Vísir


Vísir - 26.08.1966, Qupperneq 8

Vísir - 26.08.1966, Qupperneq 8
8 VÍSIR. Föstudagur 26. ágúst 1866. VÍSIR Dtgefandi: BlaOaOtgáfan VISIR Ritstjöri: Gunnar G. Schram Aðstoðarrltstjðrl: Axel Thorsteinson Fréttastjðri: Jðnas Kristjánsson Auglýsingastj.: Halldðr Jðnsson Auglýsingar: Þinghoitsstræti 1 Afgreiðsla: Töngötu 7 Rltstjðrn: Laugavegi 178. Siml 11660 (5 linur) Áskriftargjald kr. 100.00 á mánuði innanlands. 1 lausasölu kr. 7,00 eintakið Prentsmiðja Visis — Edda h.f. SAS og nortæn samvinna Einn þátturinn í hinni miklu atvinnuuppbyggingu á þeim árum sem viðreisnarstjómin hefur verið við völd er endurnýjun millilandaflugflotans. í gær hófst fund ur íslenzku og skandinavisku loftferðayfirvaldanna um það hvort Loftleiðum verður leyft að nota hinar nýju og glæsilegu vélar sínar á leiðinni til Norður landa. Er það vissulega nokkur kaldhæðni í ljósi nor rænnar samvinnu, að félaginu skuli hingað til hafa verið meinað að nota þessa farkosti á sama tíma sem norræn þing gera sífellt samþykktir um nauðsyn meiri samgangna og kynna milli Norðurlandaþjóð- anna. Afstaða ríkissamsteypunnar SAS í þessu máli er vel kunn. Hún leitast við að beita Loftleiðir sömu tökum og önnur flugfélög Norðurlanda, hindra þá í að fá lendingarleyfi og frysta félagið þannig út af nor ræna markaðinum að svo miklu leyti sem unnt er. Hins vegar bjóða Loftleiðir Norðurlandabúum upp á flugkjör sem eru miklum mun hagstæðari en SAS býður, verulega lægri fargjöld til Bandaríkjanna. Þar sannast kostir frjálsrar samkeppni og einstaklings- framtaksins á eftirminnilegan hátt, þeir kostir sem forystumenn SAS reyna nú að rýra eftir megni og hindra þegna Norðurlandanna í að njóta. Dönsk blöð hafa skýrt frá því að ekki verði staðið í vegi fyrir því að Loftleiðir fái lendingarleyfið ef fargjaldamunur- inn verði lækkaður niður í 4%, en hann er nú allt að 15%. Hér hlýtur afstaða Loftleiða að vera sú að ekk- ert sé eðlilegra en SAS lækki fargjöld sín yfir Atlants hafið í fótspor Loftleiða. Hins vegar hljóta Loftleiðir þá að áskilja sér rétt til þess að lækka sín fargjöld sömuleiðis, og koma enn meir til móts við óskir þeirra Norðurlandabúa sem yfir hafið fljúga. Allir þeir sem til málanna þekkja telja að fjarri fari því að fram tíðarhagsmunum SAS sé ógnað þótt lendingarleyfi fyrir hinar nýju íslenzku vélar fáist á Norðurlöndum. Hér er fyrst og fremst um harða hagsmunabaráttu risafyrirtækis gegn smáfélagi að ræða. En í lengstu lög verður að vona að norræn samvinna reynist það endingargóð og traust að ríkisstjórnir Norðurland- anna komi til móts við eðlilegar óskir íslendinga í þessu efni. Blaðamannaskóli Qft heyrist um það talað að íslenzku dagblöðunum sé í mörgu áfátt. Situr sízt á dagblöðunum sjálfum að bera á móti því. Ein ráðstöfun gæti hér mjög bætt úr skák. Það er stofnun íslenzks blaðamannaskóla, þar sem ekki sízt væri áherzla lögð á kennslu móðurmáls ins. Alþingi samþykkti fyrir nokkrum árum þingsá- lyktun um stofnun slíks skóla, en síðan hefur málið iegið í þagnargildi. Það er þó brýnt nauðsynjamál og augljóst menningarmál. Vísir skorar því á Blaða- mannafélagið og blaðaútgefendur að hefjast handa og leggja grundvöll slíkrar menntastofnunar íslenzkra blaðamanna. Bjarni Jónsson forstjóri frá Galtafelli Fæddur: 3. okt. 1880, dáinn: 20. ágúst 1966 ) Bjami Jónsson á Galtafelli ( lézt sl. laugardag, hálf níræöur ) að aldri. Meö honum er genginn V kunnur og mikilsvirtur borgari ) þessa bæjar, drengskapar- og \ sæmdarmaöur. Hann var Ár- / nesingur að ætt og uppruna, \ fæddur og uppalinn á / Galtafelli í Hreppum. Eru ættir ) hans alkunnar. Heimilið aö ÍGaltafelli var menningarheimili « f gömlum stíl, þar sem rækt var lögð viö fomar dyggöir, vinnusemi, orðheldni, grand- varleik og þegnskap. Slík merk ) isheimili voru vissulega hinar ( traustustu uppeldisstöðvar og ) getur enginn skóli jafnazt á \ viö þau. Foreldrar Bjama I studdu böm sín með ráðum og \ dáð til mennta, og hlutu þau þaöan hiö bezta brautargengi. I Vom þau og öll óvenju tengd ) bemskuheimili sfnu. Hafa tvö (( systkinin frá Galtafelli, Einar ) Jónsson myndhöggvari og frú ( Guöný Jónsdóttir, lýst í prent- / uöu máli heimilinu og foreldrum \ sínum af mikilli nærfærni og /, ræktarsemi. Eru ritsmíðar þeirra \ merkar heimildir um heimilis- / háttu á góöum heimilum á ofan \ veröri 19. öld. / Bjami Jónsson átti langan \ og merkan starfsferil aö baki, er II hann lézt. Hér er ekki kostur \ að rekja hann né æviferil hans ( til neinnar hlítar. Hugur hans ) stóö í æsku til ýmiskonar lista ( smíöi og listrænnar sköpunar. ) Honum auðnaöist aö veröa á \ sínum tíma einn bezt menntaöi / húsgagnasmíöameistari þessa \ lands. Menntaðist hann í þeirri / grein m.a. um þriggja ára skeið \ í Kaupmannahöfn. StarfaÖi hann // að þeirri iön um nokkurt ára- \ bil og gat sér mikinn orðstír. / Atvik ollu því, aö hann hlaut ) að skrpta um ævistarf. Tók ( hann árið 1914 að kynna sér ) rekstur kvikmyndahúsa , sem (í mátti telja nýjung hér á landi. ) Keypti hann Nýja Bíó áriö 1916, fyrir réttri hálfri öld. Rak hann , þaö einn fáein ás, en síðar i , félagi viö Guðmund Jensson. ' Vissulega var það Bjarna ærið áfall aö þurfa aö skipta um lífs starf, en hann æðraðist ekki og I tókst á við hiö nýja verkefni af einstakri atorku og hlífði sér hvergi. Hefir Nýja Bíó ávallt / verið rekið meö myndarbrag, ( svo sem alkunna er, og hefir ) það gegnt mikilsverðu hlutverki \ í skemmtanalífi bæjarbúa. í / þessu efni ruddi Bjami nýjar \ brautir og sýndi í því áræöi og / framkvæmdahug svo sem marg \ oft sfðar. I Á hinum ianga starfsferli \ Bjama vann mikill fjöldi manna (/ á vegum hans, og var hann á- \ vailt vinsæll af starfsmönnum ( sínum, og þeir vora honum eink ) ar tryggir og kærir. ( Bjami Jónsson var félagsiynd ) ur maöur og vann mikiö starf í l ýmsum félögum. Nefni ég þar / tii dæmis iðnaöarsamtök á árum \ fyrr og síðar félag kvikmynda- /| húsaeigenda og Rótaryklúbb \ Reykjavíkur, þar sem hann var / mikilsvirtur og ágætur félagi í \ um 30 ár. / Ævi Bjarna Jónssonar er sag- \ an um ungan, vel gefinn og öt- ( ulan sveitapilt, sem braUzt á- / fram af einstakri elju og dugn- ( aði úr litlum efnum til rúmra ) fjárráða. Hann var alla ævi fá- ( gætlega vinnusamur maður, er / ekki féll verk úr hendi, stór- huga og fljóthuga, hagur svo að af bar og jafnframt listfengur, svo sem ráða má af ýmsum smíðagripum hans, sem eru ger semi. Fáum mönnum hefi ég kynnzt, sem hafði jafn næmt auga fyrir réttum vinnubrögðum sem hann, og hafði hann ágaSta forsögn á verki. Listfengi Bjarna lýsti sér ekki eingöngu í hegurð hans og hæfileika til listrænnar smíöi. Hann hafði og yndi af öllu því, sem fagurt var. Þau hjón frú Sesselja og Bjarni Jóns son hófu snemma á búskapar- áram sfnum að afla sér lista- verka, og eiga þau mikið safn af öndvegismálverkum, einkum eftir hina eldri málara íslenzka og raunar ýmis önnur merk listaverk. Heimili þeirra að Lauf ásvegi 46, sem heitið er eftir föð urleifð Bjama, Galtafelli .er frá- bærlega listrænt og fagurt og ber listfengi þeirra hjóna beggja og næmum smekk gott vitni. Bjami Jónsson er ógleyman legur persónuleiki öllum þeim, er af honum höfðu kynni. Hann var einstaklega hlýr maöur, glaður og reifur, svo sem Hávamál bjóöa, glettinn og gamansamur. Áf honum geisl- aði lífsorka og lífsgleði og fékk elli lítt fang á honum, fyrr en síð ustu mánuðina, er hann lifði. Hann var öðram þræði alvöru- maður með fastmótaða kristna lífsskoðun og alla stund var hann einlægur stuðningsmaður kristni og kirkju. í honum bjó hin milcla bjartsýni og góðgirni margra þeirra, sem mótuðust um aldamótin síðustu, og heið- ríkja í viðhorfum til manna og málefna, framfarahugur og fram faraþor. Honum var tamt að bregða hinu betra, en ekki hinu verra. Lífsskoðun hans og lífs- viðhorf voru reist á þeirri kjöl- festu, sem lögð «'ar á bemsku- heimili hans, og dugöi honum vel ævilangt. Hann var sonur gró innar sveitamenningar og sveit- in átti ávallt í honum mikil í- tök, þótt hann samlagaöist vel bæjarlífi. Hann var mikill vin- ur vina sinna, tryggur og um- hyggjusamur vandamönnum og vinum, frábær heimilisfaðir, veitull og gestrisinn svo að af bar. Minnumst við hinir mörgu heimilisvinir þeirra frú Sesselju og Bjama margra góðra stunda á heimili þeirra, þar sem húsbændur voru hrók ar alls fagnaöar, en þau hjón veit ég eina hina ágætustu gest- gjafa, sem ég hef kynnzt. Minn- ingamar eru allar bjartar og kærar og mun ekki á þær falia. Margir ungir menn hafa í.tt t- hvarf hjá þeim Galtafellshjónum lengri eða skemmri tíma, eink um er þeir sátu á skólabekk. Um langt árabii var a.m.k. eitt her bergi í húsi þeirra, hinn svo- nefndi turn, setið námsmanni, er oftast boröaði einnig hjá þeim. Þetta mikilsvirta liðsinni svo og aðstoð þeirra hjóna við fjö,]- marga aðra er geýmt f þakklát- um hugum. Bjarni Jónsson hvarf af leik vangi lífsins á einum hinum fegursta degi sumarsins, þegar sól skein í hádegisstað. Þetta var næsta táknrænt fyrir Bjarna og ævi hans. Hinn varmi per- sónuleiki hans, brosið bjarta, handtakið hlýja, nærfærin um- hyggja hans og órofa tryggð var allt í ætt við heiðríkan him in og bjarta sumarsól. Ég átti því láni að fagna aö kynnast Bjarna Jónssyni náið um áratuga skeið og eignast vin áttu hans. Hans mun ég minn- ast, er ég heyri góðra manna getið. Ég sendi frú Sesselju og börnum þeirra, frú Guönýju Framh. á bls. 6

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.