Vísir - 14.04.1966, Síða 6
6
V í SIR . Fimmtudagur 14. apríl 1966,
Segja upp —
Framh. af bls. 16
ins væri lítið hægt að segja. Loft-
skeytamenn''og simritarar hefðu áð
ur haft viðræður við launamála-
nefnd hins opinbera og þá fengið
nokkra úrbót bg heyrði þetta mál
undir hana.
Skýrði Gunnlaugur m.a. frá því
• að uppsagnimar gengju f gildi þrem
I mánuðum eftir að þær hefðu bor-
i izt. Sagði hann einnig að meðal
| þeirra, sem hefðu sagt starfi sínu
; lausu væru nokkrir yfirmenn,
í varðstjórar.
Síldurverksm. —
Framhald af bls. 1.
ungi meiri en á síðustu síldar-
vertíð.
Margir aðilar aðrir en þeir,
sem að framan eru greindir,
hafa leltað fyrir sér um lán og
aðra fyrlrgreiðslu til þess að
reisa 7-8 nýjar síldarverksmiðj
ur á Austfjörðum fyrir næstu
sildarvertfð en litlar líkur munu
vera tll að úr þeim framkvæmd-
um verðl í sumar.
Á síðasta ári vom reistar og
teknar í notkun tvær nýjar sild
arverksmiðjur, verksmiðja Haf-
sildar h.f. á Seyðisfirði með 2500
mála afköstum og verksmiðja
Búlandstinds h.f. á Djúpavogi
með 1000 mála afköstum. Vora
afköst Síldarverksmiðju rikisins
á Seyöisfirði aukin um 2500 mál
og endurbætur gerðar á fleiri
verksmiðjum Síldarverksmiðja
ríkisins og var kostnaðurinn
samtals um kr. 74.000.000.00
Afkoma síldarverksmiðjanna
á árinu 1965 var miklu lakari
en árið 1964. Hagnaður S.R.
nam t.d. kr. 74.210.804.16 árið
1964, en samkvæmt bráðabirgða
uppgjöri virðist reksturinn 1965
standa í jámum, þegar fyming-
ar hafa verið reiknaðar, að þvi
er segir í fyrmefndri grein í
Ægi.
Hlíðurfjull —-
FramhM'n ,it bls. 16.
Strompi. Hafa ýmsir aðilar sýnt á-
huga á gerð þessa mannvirkis,
og hefur Í.S.l. þegar heitið fjárstuðn
ingi til þess að stóllyftunni verði
komið upp. Verður væntanlega tek
in ákvörðun um það i júli hvaða
tilboði I verkið verður tekið, en
bæði Frakkar og Svisslendingar
hafa verið á ferðinni í Hlfðarfjalli
til þess að kanna aðstæður, enn
fremur hafa Tékkar sýnt áhuga
á gerð mannvirkisins auk ann-
arra þjóða. Ef allt gengur að ósk-
um má vænta þess að stóllyftan
verði komin að ári í Hlfðarfjall og
vænkast þá hagur þeirra, sem yndi
hafa af vetraríþróttum og sækja
í Hlíðarfjall um páskana. Þessi
stóllyfta er aðeins fyrsti hluti f
miklum ráðgerðum um eflingu
Skíðahótelsins í Hlfðarfjalli sem
vetraríþróttastaðar hér á landi. Er
í framtiðinni miðað við það að önn
ur stóllyfta komi upp fjallið frá
Strompi, 1100—1200 metra löng,
eða allt að hábrún fjallsins. Er þá
ekki nema nokkurra mínútna gang
ur að Vindheimajökli og opnast þá
nýir möguleikar fyrir skíðaiðkun
árið um kring á þessum fallega stað
Gestir Skíðahótelsins voru að
þessu sinni 70 talsins og hafa þegar
öll gistiherbergi Skiðahótelsins ver
ið pöntuð fyrir næstu páska.
Vertíðin —
Framh. af 1. sfðu.
banka, en þar virðist eitthvað
af fiski hafa gengið á miðin.
Ekkert virðist bóla á páskahrot-
unni sem kölluð hefur verið svo
en Vestmannaeyingar lifa enn
í voninni um að fiskur gangi á
heimamiðin fyrir vorið og gefi
svolitla uppbót á aflaleysið í
vetur. — 1 Eyjum era um 80
bátar gerðir út núna, af þeim
eru flestir með net, allmargir
með troll og hefur afli þeirra
verið heldur stopull og ótíð
hamlað veiðum. Nokkrir stærri
bátanna hafa verið með nætur
og er sömu sögu af þeim að
segja.
Ástandið er svipað í Keflavík
og verstöðvunum suður með sjó.
Ingiber Ólafsson kom inn meö
46 tonn í gær og hringdi Vísir
í skipstjórann Öm Erlingsson.
Sagðist hann hafa fengið þetta
á Selvogsbanka, en þar væra
margir bátar með net sín núna
og hefðu sumir fengið reytings-
afla en yfirleitt væri hann
hörmulega rýr. Vertíðin er ekki
svipur hjá sjón við það sem var
í fyrra og var það þó ekkert
sérstök vertíð. Auk þess er yfir
leitt dregið tveggja nátta, svo
að megnið af fiskinum fer i
lægri verðflokka, en aöeins lít-
ið eitt í bezta flokk. — Bátarn-
ir úr Keflavík róa ýmist út á
flóann eða suður fyrir á Selvogs
bankann og hefur aflinn yfir-
leitt verið þetta frá 10 og upp
undir 20 tonn eftir tveggja nátta
legu.
Lögfræðingur ræðu
Friðhelgi
einkaSífs
Lögfræðingafélag íslands og Ora
tor, félag laganema, halda sam-
eiginlegan fund mánudaginn 18.
aprfl n.k. kl. 20.30 i Sjálfstæðishús
inu við Austurvöll. ,
Fundarefni: „Friöhelgi einkalífs“ .
Framsögumenn verða Benedikt |
Sigurjónsson, hæstaréttardómari ]
og Garðar Gíslason stud. jur.
Happdrætti
Hóskólans
Hæsti vinningurinn, 500.000 kr.,
kom á heilmiða nr. 50431, sem seld
ur var i umboöi Guðrúnar Ólafs-
dóttur, Bókaverzlun Sigfúsar Ey-
mundssonar. Eigandi þessa vinn-
ingsnúmers átti einnig sama núm
er í aukaflokknum, og fær því
eina millj. kr. (Birt án ábyrgðar).
100.000 krónur komu á heilmiða
nr. 47810, sem seldir voru í um-
boði Þóreyjar Bjamadóttur.
10.000 kr. komu á nr.: 2861, 3568
7629, 7735, 15900, 16175, 16469,
18234, 21332, 27177, 33379, 33733,
36212, 36511, 38727, 43606, 43840,
44496, 44875, 45745, 47097, 47112,
49436, 50430, 50432, 52147, 57440,
59500. i
Um þessar mundir er klæða-
verksmiöjan Últíma 25 ára og
var blaðamönnum í því tilefni
boöið aö skoða vefnaðarverk-
smiðju fyrirtækisins við Nýbýla
veg í Kópavogi, saumastofuna
og verzlunina í Kjörgarði.
Verksmiðjan var stofnuð í
marz 1941. Frá upphafi var til
gangur hennar að leitast við að
framleiða karlmannafatnað á
lægra veröi en hér haföi tíökazt
með því að beita hagkvæmari
vinnuaðferðum við framleiösl-
una. Slík hagræðing komst einn
ig á hjá fleiri fyrirtækjum hér
á landi um svipað leyti og
gerði hún það að verkum að
verð á þessum vörutegundum
hefur fariö lækkandi miðað við
kaup. Þannig mun þurfa and-
virði þrisvar sinnum færri
vinnustunda nú til kaupa á
vönduðum karlmannafötum en
þurfti fyrir 25 árum.
Aöalstofnandi Últímu og nú
verandi forstjóri fyrirtækisins
er Kristján Friðriksson, en auk
hans voru meðeigendur í upp-
hafi Sæmundur Friöriksson,
Arnheiður Jónsdóttir, Bjarni
Ingimarsson og Gunnhildur Guð
jónsdóttir sem starfað hefur við
fyrirtækið frá upphafi.
Stærsti þátturinn í starfi fyr
irtækisins hefur löngum veriö
að sauma karlmannaföt á lager
svo og eftir máli. Hefur sá þátt
ur framleiðslunnar farið vax-
andi hin síðari ár. Hjá fyrir-
tækinu vinna nú 3 klæðskerar
sem viðskiptavinirnir geta val-
iö á milli til þess að sauma
föt meö hvaða sniöi sem er.
það eru þeir Þórhallur Frið-
finnsson, sem starfað hefur
lengi hjá fyrirtækinu, Colin
Porter og Erlingur Aöalsteins-
son, en þeir Porter og 'Erling-
ur hafa nýlega gerzt meðeigend-
ur í fyrirtækinu. Þeir eru jafn
framt nokkurs konar tízkusér
fræðingar fyrirtækisins. En nú
ku alls konar nýbreytni vera að
ryöja sér til rúms i karlmanna-
fatatízkunni. Þannig mun það
títt að ungir menn komi til
klæðskerans og biðji um buxur
með skálmar af sinn hvoram
litnum, eða flekkótt föt. Sögðu
klæðskerar Últímu að farið
væri eftir óskum viðskiptavin-
anna um slíka hluti eftir því
sem hægt væri.
Árið 1950 var vefnaðardeild
Últímu stofnuð. Á þeim árum
voru nokkrir erfiðleikar á fata
efnakaupum erlendis og var
hugmyndin meöfram sú að
spara gjaldeyri meö því að
kaupa garnið og vefa dúkinn
hér. í byrjun var framleitt tals
vert af karlmannafataefnum en
þeirri framleiðslu hefði nú verið
hætt og framleiðir vefnaðarverk
stæðið nú aðallega áklæði og
gluggatjöld úr íslenzkri ull. Til
þessarar framleiðslu eru notað-
ar hinar fullkomnustu fágunar
vélar og hefur tekizt að fram-
leiða ágætustu efni úr íslenzku
ullinni. Hældi Kristján Friöriks
son ullinni okkar mjög og taldi
hana hið ákjósanlegasta hráefni
til vefnaöar sérstaklega i
gluggatjöld. Sagði hann að
gluggatjöld úr ullinni héldu öðr
um efnum frekar fallegri áferð
vegna þess hve fjaðurmögnuð
hún er. í henni eru allar gerðir
hára, bæöi fín og gróf, sem
gerir það að verkum að hún
heldur sér öðrum efnum betur
þótt hún sé hreinsuð eða henni
vöölað saman. Enda veitir hún
sauðkindinni skjól í kaldri og
stormasamri veðráttu. Sauðfé
með þessa tegund ullar er að
eins til hér og á Grænlandi og
svo er einhver smástofn1 af því
í Noregi.
Sagði Kristján að þessi fram
leiðsla fyrirtækisins ætti vax-
andi vinsældum að fagna, en
gluggatjöldin eru aðeins seld á
tveimur stöðum hér í obrg, í
Kjörgarði og hjá Teppi h.f.
Stúlka vön vélritun
óskast sem fyrst til starfa á skrifstofu vorri.
Innkaupastofnun ríkisins, Borgartúni 7.
i VILJUM RÁÐA
\ ' jUkí■■ .. fmuí"e'Oie
ungan lagtækan mann til iðnaðarstarfa.
PLASTPOKAR H/F
Veghúsastíg 9 B . Sími 18454
I íbúð óskast til kaups
Hef kaupanda að 3ja—4ra herb. íbúð með bíl-
skúr. Hef einnig kaupendur að 2—6 herb.
ibúðum. — Góðir kaupendur með miklar út-
borganir.
FASTEIGNAMIÐSTÖÐIN Austurstræti 12
Slmar 14120, 20424 og kvöldsimi 10974.
LAGERMAÐUR
óskum að ráða lagermann í varahlutaverzlun
vora, Lágmúla 9. Upplýsingar gefnar á skrif-
stofunni, Vesturgötu 3, frá kl. 1—5 e. h. (ekki
í síma).
BRÆÐURNIR ORMSSON H/F
Vesturgötu 3
TIL SÖLU
Af sérstökum ástæðum eru til sölu eftirtalin verk-
færi af stóru bifreiðaverkstæði:
Bílalyfta (3 tonn) Cylinderbor
Fóðringarvél — Ventlavél
Ventilsætavél - Gastæki m/kútum
Gólftjakkur — Vinnubekkir
Verkfæraskápar - Miðstöðvarketill m/loftkönulum
Bremsuskálavél — Rafsuðuvél
Modelstilllngatæki o. m- fl.
Selst i einu lagi. Tilboð sendist augl.d. Vísis merkt
„Bifreiðaverkstæði“ fyrir 16, þ. m_________________