Vísir - 14.04.1966, Side 7

Vísir - 14.04.1966, Side 7
VÍSIR . Fimmtudagur 14. apríl 1966. 7 NY IDNÁÐARSVÆDII GUFU- NCSI 06 6RAFARV06INN í bókinni „Aðalskipu- Iag Reykjavíkur 1962— 1083“ er gerð grein fyr- ir því, hvar iðnaðar- svæði Reykjavíkur eiga að vera í náinni framtíð. Verulegur hluti þeirra kemur til með að verða austan Elliðaáa, aðal- lega í kringum Grafar- vog. Birtast hér þættir úr þeim hluta bókarinn- ar, sem fjallar um hin nýju iðnaðarhverfi aúst- an Elliðaáa. Talið er eðlilegt að velja meiri háttar iönaðarhverfum stað í ná grenni hinnar fyrirhuguöu Sundahafnar og fást þá hin á- gætustu tengsl bæði við kerfi hraöbrautanna og höfnina. Að því er þungaflutninga snertir, milli íslands og útlanda, koma einungis til greina þungaflutn- ingar á sjó. Núverandi notkun Landsvæöið milli Vesturlands vegar og strandar er nú þegar notaö að nokkru til iðnaðar og vörugeymslu. Má þar helzt nefna áburðarverksmiðjuna í Gufunesi, birgðagevmslur Landssímans og Vegageröar rík isins, steypustöðvar og malbik- unarstöð borgarinnar. Þá er til raunastöð Háskólans í meina- fræði að Keldum, en á landi hennar eru rannsóknarstofur og búskapur, sem rekinn er vegna tilraunadýranna. Loks eru raf- magnsstöðvarnar og aöalspenni stöðin viö Elliðaár, er standa rétt utan við suövesturhorn svæðisins, en háspennulínurnar l'rá Sogi og dreifilínur til iðnað- arfyrirtækja og annarra sveitar félaga liggja um landsvæðið. Gufunes t og Geldinganes. Af svæðum þeim, sem í aöal- skipulaginu eru ætluð til iðnað- ar, eru svæðin norðan Grafar- vogs (Gufunessvæðið og Geld- inganes) einkum ætluð rúmfrek ri starfsemi Hafnarsvæði, sem þar verða, munu verða sköpuð á sama hátt og við Viðeyjar- sund, með uppfyllingum neðan og framan við sjávarbakkana, sem nú eru. Að undanskildri bryggju við Áburöarverksmiöj ina koma hafnarmannvirki á þessum stöðum þó varla til fyrr en í síðari byggingaráföngum Sundahafnar. Ártúnshöfðl. Iðnaðarhverfið, sem fyrst verð ur á döfinni, er í Ártúnshöfða milli Grafarvogs og háspennu- línunnar norðan Árbæjarhverf- is. Lóðauppdráttur hefur verlð gerður að Ártúnshöfða. MiðMata hans er skipt í litlar iðnaðar- Ióðir, en nær Vesturlandsvegi eru lóðir nokkru stærri, um eínn hektari. Ráðgert er, að í hverfi þessu verði knattvellir og sérst. hverfismiðstöö með verzkmam, veitingastofum og barnagæzlu. Annað iðnaðarhverfi verður sunnan Vesturlandsvegar upfp að aðalæð hitaveitunnar frá Reykjum. Þar eiga að vera fyrir tæki, sem eru í stærra lagi, og lóðir 3—5 hektarar að flatar- máli. Þriðja iðnaðarhverfið, uppi á hæðinni norðan Árbæjac, á að skiptast í stórar eöa mSB- ungs stórar lóðir. Með hliðsjón af íbúðahverfinu, sem þar tEk ur við fyrir sunnan, ber að sjá svo um, aö í þessu iðnaðar- hverfi sé eingöngu snyrtiteg starfsemi, er ekki veldur ónaeði. Helzt ætti þar að vera iðnaðor, sem konur vinna við, t.d. gerð. 90 vikulegar flugferðir í sumar Sumaráætlun Flugfélags Islands Kort af hafnarsvæðinu og iðnaðarsvæðinu. Svörtu fletimir tákna iðnaðarsvæði og hvítu línumar tákna hraðbrautir. Ljósi flöturinn inn af Grafarvogi er Keldnaholtið og Ijósi flöturinn neðst á mynd- inni til hægri er Árbæjarhverfið nýja. Sumaráætlun Flugfélags ; Is- lands gekk í gildi um síðastliðin mánaðamót og fjölgar nú férð- um, í áföngum, á flugleiðum inn anlands og milli landa. Sumaráætlunin í ár, er sú yfir gripsmesta til þessa í sögu félagsins. Milli íslands og út- landa verða, þegar áætlunin hef- ir að fullu gengið í gildi, sautján ferðir í viku, og frá Reykjavík verða 73 ferðir í viku til hinna Spjall 'C’ftir að leiðtogum íslenzkra kommúnista var á þaö bent að gerðardómur í álmálinu væri ekki einsdæmi, heldur hefði vinstri stjórnin (alias Lúðvík Jðsepsson) þrisvar sinn um samið við Rússa um að Moskvugerðardómur dæmdi í olíusamningum, hafa málgögn flokksins hopað í varnarstöðu. Talið um tortryggnina á ís- lenzkum dómstólum hefur nú hljððlega verið látið niöur falla og hvergi í Þjóðviljanum heyr- ist lengur talað tun hina miklu móðgun við íslenzkt réttarfar. Þess í staö hefur nýju vígorði verið þeytt fram á orrustuvöll- inn; Þjóðaratkvæði. Undir því á að heyja fólkorrustur næstu vikna, þótt enginn vinstri rnanna hafi raunar neina von um sigur í því vopnabraki. JTrafan um þjóðaratkvæði f ál- málinu er ofur skiljanleg og einstakiega frálelt í senn. Kommúnistar og framsóknar- menn hafa ekki meirihluta á löggjafarsamkundunni. Þeir geta ekki hindrað samþykkt ál- málsins þar. Þess vegna er beltt tafaraðferðinni frægu, hopað í næstu víglínu og beðið um þjóð- aratkvæði. Þegar sú krafa er krufin til mergjar kemur í Ijós að f henni felst ekkert annað en megnasta lítilsvirðing á lög gjafarþingi þjóðarinnar. Það á að ganga framhjá þvf í stærsta málinu, hafa það að engu, þótt samkvæmt stjórnarskránni beri því skýlaus skylda til að af- greiða þingmál með samþykkt eða synjun. Alþingi á með öðr- um orðum að gera að einu stóru núlli f mikilvægasta málinu sem fyrir það hefur verið lagt, hindra að löglega kjörnir fulltrúar þjóð arinnar fái innt þær skyldur sín ar af hendi, sem stjómarskráin leggur þeim á herðar. Alþingi á ekki aðeins aö fjalla um ál- málið og taka eitt afstöðu til þess. Þvi ber lagaskylda til þess. Al'ar tilraunir til þess að bregða málinu undan valdi Al- þingis eru því spor í þá átt að grafa undan þingræðinu og gera Alþingi að silkihúfu. Cegjuin sem svo að sú óhappa ákvörðun væri tekin að sniðganga Alþingi í þessu máli og skjóta því undir þjóðarat- kvæði. Engar líkur eru þá á að niðurstaðan þar yrði önnur en í þingsölunum, vegna þess að meirihluti þjóðarinnar stendur að baki meirihluta Alþingis. Vit að er aö stjómarflokkarnir standa cinhuga að samþykkt álmálsins. Við það bætist að stór hluti Framsóknarmanna er málinu fylgjandi þótt það sjá ist ekki í þingsölum vegna flokksagans. Má því ætla að mik ill meirihluti væri með sam- þykkt áimálsins í þjóðarat- kvæðagreiðslu. En slíkri máls- meöferð á ekki að beita af fram angreindum ástæöum. Alþingi hefur ekki aðeins fullt stjóm- skipulegt vald til þess að fjalla um málið, heldur einnig stjórn skipulega skyldu. Því verður málinu þar til lykta ráðið. "C'rjáls þjóð hefur af því þung- ar svefnfarir að dagblöðin hafa bent á þá staöreynd að lik legast væri að kommúnistar hefðu töglin og hagldimar í hinu nýja Alþýðubandalagi i Reykja vík. Kveður blaöið það mestu firru. Hér gleymast staðreynd- imar í glýju óskhyggjunnar. Kommúnistar í Reykjavik eru a. m.k. tifalt fleiri en Hannibals og þjóðvamarliðið. Hvemig á því annað að verða en hinn fjöl mennari aðili hafl yfirtökin — ef lýðræði atkvæðanna er látið ráða? Vestri. ýmsu staða innanlands, auk ferða milli staða úti á landi. Eftir að sumáráætlun innan- lands hefir að fullu tekið gildi munu Friendship skrúfuþotum- ar annast innanlandsfhigið að meirihluta. í maí mánuði munu DC-3 flug vélar fljúga á nokkrum flugleið- um, sem áætlaðar höfðu verið með Friendship vegna þess að afhendingu TF-FIK seinkar þar til síðast f maf. Samkv. heim- ildum frá Fokker verksmiðjun- um, er ástæðan sú, að seinkun varð á afhendingu hluta, sem framleiddir eru í öðrum verk- smiðjum. MILLILANDAFLUGIÐ: Sem fyrr segir fljúga „FAXAR“ Flugfélagsins nú fleiri ferð ir miWi landa en nokkru sinni fyrr. Þegar sumaráætlunin hefir að firilu gengið í gildi verða átta ferðir í viku til Glasgow, fjórar beinar ferðir til London, á þriðju dögum, föstudögum, laugardög- um og sunnudögum. Til Kaup- mannahafnar verða þrettán ferð ir í viku, þar af þrjár beinar ferðir frá Reykjavík, á miðviku dögum, laugardögum og sunnu- dögum. Til Osló verða tvær ferð ir í viku, á mánudögum og fimmtudögum og tii Færeyja, Bergen og Kaupmannahafnar á þriðjudögum. Brottfarartfmar í millilanda- fluginu verða: Til Glasgow og Kaupmannahafnar kl. 08:00.. Til London kl. 09:00. Til Færeyja, Bergen og Kaupmannahafnar kl. 09:30. Beinar ferðir Reykjavík— Kaupmannahöfn kl. 10:30. Til Osló og Kaupmannahafnar kl. 14:00. INNANLANDSFLUG. Eins og f millilandafluginu, fjölgar einnig áætlunarferðum innanlands að mun. Þegar sum- aráætlunin hefir að fullu gengið f gildi verður fluginu hagað þannig: Frá Reykjavik til Aknreyrar verða þrjár ferðir á dag, nema á miðvikudögum, þá eru tvær ferðir. Af þessum tuttugu fetð- um í viku verða 18 með Friend- ship og tvær með DC-3 flugvS- um. Til þessa hafa miðdagsfierðk milli Reykjavíkur og Akureyrar oftast viðkomu á fleiri stöðum norðanlands. í sumar verða þessar ferðir að mestu leyti flognar beint milli staðamm, t. d. á föstudögum, laugardög- um, og sunnudögum. Til Vestmannaeyja verða 18 ferðir í viku, þar af þrjár á mánud., miðvikud., fostud. og laugard. en 2 ferðir aðra daga. Fjórtán ferðir verða fiognar með Friendship og fjórar með DC-3. Til EgiJsstaða verða eHefu ferðir í viku beint frá Reykja- vík, en auk þess ferðir um Afe- ureyri á þriðjudögum, fhnrntu- dögum og á sunnudögum fná ísafirði, Akureyri og Höfn f Homafirði. Til Isafjarðar verða ferðir aHa daga vikunnar. Til Hafnar í Hornafirði verða 4 ferðir í viku á mánud., mið- vikud., föstud. og laugar- dögum. Til Sauðárkróks verða einnig 4 ferðir í viku og sú nýbreytni tekin upp, að flogið verður miiK Reykjavíkur og Sauðárkróks án viðkomu annars staðar, á mánu dögum, miðvikudögum, fösta- dögum og laugardögum. Til Húsavíkur verða þrjár ferðir 1 viku, á þriðjudögum, fimmtudögum og laugardögum. Til Patreksfjarðar verður einnig flogið þrisvar f viku, á þriðjudögum, fimmtudögum og laugardögum. Til Þórshafnar og Kópa- skers verður flogið þrisvar í viku á mánudögum, fimmta- dögum og Jaugardögum. n

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.