Vísir - 24.03.1966, Síða 5
iT 1SIR . Fimmtudagur 24. marz 1966.
5
utlöna í iTiortun
i morgun
utlönd í monsun
SUBANDRIO leiddur fyrír herrétt
í NTB-frétt frá Jakarta segir, að
Subandrio utanríkisráðherra, sem
nýlega var vikið frá störfum sem
utanríkisráðherra og handtekinn,
verði leiddur fyrir hemaðarlegan
dómstól innan tíðar, fyrir þátttöku
í hinni misheppnuðu byltingartil-
raun s.l. haust.
Frá þessu er sagt í blaðinu
Trisakti í Jakarta og ennfremur,
að Omar Dhani, fyrrverandi yfir-
maður flughersins, verði einnig
j leiddur fyrir herrétt, takist að hafa
I hendur í hári hans.
Talið er að Dhani sé í Kambodia
I sem stendur. Hann verður handtek-
I inn segir í fréttinni undir eins og
hann stígur fæti á indonesiska
|jörð.
Síðar frétt hermir, að Subandrio
Erhard kjörinn formnður
Kristil. lýðræðissinnn
Ludwig Erhard kanslari Vestur-
Þýzkalands var kjörinn formaður
Kristilega lýðræðisflokksins í stað
dr. Adenauers. Fylgi Erhards reynd
ist meira en sérfræðingar höfðu
búizt við.
548 fulltrúar tóku þátt í kosn-
ingunni. Aðeins 80 greiddu at-
kvæði gegn Erhard og 50 sátu hjá,
en 5 greiddu atkvæði með mönn-
um, sem ekki voru í kjöri. Rainer
Barzel, 41 árs, var kjörinn vara-
formaður. — Erhard er 69 ára.
bingsjá Vísis
sé sakaður um tilraun til þess að I því er sagt í blaðinu Ampera og
myrða Suharto hershöfðingja. Frá | hafi Subandrio lagt fram 10 millj.
rúpía til samsærisins. Subandrio
faldist í forsetahöllinni, er stjóm-
arhermenn leituðu hans s.l. föstu-
dag, en þeim veittist auðvelt að
finna hann. Hann var sagður hafa
sagt öðrum ráðherrum að Súkamo
forseti hefði verið kúgaður til
þess að láta Suharto fá völdin í
hendur.
Flokksþíngið í Moskvu:
KÍNViRJAR FARA EKKI
Kínverskir kommúnistar hafa
hafnað boði um að sitja þing
Kommúnistaflokks Sovétríkj-
anna, sem stendur fyrir dymm.
Moskvu-fréttaritari brezka út-
varpsins segir, að ætla megi að
sovézkum leiðtogum sé léttir að
því, að Klnverjar sitja heima,
þar sem þeir myndu hafa ráðizt
harkalega á sovétstjórnina, ef
þeir hefðu komið, og reynt að
tryggja fvlgi sitt hjá Austur-
Evrópuþjóðum. Fréttaritarinn
telur ekki líklegt, að Rússar
reyni að koma því til leiðar, að
Kínverjum verði sparkað úr al-
þjóðasamtökum kommúnista,
því að það mundi verða óvin-
sælt í löndum sumra fylgiríkja
þeirra, einkum Búlgaríu og
Rúmeníu, og afleiðingamar
gætu jafnvel orðið örlagaríkar.
ENN BA RIZT í YEMEN
Enn er barizt í Yemen — og enn
styðja Egyptar lýðveldissinna og
hafa mikinn her í Iandinu, og enn
styður Saudi-Arabía konungssinna.
Staðirnir sem merktir eru með
| 1 og 2 á kortinu eru á mestu á-
! takasvæðunum milli lýðveldissinna
og konungssinna. Talið er, að kon-
ungssinnar væru búnir að sigra
fyrir löngu, ef ekki væri vegna
hins egypzka herafla í landinu.
Hefir hann þó lítil afrek unnið, en
hefir á valdi sínu mikilvæga staði,
sem konungssinnar hafa ekki enn
treyst sér að gera árásir á, sökum
þess hve her þeirra er fjölmennur,
en þeir munu hafa 40.000 manna
her í landinu. — Nasser réðst
harkalega fyrir skemmstu í ræðu
á Feisal konungur fyrir stuðning
hans við konungssinna og kvaðst
hafa egyzkan her í Yemen í 20
ár ef þörf krefði.
þingsjá Visis
þingsjá Vísis
47 milljarðar dollara til vanþróaSra þjóða
— en nf þeirri upphæð eru uðeins um 3 milljurður dolluru frú Kínu og Sovét
Á fundi í sameinuðu þingi í gær
var tekið fyrir til framhalds einn-
ar umræðu frumvarp Einars OI-
geirssonar um reikningsskil hinna
rændu þjóða við
i hinar ríku. Pét-
ur Sigurðsson
(S) sagði, að
meðan háttvirt-
ur flutningsmað
ur tillögunnar
hefði dvalið ytra
hjá norrænum
höfðingjum heföu fslendingar
haldið hátíðlegt 300 ára afmæli
eins hins merkasta klerks okkar,
Jóns Vídalíns. Vitnaði ræðumað-
ur síðan í eina merkustu predik-
un, sem í Jónsbók er, en það er
„Reiðilesturinn". Sagði ræðumaö
ur síðan, að er Einar Olgeirsson
hefði flutt ræðu sína hér við um-
ræðu málsins sl. miðvikudag,
hefði honum oft dottið í hug reiði
lesturinn i Jónsbók. Þá hefði þing
maðurinn verið að reyna aö sam-
eina eðli sitt hinu landsföðurlega
kennarahlutverki er hann reyndi
svo oft að grípa til hér í sölum
Alþingis og utan. Væri ekki óeðli-
Iegt að menn fengju andúð á
slíkri framkomu uppfræðarans og
höfnuðu allri slíkri kennslu af
hendi hans.
Ræðumaður sagöi aö tillaga Ein
ars Olgeirssonar væri með öllu
óraunhæf og óframkvæmanleg.
I þróunarlöndunum yrði að
byggja allt upp frá grunni, og
vandamálið væri ekki fyrst og
fremst skortur á fjármagni, þvi
ekki væri nema takmarkað fjár-
magn, sem þessar þjóðir gætu
nýtt, en þess bæri að gæta, að
slíkt uppbyggingarstarf tæki lang
an tíma. Sama væri að segja um
þaö verkefni, er sjóðurinn ,sem
frumvarpið geröi ráð fyrir ætti að
inna af hendi slík verkefni yrðu
ekki unnin nema á mörgum áratug
um. Ræðumaöur sagði aö flutn-
ingsmaður till. vildi gera lítiö
úr þeirri aðstoð sem nú I dag væri
veitt hinum vanþróuöu þjóðum,
og kallaöi hann það arðrán og
hinn versta glæp, sem hætta ætti
strax. Orsök þess að flutnings-
maður tillögunnar vildi hætta
þessari aöstoð við vanþróuöu
ríkin væri augljóslega sú að af
47 milljörðum dollara er þeim
hefðu verið veitt á sl. átta árum
hefðu aöeins 3 milljarðar dollara
komið frá Rússlandi og Kína sam
anlagt og þessu tækju hinar van
þróuðu þjóðir eftir.
Ræðumaður sagðist vera sam-
mála þeirri tillö.gu flutnings-
manns, að stofnun innan Samein-
uðu þjóðanna stæði að baki áætl
unargerð til atvinnulegrar og
félagslegrar uppbyggingar f hin-
um vanþróuðu löndum, og sú
stofnun þyrfti á miklu fé að halda.
Það sem mestu máli skipti í þessu
sambandi væri samt, að það fé
er nú í dag færi til hinna van-
þróuðu þjóöa, nýttist betur. Að
lokinni ræöu talaði Einar Olgeirs-
son (K) enn einu sinni við um-
ræðu þessa máls, en að lokinni
hans _ræðu var málinu vísað til
utanríkismálanefndar.
Aðild íslands að NATO.
Á fundi í sameinuðu þingi 1 gær
var tekin til framhalds fyrri um-
ræðu tillaga til þingsályktunar
um endurskoðun á aðild Islands
að Noröur-Atlantshafssamningi
og Atlantshafsbandalagi. Ragn-
ar Amalds (K) sagði, að tilgangur
frumvarpsins væri sá, að nefndin
sendi rökstudda greinargerö um
afstöðu íslands til NATO og
kanna, hvaöa hugmyndir væru
uppi meöal aðildarríkja bandalags
ins um skipulag þess og framtíð.
Þeir, sem fylgdust eitthvað með
heimsmálunum væru sammála
um, að NATO væri í upplausn
Um það vitnuðu síöustu aðgerðir
Frakka í málefnum Atlantshafs-
bandalagsins. Er íslendingar
hefðu gerzt aðilar að NATO, hefði
það verið Rússagrýla sem hræddi
þá til þess. Nú í dag fyrirfyndist
ekki sá stjómmálamaöur f allri
Evrópu, sem héldi því fram, að
hætta væri á árás frá Sovétríkj-
unum nú í dag. Þess vegna væri
nauðsýnleg endurskoðun á af-
stööu íslands til þessa hernaöar-
bandalags Að lokinni umræðu
var málinu vísaö til síðari um-
ræðu og utanríkismálanefndar.
NÝMÁL
I gær var lagt fram á Alþingi
frumvarp til laga um aðstoð við
vatnsveitur. Flutningsmenn frum-
varpsins eru Björn Fr. Bjömsson
og fl. 1 frumvarpinu felst, að á-
byrgö sú, er ríkissjóöi er heimilt
að veita sveitarstjómum vegna
vatnsveitugerðar verði sjálfskuld
arábyrgð. Einnig er lagt til í frum
varpinu, að hækkuð veröi ábyrgð-
ar og styrktsfjárhæðin sameigin
lega upp í allt að 90% af stofn-
kostnaöi allra vatnsveitunnar.
Þá var lagt fram í gær nefndai
álit meiri hluta sjávarútvegsnefnd
ar neðri deildar um frumvarp
ríkisstjórnarinnar um ráðstafán-
ir vegna sjávarútvegsins, en meiri
hlutann skipa stjórnarþingmenn
nefndarinnar og þingmenn Fram
sóknarflokksins f nefndinni. Þing
maður kommúnista f nefndin.T
Lúðvík Jósepsson, skilar aftur 5
móti séráliti um málið.
f