Vísir - 14.04.1966, Qupperneq 1
HBjwiinprT Timr'T §
i*ií : ■ . ;■• • / ■,
/p-*Ví:.-
56. árg. — Fhnmtudagur 14. aprfl 1966. - 84. tbl.
Fyrsta ferðin eftir
nær 8 vikna ófærð
Óskar Jónsson bílstjórl á Dal
vík kom til Reykjavíkur i gær-
kvöldi og hafði lagt af stað frá
Dalvík um sjöleytið í gærmorg-
un. Var þetta fyrsta ferð hans
frá Dalvík frá því kringum 20.
febrúar að Öxnadalsheiðin lok
aðist — en hún var sem kunn-
ugt er opnuð stórum bílum i
fyrradag.
— Ég fór í fyrrakvöld til Sauð-
árkróks og sótti bílinn, sagði
Óskar er Vísir hitti hann í morg
un úti fyrir Vöruflutningamið-
stöðinni, en þar hafði ég haft
hann aö mestu frá því að Öxna
dalsheiðin lokaðist. Fór ég með
hann heim og lagði svo af stað
til Reykjavíkur í gærmorgun
og kom í gærkvöldi.
— Vegurinn norður í Skaga-
fjörö var svona sæmilegur, en
mjög mikil bleyta á Öxnadals-
heiðinni. Þegar komið var vest
ur fyrir Skagafjörð var hann al
veg ágætur.
— Eftir hádegið í dag fer ég
aftur noröur, því að maður verö
ur að nota tímann til flutninga
meðan vegurinn er opinn, það
má búast við að hann grafist í
sundur þá og þegar, því að það
er svo mikil bleyta í honum.
SOLA RHRINGSA FKOSTIN
AUKAST UM ÞRIDJUNG
hjá síldarverksmiðjum austanlands fyrir næstu vertíð. ð>ar
að auki eru uppi áætlanir um byggingu 7-8 nýrra verksmiðja
Sóiarhringsafköst síldarverk-
smlðjanna á Austurlandi frá
Raufarhöfn til Djúpavogs munu
aukast um þriðjung fyrir næstu
síldarvertíð, frá því sem var á
sfðustu vertíð. Námu sólar-
hringsafköst í þessum verksmiðj
um á síðustu vertíð 33.000 mál-
um en á komandi vertíð er á-
ætlað að afkastagetan á sólar-
hring verði 43.000-45.000 mál.
Munu auk þess þrær og afurða-
geymslur margra síldarverk-
smiðja verða stækkaðar
I grein, sem Sveinn Benedikts
son ritar í síðasta tölublað Æg-
is um síldarverksmiðjur á Norð-
ur- og Austurlandi á liðnu ári,
koma þessar upplýsingar fram,
þar sem raktar eru framkvæmd
ir við nýjar verksmiðjur og
endurbætur á eldri verksmiðj-
um sem gerðar voru á liðnu ári
og unnið er að nú.
Nú er verið að reisa nýja
2500-3000 mála verksmiðju á
Eskifirði og 1700-2500 mála
verksmiðju á Þórshöfn og á
Stöðvarfirði er verið að reisa
verksmiðju fyrir um 1000 mál.
Afköstin hjá eftirtöldum verk
smiðjum verða aukin:
Hjá S.R. á Seyðisfirði og
Raufarhöfn verður aukningin
samtals 1000-1500 mál og í
Borgarfirði eystra um 600 mái,
hjá Hafsíld h.f. á Seyðisfirði um
600 mál og hjá Síldarvinnslunni
h.f. í Neskaupstað um 2500-3000
Mun sólarhringsafkastaaukn-
ing hjá verksmiðjum á þessu
svæði því nema 10.000-12.000
málum og ættu því sólarhrings-
afköstin að geta orðið um þriðj
Framh. á bls. 6.
VCGIR ÓBUM AB 0PNAST
á Vestfjörðum, Norðurlandi og Austfjörð-
um en aurbleyta þyngir vegi á Suðurlandi
Ööum rætist nú úr samgöngu
erfiðlelkum, sem verlö hafa und
anfama mánuöi vegna snjóa á
landinu vestanverðu, noröan-
veröu og austanverðu, en þar
eru snjóruöningar af vegum nú
hafnir. Á Suðuriandi eru vegir
aftur á móti teknir að versna
vegna aurbleytu og hefur öxul-
þungi bifreiða verið takmarkað-
ur í Vestur-Skaftafellssýslu og
víöar á Suðurlandi.
Samkvæmt upplýsingum frá
Vegamálaskrifstofunni er nú
orðið fært stórum bilum og
jeppum alla leið til Akureyrar
og í gær var unnið að því aö
opna leiðina til Húsavíkur og
verður þá fært alla leið í Mý-
vatnssveit, en vegurinn um
Ljósavatnsskarð er lokaður.
Byrjað er að ryðja vegi 1 Axar-
firði. Frá Akureyri er nú orðið
fært nokkuð um Eyjafjörð, út til
Dalvíkur og á Svalbarðsströnd
og út í Grenivik.
Austur á Héraöi hafa vegir
víða opnazt, og búið er að ryðja
veginn frá Egilsstöðum yfir til
Reyðarfjarðar og Eskifjarðar en
Fjarðarheiði og Oddsskarð eru
lokuð enn.
Unnið hefur verið að undir-
búningi að ruðningi af vegum
víða á Vestfjörðum og mun þá
vegurinn frá Patreksfirði til
Bíldudals, svo og fjallvegir norð
ar á fjörðunum opnast.
Fært er um Snæfellsnes og
yfir Bröttubrekku í Dalina, en
1 Dölum er ófært nema stórum
bílum og jeppum.
Sunnanlands eru sem kunnugt
er engar vegatálmanir vegna
snjóa en aur er víða orðinn svo
mikill á vegum að takamarka
hefur orðið öxulþunga bifreiða.
Bilþjófur ölvað-
ur undir stýrí
— Þann tíma, sem ég komst
ekki með bílinn til Dalvikur,
keyröi ég nokkrar feröir i Drang
sem fiutti vörur frá Sauöárkróki
yfir tii Eyjafjaröar, en þangáð
varö aö flytja flestar vörur sjó-
leiöis. „
BLAÐIÐ í DAG
í gærkvöldi, eða kl. 19,20, var
lögreglunni tilkynnt að bifreiðinni
R-10490 hefði verið stolið. Var leit
þá hafin og náðist þjófurinn í
I nótt. Hafði hann þá lent í lítilshátt
I ar árekstri og lék grunur á að hann
' væri ölvaður við aksturinn.
Annars var rólegt í bænum í nótt
en þó talsverð ölvun enn, eftirhreyt
ur af páskahrotunni. En menn voru
tiltölulega rólegir við drykkjuna og
kom ekki að ráði til kasta Iögregl-
unnar
DAUFT YHR VCRTlÐINNI
einkum í Eyjum.Tregur afli Sudvestanlands og netafiskur fer í lúgu verðflokka
Vertíöin hér syöra hefur
genglð heldur stirölega til þessa
og lætur nærri aö netaaflinn i
sumum verstöðvunum sé nú
helmingur á við það sem hefur
veriö á góöum vertíðum. —
Þetta kom m.a. fram í samtöl-
um, sem Visir átti viö útvegs-
menn i verstöðvunum hér í
kring.
Sturlaugur Böðvarsson, út-
gerðarmaður á Akranesi sagði,
þegar við inntum hann frétta
af vertíðinni: — Hún hefur verið
erfið héma hjá okkur í vetur,
tíðin slæm, oft stormasamt og
erfitt með sjósókn. Aflinn hef-
ur líka verið rýr en þó nokkuö
misjafn. Bátarnir hafa flestir
verið héma í Faxabugtinni með
netin nú að undanfömu. Bát-
amir hafa yfirleitt verið með
þetta 7-12 tonn þó að dregið sé
tveggja nátta, en svo hefur einn
og einn bátur verið að fá sæmi
legan afla öðru hvoru. Skímir
hefur gert það bezt af netabát
unum undanfarið. Hann hefur
verið að fá þetta 40-60 tonn í
síðustu róðrum. — Tveir af
stærri bátum Haralds Böðv-
arssonar eru komnir með síld-
amætur ásamt þorsknótinni, en
hafa lítið fengið enda ekki verið
veður fyrir nótaveiðar nú upp á
síðkastið.
í Vestmannaeyjum er sömu
sögu að segja, nema síðri sé.
— Viö höfðum samband við
Einar Guömundsson útgerðar-
mann í Eyjum. Sagði hann okk-
ur að þessi vertið væri þaö sem
af er, ein sú lélegasta í mörg ár.
Netafiskiriið nálgaðist algjöra ör
deyðu. Það væri rétt stöku
bátur, sem ræki í hann smáveg
is svona af og til t.d. á Selvogs
Framh. á bls. 6.