Vísir - 26.08.1966, Page 3
V í S IR . Föstudagur 26. ágúst 1966.
„Gorch Fock"
í heimsókn
Þýzka skólaskipið „Gorch
Fock“ kom í heimsókn hingað
til Reykjavíkur í gær. Þetta
mvndaði skipið, hátt og lágt,
náði blaðamaður snöggvast tali
af einum skipsmanna Ob-
glæsilcga þýzka seglskip hefur
komið hingað í heimsókn áður.
Kom það fyrst til Reykjavík-
ur 1962, síðan til Akureyrar og
Hafnarfjarðar á næstu tveimur
árum, en kemur nú hingað til
Reykjavíkur í annað sinn. Þá
er einnig á áætlun skipsins í
þetta sinn, að heimsækja ísa-
fjörð, og stendur sú heimsókn
í sambandi við 100 ára afmæli
kaupstáðarins.
Blaðamaður og Ijósmyndari
Vísis fengu í gær leyfi til að fara
um borð í þetta fallega skip,
þar sem það liggur við Ægis-
garð. Á meðan ljósmyndarinn
ermaal (Iiðþjálfi) Wolfgang Paul,
en hann var á vakt á þilfari
skipsins. Hann tjáði blaðamanni
að flestir eða allir skipsmenn-
imir á „Gorch Fock“ væru
frá Kiel, en Kiel er heimahöfn
skipsins. Eins og í öörum lönd-
um, þar sem herskylda er, verða
allir karlmenn að fara í herinn,
er þeir hafa náð 18 ára aldri,
og vera í honum minnst 18
mánuði. Þó mun vera einhver
undantekning frá þessu, svo sem
veikindi og s^rstakar aðrar á-
stæður. Er herskyldunni er lok-
ið, er þeim að sjálfsögðu í sjálfs
vald sett hvort þeir vilja vera
áfram í hernum.
I stefni skipsins er laglega útskorinn fugl.
Möstur seglskipsins ber við himin. Framlag ísiendinga til siglinga-
listarinnar er í forgrunni.
Obermaal Wolfgang Paul við skipsbjölluna
Obermaal Wolfgang Paul sagði
einnig, að skipið væri að koma
frá Hollandi, og er það hefði
lokið við heimsókn sína tii ísa-
fjarðar, myndi það sigla norður
fyrir iand, síðan til Stafangurs
í Noregi, en þangað kæmi skip-
ið í heimsókn, eins og það væri
í hér í Reykjavík. Hann sagði,
að þeir hefðu siglt fram hjá
Surtsey, og séð gosið í henni,
og hefði það vakið mikla at-
hygli, og myndavélar hefðu hvar
vetna verið á lofti á skipinu.
Hann sagði, að hann hefði kom-
ið einu sinni áður til íslands,
honum fyndist gaman aö koma
hingað, fólkið væri vingjarniegt
en þeir hefðu þó .getað verið
heppnari með veður hér í höf-
uðborginni.
„Gorch Fock“ er skólaskip,
þar sem liðsforingjaefni í þýzka
sjóhernum fá þjálfun. Skipið fer
víða um heim, og er nokkurs
konar fulltrúi Þýzkalands við
ýmiss konar tækifæri. Er skipið
hefur lokið við heimsóknina til
Stafangurs, fer það til Kiel, en
síðan er á áætluninni að fara til
N-Afríku eða Brasilíu, eftir mán
aðardvöl í heimahöfn. Sagði
Wolfgang Paul að lokum, að
það væri mjög ánægjulegt að
vera í sjóhernum, hann hefði
verið þar í sex ár, þar af rúm
3 ár á „Gorch Fock“.
„Gorch Fock“ er 1870 brúttó
lestir að stærð og mjög renni-
legt, enda gengur skipið allt að
16 sjómílur á klukkustund. Það
heitir eftir hinum fræga þýzka
rithöfundi Rudolf Kinau, en
hann skrifaði ávallt undir rit-
höfundamafninu „Gorch Fock“.
Ljósmyndarinn brá sér upp í eitt mastrið og tók þes sa sérkennilegu mynd þaðan. (Allar myndimar á
síðunni tók Ijósm. Vísis Bragi Guðmundsson).
3
s