Vísir - 03.09.1966, Side 2
V í S I R . Laugardagur 3. september 1966
SNÆFELUNGAR i úrsfít
Þar munu taka þátt öU liðin úr
Reykjavík (1. fl. félaganna), ásamt
Snæfelli, liði úr Norðurlandsriðiin-
um, og einu liði úr riðli, þar sem
f:iögin ar Suðurlandi og frá ÍKF
á Keflavíkurflugvelli leika til úr-
slita. Má þar búast við harðri
keþpni.
/ bikarkeppni K. K. í.
Um síðustu helgi var mik-
ið um að vera hjá körfu-
knattleiksmönnum í Stykk
ishólmi. Þar voru saman
komin körfuknattleikslið
frá ísafirði og Rvík, auk
heimaliðsins. Á laugardag-
inn var leikinn einn leikur
í bikarkeppni Körfuknatt-
leikssambandsins, sem nú
stendur sem hæst. Var leik
urinn milli liðsins frá
Stykkishólmi, Snæfells og
Körfuknattleiksfélags ísa-
fjarðar, en þessi lið leika
saman í riðli í keppninni.
Lauk leiknum með örugg-
um sigri Hólmara, sem
skoruðu 75 stig gegn 41 st.
ísfirðinga.
Langbezti leikmaður vallarins
var Sigurður Hjörleifsson, úr Snæ-
felli, sem skoraði 26 stig og. tók
fjölda frákasta. Þá var og Eggert
góður í liði Snæfells og skoraði
hann 22 stig. J liði Isfirðinga var
Guðmundur Pálmason góður með
10 stig.
Það verður því Snæfell úr Stykk-
ishólmi, sem fer í úrslitariðilinn í
keppninni, en keppni £ þeim riðli
hefst f Reýkjavík um miðjan sept-
ember. Á laugardaginn léku einnig
1 kvennaflokki |ið frá KR í Reykja-
vík og lið frá Stykkishólmi og lauk
þeim leik með sigri KR 40—37.
Á sunnudaginn léku í kvenna-
flokki lið frá KR og ísafirði og lauk
þeim leik með sigri ísfirðinga,
29:23. Þá fór einrtig fram hrað-
keppni, þar sem tóku þátt liðin frá
St'ykkishólmi, ísafirði og KR í
Reykjavík. Leikimir fóru þannig:
Snæfell—Isafjörður b-lið 60—32.
KR—ísafjörður a-lið 37—26.
KR—Snæfell 35—40.
Það voru því heimamenn sem
báru sigur úr býtum í þessum
leik og þar að aukiíhraðkeppninni.
Var þessi helgi því mikil sigurhelgi
hjá sn-efellskum körfuknattleiks-
mönnum. Aðsókn að þessum leikj-
um var mjög góð, troðfullt hús út
úr dyrum, enda er körfuknattleikur
mjög vinsæll á Snæfellsnesi.
Leikir í bikarkeppni KKÍ, úr-
slitariðlinum munu hefjast í
Revkjavík um miðjan september.
Knattspyrna og golf eru efst á
baugi um helgina. Þannig verður
leikinn 1. deildarleikur, sem kann
að hafa mikil áhrif og gert verður
út um 2. deild á morgun. Þá er rétt
að minnast á afrekskeppni Flugfé-
lags Islands á golfvelli Golfklúbbs
Ness.
Vinnur Akureyri
á Skipaskaga?
Þau tíðindi gerðust í leik Akur-
evrar og Akraness nyrðra fyrir
nokkru að Akureyringar unnu
Skagamenn í fyrsta sinn. Undan-
farin á: hefur Akranes unnið á
heimavelli sínum í leikjum gegn
Akureyri. I fyrra 2:0 og 1963 3:1.
Á Akureyri varð hins vegar jafn-
tefli í fyrra 2:2.
Akurnesingar hafa verið heldur
slakir að undanfömu og nú er
spurningin: Tekst Akureyringum
að sækja bæði stigin til Akraness
á morgun? Takist það eiga norðan-
menn enn möguleika á að verða
íslandsmeistarar.
Hvað gerir Breiðablik
gegn Fram á morgun?
Breiðablik Iendir nú öðru sinni
í úrslitum £ 2. deild. Árið 1963
lentu þeif i úrslitum gegn Þrótti
á Njarðvíkurvelli og vann Þróttur
þá með 9:0. Fram komst £ gegn
til úrslitaleiksins við illan leik og
á morgun kl. 16 mun baráttan
hefjast milli þessara aðila. Breiða-
bliksmenn eru harðskeyttir knatt-
spyrnumenn og til alls vfsir, en
Framarar hafa leikna leikmenn,
góða vörn og hættulega einstakl-
inga í framlfnu. Leikurinn fer fram
á Laugardalsvellinum.
Golfkeppni
á Seltjarnarnesi.
Allir beztu golfmenn landsins
munu keppa i afrekskeppni F.l.
sem haldin verður á golfvelli Golf-
klúbbs Ness í dag. Flugfélagið
hefur til þessa náð í keppendur
Framh á bls 6
Norðurlönd eiga sterkara
unglingalið í skák
— of mikil hræðsla við Rússana, segir Guðmundur
Sigurjónss eftir unglingakeppnina i Stokkhólmi
Þaö var fremur lélegt lið, sem Norðurlöndin sendu til keppni gegn
Rússum í Stokkhólmi. Ég held að þetta hafi ekki verið sterkustu
skákmennimir i unglingaflokki á Noröurlöndum. Danir tóku til
dæmis ekki þátt i keppninni, en þeir eiga kannski sterkustu skák-
mennina í þessum aldursflokki á Norðurlöndum.
Tjað er væntanlegur ólympiu-
fari íslands £ skák, Guð-
mundur Sigurjónsson, sem við-
hafði þessi orð, þegar Vfsir
heimsótti hann nýkominn heim
frá Stokkhólmi, en þar keppti
hann ásamt þremur öðrum fs-
lenzkum skákmönnum af.yngri
kynslóðinni £ unglingaskák-
keppni milli Norðurlandanna og
Sovétríkjanna.
Norðurlöndin töpuðu þessari
keppni, sem kunnugt er og lutu
mjðg í lægra haldi fyrir Rúss-
unum. sem hlutu 23 vinninga
gegn 7 vinningum Norðurlanda.
íslendingamir þóttu standa
sig öllu betur frændum sfnum
frá hinum Norðurlöndunum.
Einkum vakti frammistaða
Guðmundar sérstaka athygli, en
hann tefldi £ eldlfnunni, ef
svo má segja, á fyrsta borði, og
vann aðra skák sína, en gerði
jafntefli f hinni.
— Mótið stóð aðeins tvo
daga, segir Guðmundur, 27. og
28. ágúst. Það ríkti allt of mikil
fcræðsla meðal okkar manna
fyrri dag keppninnar, en þá
fengu Rússar 13 vinninga og
Norðurlöndin aðeins tvo. Þetta
varð örlítið jafnara síðari dag-
inn, þá höfðu Norðurlöndin 5
vinninga gegn 10.
íslendingamir fóru einna bezt
út úr sfnum skákum, af Norður-
landakeppendunum, við fengum
3 vinninga af 8 mögulegum,
Norðmenn fengu 2 af 6 en Finn-
ar og Svíar fengu aðeins 1 vinn-
ing hvort land af samtals 16
mögulegum.
— Varstu tilfinnanlega var
við skákáhuga f Svíþjóð, komu
margir til þess að fylgjast með
mótinu?
— Nei, ekki varð ég nú var
við mikinn skákáhuga. Það
komu sárafáir áhorfendur, enda
held ég að þetta hafi ekki verið
auglýst neitt. Mótið var líka
haldið í þannig húsakynnum,
að skilyrði fyrir áhorfendur
voru ekki verulega góð. Við
tefldum f stóru húsi, sem
Svenska Dagbladet hefur til
sinna nota.
— Heldurðu að það hafi verið
einhverjar þekktar eða upp-
rennandi stjörnur í rússneska
liðinu?
— Ég þekkti nú engan þeirra,
og varð ekki var við neinn á-
áberandi góðan. — Það var
þarna einn ungur Rússi, sem
vakti mikla athygli. Einkum af
því að hann leit ekki út fyrir
að vera nema svona 10—12
ára, en hann var nú vfst 15
ára, tefldi mjög skemmtilega,
Karpov, minnir mig hann heiti.
Boris Gulko heitir sá, sem ég
tefldi við mínar skákir. Ég
vann seinni skákina en sú fyrri
varð jafntefli.
— Ja, segir Guðmundur,
þegar við biðjum hann. að lýsa
örlítið skákunum, það er kann-
ski ekki svo auðvelt. Ég náði
betri stöðu f fyrri skákinni, átti
vinningsleið, en fór svo út f
vitleysu og endirinn varð jafn-
tefli.
— Ég byrjaði með spönskum
leik í seinni skákinni og eftir
eitthvað 20 leiki var Gulko
kominn með erfiða stöðu,
þrönga — og hpnn gaf í 41.
leik.
— Er þetta 'fyrsta keppnis-
ferðin til útlanda?
— Já, ég hef aldrei keppt úti
áður.
— Hvert heldurðu að hafi
verið sterkasta skákmótið, sem
þú hefur tekið þátt 1? .
— Ætli það hafi ekki verið
alþjóðaskákmótið héma f vetur.
Þar kepptu þeir Vasjukov frá
Rússlandi, O’Kelly, Belgíu,
Wade, Englandi og fleiri erlend-
ir kappar, auk þeirra fslenzku,
ég fór mjög illa út úr þvf móti,
segir Guðmundur og brosir
brosi, sem segir: en það var
nú kannski eðlilegt.
— Og svo ertu að fara til
Kúbu á Ólympíuskákmótið.
Já, ég er 6. maður í sveit-
inni, eða 2. varamaður. Það
stendur yfir seinni hlutann af
október og fram í nóvember.
— Nú ert þú f Menntaskól-
arium, Guðmundur, heldurðu aö
þú fáir frí?
— Ég vona það, þeir eru
vanir að gefa frí f svona tilfell-
um. Ég ætla ekkert að stunda
vinnu fram að skóla, heldur
lesa undir skólann til þess að
hafa smá forskot til þess að
hlaupa upp á, það er slæmt að
missa úr, einkum svona síðasta
veturinn undir stúdentsprófið.
— Það þarf auðvitað ekki að
spyrja að þvf hvort þú hafir
æft af kappi.
— Ég hef æft með ólympíu-
sveitinni nú upp á síðkastið, en
svo stundaði ég einnig æfingar
með stúdentasveitinni í sumar,
þeirri sem keppti á stúdenta-
mótinu í Svíþjóð fyrir stuttu.
Ég vona að þetta verði ánægju-
leg för.
Við óskum Guðmundi góðrar
ferðar á hans fyrsta olympíu-
mót. — Og hér kemur svo f
lokin skákin, sem hann vann
gegn Rússanum Boris Gulko. —
(Guðmundur hafði hvítt):
1. e4 e5
2. Rf3 Rc6
3. Bb5 a6
4. Ba4 Rf6
5. 0-0 Be7
6. Hel b5
7. Bb3 d6
8. c3 0-0
9. h3 h6
10. d4 He8
11. Rb-d2 Bf8
12. Bc2 Bb7
13. a3 Rb8
14. b4 Rb-d7
15. Bb2 Rb6
16. He3 Dd7
17. De2 Ha-d8
18. Ha-el Dc8
19. c4 bxc4
20. dxe5 Rf-d7
21. R X c4 R x c4
22. Dxc4 Rxe5
23. Rxe5 dxe5
24. Bb3 Hd7
25. Hf3 Hc-c7
26. Hf5 De8
27. Ba4 c6
28. He3 Hc7
29. Dc3 Hc-c8
30. He-f3 g6
31. H X e5 H X e5
32. Bb3 Bg7
33. Bxf7f Dxf7
34. Hxf7 Kxf7
3. Í7 Hc-e8
36. fxe5 He6
37. Dc5 Bf8
38. Db6 He7
39. Dd8 Bg7
40. e6f Kxe6
41. Dg8f og svartur
gafst upp.
Guðmundur Sigurjónsson