Vísir - 10.06.1966, Blaðsíða 11

Vísir - 10.06.1966, Blaðsíða 11
SZGB Þarf að læra dönsku til að vera „íslenzk og ekta ' gigný er fimdin — hún fannst í Kaupmannahöfn. Þessi Signý, sem hvað mest hefur verið leitað að undanfar- ið er stúlka, sem tekið getur að sér hlutverk Signýjar í kvik- myndinni, sem tekin verður á íslandi í sumar, kvikmyndinni „Rauða sldkkjan“ um Hagbarð og Signýju. Eins og frá hefur verið sagt hér á síðunni er Hag barður fundinn fyrir alllöngu, varð að fara alla leið austur í Rússíá til að finna hann. Já, og Signý er íslendingum kunn frá því að hún kom hing að bam að aldri, lék á hljóð- færi ásamt systur sinni og söng — það er Gitta Hænning. Leikstjórinn, Gabriel Axel, var búinn að eyða miklum txma í leit að Signýju þegar honum loksins datt í hug að taka til- raunamynd af Gittu og sjá hvort hún væri ekki einmitt hin rétta Signý og hann komst aö raun Gitta Hænning, sem hefur veriö valin til að leika Signýju. um að hún væri betur til hlut- verksins fallin en nokkur önn- '; úr af þeim 400 stúlkum, sem til greina komu. Signý á að vera tákn sakleys isins og kvikmyndasérfræðing- ar dönsku blaðanna em ekki allir á því aö þar sé Gitta rétta manneskjan. Segir í danska blaö inu BT aö margra ára dægurlaga söngur hafi gert það að verkum að Gitta, sem í rauninni sé gædd miklum hæfileikum sé orðin eins óeðlileg og hún fram ast getur orðið, danskan henn- ar sé afskræmd og Iátbragð hennar allt hafi gert hana aö germanskri Lolitu. —- En, þó komi það fram á öllum þýzku plötunum sem Gitta hefur sung ið inn á undanfarið að hún geti brugöið sér f „allra kvikinda líki,“ hún þurfi bara að hafa réttan leikstjóra. Og síðan er spurt hvort Gabriel Axel sé rétti maðurinn til að virkja hæfileika Gittu þannig að hún geti orðið að Signýju. Fyrst þurfi aö kenna Gittu Hænning að tala dönsku, svo að hún geti verið íslenzk og „ekta.“ — Það er sannarlega stórt stökk frá dægurlagasöng og „pop“-kvikmyndaIeik yfir til Signýjar, en það er ekki hægt að vera í „poppinu" endalaust sagði Gitta, þegar hún skrif- aði undir samninginn um leik inn í „Rauðu skikkjunni." — Ég vissi alls ekki neitt um Hagbarð og Signýju þegar ASA film hringdi til mín — ég var svo önnum kafin við leik bæði hér heima og erlendis, segir Gitta. En svo fékk ég handrit- ið sent og ég var bæði hissa og hrifin þegar ég hafði lesið það. Það er svo fallegt. Mér fannst bara að það hlyti að vera ómögulegt að ég gæti verið Sig ný. — Það voru teknir fimm prufuþættir af mér, þar sem ég stóð, gekk, sat, lá og bað, segir Gitta. Það hafa líklega verið þau atriði, sem sýna hinar mis munandi tilfinningar Signýjar. — Mér finnst textinn að myndinni, eftir Frank Jæger alveg dásamlegur. Maður verð ur svo stoltur af danskri tungu Framh á bls 5 Kári skrifar: * v Rússneski leikarinn Oleg Vidov, sem fer með hlutverk Hagbarðar f „Rauða skikkjan“. Blómskreytt borg. 'P’ins og menn reka augun í þegar þeir ganga um bæ- inn þessa dagana er borgin að skrýðast sumarskrúði sínu. Blómum er plantað á torgum og í almenningsgörðum. Við hljótum að fagna þeirri við- leitni sem jafnan er sýnd ár hvert í þá átt að gera þessa staði svolítið sumarlega þenn an stutta tíma, sem slíkt er mögulegt. Til þess ama er veitt æði miklu fé og fyrirhöfn, en eftir því sér væntanlega enginn. Auk þess veitir þetta fjölmörg um unglingum holla vinnu, sem annars yrðu kannski ráf andi í slæpingsskap allt sum- arið. Fyrstu plöntumar eru komn ar á Austurvöllinn og hafa vist margir saknað þeirra það sem af er —- en þar er um að kenna tiktúrum veðurguðanna en ekki garðyrkjufólkinu. Allt skipulag garðyrkjusvæða og al menningsgarða i borginni virð ist vera að komast í nokkuð viðunanlegt horf. Við erum að vaxa upp úr þeirri vankunnáttu sem einkertndi alla gróður- skreytingu hér áður fyrr og kom m.a. fram í þeirri áráttu að gróðursetja tré helzt ekki ann ars staðar en fast við húsveggi oft með þeim afleiðingum aö rótunum skaut upp I kjallaran um. Eins var það mjög til siðs að gróðursetja tré á leiðum ættvinanna, eins og sjá má í gamla kirkjugarðinum, en þar er orðinn einhver hávaxnasti skógur í öllu borgarlandinu og má mikið vera ef að trén fara ekki að raska til legsteinunum. Klambratún (Miklatún) Nei, nú er öldin önnur og trén eru gróðursett á frjálsu svæði, menn hafa þó eitthvað lært af reynslunni í þessum efnum. Það verður gaman að sjá hver útkoman veröur úr öllu tilstandinu á Klambratúni (sem raunar er búið að skýra þvi vandræðalega nafni „Mikla- tún.“ Og er mönnum óskiljan legt, hvers vegna það fékk ekki að halda sínu gamla og sérkennilega nafni, jafnvel þó að merking þess kunni að þykja nokkuð kaldranaleg). Það er kannski albezt að gróð ursetja trén svona stór, eins og þar er gert. En maður vand ist þvi i gamla daga að óvar- legt væri að flytja til tré á þessu reki, en þeir vita sjálf- sagt hvað þeir eru að gera blessaðir garðyrkjufræðingam- ir — hitt er vonandi afturhalds- semi gamla timans, rakalaus. Það hefur jafnan verið siður nokkurra fyrirtækja og stofn- ana í borginni að hressa svo- lítið upp á umhverfið kringum mannvirki sin með ofurlitlu blómaskrúði á sumrum. Á þessu ber lítið nú og mætti slikt þö fara vaxandi frekar en hitt. Olíufélögin hafa t.d. gert nokk uð af þessu og vonandi leggja þau ekki niður þann vana. Slíkt hlýtur jafnan að vera góð aug lýsing og sýnir jafnframt nokkra virðingu fyrir fegurðar skyni viðskiptavinanna — en en þeirri tilfinningu virðast þær svarsmenn verzlana og ann arra fyrirtækja alltof margir gersneyddir. Blessuð blómin má kannsk telja til blekkinga — en ba? eru að minnsta kosti fögU' blekking.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.