Vísir - 15.04.1966, Síða 5

Vísir - 15.04.1966, Síða 5
V Í SIR . Föstudagur 15. apríl 1966 þingsjá Vísis *:Js>.ingsjá Vísis þingsjá Vísis Fundir voru í báöum deildum Alþingis í gær. Voru þá sam- þykkt sem lög frá Alþingi 3 stjómarfrumvörp. Em það frum- vörpin um atvinnuleysistrygging- ar (samþ. frá efri deild), Iðnlána- sjóð (samþ. frá e. d.) og Fugla- veiöar og fuglafriðun (frá neðri deild). Stofnun búnaðarmálasjóðs Gunnar Gisla- son (S) mælti á fundi í neðri deild alþingis fyrir frumvarpi til laga um breytingu á lög- um um stofnun búnaðarmála- sjóös, en frumvarpið er flutt af landbúnaöarnefnd deildarinnar. Er fmmvarpið á þá leið, að aftan við frumvarpið bætist eftirfar- andi: Ákvæði til bráðabirgða. Á árunum 1966—1969, að báð- um meötöldum, skal greiða lA% viðbótargjald af söluvörum land- búnaðarins, sem um ræðir í 2. gr. og rennur gjaldið til Búnaöar- félags íslands og Stéttarsambands bænda til húsbyggingar félaganna við Hagatorg í Reykjavík. Framlaginu skal skipt í réttu hlutfalli við eignarhluta hvors fé- lags í byggingunni. Um álagningu og innheimtu gjaldsins gilda sömu reglur og um búnaðarsjóðs- gjald. Framsögumaður nefndarinnar sagöi í framsöguræðu sinni, aö það væri ekki gleðilegt að fara fram á framlengingu þessa gjalds. Hann sagðist einnig hafa heyrt það í samræðum, aö margir bænd ur væru á móti þessari framleng- ingu, en Búnaðarþing hefði ekki séð sér annað fært en að fram- lengja þetta gjald til að standa undir vöxjum og afborgunum af byggingunni. Þetta væri eðlileg afleiðing af því, hvemig húsið væri byggt; byggingin væri nú orðin margfalt dýrari en hún var áætluð í upphafi. Að lokum sagði ræðumaður, að þótt frumvarp þetta væri flutt af landbúnaðar- nefnd deildarinnar, en hún gerði það að beiðni landbúnaðarráðu- neytisins, hefði nefndin ekki tek- iö afstöðu til málsins, og nefndar- menn hefðu óbundnar hendur 'í afstöðu sinni til málsins. Að lok- inni umræðu var frumvarpinu vis- að til annarrar umræðu. Réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins Matthías Bjarna son (S) mælti í neðri deild fyrir nefndaráliti alls herjarnefndar um frumvarpið um breytingu á lögum um rétt- indi og skyldur starfsmanna ríkisins. Sagði ræðu maður, að nefndin hefði fjallað um málið á nokkrum fundum sínum og væri sammála um, aö setja bæri ákveðnar reglur um það, sem frumvarpiö fjallaði um Hins vegar væri meirihlutinn eigi reiðubúinn til að afgreiða málið eins og það lægi fyrir, en teldi rétt að kannað yrði nánar, hver séu lagaákvæði eða venjur með nágrannaþjóðum okkar f þessum efnum. Ræðumaður sagði, að Sendiferðabíll VF Ford '59 til sölu og sýnis viö Slökkvistöð Reykjavíkur. Tilboð sendist Reykjavíkurdeild RKÍ, póst- hólf 872. Fólk óskast Fólk óskast í fiskverkun. Mikil vinna. Keyrt að og frá vinnustað. Sími 30136. Bill til sölu Consul Cortina ’64 de Luxe til sölu fyrir vel tryggt skuldabréf 3—4 ára. Bílasalinn Vitatorgi, sími 12500 Sölumaður — Sölumaður Góður sölumaður óskast til að selja vörur upp á prósentur. Tilb. sendist augl.d. Vísis merkt „Sölumaður —9845“. nefndinni þætti, eins og á stæöi, rétt að leggja til, að málinu væri vísað til ríkisstjórnarinnar, í trausti þess að hún láti fara fram frekari athugun málsins, og legði þaö fyrir næsta reglulegt Alþingi. Var þaö síðan samþykkt með sam hljóða atkvæðum að vísa frum- varpinu til ríkisstjórnarinnar. Verðtrygging f j ár skuldbindinga Einar Ágústs- son (F) sagði í ræöu sinni, að viðskiptamála- ráöherra hefði 1 ræðu sinni við umræður um málið fyrir páska, aðeins tekið til umræðu eina af mörg- um athugasemdum stjómarand- stæðinga um frumvarpið, þá, hvernig Seðlabankinn skyldi fara með heimildir þær, er hann fengi í þessu frumvarpi. Þó hefðu svör ráöh. verið mjög almenns eðl- is. Ráðherra hefði sagt, að með heimildir þessar yrði að fara mjög varlega og hafa samráð við viðskiptabankana um beitingu á- kvæðanna. Sagði ræðumaður, að það væri álit sitt, að samráð hefði átt að hafa við þessa banka, áður en Al- þingi afgreiddi frumvarpið. Þetta hefði hin rökstudda dagskrá framsóknarmanna í fjárhags- nefnd deildarinnar gengið út á, en stjórnarliöið hefði fellt þá til lögu. Gylfi Þ. Gísla- son viðskipta- málaráðherra sagði, að það væri skoðun rík isstjórnarinnar, að ekki bæri að fresta af- greiöslu málsins nú, en hefja ætti framkvæmdir þær, sem frumvarp ið gerði ráð fyrir sem fyrst. Gerði hann síðan að umtalsefni nokkur atriði í ræðu Einars Ágústssonar og sagði, að í fyrri ræðu sinni við umræður um málið hefði hann að eins svarað hinum mikilvægustu atriðum í aðfinnslum stjórnarand stæðinga. Síöan sagði ráðherra, að frumvarpið legði viðmiðunar- grundvöllinn, en hann væri vísi tala framfærslukostnaðar. Þó mætti nota aðra viðmiðun, ef hún væri talin gefa réttari mynd. Þá sagðist ráðherra vilja taka fram, aö þessi ákvæði myndu ekki breyta möguleikunum á að taka lán hjá lífeyrissjóðum og Húsnæð ismálastofnuninni. Einnig sagði ráðherra, að fjárfestingarlána- stofnanimar réðu því sjálfar hvort þær tækju upp verðtrygg- ingu eða ekki. Að loknum þess um tveim ræðum tóku til máls þeir Lúðvík Jósepsson (K) og Þór arinn Þórarinsson (F) og lögðust þeir gegn frumvarpinu. Síðan var fundi frestað til kl. 5.30 og þá hófust aftur umræður um málið og verður skýrt frá þeim umræð um síðar. FASTEIGNAMIÐSTÖÐIN HÖFUM TIL SÖLU: 2ja herb. íbúð v/Laugamesveg. 2ja herb. íbúð í gamla bænum, ný standsett. Verð 650 þús. 2ja herb. íbúð v/Austurbrún. 3ja herb. íbúð v/Lindargötu. 1. hæð. 3ja herb. íbúð í Sörlaskjóli. 3ja herb. íbúð v/Nesveg. 3ja herb. íbúð v/Laugarnesveg. 3ja herb. íbúð v/Skipasund. 4ra herb. ibúð v/Flókagötu. 4ra herb. íbúð v/Bogahlið 4ra herb. íbúð v/Safamýri, ný, glæsileg íbúð 4ra herb. íbúð v/Drápuhlíð, sér inngangur, sér hiti. 4ra herb. íbúð v/Grundarstíg, mjög gott verð. 5 herb. íbúð v/Holtsgötu. 5 herb. ibúð og bilskúr v/Flókagötu. Mjög glæsilegur staður. 3ja og 4ra herb. ibúðir tilb. undir tréverk og málningu. Verö 3ja herb. íb. 630 þús. Verð 4ra herb. ib. 730 þús. Einbýlishús í Austurbænum. Einbýlishús í Silfurtúni. Ennfremur iðnaðarhús með góöri innkeyrslu. FASTEIGNAMIÐSTÖÐIN Austurstræti 12 Símar 14120 og 20424. Kvöldslmi 10974. Réttingamaður Réttingarmann vantar á bilaverkstæði strax. Uppl. í sima 38403. _____________________________________ I HIN VIÐURKENNÐA OG ÓDÝRA Johns Manville AMERÍSKA GLERULLAREINANGRUN Er þegar eitf eftirsóttasta einangrunarefnið hérlendis Enda uppseld! Næsta sending kemur með m.s. Selfoss frá New York 20. þ. m. Vinsam- legast endurnýið pantanir yðar strax! J-M gierullin kemur í rúllum 57 sm á breidd — þykktir IV2”—2!4” og 4”. J—M, 4” glerullin er örugglega bezta, fáanlega loftaeinangrunarefnið í dag og um leið það | ódýrasta! Aluminiumpappír áfastur! — Sendum hvert á land sem er! Jafnvel flugfragt borgar sig! JÓN LOFTSSON HF. Hringbraut 121. Sími 10600

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.