Vísir - 15.04.1966, Page 4

Vísir - 15.04.1966, Page 4
4 VI S I R . Föstudagur 15. apríl 1966 Ritstjórar: Jón Ingólfsson — Sigurður Ágúst Jensson Á AÐ LEYFA SÖLU Á ÁFENGUM BJÓR? Elns og kunnugt er hafa þrir alþingismenn lagt fram á Alþíngi frum- varp, er miöar að því að heimilað verði að leyfa tilbúning og sölu öls, á innlendum markaðí, sem hefur inni að halda allt að 4]/2% af vinanda að rúmmáli. Frumvörp svipuð þessu hafa nokkrum sinnum áður verið flutt á Alþingi en aldrei náð fram að ganga. Allsherjamefnd Alþingis, sem fjallaði um málið hefur nú skilað áliti sínu, og er meirihluti nefndarinnar samþykkur frumvarpinu, en einn nefndarmanna var andvígur því, og annar flutti breytingartil- lögu þess efnis, að frumvarpið öðlaðist því aðeins Iagagildi, að á und- an gengi þjóðaratkvæðagreiðsla. Skiptar skoðanir eni meðal almennings um þetta mál og telja marg- ir, að samþykkt þess muni veröa fjölda manna til tjóns og auka þann ófarnað i þjóðfélaginu sem áfengið hefur valdið. Flutningsmenn frumvarpsins og velunnendur þess telja hins vegar lítið samræmi í núgildandi áfengislöggjöf, sem leyfir sölu á eldsterku brennivfni en bannar sölu á áfengu öli, sem er veikasta stig áfengra drykkja eftir skilgreiningu íslenzkra laga, á þeirri forsendu, að verið sé að vinna gegn áfengisbölinu. Tíðindamönnum siðunnar fannst það því vel til fallið að fá nokkra unga menn til að segja állt sltt á þessu máli, og fara svör þeirra hér á eftir. Stefán Ólafsson: Bjórinn er ævagamalt fyrirbæri, eltíri en tímatal vort og vel það og hefur ætíð verið þrætuefni mik ið. Ýmsir hafa talið að hann væri hámark mannlegrar sælu, en aðr ir talið hann það allra lægsta, sem mannskepnan getur komizt. Saga áfengismálanna hér á landi landi er því miður samfelld sorg- arsaga. Allir kannast við frá- sagnir af drykkjugildum fom- manna, þar sem allt endaði i ill- indum, en afleiðingamar urðu mannvíg og fjárútlát, jafnvel skóg gangsdómar. Ekki skánar ástand- ið er aldir líða fram, samanber frásagnir af drykkjusiðum verald legra og andlegra höfðingja lands ins, þær frásagnir em lítið skárri. Höfðingjar riðu útúrfullir um hér- uð og kúguðu almúgann. Ekki þarf að lýsa ástandinu nú, það þekkja allir. Og að hverju er stefnt nú? Jú leyfa bjór, þá skán ar þetta allt saman. En er þrautin svona auðleyst? Þegar siglt er til útlanda er af skiljanlegri ástæðu staldrað við i hafnarborgum og þar koma fyrstu dæmin í ljós. Á ámnum fyrir strið var ástandið í Kaupmanna- höfn það slæmt, að verkamennim ir tóku bjórkassa með sér um borð i skipin f upphafi vinnu og síðan vom einn til tveir menn í stanzlausum bjórflutningum um borð unz vinnu lauk. Já, ástandið var ekki gott, en er þvf miður lít ið sem ekkert skárra núna. — Þetta er aðeins eitt dæmi af mý- mörgum. Eða er nokkuð það bam að álíta að þetta sé eitthvað eins dæmi og eigi aðeins við um hafn arverkamenn? Samkvæmt áreiðanlegum ’skýrsl- úm stafa um 40% af slysum í byggingariðnaðinum á Norður- löndum af bjórdrykkju, beint eða óbeint. Þetta er ekki glæsilegt, en því miður satt. Margoft er talað um hversu bjór inn sé hollur og fitandi. Flestum læknum ber hins vegar saman um að ofneyzla bjórs sé enn hættulegri en ofneyzla sterkra drykkja, vegna þess að hann eyði leggi ekki einungis taugakerfið, eins og sterku drykkimir, heldur leiði hann til hörmulegs orku- missis og heilsutjóns með of- reynslu á nýrum og blóðrásar- færum. Hvað fituna varðar vill hún oft koma fram sem bjórvömb sem lítil prýði er af. En meðal annarra orða, stendur hollustan eitthvað í sambandi við alkohól- ið? í því landi sem mest frjálsræði ríkir varðandi áfengismálin, þ.e. í Frakklandi, er talið að allt að því þriðji hver landsmaður deyi af völdum áfengisneyzlu, að 40% af slysum sé af völdum áfengis og 60% af glæpum. Samt sem áður em til þeir menn, sem vitna til þessa lands, sem fyrirheitna landsins, þess sem koma skal í áfengismálum, vegna þess að frjálsræðið sé svo mikið og valið svo auðvelt, að löngun manna í áfenga drykki og meðferð þeirra sé á.öðru og hærra stigi en hér á landi! Ef. árleg áfengisneyzla íslend- inga er borin saman við áfengis neyzlu annarra þjóða kemur margt fróðlegt í Ijós. Tölur þær sem ég nota hér eru að vfsu frá 1959 eða 1960 en þær ættu að gera sitt gagn fyrir því. Frakkland 21,7 lítra per mann, Þýzkaland 6,10 1., Bandaríkin 5,7 1., Ítalía 9,2 1., Skandinavía 3.5 1., en ís- land 1,7 1. (með smylgi ca. 2,3 1). Hér er að sjálfsögðu átt við hreint alkohól. Ég tel mjög hæpið að tilkoma bjórsins hafi nokkur áhrif til að hinnka neyzlu sterkra drykkja Þvert á móti tel ég meiri líkindi til að bjórinn ýti undir neyzlu sterkra drykkja vegna þess að fleiri freistast til að byrja á bjórn um en sterkari drykkjunum og nýjabrumið fer fljótlega af hon- um. Einnig má benda á að öll lönd in, sem ég taldi upp hér að fram an, framleiða og selja bjþr á inn anlandsmarkaði. Ég tel ótvírætt að fieiri lendi í svaðinu með til komu bjórsins en með sterku drykkjunum og eru þeir þó nógu margir samt. Enginn er ég fylgismaður bann manna eða templara ,en þó tel ég rétt að benda á að eftir því sem ég veit sannast, þá hófst bruggöld in hér á landi ekki á bannárun um heidur á Púrtaraöldinni, þ.e. á dögum Spánarvínanna. Að lokum þetta. Komumst við ekki vel af án þessa „svala- drykks“? Er bjórinn virkilega það hnossgæti að okkur dugi ekki að vita af því í öðrum löndum að áfengisneyzla í einni eða annarri mypd sé ^undirrót næir -heþnings allra slysa, dauðsfalla og afbrota? Er bjórinn virkilega það góður að hann sé þess virði að stofna heill og heilsu þjóðarinnar í voða? Ég fyrir mitt leyti hlýt að svara því neitandi. Einar Ragnarsson stud. odont.: Enn sem komið er, hefi ég ekki heyrt nein skynsamleg rök fyrir sölu áfengs öls á íslenzkum marjí aði. Ég álít, að björ veröi á engan hátt til úrbóta og í bezta tiIfeHi skaðlaus, sem ég dreg þó mjog í efa. Menn gera sér, margir hverjir ekki nógu skýra grein fyr ir því, að bjór er áfengi, en slíkt dylst engum sem dregur tappa úr svartadauðaflösku. Því er hætt við aukinni vínneyzlu á vinnustöð um og henni samfara fjölgun vinnuslysa. Einnig má vænta auk inna umferðarslysa. Þá óttast ýms ir stóraukna áfengisneyzlu yfir- leitt. Þetta mun og vera reynsla annarra þjóða. Hér eru drukknir um 2 lítrar af hreinu alkoholi á hvert manns- bam árlega, en hjá frændum okk ar Dönum eru lítrarnir 5 og þar af um 75% áfengt öl. Þessar töl ur tala sínu máli. Engum mun blandast hugur um að nokkur hætta er máli þessu samfara, nái það fram að ganga Ég tel því óráð að levfa sölu áfengs öls hér, upp á von og ó- von. Ámi Ámason Verzlunarskólanemi: Skal leyfa bruggun og innflutn ing áfengs öls á íslandi? Þessi spurning snertir kjarna lýðræðisþjóðfélagsins, valfrelsið. Að mínu átiti á mál eins og þetta ekki að fara í gegnum þingið Þetta er ópólitískt mál, sem er ekki í verkahring þingmannanna. Ætti því að fara fram þjóðar- atkvæðagreiðsla um málið. Þá fyrst fengist rétt útkoma. Að mínu áliti er bjórinn lélegasti vín andinn og finnst mér íslendingar ekki fara mikils á mis, þó að þeir njóti hans ekki. Bjórinn getur orðið til þess, að unglingar leið ist út i drykkju sterkari tegunda, því hann er bæði ódýr og hættir fljótt að vera skemmtilegur drykk ur. Einnig er vitað mál að of- drykkja er algengari í löndum, sem hafa bjór, heldur en í þeim, sem hafa hann ekki. Jón Zoega stud. jur.: Já, ég er fylgjandi sterka bjóm um af þessum ástæðum: 1 fyrsta lagi tel ég óeðlilegt að leggja hömlur á svo veikan drykk, sem bjór er þegar auðvelt er að kom- ast yfir sterkari drykki. I öðru lagi, þar sem upplýst hefur ver- ið að c.a. 100 þúsund kassar af éfengum bjór sé flutt inn í landið, þá finnst mér rétt að innlendir framleiðendur fái að koma vöru sinni á framfæri í samkeppni við útlenda bruggara, sem nú njóta verndar bannsins ,um leið og vit að er að íslenzkur bjór hefur mikla sölumöguleika á heimsmark aði og geti því orðið til að auka gjaldeyristekjur okkar. Og svo í þriðja lagi er léttara að verða of urölvi af brenndu víni en bjór. Allt virðist benda til þess að með tilkomu bjórsins muni heldur draga úr ofneyzlu unglinga á sterkum drykkjum, og þá um leið hefta ölæðisfrumhlaup þeirra eins og ævintýrin í Þjórsárdal og við Hreðavatn. 4eimdallur ER FELAG UNGA FOLKSINS

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.