Vísir - 23.04.1966, Blaðsíða 2

Vísir - 23.04.1966, Blaðsíða 2
I Lézt 16 tímum eftir brúðkaupið Þau vissu bæði tvö, þegar þau sögðu já í kirkjunni, klukk an tólf á hádegi laugardaginn fyrir páska að hún átti ekki langan tíma eftir ólifaðan. Klukkan fjögur á sunnudags- morgun var hún dáin — aöeins 16 klukkustundum eftir brúð- kaupiö. Brúðguminn Jörgen Kruse 27 ára gamall hafði hitt ensku kennslukonuna Leslie Brack- stone, 21 árs að aldri, þegar hún var í sumarleyfi í Dan- mörku. Áður en þau trúlofuðu sig fyrir um hálfu ári síðan, var ljóst að hún gekk með banvæn an blóðsjúkdóm. Þau óskuöu þess bæði tvö að gifta sig. Eftir jól versnaði henni mikið og það var risaátak fyrir hana að gegnumganga brúökaupið?. Brúöurinn sat á stól fyrir framan altarið meöan á vígslunni stóð, sem fór fram í fagðingarbæ hennar Sutton, Somerset. Áður en hún fór af stað til giftingarathafnarinnar fékk hún blóögjafir. Hún var mjög slöpp í veizl- unni, sem haldin var með 80 gestum, hún gat ekki skorið brúðartertuna og eftir hálftíma gat hin 21. árs gamla brúður ekki verið lengur f veizlunni. Hún var sett í rúmið og Jörgen Kruse vakti yfir henni allt kvöld ið og alla nóttina. Unz hún lézt fjögur að morgni. Chaplin 77 ára Fyrir skömmu varð Chaplin 77 ára gamall. Og hvílík afmæl isveizla. Hann hafði alls ekki gert ráð fyrir að halda upp á afmælisdaginn en leikaramir og starfsfólk kvikmyndarinnar hans „Greifynjan frá Hong Kong“ höfðu allt aðrar hug- myndir. Þau keyptu í laumi heljar- stóra afmælistertu nærri eins háa og Chaplin er og efst trón- aði ísstytta af hinni þjóðsagna- kenndu persónu flakkaranum með kúluhattinn og stafinn. Svo leynilega var farið með ráöa- gerðina að Marlon Brando stjarna kvikmyndarinnar vissi það ekki einu sinni. En Soffia Loren var þarna mætt, Tippi Hedren önnur leikkona, sem tek ur þatt I myndinni og dóttir hennar hin átta ára gamla Mel- anei auk Sidney Chaplin og starfsfólksins. Og Chaplin sagði hrærður við þá sem voru þarna saman komn ir. — Ég þakka ykkur öllum sam an, þetta gerir það næstum því ánægjulegt að vera 77 ára Brúöguminn styöur brúðlna á leiðinni kirkjunni. ■■yiWJTHMDllllll 1.U l|fi‘»l'Tl í Kári t.__________________________________ * * t /Álvinur" skrifar mér í til- t ^ efni af falli bjórfrumvarps J ins á Alþingi: t t t J 01 og innri maður J Mörgum manninum varð það J á að bölva í réttlátri reiöi yfir J þeirri útreið, sem bjórinn fékk t í þinginu. Þykir þeim, sem enn J þá bera innra með sér merki J víkinga og fornkappa, íslenzka t þinginu illa farast við minningu J Egils og annarra máttarstólpa * íslenzkrar fornmenningar. Þeir t fornkappar kunnu að meta innri t gæði öls og ljúfra veiga og J sköpuðu hér þjóðlega drykkju- t menningu, sem síðan hefur J drabbazt niður í örgustu ómenn t ingu m.a. fyrir ofstæki og skiln t ingsleysi nokkurra þurrdrumba t sem hafa æst sig upp í and- t stöðu við alla vínbrúkun. * Þessum prelátum hefur tekizt t að magna dularfulla djöfulmynd t úr mannlegri og heilbrigðri vín- , nautn, svo að unglingar og ó- J þroska sálir ganga að því sem skrifar: vísu að hyldýpi glötunarinnar bíði þeirra við fyrsta glasiö. En jafnframt er yfir allri áfengis- fræðslu okkar sá dularhjúpur sem forvitna fullhuga fýsir að brjóta jafnvel í þeirri trú að sjálft helvíti bíði bak við hann. Er von að vel fari, þegar menn ganga á vit Bakkusar með þessu hugarfari, eins og hann sé eitthvert undirdjúpamáttar- vald, sem ekki sleppir unnum sálum. Vínumgengni Það er mál til komið að taka upp hlutlausa fræðslu í skólum um þessi mál og kenna mönn- um að umgangast vín með fullri virðingu fyrir sjálfum sér og eigin siðferðisstyrk og jafn- framt skynsamlegri virðingu fyrir víninu. Og með falli bjórfrumvarps- ins er ennþá vaðið villu vegar sem dregið hefur margan góðan dreng ofan í það forað sem of- nautn áfengis getur vissulega skapað. Hér skal ekki að sinni farið út í hina efnahagslegu hlið þessa máls og þar með gengið framhjá þeirri hneisu að lokaö skuli öllum gáttum fyrir arðvæn legri framleiðslu og útflutnings- verðmætum í ótöldum milljón- um, unnum úr heimsins bezta hráefni, íslenzka vatninu. Þetta er sögulegur viðburöur og óbein yfirlýsing um að Bakkus hafi hér þau tögl og hagldir að við bjórglas liggi sál íslendingsins föl fyrir honum og verði trauðla aftur þaðan keypt. — Hversu langt á að ganga f því að traöka niður viljaþrek o.g dómgreind land- ans? Það þykir kannski hentugra að menn gefi sig á vald erlend um undirhöfðingjum og gefi með í þeim kaupum svita og strit sitt í dýrmætum gjaldeyri. Enginn passar landann á er- lendum krám og eitthvað trúi ég að fljóti inn í landið af er- lendu öli, þótt leynt fari stund- um. is

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.