Vísir - 26.08.1966, Side 7

Vísir - 26.08.1966, Side 7
VÍ-SIR. Föstudagur 26. ágúst 1966. 7 ir við vinnu sína, og þannig var það alls staðar í sjónvarps- húsinu. Björn var aö koma fyrir tjöldum á stóru sviði, Þórarinn var að fást við að stiila mynda- vél, sem notuð er við upptökur í upptökusalnum. Það er gert þannig, að öllum myndavélun- um, sem nota á við ákveðna upptöku er beint að ákveðinni mynd, sem er á skermi og síöan eru upptökuvélarnar stilltar á sama styrkleika. Allt gekk þetta fijótt og greiðlega fyrir sig. Ciðan komum við til þeirra Jóns Þórs Hannessonar og Taage Ammendrups, þar sem þeir voru að vinna saman. Voru þeir að spila af venjulegu segul- bandi inn á svokallað perforer- að segulband, en af því bandi eru hljóðin send út um leið og myndin, sem hljóðin fylgja með. Jón Þór er hljóðupptöku- maður sjónvarpsins, hann sér um upptöku á öllum hljóðum, sem notuð eru við dagskrárat- riðin við sjónvarpið. Taage er aftur á mófti fxamleiðandi (producent) dagskrárþátta váð sjónvarpið. Aðstoðarstú'lka stjómanda þáttanna er Þuríður Backmann. Því næst sáum við allnýstár- legt tæki, a.m.k. er það nýstár- legt fyrir okkur íslendinga, því aö það er eina tækið smnar teg- undar á landinu. Það er sérstakt stjómborð, sem notað er til klippingar á efninu, sem sýna á í sjónvarpinu. AHt það efni, sem tekið er, tekur alllangan tíma að vinna að, áður en það er það er tilbúið til útsendingar, nema auðvitað ef sent er beint út frá upptöku. eins og t.d. frá Iþróttakeppnum. Við stjómvöl tækisins sat Þrándur Thoroddsen, en hjá honum vo.ru þeir Sigurður Sig- urðsson, íþróttafréttaritari út- varpsins og sjónvarpsins og Vil- hjáimur Knudsen, mynjíatöku- maður. Verið var að klippa nið- ur mynd. sem sýndi íþrótta- keppni frá hinu gamla góöa Há- logalandi og einnig frá fyrstu tþróttakeppninni í nýju Laugar- dalshölhnni. Að síðustu sáurn við nokkra iðnaðarmenn', sem em að vinna að innréttingu á húsnæði sjón- varpsins, því að enn er eftir all- mikil vinna viö það, en þeim framkvæmdum miðar allvdl á- pj ftan að sögn. Þórarinn Guðnason „kamerumaður“ stillir styrkleika einnar upptöku vélarinnar eftir ákveðinni fyrirmynd. Innan tiðar mun sjónvarp ið halda innreið sína í landið með pompi og prakt. Að vísu hefur um alllangan tima gefizt kostur á að sjá amerískt sjón- varp frá KefJavíkurflugvelli, en / það hefur aðeins náð til SV- | Iiluta landsins og reyndar Vest- V mannaeyja með hjálp alls konar furðuverkfæra, sem erlendir sjónvarpsneytendur þurfa ekki að uöta, iÐ að njóta sjónvarps- ins. Ei! hvað um það, íslenzka sjónvarpið er orðið staftreynd, ug tnnan skamms mun það flytjH fróðseik og skemmtiefni u*n á íslenzk heimili, efni, sem flesfilr landsmenn ættu að hafa not af að einhverju leyti. Undirbúningur aö starfs- semi íslenzka sjónvarpsins hef- ur staðið lengi yfir, og sá tími, sem til undirbúnings hefur gef- izt, hefur verið dyggilega notað- ur og vel skipulagður. Starfs- menn þess, bæði tæknimenn og aðrir, hafa verið sendir utan, til að læra handbragðið hjá er- lendum starfsbræðrum, bæði í Danmörku og Englandi, og hef- ur allt saman gengið að óskum til þessa. Undirbúningur aö töku dagskráratriða er þegar hafinn. Svo til daglega eru æf- ingar i upptökusal (studioi) sjónvarpsins, og þegar er lokið við að taka upp nokkra þætti og búiö að ganga frá þeim. Blaðamaður og Ijósmyndari Vísis fóru út í Sjónvarpshúsiö að Laugavegi 176 og fengu að taka nokkrar mvndir af starfs- mönnum sjónvarpsins við vinnu sína. Við komum fyrst inn á fund, sem Emil Bjömsson, dag- skrárstjóri sjónvarpsins, hafði með fréttadeild þess, en héldum síðan sem leið liggur um húsa- kynnin. í hinum stóra upptöku- sal var mikið um að vera. Verið var að undirbúa vélar fyrir til- raunaupptöku á fréttum. Það var annar fréttalesara sjón- varpsins, Markús Öm Antons- son, sem átti að segja fréttirnar í þetta skiptið. Þar var og ráðu- nautur frá danska sjónvarpinu, Sörensen að nafni. Um undir- búning fyrir töku fréttasending- arinnar sá Úlfar Sveinbjörns- son. Þama í stúdióinu voru og þeir Björn Björnsson sem sér um uppsetningu á sviðinu fyrir töku dagskráratriða og Þórar- inn Guðnason „kamerumaður" eins og kallað er manna á milli í sjónvarpinu, en það merkir, að Þórarinn sér um eina af mynda- vélunum, sem notaðar eru við upptökur í upptökusalnum. Allt var á rúi og stúi þama inni, enda mikið að gera. Leiðslur, vélar til alls kyns nota kassar og dót voru um allt, en þannig er það víst alls staðar í sjón- varpsverum erlendis. En sam- merkt var það með öllum starfsmönnunum þama í upp- tökusalnum, að allir höfðu mik- ið að gera og vora önnum kafn-

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.