Vísir - 24.03.1966, Blaðsíða 6
6
V1 SIR . Fimmtudagur 24. marz 1966.
Kál —
Framhald af bls. 1.
y innflutningur væri þó enn ekki
leyfður og sé í athugun að lauk
ur yrði fenginn frá Ameriku.
Laukurinn sem er kominn frá
Póllandi endist út næsta mánuð
Það sem forstjóri Grænmet-
isverzlunarinnar sagði að væri
bagalegast er óvissan meö inn
flutning á kartöfluútsæöi frá
Hollandi. Það hefur lengi verið
flutt inn útsæði frá Hollandi á
tegundunum Bintje, ljósgular
kartöflur sérstaklega vinsælar
fyrir veitingahús og skip, vegna
þess að auðvelt er að afhýða
þær í vélum og afbrigðið Bar-
ima, sem er snemmvaxið. Til
þess að fá þetta útsæði tíman-
lega hefur árlega þurft að panta
það í lok febrúar eða byrjun
marz og er afleitt að vita enn
ekki með vissu hvort það verö-
ur leyft. Ef útsæöi fæst ekki inn
flutt verður aö taka þeim mun
meira af neyzlukartöflum okk
ar til útsæðis. Gert hefur verið
ráð fyrir að neyzlukartöflur
okkar endist fram í lok júní
en ef ekki fæst útsæði má ætla
að það endist aöeins fram í
byrjun júní. Enn stendur þetta
allt í jámum. Ef ekki verður
vart fleiri tilfella af gin- og
klaufaveiki í Hollandi má vera
að kartöflur fáist fluttar það
an, annars kemur til greina að
fá kartöflur frá Póllandi, eða
e.t.v. frá írlandi, ef það telst
tryggara.
— En hvað með amerískar
kartöflur?
— Að sjálfsögöu getum viö
hvenær sem er fengið kartöflur
frá Ameríku, en eftir reynslu
okkar m.a. af Márshall-kartöfl-
um, þá eru þær ekki hentugar
fyrir þá matreiðslu sem algeng
ust er hér. Amerískar kartöflur
eru sérlega góðar til að baka
þær eða steikja en henta ekki
eins vel til að sjóða þær eins
og tíðkanlegast er hér á landi.
Loffleiðir —
Framhald af bls. 16.
ið að lengja feröamannatímann
hér á landi.
Loftleiðir reikna með því að
mjög muni enn fjölga farþeg-
um sem notfæra sér þetta auð-
velda tækifæri til aö kynnast
íslandi og á því byggist rekst-
ur hins nýja hótels aö verulegu
leyti. Kostnaöur við slíka 24
klst. viðstöðu er 15 dollarar
fyrir gistingu, máltíðir og kýnn i
isferð um Reykjavík, nema á'
tímabilinu júní, júlí og ágúst ’
þegar kostnaðurinn verður 19.1
50 dollarar. Farþegunum stend-
ur einnig til boða aö dveljast
tvo, þrjá eða fjóra daga í
Reykjavík við álíka hagstæö
kjör og þá gefin tækifæri til
að fara í lengri ferðir um land
ið.
Sendirinn — '
Framh. af bls 16
eða þá að kviknað ftafi í út frá
rafmagni.
— Það er ekki hægt að segja
hve langt verður þangað til
langbylgjustöðin kemst aftur í
lag og búið verður að setja upp j
ný tæki. Hér er kolófært, bæði
niður að Egilsstöðum og þaðan
niður á firði og ómögulegt að
vit hvenær úr því rætist. Þeir
eru að útbúa nýjan sendi fyrir
sunnan, en þó hægt verði að
koma honum í skip og austur á
firði fljótlega, þá er ekkert að
vita hvenær hægt verður að
flytja hann hingað upp eftir.
Svo þarf að byggja nýtt hús
en nú, meðan ófærðin er svona
mikil eru engar leiðir opnar til
efnisaðdrátta og því ekkert hægt
að gera.
I kvöld verður Stríðsmessa
Tékkans Martinu flutt meðal
þriggja annarra tónverka á tón
leikum Sinfóníuhljómsveitar ís-
lands í kvöld. Verða flytjendur
blásarakvartett úr Sinfónfu-
hljómsveitinni, Kristinn Halls-
son syngur einsöng og Karlakór
inn Fóstbræður syngur þetta
verk Martinus. Stjómandi er
Bodhan Wodiczko, en hann hef
ur nú verið ráðinn aðalstjóm-
andi Sinfóníuhljómsveitarinnar
fyrir næsta starfsár hennar.
Önnur verk á efnisskránni eru
Nobilissima Visione eftir Paul
Hindemith og fjögur lög við
sonnettur Shakespeares, eftir
pólska tónskáldið Taddeusz
Baird, hefur hvorugt þessara
verka verið flutt áður á tónleik-
um Sinfóníuhljómsveitarinnar.
Syngur Kristinn Hallsson í verk
inu eftir Baird auk þess sem
kvöU
hann syngur einsöng með Fóst-
bræðrum í Stríðsmessunni. Hafa
Fóstbræöur einu sinni áður sung
ið með Sinfóníuhljómsveitinni,
var það árið 1963, þegar þeir
sungu Völuspá. Minnist karla-
kórinn innan skamms 50 ára
afmælis sfns.
Naéstu tónleikar Sinfóníu-
hljómsveitarinnar veröa 1. apríl
og verða það skólatónleikar.
Hótel Víkingur —
Framhald af bls. 16.
1 fyrra kom hins vegar babbi f
bátinn. Vatnsborðið f Hlfðarvatni
lækkaði svo að elztu menn muna
ekki annað eins. Stóð Vfkingur þá
á þurm landi og tókst ekki að ná
skipinu út hvemig sem reynt var
með ýtum og öðmm aflmiklum vél
um. Fyrir þetta var vistin á hótel-
inu ekki eins ánægjuleg og ella.
Hlíöarvatn er allmikið úr alfara-
leið góðan spöl frá þjóðveginum
um Snæfellsnes. Vegurinn upp að
vatninu var mikið lagaður, vegna
hótelrekstursins, en áður vom þar
mest illfærir troðningar. Vatnið er
umvafið sérstakri náttúrufegurð og
skaði ef menn geta ekki notið þar
frfdaganna í framtfðinni f kyrrð og
heilnæmu fjallalofti.
Alþýðub. —
Framhald af bls. 16.
Sósfalistafélagi Rvfkur oe vald-
ið mikium dellum innan félags-
ins og flokksins hér f Reykjavfk.
Nú hefur loks orðið að ráöi að
Sósfalistafélag Reykjavflcur tek-
ur þátt f stofnun Alþýöubanda-
lagsins f heild sinnl og er þaö j
ráðagerð kommúnlsta að ná öll
inn töglum og högldum í Alþýðu
bandalaglnu, svo fylglsmenn
Hannibals Valdimarssonar verði
þar f mlnnlhluta. Yrði þá hið
nýja Alþýöubandalagsfélag ekki
annað en stækkuð mynd af,
Sósíalistafélagi Reykjavíkur. — j
Þorðu kommúnistar ekki að
neita samvinnu við Hannibalsllð-
ið vegna óttans vlö slfkan klofn
ing skömmu fyrir borgarstjóm-
arkosningamar nú f vor.
þetta hjón sem búa þama aust-
ast við Tjamarbr. sem voru
að koma heim og sáu drenginn
liggja þar, bám hann inn í hús
með þvi að þau héldu að hann
kynni að vera á lífi. Skömmu
sfðar kom lögregla og sjúkralið
á staðinn og var drengurinn
fluttur á Slysavarðstofuna, en
hann var látinn og er talið að
hann hafi látizt þegar er slysið
varð.
Það er ekki vitað með vissu
hvemig slys þetta hefur orðið
Þó er það upplýst, að frændi
drengsins, sem hafði ekið hon
um, haföi eftir að hann skildi
við hann ekið eftir Tjarnarbr.,
og snúið þar við, en einskis
hafði hann orðið var.
Vart er við því aö búast aö
neinir sjónarvottar hafi orðið að
I slysinu, en lögreglan biður menn
ef þeir hefðu t.d. verið sjón
arvottar að því er drengurinn
steig út úr bflnum að hafa sam
band við hana.
ÍSonur Grimmonds
finnst látinn í
íbáð sinni
IAndrew Grimmond, elzti
sonur Jo Grimmonds flokksleiö
toga Frjálslynda flokksins á
*, Bretlandi, fannst látinn í íbúð
!sinnl f Edinborg i gærkvöldi.
Andrew Grimmond var
blaðamaður og starfaði fyrir
hið heimskunna blað The
Scotsman í Edlnborg. 1 kosn-
t ingabaráttunni að undanförnu
, hjálpaði hann frambjóðanda
I Frjálslyndra, L. Oliver. —
‘ Andrew hlaut menntun í Eton
College og Oxford, en varð að
hætta námi vegna veikinda.
Ekki er vitað hvaða áhrif þessi
viðburður kann að hafa á kosn-
ingabaráttu föður hans, Jo
Grimmonds.
Aflinn —
Framhald af bls. 1.
an, sem stunda velðar á heima-
miðum, 9 alls, þar af 4 hjá Meitli.
Rvíkurbátar sem lönduðu i Þor-
lákshöfn á vertíðinni f fyrra eru
enn á loðnuveiðum. Afli Þorláks-
hafnarbáta hefir að undanfömu
verið 10—20 tonn í róðri. — Búið
er að bræða hér 5000 tunnur af
loðnu og nú bfður þróin tóm eftir
loðnunni, en hún tekur 25.000—
30.000 tunnur.
Prinsinn —
Framh. af bls. 16
Straumfiröi á Grænlandi. Kom
flugvélin þar við til að taka elds-
neyti en prinsinn lagði af stað frá
Goose Bay í morgun. í kvöld mun
hann sitja kvöldverðarboð forsætis
ráöherra en síöan mun hann gisra f
ráðherrabústaðnum. Prinsinn held-
ur áfram til Bretlands í fyrramálíð.
Nýtt félag vinstri-
manna í Hafnarfirði
Iþróttir —
Framh. af,bls. 11
Sigtryggsson, Á, 3.V., fjórði Rík-
harð Jónsson, U.B.K., 2 y2 v.,
fimmti Gestur Kristinsson, U.B.K.,
1 v., sjötti Erlingur Jónsson, U.B.K.,
0 v.
Sveinaflokkur:
I'slandsmeistari Jón Unndórsson, K.
R., 3 v., annar Gísli Jónsson, Á, 2
v., þriðji Ingi Sveinsson, K.R.,
j4 + l v., fjórði Gunnar Árnason,
K.R., i/2 v.
Bnnoslys —
Framh. af 1. síðu.
ar og henni sagt aö bam hafi
legið stórslasað í snjónum við
Tjarnarbr. Gatan er mjög fá-
farin og er það ástæðan fyrir
þvi hve langur tfmi hefur liðið
frá þvf slysið varð og þar til
drengurinn fannst. Þá voru
,Svtniasöngur'
á 75 þásund
Á málverkauppboði Sigurðar
Benediktssonar f súlnasal Hótel
Sögu í gær var málverk Kjarvals
„Svanasöngur” slegiö á 75 þús. kr.
sem er mesta upphæð, sem fengist
hefur verið fýrir málverk á upp
boði hér á landi til þessa. Var
Listasafn fslands kaupandi mál-
verksins, en listamaðurinn haföi
látið f Ijósi áhuga á þvf að mál-
verkið kæmist f eigu safnsins.
Sagði Sigurður Benediktsson,
þegar blaðið talaði við hann f morg
un, að boðin hefðu gengið fremur
tregt framan af er komið var að
málverki Gunnlaugs Schevings
„I vondum sjó“ sem var slegiö
Jóni Maríussyni, bankastjóra
Seðlabankans á 72 þús. kr. og að
Kjarvalsmálverkunum.
Vom tólf málverk Kjarvals á I
uppboöinu og voru þau slegin frá'
kr. 4500 upp í 75 þús. kr. I
Þau tíðindi gerðust f bæjarmál-
um Hafnarfjarðar í gær aö borið
var út um bæinn fundarboð um
stofnfund Félags óháðra borgara í
Hafnarfirði n. k. sunnudag. I fund-
arboðinu er þess sérstaklega getið
að á dagskrá sé m. a. framboð í
bæjarstjómarkosningum f vor. Meö
al stofnenda þessa nýja stjómmála
félags f Hafnarfiröi eru ýmsir kunn
ir menn úr rööum vinstri manna f
bænum. Má þar nefna Áma Gunn-
laugsson lögfræðing og fyrrverandi
bæjarfulltrúa og Jón Finnsson,
lögfræðing fyrrv. fulltrúa bæjar-
fógeta í Hafnarfirði.
—---------------------t —-------------------------
Þökkum innilega öllum þeim, sem auösýndu okkur samúð
við andlát og útför föður okkar, tengdaföður og afa,
KRISTINS SVEINSSONAR,
bólstrarameistara, Vesturgötu 26B.
Sérstakar þakkir viljum við færa Meistarafélagi bólstrara.
Böm, tengdabörn og bamaböm.