Vísir - 14.04.1966, Side 5
5
VlSIR . Fimmtudagur 14. apríl 1966.
þingsjá Vísis
þingsjá Vísis
þingsjá Vísis
Fundur var í gær í Sameinuðu
alþingi, og voru 15 mál á dag-
skrá.
Embætti
lögsögumanns
Einar Ágústsson (F) mælti á
fundi í Sameinuðu alþingi fyrir
tillögu til þingsályktunar um
stofnun embættis Iögsögumanns
(„ombudsmands" á dönsku).
Rakti flutningsmaður í upphafi
efni tillögunnar. Sagði ræðumað-
ur síðan, að afskipti ríkisvaldsins
af lffi borgaranna færu mjög vax-
andi. Afkoma borgaranna færi
mjög oft eftir því, hvemig við-
skipti þeirra við hið opinbera
mundu takast. Markmiðið með
stofnun embættisins væri, að það
ætti að gæta hagsmuna almenn-
ings gagnvart hinu opinbera. Það
ætti að skapa traust almennings
og eyða tortryggni hans gagnvart
hinu opinbera.
Bjami Bene-
diktsson forsæt
isráðherra sagði
að hér væri
vissulega hreyft
íhugunarverðu
máli. En betur
þ5nfti að íhuga
þetta mál, áður
en slíkt embætti yröi stofnað. Oft
væri talað um, að embættiskostn-
aður væri mun meiri hér á landi
en í nágrannalöndunum, og væri
þetta óhjákvæmilegt sakir smæð
ar okkar þjóðfélags. Af þessu
leiddi einnig, að við yröum að
fara varlega í stofnun embætta,
varlegar en aðrar þjóöir. Að lok-
um sagöi forsætisráðherra, að
minni þörf væri á slíkum emb-
ættismanni hér á landi en hjá
öðrum þjóðum, vegna smæðar
þjóðfélags okkar og vegna þess,
hve gagnsætt það væri. Ráðlegt
væri að nefnd athugaöi málið
gaumgæfilega og athugaði vel
starfsemi ' samsvarandi embætta
erlendis.
Einar Ágústsson (F) þakkaði
forsætisráðherra þaö, að hann
hefði sagt að hér væri hreyft
íhugunarverðu máli. Reynsla ná-
grannaþjóðanna væri ekki löng
af þessu embætti, en reynsla
Dana væri mjög jákvæð. Þaö væri
vissulega rétt hjá forsætisráö-
herra, að reynsla þeirra af þessu
máli væri jákvæð, vegna sérstakr
ar heppni þeirra við val manns í
embættið, en ræðumaður sagði
ekki útilokað, að við íslendingar
gætu orðið jafnheppnir í vali okk-
ar.
Síðan var tillögunni vísaö til
síðari umræðu og allsherjarnefnd-
ar.
Aðbúð
síldarsjómanna
Benedikt Grön-
dal (A) mælti
fyrir tiliögu til
þingsályktunar
um, að Alþingi
feli ríkisstjórn-
inni að vinna að
bættri aðbúö
síldarsjómanna
í helztu löndunarhöfnum, sérstak-
lega meö því að koma á fót sjó-
mannastofum, svo og að greiða
fyrir bókaláni til síldveiðiskipa.
Sagði flutningsmaður í ræðu
sinni, að undanfarin ár hefðu síld-
veiðar aukizt mjög og væru nú
stundaðar mikinn hluta ársins
Af þessu leiddi, aö síldarsjómenn
yröu að dveljast fjarri heimilum
sínum lengur en áður, enda
fylgdu skipin síldinni umhverfis
landið og kæmu sjaidan í heima-
höfn mánuðum saman. Væri nú
mikil síldarlöndun í ýmsum höfn-
um, þar sem lítil eða engin að-
staða væri til að greiða fyrir sjó-
mönnum þær stundir, sem þeir
kæmu í land. Síðan sagði ræðu-
maður, að mál þessi hefðu verið
mikið rædd í samtökum sjó-
manna, og verið samdar áiyktanir
um þessi mál. Að lokum sagði
flutningsmaður, að ætla mætti, að
ýmsar ráðstafanir væri unnt að
gera til að koma til móts við
sjómenn, án þess að það kostaði
stórfé eða nýjar byggingar. Sums
staðar réði ríkið yfir húsnæði,
sem nota mætti, og athuga mætti
hvort ekki væri hægt að hafa
einhver not af hinum nýju og
dýru félagsheimilum í þessu
skyni. Umræðu um máiið var síð-
an frestaö og málinu vísað til
allsherjamefndar.
Keflavíkursjónvarpið
Gils Guömundsson (K) mælti
fyrir tillögu til þingsályktunar
um takmörkun sjónvarpssend-
inga frá Keflavíkurflugvelli. Er
tillagan á þessa leið: „Alþingi á-
lyktar að fela ríkisstjórninni að
hlutast til um, aö sú breyting
verði gerð á tækniútbúnaöi sjón-
varpsins á Keflavíkurflugvelli, að
sjónvarpssendingar þaðan verði
framvegis takmarkaðar við her-
stööina eina. Skal þessi breyting
koma til framkvæmda um leið og
íslenzkt sjónvarp tekur til starfa"
Aö lokinni framsöguræðu flutn-
ingsmanns var fundi frestað til
klukkan 5.45.
Eysteinn Jónsson (F) lagöist
eindregið gegn sjónvarpssending-
um frá Keflavíkurflugvelli. Engin
þjóð öpnur en sú íslenzka mundi
þola að sjónvarpsdagskrá sú, sem
borin væri á borð fyrir lands-
menn væri undirbúin í hermála-
ráðuneyti annarrar þjóðar. Eina
leiðin í þessu máli væri sú sama
og aörar þjóðir hefðu farið í
svipuðum kringumstæðum, að
um leið og innlent sjónvarp
hæfi útsendingar, ættum við að
skilja milli sjónvarpssendinga frá
herstöðinni og innlenda sjónvarp-
inu og koma í veg fyrir sendingar
frá flugvellinum. Sú sífellda bar-
átta. er ætti sér stað á ísl. heim-
ilum mill* fs! ríkisútvarpsins og
hins er' 'n sjónvarps yki að
mun óvild í garð Bandaríkjam.
en það væri vilji mikils meiri-
hluta landsmanna að góð sam-
vinna yrði milli Bandaríkja-
manna og íslendinga.
Ragnar Amalds (K) mælti mjög
gegn þeirri einokun, er hersjón-
varpið nyti hér á landi. Sagði
hann, að ef íslendingar ættu að
kallast sjálfstæð þjóð, yrðu þeir
að takmarka allar athafnir út-
lendinga hér á landi Síðan sagði
hann, að ef til kæmi alheims-
sjónvarp, væri samt sem áður
tækifæri fyrir áhorfendur þess til
að hafna og velja.
Guðlaugur Gislason (S) sagði.
að við umræður um þetta mál,
utan þings og innan. hefðu komið
fram tvenn rök gegn sjónvarpi frá
Keflavikurflugvelli T fyrsta lagi
væri hér um að ræða að það
væri vansæmandi fvrir ísl. þjóð-
ina að leyfa erlendum aðila að
hafa sjónvarpsstöð f landinu. og
í öðru lagi stefndi sjónvarpið-
íslenzku þjóðemi í hættu. Rök
þau, er væru flutt fyrir þessari til
lögu væm hið síðarnefnda. Að því
er bezt væri hægt að sjá af grein-
argerð, sem með frumvarpinu
fylgdi, væri tillagan aðallega fram
komin vegna áskorunar 600 há-
skólastúdenta. Á móti kæmi svo
áskoun .4600 sjónvarpseigend-
um um, að þeir vildu njóta sjón-
varps, hvaðan svo sem það kæmi.
Ef flytja ætti tillögu á Alþingi
samkvæmt áskomnum ákveðinna
hópa, hvaða tillit ætluðu þá flutn
ingsmenn tillögunnar að taka til
áskorunnar hinna 14600. Síðan
sagði ræðumaður, að það væri
samdóma álit allra þeirra, sem til
þekktu, að aðeins væri tæknileg-
ur munur á sjónvarpi og útvarpi.
Þegar þetta væri athugað vekti
það furðu að flutningsmenn til-
lögunnar minntust ekki einu orði
á að banna útsendingar Keflavík-
urútvarpsins. Á þessu ári væm lið
in 15 ár frá því er leyft hefði
verið að hefja útvarp frá Kefla-
víkurflugvelli og tveir flutnings-
menn þessarar tillögu hefðu verið
ráðherrar á þessu tímabili, en ekki
hefði heyrzt eitt einasta orð frá
þeim er þeir voru í ríkisstjóm um
að banna þyrfti útvarp frá Kefla-
vík.
Umræðu um málið var siðan
frestað og það tekið út af dag-
skrá.
Ragnar Amalds (K) kvaddi sér
máls utan dagskrár á fundi í Sam
einuðu alþingi í gær og vakti at-
hygli á því að í dag væm liðin
fimm ár síðan þáverandi utan-
ríkisráðherra hefði veitt Banda-
ríkjamönnum levfi til stækkunar
sjónvarpsstöðvarinnar á Keflavík
urflugvelli. Síðan sagði hann, að
fyrir um það bil fimm vikum
hefði verið lögð fram tillaga
sex þingmanna stjómarandstöð-
unnar um takmörkun sjónvarps-
sendinga frá fyrrgreindri sjón-
varpsstöð og hefði hún ekki enn
verið tekin til umræðu á alþingi
og lagði ræðumaður til að hraðað
yrði afgreiðslu mála í sameinuðu
þingi, t.d. með því að lengja fund
artíma Sameinaðs alþingis.
Birgir Finnsson, forseti samein
aðs alþingis, sagði út af fyrr-
greindum ummælum Ragnars Am
alds ,að þessari þingsályktunar-
tillögu hefði ekki verið stungið
undir stól af ásettu ráði, ástæðan
til þess að fyrrgreind tillaga hefði
ekki verið tekin til umræðu enn,
væri öllum kunn og væri ein
faldlega sú, að hér á alþingi hefðu
verið umræður um allt önnur
mál.
ÚTBOÐ
Óskað er eftir tilboðum í sölu á götuljósa-
búnaði fyrir Rafmagnsveitu Reykjavíkur. Út-
boðslýsingar eru afhentar í skrifstofu vorri,
Vonarstræti 8.
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar
OMEGA úrin heimsfrægu eru enn í gangi frá
síðustu öld.
OMEGA er varanleg fermingargjöf
OMEGA úrin fást hjá
GARÐARI ÓLAFSSYNI URSMIÐ
Lækjartorgi — Sími 10081
Matreiðslumaður óskast
Flugfélag íslands h.f. óskar að ráða mat-
reiðslumann eða nema til sumarstarfa við
matstofu félagsins á Reykjavíkurflugvelli.
Umsóknareyðublöð fást á skrifstofu félagsins
í Lækjargötu 2, og óskast þeim skilað til
starfsmannahalds fyrir þ. 25. apríl n. k.
Uppl. veittar hjá yfirmatreiðslumanni eða hjá
starfsmannahaldi í síma 16600.
Húsgagnasmiðir óskast
Vantar húsgagnasmiði eða menn vana inn-
réttingu. Tilboð merkt „Húsgagnasmiðir“
sendist blaðinu.
FERMINGARÚR
MAGNÚS E. BALDVINSSON, úrsmiöui
Laugavegi 12 — Sími 22804
Hafnargötu 49 — Keflavfk