Vísir - 16.06.1966, Qupperneq 16
:!:• illÉiin: i. :
Frá skólauppsögn Menntaskólans í Reykjavík í gær. Nýstúdentar á sviöinu í Háskólabíó.
VISIK
nmmtunagur it>. juni
192 útskríiuoust frá M.R. í oær
Menntaskólanum í Reykjavik
var slitið við hátíðlega athöfn
í Háskólabíói í gær. Húsið var
þéttsetlð fólki. Samtals útskrlf
uðust i vor 192 nemendur með
stúdcntspróf, 79 í máladeild og
113 í stærðfræöideiid. 3 nem-
endur hlutu 1. ágætiseinkunn,
82 1. einkunn, 95 hlutu 2. eink
unn og 12 hlutu 3. einkunn.
Úsköp feginn að
þessu er lokið"
— sagbi dux scholae M.R. i viðtali við Visi
Hæstu einkunnir hlutu þessir
nemendur: Ásmundur Jakobs-
son, 6-Z 1. ágætiseinkunn 9.54,
Jón Snorri Halldórsson .6-B,
9.29, Guðmundur Þorgeirssor,
6-Z meö 9.24, María Guðmunds
dóttir 6-A 8.91 og Hans Kr. Guð
mundsson 6-Z með 8.86.
Einar Magnússon, rektor,
minntist í upphafi fyrrverandi
rektors, Kristins Ármannsson-
ar, sem lézt £ síöustu viku á
sjúkrahúsi í London, nokkrum
oróum og baö viðstadda að
minnast Kristins heitins meö
því aö rísa úr sætum.
Að þessu loknu ræddi rektor
um úrslit prófa og starfið í
skólanum í vetur. Nemendur í
byrjun skólaárs voru 1061 og
kennarar 77. Árspróf þreyttu í
þetta sinn 789 nemendur og
stóðust það 705. Hæstu eink-
unnir við árspróf hlutu: Kol-
brún Haraldsdóttir, 5-A, 9.26,
Frh. á bls. 6.
Dux scholae í ár var eins og
fyrr er sagt Ásmundur Jakobs-
son úr stærðfræðideiid. Fékk
hann einkunnina 9,54, sem er 1.
ágætiseinkunn. Hann er sonur
hjónanna Jakobs Gislasonar raf-
orkumálastjóra og konu hans
Sigríðar Ásmundsdóttur. Að
lokinni skólauppsögn hitti blaða
maður Vísis hann á heimili hans
að Barmahlíð 22. Það er óþarfi
að taka það fram að hann var
mjög önnum kafinn, en gaf sér
þó örlítlnn tíma til að rabba
við blaðamann.
— Ég er ósköp feginn að
þetta er búið. Annars var þetta
ekki eins strembið og ég hafði
búizt viö.
— Og hvert á svo að halda til
náms í haust?
— Meiningin er að fara til
Skotlands og stunda nám í efna-
verkfræði í St. Andrews. Nám-
ið tekur fjögur ár.
— Þú hefur náttúrlega lesið
mikið í upplestrarfriinu?
— Ekkert tiltakanlega. Ég
las þetta 8—10 tíma á dag, jafnt
sunnudaga sem aðra daga. Ég
les að sjálfsögðu eftir fyrir-
framgerðri áætlun, annað er
varla hægt.
— Skemmtilegasta námsgrein-
in?
— Eðlis- og efnafræði er að
sjálfsögðu skemmtilegust. Ég
mun sakna félaganna mikið og
ekki síður kennaranna. Þá má
ekki gleyma félagslífinu, það
var með miklum blóma nú í vet-
ur. og ég sakna þess mikið.
Ásmundur Jakobsson.
FRÁ PRÓFBORÐI
í HJONABAND
Verzlunarskóladúxinn flytur til Þýzkalands
Frá skólaslitum f lærdómsdeild V.I. í gær.
Það var stór dagur í lífi Elínar
Jónsdóttur í gær er hún braut-
skráðist stúdent frá Verzlunar-
skóla íslands með I. ágsétíis-
einkunn 7.52 — dúx skólans. Er
við hittum hana snöggvast að
máli til að óska henni til ham-
ingju og forvitnast um framtíð-
aráætlanir hennar kom í ljós að
í næstu viku rennur upp dagur,
sem marka mun öllu meirl tíma-
mót í hennar lífi en gærdag-
urinn.
— Ég ætla að gifta mig í
næstu viku, sagði Elín og brosti
og eins og vænta má var unn-
ustinn ekki langt undan.
— Hver er sá hamingjusami?
— Hann heitir Reinhold
Richter og er Þjóðverji. Við
kynntumst er ég dvaldist í
Þýzkalandi sumarið 1964 —
hann kom hingað í frí í fyrra
og svo auðvitað núna.
— Flyturðu þá af landi brott?
— Já, það er meiningin. Við
setjumst aö í Iserlohn, sem er
um 20 km frá Dortmund.
— Hyggurðu á frahihalds-
nám?
— Ég veit ekki ennþá hvem-
ig það verður — fyrst verð ég
nú að venjast nýju heimkynn-
unum. En annars langar mig til
að læra frönsku og meira í
þýzku.
— Voru það uppáhaldsfögin?
— Já, ég var hrifnust af þeim
fögum, — ég er eindregið fyrir
tungumál.
Elín var margverðlaunuð
fyrir góða frammistööu í
uppáhaldsfögum sínum og reynd
ar í flestum fögum, sem kennd
voru til stúdentsprófs.
Þar til Elín heldur utan með
eiginmanni býr hún sem fyrr
hjá foreldrum sínum Elínu J.
Þórðardóttur og Jóni Þ. Árna-
syni í Kópavogi.
28 stúdentar brautskráðir frá V.í.
Lærdómsdeild Verzlunar-
skóla Islands var slitiö í gær
og brautskráöir 28 stúdentar.
Hófst skólaslitaathöfnin meö
því að stúdentsefni sungu stúd
entasöng en síðan tók skóla-
stjórinn dr. Jón Gíslason til
máls. Bauð hann fyrst gesti
velkomna en minntist síöan ný
iátins rektors menntaskólans,
Kristins Ármannssonar. Risu
viðstaddir úr sætum til að
votta honum virðingu sína.
Vék skólastjóri siöan að
skólastarfi lærdómsdeildar, en
það var meö svipuðum hætti og
fyrr. 5. bekk var þó í fyrsta
skipti tvískipt, en nemendur
hans voru 34. Nemendur 6.
bekkjar voru 26 og stóðust allir
stúdentspróf svo og 2 utanskóla
nemendur, sem gengu undir
próf.
Einn nemandi 6. bekkjar,
r
Alyktun Verkamaniuasambcindsms:
Oskar eftir viðræðum án tafar
Stjórn Verkamannasambandsins
Uom saman til fundar í Reykjavík
í gær og var þar gerð grein fyrir
gangi samningaviöræönanna við
atvinnurekendur. Á fundinum var
eftirfarandi tillaga samþykkt ein-
róma:
„Fundur sambandsstjórnar
Verkamannasambands íslands,
haldinn i Reykjavik 15. júní 1966
lýsir fyllsta samþykki sínu við
tilraunir framkvæmdastjórnar
sambandsins að undanförnu til
að ná fram heildarsamningum, sem
mótað gætu í aðalatriðum kjara-
samninga almennu verkalýðsfélag-
anna. Fundurinn telur eðlilegt, að
framkvæmdastjórnin hefur beint
samningaumleitunum að því, að
ná fram bráðabirgðasamningum til
hausts vegna hins mjög ótrygga
ástands sem nú ríkir á ýmsum svið-
um efnahagsmála, er miklu varða
Framh. á bls. 6.
Elín Jónsdóttir hlaut I. ágætis
einkun 7.52 (notaöur er eink-
unnastigi Örsteds). Aöra hæstu
einkunn hlaut Garöar Valdi-
marsson, I. einkunn 7.32.
Er stúdentsefni höfðu veitt
prófskírteinum viðtöku sungu
þau „ísland ögrum skorið“ en
settu aö því búnu upp stúdents
húfurnar. Voru stúdentum síð-
an afhent verölaun og hlaut
Elín Jónsdóttir silfurbikar fyrir
beztan árangur á stúdentsprófi
1966. Bókaverðlaun, gefin af
skólanum og ýmsum aðilum,
voru veitt fyrir beztan árang
ur í hinum ýmsu kennslugrein
um skólans.
Skólastjóri hélt síðan ræðu
og sagöi í lok hennar aö hann
vonaöist til þess að veganesti
þaö sem stúdentarnir heföu hlot
ið f V.l. ætti eftir að endast vel
og lengi. Framh. á bls. 6.
Elín Jónsdóttlr, dúx á stúdents-
prófi í Verzlunarskólanum.