Vísir - 26.08.1966, Side 1

Vísir - 26.08.1966, Side 1
!v ' - : Fumli i Loftleiðamálinu ■ psfgt ' f; . -''í!'' I sýningarhöllinni í Laugardalnum var í morgun verið að koma fyrir framleiðsluvörum Héðins h,f. Miklar tilfæringar þurfti við að koma vélunum upp á pallinn vegna þyngdar þeirra. undirbúin § — Lifið inn í Sýningarhöllina í Laugardalnum í morgun Langflestir básanna í sýningar- höllinni í Laugardalnum voru enn auðir, þegar tíðindamaður blaðsins leit þar við í morgun. Liggur samt í loftinu að mikið muni vera þar um að vera áður en langt um líður Iðnsýninguna má vafalítið telja með merkustu viðburöum í haust, en þann 30. ágúst fyllast all- ir gangar af forvitnum áhorfendum sem komnir eru til að kynna sér framleiðsluvörur hinna 140 fram- leiðenda, sem kynna vörur sínar á sýningunni. Heyrzt hefur að margir framleið- endanna muni geyma fram á slð- ustu stundu að koma sýnishomum framleiðslunnar fyrir — ekki sizt vegna keppinautanna, nýjungarnar eiga að koma á óvart. Síðustu dagana verður því mikiö um að vera hjá framleiðendum og þeim aðilum, auglýsingateiknurum og útstillingarmönnum, sem sjá um skreytingu básanna og útstillingu á vörunum. Iðnsýningin 1966 verður á þrem hæðum í sýningarhöllinni. Þegar komið var inn blasti við bás Vél- smiðjunnar Héðins h.f. og var verið að koma fyrir þungavélum, sem eru m.a. framleiðslúvara fyrirtækisins. Jón Oddsson verkstjóri var þama staddur til þess að fylgjast með framkvæmdum og sagði hann' tíð- indamanni að á sýningunni yrðu sýndar frá Héðni ein stimpilfrysti- vél auk spjaldþjöppu ög.8 tónna.tog vinda í síldarbáta. Ennfremur ís- vél, sem öll frystihúsin eru nú kom- in með og sumir bátar. ,,Við erum búnir að selja tvær ísvélar til Nor- egs“ sagði Jón ,og er það eina fram leiðsluvara okkar sem hefur verið flutt út. Auk þessara véla verðum við með smáhluti á sýningunni eins og lyftara, dælur og ventla. í höf- uðdráttum veröur sýningarbásinn okkar tilb. á morgun en auðvitað verður unnið við hann allt fram á síðustu stundu,“ sagði Jón að lok- um. Á miðvikudaginn var Þjóö- leikhúsinu lokað með innsigli Tollstjóraembættisins, vegna vangreiðslu á söluskatti. Sumar- leyfl hafa veriö í Þjóðleikhúsinu að undanförau, þjóðleikhússtjóri fjarstaddur og skrifstofa leik- hússins lokuö. Uppi varð vitaskuld fótur og fit er fréttist um innsiglun leik- hússins. í morgun greiddi Þjóð leikhúsið tilskilinn söluskatt og hefur því innsiglið verið rofið af 4ynim þess. Þess má geta hér aö hluti af tekjum Þjóðleikhúss- ins er skemmtanaskattur, sem Tollstjóraembættið innheimtir fyrir leikhúsið. Taldi Þjóðleikh. sig ekki hafa fengið full skil á skemmtanaskattinum frá Toll- stjóra og grelddi því ekki sölu- skattinn, svo sem áður cr greint En nú hefur botn fengizt í málið á fyrrgreindan hátt og ugglaust hreppir leikhúsið skemmtana- skattinn á móti úr hnefa toll- stjóra. Stöðumælusektitt verður nú 50 kr. Þrír stödumælaverðir ráðnir I dag taka til starfa 3 eftirlits- menn með stööumælum í Reykja- vík og hafa þeir hlotið starfsheit- ið „stöðumælaverðir". Ef ökumað- ur lætur bifreið sína standa lengur við stööumæli, en leyfilegt er, verð ur honum gefinn kostur á að greiða aukaleigugjald kr. 50.00 til stöðumælasjóðs. Gjald þetta kem- ur í stað 20.00 kr. stöðumælasektar sem áður var, og þarf ökumaöur- inn sjálfur ekki að greiða gjaldið heldur getur hann sent með það. Ef gjaldið verður ekki greitt inn- an viku verður kæra send saka- dómi. Nýlega hafa verið settir upp ný- ir stöðumælar á Laugavegi að Snorrabraut og á næstunni verða settir upp nýir stöðumælar á Hverf is götu að Klapparstíg. Á báðum þessum stöðum hækkar stöðumæla gjaldið úr 1 kr. í 2 kr. fyrir hverjar byrjaðar 15. mín. Mælarnir eru eingöngu gerðir fyrir 2ja krónu penine. um. Á fundinum í gær geröu aðilar grein fyrir skoðunum sín um og leitað var umsagnar Kristjáns Guðlaugssonar hrl., formanns stjórnar Loftleiða er situr fundinn sem áheymarfull- trúi. SAS krefst þess sem kunn- ugt er að Loftleiðum verði ekki veitt betri samkeppnisaðstaða við félagið á Norðurlöndum. Mun SAS leggja áherzlu á að Loftleiðir fái ekki að nota hinar nýju vélar sínar nema með ströngum skilyrðum, svo sem þeim að þeir megi ekki taka farþega á Norðurlöndunum nema í 50% af sætarými vél- anna, að mismunur fargjalds Loftleiða og jSAS verði ekki nema 4%, í stað allt að 15% nú, og að Loftleiðir fækki þá lendingum sínum á Noröurlönd um. Öll þessi atriði munu hafa verið rædd á fundinum í gær og verða einnig rædd í dag. Er enn of snemmt að spá hver nið urstaðan verður. Annar fundur hugsanlegur lýkur / dug Fundi flugmálayfirvalda ís- lands og Norðurlanda í Kaup- mannahöfn um lendingarleyfi Loftleiða mun ljúka í kvöld. Búizt var við því í morgun að tilkynning yrði þá gefin út til blaöa um árangur fundarins. Málsvari íslands á fundinum er Gunnar Thoroddsen sendiherra í Kaupinannahöfn, en Norður- landanna Hans Kiiehne skrif- stofustjóri í danska stjórnar- ráðinu. Ekki er talið víst að endan- leg niðurstaða fáist á þessum lundi, og getur veriö að boðaö verði þá til annars fundar til þess að fjalla um umsókn Loft- leiða um lendingarleyfi Rolls Royce vélanna á Norðurlönd- 56. árg. — Föstudagur 26. ágúst 1966. — 193. tbl. ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ OPNAR AFTUR! BLADID í DAG FJ0LB YLISHUSALOÐUM UT- HLUTAÐ / F0SSV0GI — Lóðum undir 7-800 ibúðir i Fossvogi og Breiðholti úthlutað i næsta mánuði Sl. þriöjudag samþykkti borgar- ráð á fundi sínum tillögur lóða- nefndar varðandi lóðaúthlutanir i efsta hluta Fossvogssvæðisins. Er hér um fjölbýlishús að ræða. Sam- tals var úthlutað 205 íbúðum til einstakllnga, en að auki var úthlut- aö íbúöum til Byggingasamvinnu- félags verkamanna og sjómanna, Byggingasamvinnufélags vélstjóra og Byggingafélags verkamanna, Stórholti 16. Framkvæmdir við ræsi o.fl. eru þegar hafnar á þess um staö. Að því er Helgi V. Jónsson, skrif stofustjóri borgarverkfræöings tjáði Vísi í morgun, er enn eftir að úthluta nokkrum íbúðum í Foss- vogshverfinu. Eru það að líkindum um 100 Ibúðir, sem þar er um að ræða. Þá sagöi Helgi einnig, að enn væri eftir að úthluta íbúðum' í öll- um blokkunum í Breiöholtshverfinu og taldi líklegt að fjöldi þeirra væri um 6-700. Sagði Helgi að úthlutan- ir þessar yrðu gerðar í næsta mán uði og þá yröi úthlutað þeim lóð- um, sem eftir er að úthluta, bæði í Breiðholtshverfinu og Fossvogin- um. Á fyrrgreindum fundi borgarráðs var einnig úthlutað 5 lóðum fyrir raöhús I Eossvogi og Breiðholts- hverfi og að auki voru samþykktar írmcap tilfoprclnr á 1íSAarr<5ttindlini.

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.