Vísir - 26.08.1966, Blaðsíða 2

Vísir - 26.08.1966, Blaðsíða 2
Oft er barizt hart í 1. deild og hér sést Guðjón Guðmundsson frá Akranesi í leik gegn Bergsvelni Al- fonssyni, Val, en milli þeirra er Sigurjðn Gíslason, Val. Hver sigrar í 1. deiU? Fimm lið eiga enn möguleika, þegar aðeins 4 leikir af 30 eru eftir Senn lýkur leikjunum t 1. deild, Enn eitt árið hefur spenn- ingur verið mikill um hver yrði sigurvegarinn. 1 dag geta 5 af 6 liðum í 1. deild gert sér vonir um að hreppa fslandsbikarinn, aðeins Þróttur getur ekki alið neinar slikar vonir. Eftir að vinna Reykjavíkurbikarinn hafa liðsmenn ekki getað sýnt það sem af þeim var vænzt, en þeir eiga þó von um að halda áfram 1. deildar veru sinni en hún er undir þvl komin að þeir vinni báða sína leiki í 1. deild gegn Val og KR, en Akranes tapi gegn Keflavík og Akureyri. En snúum okkur að þessum „flata“ toppi í 1. deild. Þar eru Valsmenn efstir með II stig, Keflv. næstir með 10 stig og Akureyringar með 9 stig. Þessi þrjú verða að teljast með mesta möguleikana eins og er, ekki sízt Akureyri með heimaleik gegn Val um næstu helgi og leik á Akranesi, gegn heldur slöppu liði Skagamanna. Akurnesingar hafa brugðizt í sumar og virðast ekki til stór- ræða líklegir, — og þó, það lif- ir lengi í gömlum glæðum, og vinni Akranes Keflavík á sunnu daginn á Njarðvíkurvellinum aukast möguleikamir að mun, en vart verður hægt að vera svo bjartsýnn að Akranes né heldur KR, blandi sér inn í „topp“- stríðið að þessu sinni. Akureyringar eiga um næstu helgi möguleika á að ná toppn- um með 11 stig ásamt Val, en þessi lið leika á Akureyri og i Keflavík leikur heimaliðið við Akumesinga. Vinni Keflavík þennan leik og Akureyringar sinn leik, hafa Keflvíkingar náð forystunni í deildinni með 12 stig gegn 11 stigum Vals og Akureyringa. Eftir verða þá þessir leikir: KR—Þróttur sunnudag eða mánudag. Valur—Þróttur óákveðið. Akranes—Akureyri 4. sept. KR—Keflavík 11. sept. í ár er 1. deildin jafnvel enn meiri heilabrot en nokkru sinni fyrr, — gjörið þið svo vel, reynið að finna sigurvegarann, og munið að öll 1. deildarliðin, utan eitt, geta orðið sigurvegari. Frá golfmónnum i ReykjavTk: Vann olíubikarinn í 2. sinn á 3 árum Fyrir skömmu var háð á Graf- arholtsvelli „unglingakeppni“, að vísu afar fámenn, en mjög sæmi- legur árangur náðist. Leiknar voru 18 holur með forgjöf. Unglingamir 6, sem tóku þátt í þessari keppni eru allir synir kylfinga í G.R. nema einn, Ólafur J. Skúlason frá Laxa- lóni, sem starfað hefur hjá klúbbn- um nú í sumar og sýnt lofsverðar framfarir í golfleik sínum. Hinir voru Elías Kárason, Eyjólfur Jó- hannsson, Hans ísebarn, hinn ný- bakaði unglingameistari íslands, Jónatan Ólafsson og Markús Jó- hannsson. Ágætis veður var þenn- an laugardag, þ. 6. ágúst, enda léku strákarnir næstum allir í sam- i ræmi við forgjöf sína. G. R. vill brýna fyrir unglingum, sem hug hafa á að hefja golfleik, að i félag- inu er starfandi sérstök unglinga- deild undir ötulli fomstu Vil- hjálms Hjálmarssonar, arkitekts. Úrslit í þessari keppni urðu þau að Markús Jóhannsson sigraði glæsilega á 59 höggum nettó (að I frádreginni forgjöf). Heildarárang- ur var, sem hér segir: Með forgjöf: í 1. Márkús Jóhannsson 88—29= 59 högg. 2. Ólafur J. Skúlason 102—36 = 66 högg. 3. Jónatan Ólafsson 92—26=66 högg. Án forgjafar: 1 Hans ísebarn 84 högg. 2. Markús Jóhannsson 88 högg. ; 3. Eyjólfur Jóhannsson 89 högg. Sigur Markúsar i keppninni nú var annar sigur hans á tæpum mánuði. Er slíkt vel af sér vikiö af svo ungum manni. OLÍUBIKARINN 30. júlí til 6. ágúst. Keppnin hófst með „undirbún- ingskeppni", þ. 30. júlf, sem er úrtökumót fyrir sjálfa aðalkeppn-1 ina, sem er útsláttar-holukeppni. Þátttakendur voru 35. Ágætis veður og góð leikskilyrði stuðluðu mjög að þeim góða árangri, sem náðist þennan dag. Fjölmargir léku undir forgjöf sinni og sýndu lofsverða framför. Undirbúnings- keppnin er með forgjöf og vakti það athygii að nokkrir hinna sterkustu kylfinga klúbbsins skyldu ekki verða meðal þeirra 16, sem komust áfram í aðalkeppn ina. Orslit urðu: Með forgjöf (18 holur): 1. Vilhjálmur Ólafsson 94—36 = 58 högg. 2. Hilmar Pietsch 88—29=59 högg. 3. Helgi Eiríksson 92—22 = 60 högg. 4. Kári Elíasson 80—19 = 61 högg. 5. Ólafur Hafberg 83—18=65 högg Án forgjafar: 1. Kári Elíasson 80 högg. 2. Óttar Yngvason 82 högg. 3. Helgi Eiríksson 82 högg. 4. Ólafur Hafberg 83 högg. 5. Jóhann Eyjólfsson 84 högg. Holukeppnin stóð svo alla næstu viku, unz tveir stóðu eftir, þeir Viðar Þorsteinsson og Kári Elías- son. Kepptu þeir síðan til úrslita laugard. 6. ágúst. Lauk þeirri við- ureign með öruggum sigri Viðars, sem er sterkur „holukeppnismað- ur“, og vann hann bikarinn nú í annað sinn á síðastliðnum 3 árum. FELAGSUF Ferðafélag íslands ráðgerir eftir- taldar ferðir um næstu helgi: 1. Hvítámes - Kerlingarfjöll - Hveravellir. Farið kl. 20 á föstudagskvöld. 2. Þórsmörk. 3. Hlöðuvellir. Farið kl. 14 á laugardag. 4. Skorradalur. 5. Gönguferð á Laugardalsfjöll. Þessar 2 feröir hefjast kl. 9 V2 á sunnudagsmorgun, frá Aust urvelli. Allar nánari upplýsingar svo og j farmiðasala á skrifstofu félagsins. I Öldugötu 3, símar 19533—11798. Flugfélags- menn í knottspyrnu Það hefur verið sagt aö fþrótt ir séu fyrst og fremst eign al- mennings, ekki afreksmannsins, eins og menn kynnu að ætla, því venjulega em iþróttafregnir blaðanna einungis um þessa svokölluðu afreksmenn. 1 gær skýrðum við frá harðsnúnum hópi knattspymumanna frá Flugfélagi Islands og f dag birt- um við mynd af hópnum, sem eiginlega átti að birtast f gær. Lengst til hægri á myndinni er Gunnar Pétursson, þjálfari piltanna, og hefur hamv í noKS. ur ár starfað með þeim og náð góðum árangri. (Ljósmynd: Bjamleifur Bjamleifsson).

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.