Vísir - 24.03.1966, Blaðsíða 4

Vísir - 24.03.1966, Blaðsíða 4
 V1SIR . Fimmtudagur 24. marz 1966. Með heimsins dýrustu snyrtivörur: KREMKRUKKAN Á 5 ÞIJS. KRÓNUR TTvað veldur því að fegrunar krem kostar 5000 krónur? Þannig auglýsti bandaríska snyrtivörufyrirtækið Estée Laud er, þegar það hóf að kynna fram leiðslu sína í Stokkhólmi fyrir hálfu fjóröa ári. Og í auglýs- ingunni var auðvitað svarið: Það er framleitt úr úrvalsefn- um. Og síðan segir að þetta undrakrem, RE-NUTRIV, sé eitt hvert merkilegasta fegrunarlyf, sem nokkurn tíma hafi komið fram, það sé hrein lífsnauðsyn sérhverri bandarískri konu, sem hefur náð 35 ára aldri. í því sé drottningarhunang, skjaldböku- olía, silicon, hákarlaolía og yfir 20 önnur efni, sem aldrei fyrr hefur verið hægt að fá í fegrun arlyfi. Þetta krem kostar 600 sænskar krónur og síðan er spurt í auglýsingunni hvort á nokkurn hátt sé betur hægt aö verja 600 sænskum krónum (um 5000 ísl. kr.) en með því að kaupa krús af RE-NUTRIV. Auglýsingin hreif. Þarna beitti fyrirtækið ekki fyrir sig lágu veröi, heldur háu verði og árang urinn varð sá að konur ruku upp til handa og fóta — þarna hlaut að vera eitthvað sérstakt á ferð inni. Estée Lauder-snyrtivörur hafa ekki veriö fáanlegar á íslandi fram að þessu, en miklar líkur eru nú til þess að áður en langt um líður geti íslenzkar konur átt þess kost að verja 5000 krónum (eða meiru, því að toll- ar á snyrtivörum eru háir hér) í kremkrukku. I síðustu viku var hér staddur Norðurlandaumboðsmaöur Estée Lauder, Börje Nyström frá Stokkhólmi og finnsk snyrti- dama, Harriette Casari. Erindi þeirra var að ganga frá ýmsu varðandi sölu á fyrmefndum snyrtivörum, og munu þær vænt anlega koma á markaðinn í haust á vegum innflutningsfyrir tækisins „Hylur“. Er Kvennasíðan hitti Börje Nyström að máli hélt hann því fast fram að Estée Lauder snyrti vörumar væru þær dýrustu, sem fáanlegar væm í heiminum í dag, en viðskiptavinurinn fengi líka nokkuð fyrir snúð sinn. Frú Estée Lauder ,sem er af ungverskum og austurrískum uppruna stofnaði fyiártæki sitt í USA fyrir 18 árum með fram- leiðslu á þremur kremtegundum. Nú nær framleiðslan yfir svo til allar tegundir snyrtivara, bæði fyrir karlmenn og kvenfólk, að vísu er na^lalakkið og annað til handsnyrtingar ekki komið enn, en það kemur á markaðinn í haust. Vlðskiptalöndunum fjölg ar stöðugt og á prógramminu í ár em m. a. ísland og Noregur. Frú Harriette Casari sýndi Kvennasíðunni sýnishorn af Harriette Casari með snyrtivörur frá Estée Lauder. framleiðsluvörunum: um gæöin er ekki hægt að dæma að ó- reyndu, en vist er að umbúðim ar voru vandaðar og ilmurinn góður. Kvennasíðan veitti sér- staka athygli „kvc.ldsnyrting- unni“, þ. e. snyrtivörunum ti! kvöldsnyrtingar. „Make-up“ var eins og aðeins „sanseraö" og á það að gefa húðinni fallegri b’æ í kvöldljósi og kvöldvaraliturinn var allur „sanseraður“. í púðr- inu voru örlítil glitrandi kom . . . þetta verður aö nægja, þar til Estée Lauder-snyrtivörar em komnar á mrkaðinn hér og hafa sannaö, hvort þær standa undir þvf að vera „heimsins dýrustu snyrtivömr". \ ; Kryddvörur taka nú æ meira rúm í hillum matvörubúða. Um krydd KRYDDTEGUNDUM fer stöðugt fjölgandi f hillum ný- lenduvöruverzlana borgarinnar og þær freista margra húsmæðra. Þær vita, að með réttri notkun þeirra má gera hinn dýrlegasta veizlumat úr bragðdaufum hvers- dagsmat. En — hvemfg á að nota kryddið? — Húsmæðra- félag Reykjavíkur kom húsmæðrum til hjálpar á síðasta fræðslufundi og efndi til kryddkynningar. Liður í kynn- ingunni var, að útbýtt var bæklingum, sem SS-verzlan- imar hafa látið gera tfl að aðstoða húsmæður — og f dag blrtir Kvennasiðan raokkuð af þessum upplýsingum, afgangurinn veröur að bíða næstu Kvennasfðu. Áður en þið farið út í krydd kaup og kryddnotkun skuluð þið hafa eftirfarandi í huga: Kaupið ekki krydd gagn- rýnislaust. Athugiö pakkningu, magn og verð. Geymið krydd á þurrum og svölum stað. Munið að loka kryddílátum vel eftir notkun. Krydd í opnum ílátum dofna ótrúlega fljótt. Með góðri geymslu varðveitist krydd í lengri tíma, heil krydd lengur en mulin. Flest krydd eiga ekki að yf- irgnæfa hið eiginlega bragð matarins, aðeins að „lyfta und- ir“ bragðið, nema þegar um er að ræða t.d. karrírétti og chili rétti. Vísbending um magn: y2 téskeið í hvert kg. af kjöti, fiski súpu, sósu o.s.frv. Ef um Cay- ennepipar, Chilipipar eða hvít- lauksduft er að ræða, þá 1/6 úr teskeiö. Flestum mun e.t.v. finn ast .þetta vera of lítið — en það er ávallt hægt að bæta viö — en ekki hægt að draga úr því, sem komið er í pottinn. Mulin krydd virka fljótt og er yfirleitt bætt út í undir lok suöutímans. Ef um kalda rétti er að ræða t.d. „grænmetissalöt og dressings, þurfa kryddin lengri tíma til þess að „opna sig.“ Heil krydd eru yfirleitt not uð þegar suðutíminn er langur, og skal láta þau út f frá byrj- un. Ágætt er að setja þau í lít- inn grisjupoka og láta þau þann ig sjóða með. Það er þá auð- veldara að ná kryddinu upp aft ur þegar bragðið úr því hefur náðst. Notið hugmyndaflugið — ver ið óhrædd við að reyna eitthvað nýtt. Byrjendur farið varlega — það verður enginn meistari í fyrstu atrennu. Og hér kemur kryddiö: AHsplce — Allrahanda (Allehaande) Ilmandi krydd, bragðast eins og blanda af kanil, múskat og negul. Heilt, notað í pickles, kjöt, soðinn fisk og sósur. Mal- að, notað í búðinga, kökur, smákökur og með mörgu græn- meti. Anis Seed — Anís Þurrkaður ávöxtur úr jurt úr steinseljuættinni. Lakkrísbragð Notað í sælgæti, smákökur og líkjöra. Barbecue spice — grillkrydd Blandað krydd. Notað á allt kjöt, fugla, í sósur, samansoðna rétti. Blandað í olíu til að smyrja með við glóðarsteikingu. Basll — Basilikum Þurrkuð smáblöö. Notað í súþur, jafninga, tómatrétti og samansoðna rétti. Bay Leaves — Lárviðarlauf (Laurbærblade) Þurrkuðblöð af lárviðartrénu Notað í kjötrétti (barið buff) síld, sultur, við fisksuðu, í tóm atrétti. Cardamom — Kardimommur (Kardemomme) Þurrkuð aldin af jurt úr engi ferættinni. Heilar og malaðar. Notaö aðallega við bakstur. Celery — Seljusalt Seljufræ (Selerf) Seljusalt er mulið seljufræ blandað salti. Notað í súpur, sós ur, með tómötum, á kjöt og fugla. Cayenne — Cayennepipar Mjög sterkur pipar. Notað- ur í alla sterka rétti. Notist meö varúð. Chill-Pepper — Rauð piparteg. Lítil piparhylki, mulin. Sterkt krydd. Notað með kjöti, í sós- ur, súpur, mexikanska rétti. Alla sterka rétti. Cinnamon — Kanill Innri börkur af tré úr kanel- ættinni. Oftast blandað sykri. Notað viö bakstur, á grauta, f epla- og rabbarbararétti. Cloves — Negull (Nelliker) Heill negull, notaður til skrauts, malaður í bakstur, búð inga og samansoðna rétti. Coriander Seed — Koriander Frískandi krydd. í súpur, pyls ur (rúllupylsur) og við bakstur Curry Powder — Karrý Blandað krydd. í karrýsósur, hrísgrjónarétti, mayonnaise, súpur og eggjarétti. Dill Seed — Dill Notað í súrsað grænmeti (pickles), síld, kartöflusalat. Garlic — Hvítlaukur Fæst sem salt, duft, grófmal- aður, puré, safi. Notað meö kjöti, í súpur, tómatrétti og sósur. Ginger — Engifer (Ingefær) Notað við bakstur, í pickles, chutneys. Herb Seasoning — jurtakrydd Blandað krydd i sósur, súpur samansoðna rétti. Italian Seasoning — ítalskt krydd. Blandað krydd. Notað í flesta ítalska rétti, marga kjötrétti, súpur.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.