Vísir - 12.03.1966, Side 3
VÍSIR .
Laugardagur 12. mv.rz lff66.
ina
LITID Á VOR-
FÖT í PARÍS
Myndsjáin ætlar í dag að
bregða sér i stutta ferð til París-
ar — enda laugardagur og aðal-
verzlunardagurinn þar i borg —
og líta inn hjá nokkrum tizku
meisturum sem nú eru í ööaönn
að sauma vor- og sumarfatnað-
inn. Kannski geta þeir orðið ein-
hverri Austurstrætisdótturinni,
sem er í vandræðum meö að
finna „vorsniðið“, til hjálp-
ar, ef ekki, þá gleðja myndirnar
þó að minnsta kosti augað.
í búöinni hans Yves Saint-Laur-
ent er ailt í sjóliðastíl. Kápurnar
eru tvíhnepptar með gylitum
hnöppum og gjarnan með spæl-
um á öxlunum. Þarna sjáum við
líka dátabuxur, en víddin er tak
mörkuö. Okkur lízt bezt á hvíta
ullarefnlskápu með gylltum
hnöppum og uppslögum á erm
unum. Tiivalin fermingarkápa.
tJti fyrir Elysée-höllinni, hjá skýli varðmannsins, hittum viö þrjár dömur, frá Ricci, Patou og Dior.
Þær eru allar klæddar frönsku — og fslenzku — fánalitunum: rauðu, bláu og hvítu. Sú fyrsta er í
hvítum krep-kjól og dökkblárri jerseykápu með hvítu belti og hvítum hnöppum. Sídd kápunnar er
7/8. Daman í miðjunni, frá Patou, er í rauöri ullarkápu og innanundir f hvítum strigakjól. Dior-
daman í skýlinu er í blárri kjóldragt. Jakkinn er ekki hnepptur en tekinn saman í hálsmálið með
rauðri slaufu. Hvítur kragi hvítir hanzkar og hvítur hattur .
Hjá Emanuel Ungaro rekumst
við á gulrauða kjóldragt með
lillabláum og gulrauðum röndum
á barminum og innan á jakkan-
um. Kringum hnappana eru hvít
ir hringir. Kjóllinn víkkar út að
neðan. Jakkinn er stuttur og vel
vfður.
Sólin hækkar á lofti með hverj
um deginum sem lfður, enda vor-
ið á næsta lelti. Þá sólskinsdaga
Það er snemma dags og við lít-
um inn hjá Cardin. Okkur lízt
vel á Ijósbláan sumarkjól, meö
„66-handveg“ og tveimur vösum.
Kjólnum fylglr iítill hattur með
kappasniöi og kápa, einföld og
slétt og hneppt í mittið með ein
um hnappi. Efnið er ullargaber-
dlne.
sem kornið hafa í vikunni hefur
mátt sjá nokkrar konur komnar
í vordragtlr og vorkápur, þótt
heldur hafi nú veriö kalt í veöri.
Verzlanimar keppast að sjálf
sögöu við að auglýsa vorfatnað
inn og þær konur sem hyggja á
fatakaup þvi farnar á stúfana
til að sjá hvað á boöstólum er,
ýmist af tilbúnum fatnaöí eða þá
efnum sem sauma má úr fallegu
kápu eöa dragt.
En ef sauma á kápuna, eða
dragtina, hvemig á þá sniðið að
vera?