Vísir - 18.03.1966, Blaðsíða 4

Vísir - 18.03.1966, Blaðsíða 4
4 V í SIR . Föstudagur 18. marz 1966. MCRK NtMÆLI RlKISSTJÓRN- ARINNAR Á CFNA HA 6SS VIDINU Sngt frá markmiðum Framkvæmdasjóðsins, Hagráðs og Efnahagsstofnunarínnar, sem ný lög munu taka gildi um JTrumvarp ríkisstjórnarinnar um Framkvæmda- sjóö íslands, Efnahagsstofnunina og Hagráð gerir ráð fyrir verulegum skipulagsbreytingum í lánamál- um stofnlánasjóðanna og felur í sér ýmis mérk ný- mæli. Stofnun Hagráðs er merkt spor í þá átt að samræma þætti efnahagslífsins og koma á betri samvinnu aðila vinnumarkaðsins í landinu. Hér fer á eftir greinargerð ríkisstjórnarinnar, þar sem þessi mál eru ítarlega skýrð og sagt frá því hver markmið þessara breytinga eru. Birtir Vísir greinargerð þessa hér í heild, svo menn geti kynnt sér mál þessi em ítarlegast. Um Fram- kvæmdasjóð íslands Með þessu frumvarpi og frum varpi til laga um Fiskveiðisjóð íslands er stefnt að því að gera skipulag og starfsemi fjárfest- ingarlánasjóða einfaldari og hag kvæmari en verið hefur. Er lagt til, að Stofnlánadeild sjávarút- vegsins og Fiskveiðasjóður Is- lands sameinist í nýjan sjóð. Jafnframt er lagt til, að Fram- kvæmdabanka íslands sé breytt í framkvæmdasjóð, er sé í vörzlu Seðlabanka íslands og hafi það hlutverk að veita lán til annarra fjárfestingarlána- sjóða, sem veita lán til einstakra framkvæmda. Einnig er gert ráð fyrir, að framkvæmdasjóðurinn veiti lán til meiri háttar opin- berra framkvæmda. Á undanfömum árum hafa stofnlánasjóðir landbúnaðar- og iðnaðar verið efldir og starfsemi þeirra aukizt mikið. Með sameinirigu Stofnlánadeild ar sjávarútvegsins og Fiskveiða sjóðs mun hliðstæð efling eiga sér stað, að því er stofnlánasjóð sjávarútvegsins snertir, og mun hún einkum geta leitt til aukinna lána til fiskiðnaðarins. Þessi breyting á stofnlánasjóðunum gerir það að verkum, að ekki er sú þörf, sem áður var, fyrir starf semi Framkvæmdabanka íslands á sviði fiskvinnslu. Á hinn bóg- inn hefur efling stofnlánasjóð- anna skapað aukna þörf fyrir fjáröflun til stofnlána og sam- ræmingu á starfsemi stofnlána sjóða við aðra bankastarfsemi f landinu. Breyting Fram- kvæmdabanka íslands í fram- kvæmdasjóð miðar að því að fulnægja þessari þörf. Tengsl framkvæmdasjóðs við Seðla- bankann og tengsl hinna ein- stöku stofnlánasjóða við við- skiptabanka tryggja nauðsyn- lega samræmingu við aðra bankastarfsemi og við heildar- stjórn bankamála. Með því skipulagi sem hér er lagt til, að komið verði á fót, er í veigamiklum atriðum horf- ið að því skipulagi, sem upphaf- lega var ætlunin að yrði á Fram kvæmdabanka fslands og Fram kvæmdasjóðnum er einnig ætl- að það meginhlutverk sem Framkvæmdabankanum var upphaflega ætlað að hafa forystu um fjáröflunarhlið fjárfestingarmála, útvega og miðla fé til fjárfesting- arstarfseminnar. Þegar stofnun Framkvæmdabankans var undir búin, voru til athugunar tillög ur um stofnun sjálfstæðs seðla banka, og var þá ráð fyrir því gert, að Framkvæmdabankinn væri í nánum tengslum við hann. Af stofnun seðlabanka varð þó ekki í það sinn, og var þá ráð fýrir því gert, að Fram kvæmdabankinn stæði í nánu sambandi við Landsbanka ís- lands, er þá gegndi hlutverki seðlabanka og átti að annast dagleg afgreiðslustörf fyrir Framkvæmdabankann. Slík sam vinna komst hins vegar ekki á, og hefur skortur á tengslum við aðra hluta bankakerfisins tor- veldað Framkvæmdabankanum að leysa af hendi það meginhlut verk, sem honum var upphaf- lega ætlað. Gert er ráð fvrir, að stjórn framkv.sjóðsins sé í höndum sjö manna, er Alþingi kjósi hlut fallskosningu til fjögurra ára í senn. Stjórn sjóðsins gangi frá áætlunum um starfsemi sjóðsins og taki ákvarðanir um lánveit- ingar hans. Seðlabakinn hafi sjóðinn hins vegar í vörzlu sinni sjái um rekstur hans og undir- búi áætlanir um fjáröflun og lán veitingar. Gert er ráð fyrir, að við undirbúning áætlana og við stjórn sjóðsins yfirleitt sé haft samráð við fjármálaráðuneytið, viðskiptabankana og efnahags- stofnunina. Um Efnahags- stofnun Efnahagsstofnunin var sett á fót á árinu 1962 með sérstökum samningi á milli ríkisstjórnar- innar, Framkvæmdabanka Is- lands og Seðlabanka íslands. Verkefni hennar var að undir- búa framkvæmdaáætlanir fyrir ríkisstjómina, semja þjóðhags- reikninga og áætlanir um þjóð arbúskapinn og framkvæma aðr ar hagfræðilegar athuganir. Hag deild Framkvæmdabankans flutt ist til hinnar nýju stofnunar. Jafnframt var efnahagsmálaráðu neytið, sem stofnað hafði verið 1959, lagt niður og störf þess falin Efnahagsstofnuninni. Þeir þrír aðiiar, sem að stofnuninni stóðu, hafa skipt að jöfnu með sér kostnaði af rekstri hennar og skipað stjórn hennar. I stjórn inni hafa átt sæti þrír fulltrúar ríkisstjómarinnar, einn fulltrúi Seðlabanka íslands og einn full trúi Framkvæmdabanka Islands. Auk formanns stjórnarinnar, sem jafnframt hefur verið for- stjóri stofnunarinnar, hafa full- trúar ríkisstjómarinnar verið ráðuneytisstjórinn í fjámálaráðu neytinu, sem verið hefur vara- formaður stjórnarinnar, og hag stofustj. Sérmenntað starfsfólk stofnunarinnar hefur haldizt svipað að tölu til og var í hag- deild Framkvæmdabankans. Þau ákvæði um Efnahagsstofn unina, sem gert er ráð fyrir í þessu frumvarpi, miða að því að festa skipan hennar. Efnahags- stofnuninni eru ætluð sömu verk efni og áður. Framkvæmdasjóð ur kemur í stað Framkvæmda- banka Islands og stendur ásamt ríkisstjórninni og Seðlabankan- um að stofnuninni á grundvelii samnings, er þessir aðilar gera um stjórn stofnunarinnar og fjár mál. Forsætisráðherra skipar for stjóra stofnunarinnar, eins og áður var. Á þeim tæpum fjórum árum, sem Efnahagsstofnunin hefur starfað, hafa verkefni hennar reynzt umfangsmikil og vax- andi, Það frumvarp, sem hér ligg ur fyrir, gerir ráð fyrir sérstök um verkefnum stofnunarinnar i sambandi við starfsemi Fram- kvæmdasjóðs og Hagráðs. Um Hagráð Á undanförnum árum hefur það komið æ betur í ljós víða um heim, hverja þýðingu það hefur í stjóm efnahagsmála, að fulltrúar stjómvalda, atvinnu- vega og stéttarsamtaka skiptist á skoðunum og hafi samráð um meginstefnuna í efnahagsmál- um. I flestum nágrannalandanna hefur verið komið á fót sér- stökum vettvangi fyrir slíka sam vinnu, þar sem jafnframt fer fram miðlun upplýsinga um þró un efnahagsmála. Með þessu frumvarpi er lagt til, að slíkur vettvangur sé myndaður hér á landi með stofnun hagráðs. I ráðinu eiga sæti tveir ráðherr ar, fultrúar stjórnmálaflokka, sem sæti eiga á Alþingi, og full trúar samtaka atvinnuvega, stétta og sveitarfélaga. Ætlazt er til, að Efnahagsstofnunin und irbúi fundi Hagráðs og leggi fyr ir það yfirlitsskýrslur um þró un þjóðarbúskapsins og horfur í þeim efnum. Enn fremur er ætlazt til, að þjóðhags- ag fram kvæmdaáætlanir ríkisstjómar- innar séu lagðar fyrir Hagráð. Fannfergi er ennþá mikið í Eyjafiröinum, en tekizt hefur Tvö slys Um sl. helgi varð vinnuslys viö Reykjavíkurhöfn. Maður, sem vann við útskipun á brotajárni, Þórður Runólfsson Hátúni 6, fékk jám í höfuðið og slasaðist eitthvað. Hann var strax fluttur ti llæknismeðferðar, en meiðsli reyndust ekki hættulegs eölis. Kona á níræðisaldri, Margrét Benediktsdóttir Óðinsgötu 6 féll í kjallaratröppum heima hjá sér sl. föstudagskvöld og slasaðist illa Hún var fyrst flutt í Slysavarð- stofuna en þaðan í Landspítalann. að ryðja vegi í nágrenni Akur- eyrar. Inn í fjörðinn og út með honum er engum bílum nema trukkum fær leiðin. Er t.d. versta færð út alla Svalbarðs ströndina og Höfðahverfið og hefur veriö síðan um áramót. Hafði blaðið tal af Skúla Jón- assyni kaupfélagsstjóra á Sval barðseyri í morgun, sem sagði að mjólkurflutningar til Akur eyrar færu fram með trukkum og jeppum, ennþá væru allar leiðir ófærar öörum bílum. — Allt frá Grenivík fram að Veigastöðum er færðin mjög þung, en fer að léttast, þegar komið er á vegina í nánd viö Akureyri. Komast þessa leiö engir bílar nema trukkar og jeppar og er farið á löngum köfl um á ýturuðningum, sem eru það miklir um sig að þeir liggja í mörgum tilfellum langt utan við vegastæðin. Það var búið aö ryðja veginn út til okkar en þann tíunda geröi aftaka veður og fylltust göngin af snjó. Er venjulega byrjað allt of snemma að ryðja vegina en ástandið versnar að mun þegar snjóar ofan i ruðninginn. Þegar allt gekk sem verst var farið með mjólkina langleiðina frá Svalbarðseyri til Akureyrar á ýtum og sleöum. Það er óhætt að segja þaö, að menn eru orðnir þreyttir á þessu tíðarfari og verður allt einhæft og mótast fréttirnar af því. Hafa mjólkurflutningarnir gengið hindrunarlítið þrátt fyr ir veðurham og í dag er hið fegursta veður, logn og fagurt yfir aö líta. Alþyngsta færðin er hérna út til Grenivíkur og Fnjóskdælir hafa ekki farið varhluta af fannferginu. Hefur vegurinn um Dalsmynni í Fnjóskadalinn veriö ófær i lengri tíma og hafa Fnjóskdælir selflutt mjólk sína yfir Vaðlaheiði meö ýtu og sleða Mjólk flutt á trukkum eftir ýturuðningum tilAkureyrur . MAÍ ALMENN- UR FRÍDAGUR Akvörðun ríkisstjórnarinnar I tilefni af 50 ára afmæli Al- þýðusambands Islands hefur rík- isstjórnin ákveðið að hátiðisdag- ur verklýðsins, 1. maí skuB hér eftir verða almennur frídagur. Skýrði félagsmálaráðherra, Eggert G. Þorsteinsson, stjóm ASÍ frá þessari ákvörðun á laugardaginn. Hefur það lengi verið eitt af helztu baráttumál- um verklýðshreyfingarinnar að 1. maí sé vSðurkenndur sem al- mennur frídagur i landinu.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.