Vísir - 18.03.1966, Qupperneq 15
V í S IR . Föstudagur 18. marz 1966.
75
HARVEI FERGUSSON:
X-
Don
— Saga úr Rio - Grande - dalnum —
við brullup eða útför eða skemmti
samkomu. Æ fleiri komu til hans,
leituðu ásjár hans í erfiðleikum,
eða til þess að biðja hann að koma
einhverju í verð fyrir sig. Honum
til nokkurrar undrunar gekk allt í
rauninni fyrir honum eins og í
sögu, en slík velgengni atorku-
manns leiðir ávallt margt af sér.
Allir hinir mörgu, sem til hans leit
uðu, bjuggu einnig yfir orku, mis-
jafnlega mikilli ,sem hans hlut-
skipti varð að hjálpa tl að beizla,
hleypa i réttan farveg, með leið-
beiningum eða beinni hjálp. Hann
varð að skilja tilfinningar þess,
óskir — hann varð hvort sem
honum líkaði betur eða verr að vera
sá, sem allt snerist um, sá, sem
allir gátu leitaö til. Og oft spurði
Leo sjálfan sig að því, hvort hann
væri sjálfstæður eigandi verzlunar
innar eða hvort hann væri orðinn
þræll hennar. Það vissi hann vel, að
hann átti sér ekki undankomu auð
ið, — hann hefði ekki getað flúið
frá sjálfum sér, hlutverki sínu. —
Og samtímis gerði hann sér Ijóst,
eftir öll farandlífsárin, að honum
féll í rauninni ekki öll þessi inni-
vera, allur þessi þrýstingur, öll
þessi ábyrgö. í einu homi skrif-
stofu sinnaí hafði hann ávallt harð
viðarlurkinn, sem hann hafði notað
sem göngustaf, á göngu, eða sem
keyri, ef hann reið múlasna sínum.
Hann horfði á hann stundum klökk
ur af þrá. Hann átti líka enn leöur
beitið sem hann hafði ávallt gyrt
sig með, en í því voru vasar til að
geyma í gull- og silfurpeninga. Og
óljóst flögraöi aö honum, að ein-
hvern tíma myndi sá dagur koma,
er hann — sigurvegarinn á vett-
vangi viðskiptanna — tæki staf
sinn, gyrður gamla leðurbeltinu
og héldi á braut frá vettvangi sigr-
anna. Eftir á leit hann á þetta sem
draumóra. Á þessu æviskeiði var
hann eins tryggilega rótfastur orð
inn þarna að örlaganna vilja, eins
og hann áður hafði fariö frjáls um
þjóðvegina, einnig að þeirra vilja
eða duttlungum.
III.
Það var á þriðja velgengnisári
hans, sem hann réðst í að kaupa
sér reiðhest, og fór að þjálfa sig
í reiðmennsku. Reiöskjótinn var
fríður fákur af 'Kentucky-stofni,
haföi allan gang, og kostaði 300
dollara. Ekkert hafði fram að þessu
verið augljósara tákn þess, að hann
var alþýðumaður en það að reiö-
skjótinn var múlasni, brygði hann
sér á bak, en er hann eignaðist reiö
hest, af dáðu kyni, keypti sér
50 dollara hnakk, og hálfhá reið-
stígvél úr gljáleðri, varð enn aug-
ljósara, að hann var kominn í tölu
viröingarmanna.
Hann haföi orðið að sigrast á erf
iðleikum til þess að þjálfast í sundi
og dansi og ekki var það þrauta-
laust fyrir hann, að þjálfast í reið
mennskunni.
Þegar hann hafði tekiö það í sig
að kaupa sér reiðhest, fól hann
Aurelio Beltrán að annast kaupin.
— Það verður að vera stilltur
hestur, sagði Leo, en hár.
Hann geröi sér fulla grein fyrir,
að ekki var nóg að geta komizt
greiðlaga feröar sinnar, heldur yrði
hann að ríða fallegum hesti, sem
athygli vakti.
Þaö tók Aurelio 6 vikur að finna
hest, sem honum líkaði. Þá keypti
hann handa honum jarpan fola, 6
vetra, af hreinu Morgan-kyni, en
liðsforingi nokkur hafði fengiö
hann frá Kentucky, fallið vel við
hann, en taldi hann tæplega nógu
þolgóðan, er veitt var eftirför Rauö
skinnum á hinum hálfvilltu hestum
þeirra.
— Ég er búinn að prófa hann í
þrjá daga, sagði Aurelio uppörv-
andi röddu. Hann hvorki eys eða
prjónar og er ófælinn. Hann étur
úr lófa þínum, stendur kyrr, þegar
þú ferð af baki, og tekur niður
taumana, alveg óþarfi að tjóðra
hann, og kemur þegar þú blístrar.
Hann var alinn upp handa krökk-
um og dekrað við hann. Þriggja ára
krakki gæti riðið honum. Nú skait
þú reyna,
Þrátt fyrir allar þessar staðhæf
ingar horfði Leo á fákinn meö grun
semd f huga og dálitlum kvíða.
Augnsvipur fáksins var mildur, að
vísu, en honum óaöi við að stíga
á bak svona háum hesti.
— Ég hefi nefnilega aldrei komið
á bak nema múlasna, sagði hann
Aurelio hló að honum.
— En nú stígur þú ekki fram-
ar á bak múlasna, Leo. Þú getur
það ekki viröingar þinnar vegna,
þú ert kominn { tölu viröingar-
manna, þú veröur að fara ferða
þinna á háum hesti.
Aurelio datt þama niður á að
segja þaö sem Leo gat ekki mót-
mælt, því að þessar voru nefnilega
ástæðurnar fyrir, að hann réðst í
hestakaupin, svo aö hann steig í
ístaöið og hóf sig upp í hnakkinn,
og reið hægt af stað, en þetta
gekk vonum framar, og hann fór
brátt að ríða skokk, og varð innan
tíðar óragur við að hleypa. Mörgum
viðvaningum hættir til að missa
jafnvægi, er þeir fara að þjálfa
sig í reiðmennsku, en sú varð ekki
reyndin með Leo, og taldi hann
það hafa verið góðan forleik að
þessu að ríða múlasnanum, því að
þótt hann hefði ávallt farið fetið
á honum, var að þvf nokkur jafn-
vægisæfing. Sannast að segja leið
ekki á löngu þar til hann var orö-
inn vel þjálfaður reiðmaður, var
öruggur og sat vel hestinn, tein-
réttur í baki. Fann eigi lítið til
sín, sem væri hann þeim æðri, og
þeir hans auðmjúku þjónar. Og
þetta var sama fólkið, eöa aö
l ^ a.m.k. sömu stéttar og þaö, sem
I sín, er hann reið um þjóðveginn á
þeim jarpa, og alþýðumenn er hann
; mætti heilsuðu honum með því að
lyfta höndum eða hneigja höfuö
sín, sem væri hann þeim æðri og
þeir hans auðmjúku þjónar. Og
þetta var sama fólkið eða a. m.
k. sömu stéttar og það sem
hann haföi setið með á kofagólf-
um flötum beinum, og neytt meö
fátæklegra máltíða, þeirra meðal
eiginkonur og dætur, sem höfðu
fagnað honum með því aö leggja
hendurnar um hálsinn á honum og
kyssa hann á kinmna. Og nú var
þetta fólk farið að kalla hann Don
Leo. Það haföi gengiö eins og í
sögu, öruggt og greiðlega aö hann
: var kominn í flokk virðingarmanna
og reiðmanna. Hinir snauöustu
komu fram við hann af alveg sér
stakri virðingu, og hann fann, að
nú höfðu þeir jafnvel dálítinn beyg
af honum.
En hann hafði hafiö sig upp úr
alþýðustéttinni án þess að sam-
einast æðri stétt, þvi að þrátt fyrir
efnin og aukna virðingu átti hann
! ekki heima í flokki manna af Verra
ættinni og annarra slíkra. Hann var
virðingarmaður orðinn, vegna auðs
síns og áhrifa, en hann varð þó
ekki „einn þeirra", og reið einn
síns liös á sínum háa hesti, en
einmana var hann ekki, því að hon
um féll aldrei starf úr hendi lið-
langan daginn, og var oftast dauö-
þreyttur er dagur var að kveldi
kominn, en fann til þess enn meira
en áður, aö hann var í raun réttri
einangraðri en fyrr, þvi aö meðan
hann y.ar farandsali yar hann í
svo nánum terigslum við alþýðu
manna, að í skiptum við það og
kynnum var hvert bil brúað.
Og nú naut hann þess æ betur,
aö skreppa á bak til þess aö losna
við áhrif þessarar einangrunar,
varpa af sér viðjum starfs og erils,
— ríða að fljótinu og dveljast þar
stund og stund og valdi sér þá ein-
hvern afskekktan stað, þar sem
sendnar leirur voru næst bökkun-
um og lygnur eða sandhólmar úti
í fljótinu. Og þá fannst honum, að
þama væri beðið eftir sér — þar
biði hans faömur náttúrunnar op-
inn. Hann gat lifað þama upp á ný
ánægjustundir frá liönum tíma.
Hann reið þangað tiðast hratt,
stundum á haröa spretti, svo að
dunaði í jörðinni, og þaut í lofti,
er sá jarpi fór á kostum sem kólfi
Olíukyndingatæki til sölu
Olfukyndingartæki frá Tæknl, 3y2 ferm. með innbyggðum
spfral. Brennari sjálfstilltur. Uppl. f síma 33191.
T
A
R
Z
A
n
Það er farið með fangana í fangelsiö. Þú
virðist vera þungt hugsi Tarzan, og ekki
vera afslappaður. Ito skemmtir sér áreið-
anlega.
( AS YOU <N0W, I'VE 7EV0TE7 MY UFE TO
THIS WORK. 0F FRESEKVATIOKIIM APiWCA-
WITH VERY UTTLS RECOMPEWSS... '
5UT THEKE ARE SOME IH HlðH OFFICE
WHO HAVE NO IWTEREST EXCE7T
> COMFEWSATION!..
Ég hef verið að hugsa um það sem þú
sagöir i gær. Þú sagöir, að þú héldir að
veiðiþjófnaðurinn myndi byrja aftur en ekki
hvers vegna þú héldir það.
Eins og þú veizt hef ég helgað mig þessu
starfi f Afríku gegn litlu endurgjaldi. En það
em nokkrir hæstráðandi menn, sem hafa
engan áhuga nema fyrir greiðslunni. Hm, ég
held að ég skilji... en segðu mér ofurlítið
meira.
værd skotið. Hann reið hratt, ekki
aðeins vegna þess, að hann mátti
lítinn tíma missa, heldur einnig
vegna þess, að hann naut þess að
ríða á harða spretti. Og þegar hann
hafði afklæðzt og synt og stjáklaði
um alls nakinn á bakkanum eða
lá þar leið honum eins og hann
hefði varpað af sér álagaham örlag-
anna. Honum var óumræðilegur
hugarléttir aö því, að vera þama
einn, á sendnum straumvatns-
bakka, og hlýða á raddir náttúrunn
ar.
7ÍSIR
Auglýsinga-
móttaku
r
I
TÚNGÖTU7
og
Lougavegi 178
Sími 1-16-63
VÍSIR
VÍSIR
er
eina
síðdegisbloðið
kemur
út
alla
virka
daga
allan
ársins
hrmg
Áskriftarsími
1-16-61
i