Vísir - 24.03.1966, Blaðsíða 1
VISIEt
Flug fellur nið-
ur vegna veðurs
Innanlandsflug hefur fallið niður
á nokkrum stöðum að undanförnu
vegna veðurs. Hafa flugvellir fyllzt
af snjð og verið ólendandi á þeim.
Var flogið í morgun til Akureyrar
eftir að flug þangað haföi fallið
niður í tvo daga, og vonir stóðu
til að hægt yröi að fljúga til Sauð
árkróks og Húsavíkur í dag, en
verið er nú að ryðja flugvelli þar.
í hálfan mánuð hefur ekki verið
hægt að fljúga til Kópaskers og
Þórshafnar og eftir síðustu fregn-
um þaöan var blindbylur og verður
ekki flogið þangað í bráð. Einnig
falla flugsamgöngur niður til Vest-
mannaeyja vegna veðurs, en verið
§r að ryðja brautina þar. Ekki er
enn sýnt hvort Flugsýn flýgur til
Norðfjarðar, gekk á með éljagangi
og stormi þar f morgun, en snjór
hamlar ekki lendingu á flugvell-
inum þar.
•1»*; V " iÆ
Þetta er staðurinn við enda Tjamarstígs á Seltjarnarnesi þar sem slysið varð f nótt.
Hörmulegt slys á Seltjamarnesi
9 ára drengur varð undir bíl en óvíst um atvik slyssins
Hörmulegt slys varð í nótt úti
á Seltjarnamesi. 9 ára drengur
Jón Helgi Líndal Arnarson,
Klöpp á Seltjarnarnesi, varð
undir bifreið og mun þegar hafa
látið lífið. Það mun þó ekki hafa
verið fyrr en nærri 4 klst. eftir
að slysið varð að uppvíst varð
um það og er enn ekki vitað
með vissu hvemig það atvikað-
ist.
Slys þetta varö á Tjamar-
stíg, sem er lokuð gata austur
af Lambastaðavegi. Bendir allt
til þess að drengurinn hafi orð
ið þar aftan undir bifreið. sem
verið var að snúa við, en vegna
þess að gatan er lokuð, er það
algengt að bifreiðum sé snúið
við á þessum stað. Varð slysið
í enda götunnar.
Það var á 3. tímanum í nótt,
sem hringt var tiriögreglunnar
frú húsinu Klöpp á Seltiarnar-
Káli frá
en lauki frá Póllandi skipað app
fiestu erfiðleikurnir uð getu ekki flutt inn kurtöfluútsæði frú Póllundi
nesi og beðið um að svipast eft
ir 9 ára dreng, sem var ókom-
inn heim. Hann hafði verið um
kvöldið hjá ömmu sinni á Minni
Bakka utar á Seltjarnamesi og
ætlaði að fara fyrir kl. 11 heim
til sfn. Þá hafði frændi hans
ekið honum heim til sín og
sleppt honum út úr bílnum á
gatnamótum Lambastaðavegar
og Tjarnarstigs og þá hefði
það verið rétt leið drengsins að
fara vestur á bóginn heim til
sín þangað sem húsið Klöpp
stendur skammt frá. En í staö
þess hefur hann farið austur
Tjamarstígs með hvaða
hætti sem það hefur verið.
Þá er það nærri kl. 3 um nótt
ina að hringt er til lögreglunn-
Framh á bls. 6.
Landbúnaðarráðuneytið hef-
ur sett mjög strangar reglur um
bann við innflutningi á græn-
meti til landsins. Eru reglur
þessar í stuttu máli á þá leið
að innflutningur alls grænmetis
til landsins er bannaður, en
undanþágur munu þó vera gefn
ar eftir þvi sem ömggt þykir.
Þessar reglur hafa allmikið
komið við innflutning á græn-
meti á vegum Grænmetisverzl-
unar landbúnaðarins, þar sem
það kom m.a. fyrir að allstórum
farmi af káli var kastað í sjó-
inn úr Goðafossi. Var kostn-
aðarverð þessa káls um 50 þús.
kr., en útsöluverö hér myndi
hafa verið nálægt 150 þús. kr.
Eftir þetta eru verzlanir orðn-
ar kállausar, gulrætur eru á
þrotum ,en hins vegar hefur
verið gefið leyfi til að skipa á
land tveimur förmum af lauk
öðrum með Selfossi, hinum er
verið að skipa upp í dag úr
Langánni í Reykjavíkurhöfn.
Vísir átti stutt samtal við Jó
hann' Jónasson forstjöra Græn-
metisverzlunarinnar. Hann
sagði blaðinu að aðallega væru
grænmetisviðskiptin við þrjú
lönd, Holland, Pólland og Dan-
mörku. Hann sagði, að kálið
sem fleygt var hafi verið frá
Hollandi. Það hefðu verið 10
tonn, sem hafi verið leifar af
stærri farmi er ekki hafði ailur
komizt í skip og hafði síðan ver
ið geymt í vörugeymslu f Rott-
erdam. Ástæðan til þess að
bannað var að flytja þetta kál
inn mun hafa verið ótti við út-
breiðslu veiki þar. Vart varð til-
fella af gin- og klaufaveiki að-
allega í svínum næst þýzku
landamærunum í Hollandi i byrj
un ársins. En þá var skorið nið
ur á heilu belti við þýzku landa
mærin og hefur síðan ekki orðið
vart viö veikina þar. Það svæði
sem við fáum kál frá er auk
þess í allt öðrum hluta
Hollands nyrzt í landinu
og kvaðst Jóhann ekki vera von
Iaus um að geta síðar fengið
kál frá Hollandi, benti hann m.
a. á það að Hollendingar væru
þegar fyrir þremur vikum farn
ir að selja nautgripi aftur úr
landi, eftir tímabundið bann.
Innflutningur á tveimur lauk
förmum frá Póllandi sem Græn
metisverzlunin átti á leiðinni
hefði verið leyfður með því líka
að ekkert hefði borið á gin- og
klaufaveiki f Póllandi. Frekari
Framh. á bls. 6.
40 stúlkur við
niðurlugningu
síldur
Mikil atvinna hefur verið á Slglu
flrði i vetur og mikil viðbrigði
frá því sem var fyrir 1—2 árum.
Nokkuð hefur gæftaleysi háð veið
um að undanfömu, en yfirleitt
veiðzt vel þegar gefið hefur. Á
þriðjudaginn kom togarinn Hafliði
með um 130 lestir fisks, sem tekið
var til vinnslu á Siglufirði.
Niðurlagningarverksmiðjan hefur
unnið látlaust í allan vetur fyrir
erlendan (rússneskan) markað og
vinna þar nú 40 stúlkur.
Aflinn glæðist verulega
Nægar birgöir eru nú til af lauk. Starfsmenn Grænmetisverzlunar
vinna við hlaða af nýkomnum pólskum lauk.
Norðanveðrinu fór að slota á
miðunum í nótt og morgun og
bátar á sjó. í dag eru allir bátar
á sjó, sem ekki eru að losa eða á
leið á mlðin, en fáir lönduðu i gær,
nema af heimamiðunum, þar sem
þorskafli er nú vaxandi og ioðna
veiðist nú aðeins 15 mílur út af
Akranesi.
Þrír netabátar komu til Reykja-
vikur í gær, einn með 23 lestir,
tveir með um 40, hvor um sig.
Aflann fengu þeir sunnan Jökuls.
Til Akraness komu fimm af heima-
miðum með 120 tonn og er það
ágætur afli.
Fimm bátar komu til Reykja-
víkur í gær með loðnu sem veidd-
ist við Jökul, þar sem loðna hefir
verið nú langa hríð. Afli þessara
fimm báta var samtals 5000 tunn-
ur.
Til Akraness komu með loðnu
Jöfundur II með 2400 tn., Höfr-
mgur III með 2600, Haraldur með
1800, Þorsteinn RE með 510 og
Reykjaborg með 460.
Keflavík: í riótt og morgun
i komu 4 bátar af Breiðafjarðarmið-
I um, Ingiber Ólafsson með 43 lest-
! ir, Jón Finnsson með 50, Lómur
| með 51 og Hilmir með 13 y2. —
jTveir bátar lönduðu loðnu. Annar
var Hamravíkin með 17—1800
tunnur.
Vestmannaeyjar: Á Stórhöfða
voru enn 8 vindstig í morgun en i
morgun var lygnandi á miðum og
nú allir bátar á sjó.
Þorlákshöfn: Þar leggja aðeins
upp þorskafla bátar gerðir út það-
Framh. á bls. 6.