sannleikanum vitni, hver sem er sannleikans megin heyrir mína röddu. Og hann sagði fleira: Ég er góði hirðirinn, ég er kominn tfl að leita að hinu týnda og frelsa það. Ég er brauð lífsins. Kom- ið til mín allir þér, sem erfiðið og þunga eruð hlaðnir og ég Sr. Þórarinn Þór á Reykhól- um skrifar hugleiðingu Kirkju sfðunnar i dag. Sr. Þórarinn er Eyfirðingur (eins og allir sannir Þórar) f. á Akureyri 1921. Strax að loknu prófi varð hann prest- ur vestra og hefur lengst af pjónað Flatey líka. Prófastur Barðstrendinga hefur hann ver- ið hin síðari ár. Hugvekja sr. Þórarins fjallar um aðventuna, komu Krists til safnaðarins. Yfirskriftin er tekin úr sálminum: Gjör dyrnar þreiðar, hliðið hátt, og á að miilna okkur öll á að búa hjarta oljkar undir komu jólabarnsins. mun veita yður hvíld. Fylgið mér, ég er ljós heimsins. Farið og gjörið allar þjóðir að læri- , .svejWMriV.Segið: Sjá, konungur þipn kemur til þín. Hann stend ur við dymar og knýr á. ★ Sjá konungur þinn kemur! Á það vill aðventan benda alveg sérstaklega. Hugur krist- ins manns á að dveljast við þetta, svo að sál hans megi vera undir það búin að taka á móti konunginum þegar hann kemur. Því að hann er enn konungur, hann er enn drottinn og fnelsari. Hatm er enn ljósið, sem skfn í myrkrinu, og hvað skærast þegar það er dimmast. Hann er Ijós hehnsins. Og lík- ingin er tekin af hinu heims- ljósinn, sólmni, en án hennar væn ekkert ytra lif. Ef sólin missti birtu sinnar og ylur hennar hyrfi, mundi allt líf á þessari jörð deyja. Þegar skammdegið er að verða hvað dimmast — þá er oss bent á að innan skamms koma jólin og þá fer aftur að birta. — Brátt koma vetrarsól- hvörf og þá vitum vér að sólin fer aftur að hækka sinn gang, og hægt og sígandi, en jafnt og þétt, færumst vér nær birtu og fegurð vorsins, þegar nátt- úran vaknar til lífsins að nýju.. Þegar myrkrið er mest erum við minnt á að LJÓSIÐ ER í NÁND, ljósið, sem skín í myrkr inu og rekur það á flótta. Og hrífur oss með á sinni sigurför, — sigurför, sem endar i upp risu lífsins frá dauðum í „nótt- lausri voraldarveröld". Það er engin tilviljun að það fer saman; sú stund er sólin hefur sína sigurför gegn myrkrinu og vér kristnir menn höldum jól. Því að eins og sól- stöður á vetri eru oss öruggt tákn um það að snúið er við frá myrkri til ljóss og lífs, — þá eru jólin oss einnig tákn þess á hverju ári að hið and- lega Ijós er einnig í heiminn komið og lætur oss ekki farast í myrkrinu, að þrátt fyrir marg víslegt böl og andstreymi, sorg og braut og tár, þá er vfir oss vakað í miskunn og kær- leika. Og það gerir hann, sem elskar oss svo mjög að hann sendi son sinn til þess að frelsa oss frá illu, og vissulega hefur hann til þess ekki minni mátt en sólin, sem að lokinni sigurgöngu sinni vekur lff í sverðinum, sem nú er dauður, frosinn í myrkri og kulda. Mitt í svartasta skammdeg- inu er oss bent fram til jólanna — til að minna oss á að hversu mikil sem makt myrkranna verð ur, hversu mikið, sem dimmir umhverfis oss, hversu mikið, sem kann að mæta oss af illsku, böli og alls kyns neyð — þá verður samt aldrei svo dimmt að vér getum ekki, ef vér vilj- um séð ljósið — Ijós jólanna sem í myrkrinu Ijómar og skín og flytur hinn gleðilega boð- skap: Y8ur er frelsari fæddur. ★ Aðventan er komin. Jólin eru í nánd. Sjá, konungur þinn kemur til þín. Hann stendur við dymar — dyr hjarta þíns — og knýr á. Vér skulum svara með skáldinu og segja við hvort annað og við oss sjálf: Gjörið dyrnar breiðar, hliðið hátt, þig, hjarta, prýð sem bezt þú mátt, og trúarlampann tendra þinn og til þín bjóð þú Jesú inn. Gestir í skálanum. Um hvltasunnuna hafa oft- ast verið haldin unglingadeilda mót í Vatnaskógi, en þar sem hvítasunnan var mjög seint ár- ið 1962 var ekki hægt að fara þangað, enda sumarstarfið þar byrjað. í stað þessa farið til Vestmannaeyja og KFUM þar heimsótt. í þessari ferð barst skálahugmyndin í tal, og varð það til þess að nokkrir af þátt- takendunum sendu gjöf sem vera skyldi stofnframlag. Og nú var að halda áfram. Samþykkt var að útbúa, þegar skáli væri keyptur, sérstaka aug lýsingatöflu, og fyrirtæki og aðrir fengnir til þess að skrá sig fyrir auglýsingu á nenni. Undirtektir urðu mjög góðar og margir drengjanna voru mjög duglegir. Á meðan á þessu gekk, ,var leitað og leitað að skála eða landi undir skála hér í nágrenn inu við bæinn, því ekki mátti þetta vera of langt, helzt að hægt væri jafnvel að hjóla þang að. En ekkert virtist koma til greina. Og drengirnir urðu ó- þolinmóðir og fannst, í ákafa æskunnar, lítið miða. Svo var það í maí 1964 að við fréttum af skála þeim, sem keyptur var. Fórum við og skoðuðum hann 25. maí, eða á afmælisdegi sr. Friðriks Frið- rikssonar. Þeir, sem þá skoð- uðu hann, fannst strax að þetta væri staðurinn. Stuttu síðar var gengið frá kaupum. Og nú eru allir ánægðir með þennan stað, og við þökkum Guði fyrir hann, og vitum að það var handleiðsla hans að við skyldum bfða. Hann er virkileg gjöf Hans til okkar. Skálinn er ekki mjög stór: Lítið eldhús, svefnherbergi með 5 svefnplássum og svo er mjög falleg setustofa með ami, klædd sandblásinni furu, sem gefur henni fallegan blæ, og þá sér- staklega þegar búið er að kveikja á vetrarkvöldum á olíu- lömpum og logar glatt í arnin- um. I skálanum var dvalið síðast- liðinn vetur um næstum allar helgar og vantaði ekki áhugann hjá UD piltunum að fara. Þama í nágrenninu myndast á vetrum gott skautasvell, og skíðabrekkur eru góðar í Hamrahlíðinni, þegar snjórinn lætur sjá sig. Auglýsingamar em skráðar i Framh. á bls. 6.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.