Vísir - 29.08.1966, Blaðsíða 16

Vísir - 29.08.1966, Blaðsíða 16
IK Mánudagur 29. ágúst 1966. 59 togara liátcs í júlímón. Þrír íslenzkir togarar seldu ísfisk erlendis í júlímánuði s.l. Það voru Júpiter og Rööull, sem hvor um sig seldi einu sinni, og Karlsefni, sem seldi tvisvar sinnum. Allar voru sölurnar í Bretlandi. Nam heildarsalan kr. 4.918.760,— og voru seld samtals tæp 518 tonn. Meöalverð aflans pr. kg. var frá 7,88 kr. til kr. 11,22, en það með- alverð pr. kg. fékk togarinn Karls- efni í síðustu söluferð mánaðarins, en þá seldi togarinn f Huli. Seldi hann þá 155,7 tonn fyrir 1.635.039 kr. Heildarmeðalverð á öllum afl- anum pr. kg. nam 9.47 kr. Sjö íslenzkir fiskibátar iönduðu afla sínum erlendis, samtals 169,7 iestum og fengu fyrir þann afla samtals 2.7 milljónir króna. Meðal- verö pr. kg. á bátafiskinum reynd- ist mun hærra en hjá togurunum, eða kr. 15.32 pr. kg. ■ Iðnsýningamefnd fyrir framan íþrótta- og sýningarhöllina í Lauga rdal i morgun. — Talið frá vinstri: Arinbjöm Kristjánsson, fram- kvæmdastjóri sýningarinnar, Þórir Jónsson, Hafsteinn Guðmundsson, Bjarni Bjömsson, form, nefndarinnar, Davíð Sch. Thorsteinsson. Iðnsýningm '66 opnar á morgun Iðnsýningin 1966 opnar á morgun í Sýningar- og íþrótta húsinu í Laugardal. Verður sýn ingin opnuð kl. 10 í fyrramálið og flytur iðnaðarmálaráðherra Jóhann Hafstein ávarp í tilefni af opnuninni, en síðan talar Bjami Bjömsson form. sýning- arnefndar. Um 140 aðiiar munu sýna vörur sínar á sýningunni og verður sýningunni skipt niö ur í 12 sýningardeildir. Er blaðamaður og ijósm. Vís is komu inn í Laugardal í morg un var þar mikið um að vera. Verið var aö leggja síðustu hönd á svæöið í kringum sýning arhöilina, verið að laga að- keyrslubrautir að sýningarhöli- Framh. á bls. 6. um og skólabyggingar — á vegum Sambands isl. sveitarfélaga Samband íslenzkra sveitarfélaga efnir til þriggja daga ráðstefnu um verklegar framkvæmdir sveitarfé- laga dagana 31. ágúst til 2. septem ber n.k. Ráðstefnan er undirbúin í samráöi við menntamálaráðuneyt ið og samgöngumáiaráðuneytið og verður sérstök áherzla lögð á gatnagerð og skólabyggingar. Ráðstefnan verður sett í Tjarnar búð í Reykjavík n.k. miðvikudag kl. 9.30 árdegis og verður fyrsta daginn fjailað um gatnagerð úr varaniegu efni í kaupstöðum og kauptúnum. Ávarp flytur Ingólfur Jónsson, samgöngumáiaráðherra en framsöguerindi flytja Sigfús Öm Sigfússon, deildarverkfræðing- ur, Vegagerö ríkisins, Ingi Ú. Magnússon, gatnamáiastj. Reykja- víkurborgar og Stefán Hermanns- son, verkfræðingur hjá borgarverk fræðingi, Reykjavíkurborg. Síödeg is verður skoðuð malbikunarstöð og pípugerð Reykjavíkurborgar og Framl. ils < íslenzkir læknar ræða krabbameinsmái Hið árlega þing samtaka krabbameinsfélaga á Norður- löndum „Nordisk Cancerunion“, var haldið í Imatra í Finnlandi 13.—18. ágúst s.l. Þessi þing eru haidin árlega, þ. e. fimmta hvert ár í hverju landi, þar sem formenn og rit arar krabbameinsféiaganna, leggja fram ársskýrslur sínar og réikninga og bera saman bækur sínar um hvað er efst á baugi í hverju landi. Formaður Krabbameinsfélags íslands, Bjarni Bjarnason lækn ir, og Halldóra Thoroddsen rit ari, sátu þingið. í sambandi við þetta þing var haldinn fundur formanna krabbameinsskráninganna á Norðurlöndum. Form. krabba- meinsskráningarinnar hér, próf. Ólafur Bjarnason, mætti þar fyrir íslands hönd. Einnig var haldinn sameiginlegur fundur Framh. á bls. 6 Amerísk hjón halda hljómleika — á vegum Tónlistarfélagsins Oddur Jónsson eftirlitsmaður frá Rafmagnseftirliti ríkisins að at- huga rafmagnslínur að Laugavegi 2 í morgun. Tónlistarfélagið byrjar starfsemi sína á þessu hausti með þvi, að hjón frá Bandaríkjunum halda hér tvenna tónleika í byrjun næsta mánaðar. Eru það sópransöngkon- an Leona Gordon, sem er íslenzk í báðar ættir en fædd í Bandaríkj- unum, og maður hennar, pianóleik- arinn Marcus Gordon. I San Francisco hafa nokkrar ís- lenzkar fjölskyldur valið sér bú- setu, og gert garðinn frægan, sem á mörgum öðrum stöðum vestan- hafs. Má þar til nefna tvo bræður, Ellis og Henfy Stoneson, er stóðu fyrir miklum byggingaframkvæmd- um, og systur þeirra, Stefaníu, en foreldrar þeirra voru Þorsteinn Þorsteinsson og Ingibjörg Einars- dóttir frá Stafholti í Stafholts- Sldur ai Laugavegi 2 —manni bjargað meðvitundarlausum úr næsta herbergi við Jboð sem eldurinn kom upp / Eldur kom upp í húsinu Laugavegi 2 síðdegis á laugar- dag. Var tilkynnt um brunann kl. 16.16 og þegar slökkviliðið kor.i á vettvang stóð eldurinn upp úr þakglugga á efstu hæð- inni;fÁ efstu hæðinni svaf mað- ur í næsta herbergi við það þar sem eldsupptökin eru talin hafa verið. Náðist hann út meðvit- undarlaus og var gefið súrefni á leiðinni í sjúkrabílnum að Slysa- varðstofunni. Fékk hann rænu þegar þangað var komiö og var síðan fluttur á Landakot. Búið var að siökkva eld- inn kl. 17 og höfðu þá orðið miklar skemmdir á efstu hæð- inni aðallega í miðju húsinu og var eitt herbergi m. a. kolbrunn- ið. Reykinn lagði um allt húsið og vatn komst alla leið niður í kjallara og olli tjóni. Eldsupp- tök eru ókunn. Næsta hæð fyrir neöan þá, sém eldurinn kom upp í stóð auð en þar fyrir neðan var Dömubúðin Laufið og Kjötbúð Tómasar í kjallaranum. Framh á bls 6 tungum. Stefanía giftist dr. Andr- ési Oddstad, en hann var sonur Jóns Sveinbjarnarsonar frá Odds- stöðum í Lundarreykjadal og Guð- nýjar Fjeldsted frá Narfeyri, en bróðir hennar var Andrés Fjeldsted á Hvítárvölium. Einn son áttu þau, Andrés verkfræðing, sem varð stór tækur í byggingariðnaði, og fjórar dætur, sem allar voru vel mennt- aðar og söngelskar, en hin yngsta þeirra, Leona, iagði þó mest kapp á að nema tónlist og söng, enda hefur hún náð langt á þeirri braut. Og nú heimsækir hún ættland sitt í fyrsta sinn og máske borg- firzkar byggðir forfeðra sinna, því alíslenzk er hún, eins og áður er sagt. Hún er gift Marcus Gordon, sem talinn er í röð fremstu pianóleik- ara í Ameríku og hefur t. d. hlotið mikið lof fyrir túikun sína á franskri tónlist síðari tíma. Frú Leona Gordon hefur vakið aðdáun með söng sínum og túlk- un á hinum ólíkustu viðfangsefn- um. Hér skal þó ekki annað nefnt úr skrifum gagnrýnenda en þessi fáu orð úr blaðinu Daily Redlands Facts: „Ný stjama hefur máske fæðzt í gærkvöldi, þegar hin yndis- lega Leona Gordon frá söngleika- húsinu í San Francisco fór með hlut vefk Giidu í fyrsta sinn hér“. Má af þessu nokkuð ráða um söng hennar. Tónlistarfélaginu þótti vel við eiga, að kynna hér þessa ágætu Framh. á bls. 6. Ásgrímssýnirtg í Kaup- mannahöfn í haust Snemma á þessu ári barst Ás- grímssafni boð frá Kunstforeningen í Kaupmannahöfn um það, að félag ið héldi sýningu á verkum Ásgríms Jónssonar á komandi hausti. Þótti s.iálfsagt að þiggia þetta boð hins mikilsvirta listafélags. Skipuð var sýningarnefnd, og eiga sæti í henni málararnir Jón Eng- iiberts og Hjörleifur Sigurðsson, á- samt forstöðukonu Ásgrímssafns, frú Bjamveigu Bjarnadóttur. Hefur nefndin lokiö störfupi, og verða send úr Ásgrímssáfni til ! Danmerkur 25 olíumálverk, 40 vatnslitamyndir og 20 þjóðsagna- teikningar. Er þetta í fyrsta sinni, sem Ásgrímur Jónsson er kynntur erlendis að ráði sem vatnslitamál- ari. Formálsorö í sýningarskrá skrif ar prófessor Sigurður Nordal. Ljós myndir tók Skarphéðinn Haralds- son teiknikennari. Um þýðingu á myndatexta sá frú Grethe Bene- diktsson. Mun sýningin verða opnuö í söl um Kunstforeningen laugardaginn 15. október af sendiherra Islands í Kaupmannahöfn, Gunnari Thor- oddsen.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.