Vísir - 14.04.1966, Side 2

Vísir - 14.04.1966, Side 2
1 BOND James Bond ætlar að hoppa af hvíta tjaldinu og niður á fjal imar á Broadway. Þar ætlar James Bond, þ.e.a.s. Sean Conn ery að gerast leikstjóri og stjóma leikriti eftir kanadiska íeikstjóri á Broadway leikritaskáldið Ted Alan, en það ber nafnið „The Secret of the World,“ eða „Leyndardómur heimsins." Aðalkvenhlutverkiö verður leikið af Shelly Winters, en hver leika mun aöalkarlhlutverkið hefur enn ekki verið ákveðið, nema hvað víst er að það verður ekki í höndum Connery. Sean Connery hefur hingaö til leikiö í fjórum James Bond kvikmyndum og þegar hann var spurður hvort hann myndi leika í fleirum, sagöi hann: „Annað hvort leik ég í tveimur til viö- bótar, eöa ekki neínni.“ „Prinsessan" kvikmynduð O síðan“ sagði fyrir skömmu W *frá finnsku stúlkunni Seiju sem var sjúk af krabbameini og var ekki hugað líf nema í hæsta lagl eitt ár, — hvemig hún kynntist eiginmanni sinum, glft- ist, varð móðir og hvemig henni tók skyndilega að batna. Eigin maður hennar skrifaði um hana bókina „Prinsessan“ og er hún nú orðin metsölubók í Finnlandi og hefur verið gefin út í geysi- stórum upplögum i Frakklandi, Spáni, Þýzkalandi og Noröur- og Suður-Ameríku. Nú hefur sænski kvikmynda framleiðandinn Jöm Donner gert samning um að fá aö gera kvikmynd eftir bókinni og hyggst hann taka myndina á þessu ári. En hverjir munu fara meö hlutverk Seiju, eiginmanns hennar og annarra semkomavið sögu höfum við ekki haft fregn ir af. Um nokkur undrabörn Lori Balmer er 9 ára gömul áströlsk stúlka, sem á heima í Canterbury, rétt hjá Sindey. — Hún söng fyrir nokkm inn á hljómplötu „Banjo-Bpy" og plat an varð metsöluplata. Nú er Walt Disney búinn að ráða hana til að leika stórt hlutverk í næstu kvikmynd sinni. Allt það sem Lori litla vinnur sér inn láta foreldrar hennar renna í sjóð, sem notaður er til að kaupa mat handa bömum, sem svelta víös vegar í heiminum. Undarleg viðbrögð TVTú er að koma sumar og sól — að því er virðist — en það reynist kannski ekkert að marka að vísu mundu gamlir menn hafa talið ólíklegt aö miklar vorhörkur væm fram- undan fyrst svona bregður við upp úr páskunum. En það er kannski ekki heldur mark tak- andi lengur á reynslu gamla fólksins vísindin hafa enda- skipti á öllu, ekki hvað sízt veðurfræðinni — reynast að vísu markleysa líka og í mót- sögn við sjálf sig, ekki hvað sízt þar, en gera þó alltaf ský- lausa kröfu til að sín markleysa sé tekin fram yfir markleysu annarra hverju sinni. En hvað um það — við skul- um vona að vorbatinn sé kom- inn og gott sumar framundan, með óðri síld, jafnvel úti fyrir Norðurlandi, brakandi heyþurrki bæði sunnanlands og norðan og einnig á Austurlandi. Það sakar að minnsta kosti aldrei að vona. Annars er það undarlegt hvemig við bregðumst við sól og sumri yfirleitt nú orðið. Við húkum heima í skammdeginu, rétt eins og ekki verði komizt til annarra bjartari og vetrar- varmari landa fyrir ófærð, eða við höfum ekki víxillántraust fyrir fargjaldinu. En um leið og vorar, að maður tali nú ekki um þegar sól og sumar gengur í garð og veðurfar er kannski hvergi notalegra en hér, þegar vel vill til — þá æðum við í stórhópum suður um öll lönd samtímis því að útlendingar flýja þaðan hingað vegna óþol- andi hita og sólbruna. Að vísu komum við mörg heim aftur úr slíkum ferðaiögum án þess að hafa hugmynd um veðurfar ið þar sem við dvöldumst — nema hvað þar var notalega rakt, jafnvel á okkar mæli- kvarða. Það er þó ekki nein af- sökun, því að þar mundi líka notalega rakt í svartasta skamm deginu. En þeir eru líka margir sem fara beinlínis til að „njóta“ hitasterkjunnar og bruna sólarinnar, sem meira að segja innfæddum finnst nóg um Njóta þess að hafa hita og sól- skin I slíku óhófi, að vart verð ur af borið ... Hvað veldur þessum undar- legu viðbrögðum? Er skamm- degismóöursýkin enn svo sterk f okkur, þrátt fyrir alla rafljósa dýrðina, að við höfum ekki dáð í okkur til að drifa okkur af stað fyrr en birtir? Rétt eins og þegar gamlir og grónir bændur lágu lengst af í rekkju í skamm deginu, sneru sér til veggjar og þóttust vissir um að þeir yrðu heylausir, þ.e.a.s. að þeir yrðu að taka af margra ára fym ingu — höfðu tæpast rænu á að taka í nefið fyrr en dag tók að lengja. Eða ... eða er það gamla óhófshneigðin, sem viö höfum tekið að arfi með kelt- neskri og norrænni blóðblönd- un? Þéssi undarlega árátta að „vilja" njóta alls í hófleysi — myrkurs, brennivíns, kulda, hita og sólskins? Það skyldi þó ekki vera. . Kári skrifar: k undanförnum árum hefur mikið verið rætt um þrifn- að eða óþrifnað veitingastaöa úti á landi. Má sannast segja að ástandið hefur til skamms tíma verið slæmt og eigendunum sízt til sóma. Sem betur fer virðist vera að vakna meiri til- finning fyrir þessum atriðum daglegrar umgengni og almenns hreinlætis og er ólíkt betra á- stand á mörgum staðanna en var áður, enda hefur mikið verið hert á öllu eftirliti með þessum málum. Sóðaskapur Nú vill svo einkennilega til að meðan sem mest er hamazt út af þessum málum úti á iands byggðinni þá er ástandið á sum um skemmtistööum hér í borg þannig, að til vansæmda er og fólki ekki bjóðandi. Kom kona nokkur að máli viö Kára fyrir skömmu og sagði frá slæmri reynslu sinni í þessum efnum. Brá hún sér í bíó síðdegis á Sunnudegi ekki fvrir löngu og varð vitni að þeim sóðaskap að hún gat ekki orða bundizt. Þurfti hún að bregða sér á snyrt inguna og strax þegar hún kom inn fyrir sá hún að allar hand- laugar voru stíflaðar og að þar var ekki eitt einasta handklæöi hvað þá bréfþurrkur eða hand- klæði á rúllum, sem þykja bezt þegar alls þrifnaðar er gætt. Var þarna hópur barna á randi út og inn og hefðu foreldrarnir oröið lítt hrifnir hefðu þeir séö allan aðbúnaðinn. Ennþá virðist vera víða pott- ur brotinn í hreinlætismálum okkar Islendinga og er ekki vanzalaust að svo skuli vera. þegar við teljwm okkur vera þjóð meðal siðmenntaðra þjóða — -0- — Kari Kristinsen, þriggja ára gömul finnsk stúlka er nýbúin að gefa út fyrstu bókina, sem nefnist „Ég og Mja“. Þaðerljóð en eins og skiljanlegt er gat Kari litla ekki skrifað ijóðin heldur aðeins mælt þau af munni fram og síðan skrifaði móöir hennar þau niður. Gary Petters er aðeins 6 ára en honum hefur verið veitt æðsta viðurkenning áhugasund- manna, The Gold Standard. Hann synti 1000 yarda, um 1 kílómeter á hálfri klukkustund og varð þannig bezti „litli sund maöur" Stóra Bretlands. Frakkar spyrja hvort Marc litli Decimo sé upprennandi Chopin. í fyrra, þegar hann var aðeins 5 ára var honum veitt inntaka í tónlistarháskólann í Aix-en-Provence eftir að hann hafði fengið sérstakt leyfi frá franska menntamálaráðuneyt- inu. Tónlistarhæfileikar hans komu í ljós, þegar hann var fjögurra ára og lék eftir eyranu á gítar. Hann er þegar farinn að leika á píanó lög eftir Moz- art og Beethoven og kennaram ir vænta mikils af honum. Sean Connery MBC3 4

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.