Vísir


Vísir - 03.09.1966, Qupperneq 6

Vísir - 03.09.1966, Qupperneq 6
VÍSIR. Laugardagur 3. september 1966 íþróttir — Frh. af 2. bls.: um allt lartd, en rétt til þátttöku hafa þeir menn einir, sem hafa leikið tiltekna velli á landinu „undir par“. Keppnin hefst kl. 14 í dag og má búast við afar skemmtilegri keppni. 3. deild að ljúka. Á Sauðárkróki fer fram mikill leikur á morgun. Þar leika Skag- firðingar gegn Selfvssíngum, en þeir síðamefndu verða að sigra íil að færast f 2. deild. Þá fer fram leikur í bikarkeppni KSÍ í dag kl. 15.30 milli ísfirðinga og KR-b. — Þá fara fram í dag úrslit í 5. flokki íslandsmótsins milli Fram og FH (endurtekinn leikur) og hefst hann kl. 14.30 á Melavelli. Kennísreir —- Framh. af 16. síðu. Námskeið fyrir íslenzkukenn- ara sem verður í Kennaraskóla fslands. Þar verður einkum fjallað um lestur bókmennta í skólum, textaskýringar, bók- menntasögu og skólaritgerðir. Þá hefst sama dag líka í Kennaraskóla íslands, námskeið í starfsfræðslu og félagsfræði. Þar verður sænsk kona aðal- kennari frú Margareta Vestin, skrifstofust'jóri. Auk hennar flytja erindi og leiðbeina 16 fyr- irlesarar og leiöbeinendur. Tal- aöi blaðið í gær við Stefán Ól. Jónsson námsstjóri, sem sagði: „Þetta er þriðja námskeiðið í starfsfræðslu, sem haldið er hér, en sem kunnugt er, er eng in menntastofnun hér á landi sem sér um kennslu í starfs- fræðslu. Mynda námskeiðin sam hangandi heild og hafa þeir sem tekið hafa þátt i námskeiðunum öllum að loknu þessu námskeiði sö 1 i & i s ■ Hafsteinn Austmann hjá myndum sínum í Unuhúsi. Myndlist Austmanns í Unuhúsi Hafsteinn Austmann, listmálari, opnar í dag málverkasýningu í Unuhúsi hinu nýja, við Veghúsa- stíg og er það fjórða sýningin, sem þar er haldin, en 6. einkasýn- ing Hafsteins. Þar birtir Hafsteinn það yngsta af list sinni, 26 mynd- ir frá síðustu tveimur árum, þar á meðal eru nokkrar myndir í cryla-litum. Myndir Hafsteins hafa víða ver- ið á sýningum undanfarin ár. Hann sýndi á Biénale de Paris f fyrrahaust og um þessar mundir eru nokkrar mynda hans á far- andsýningu norrænna myndlistar- manna, sem hófst f Hannover fyr- ir skömmu og fer vföa um Þýzka- land. Hafsteinn dvaldist um tíma við myndlistamám f Þarís, að afloknu námi hér, en hefur auk þess farið víða um Evrópu og kynnt sér myndlist, nú síðast 1965 og dvald ist þá lengst í Rómaborg, en þar munu nokkrar myndimar á sýn- ingunni eiga rætur. Hafsteinn hefur getið sér gott orð fyrir myndlist sfna. Á þessari sýningu hans er að sjá einkar fág- aða og sannfærandi samstillingu litanna og vönduð vinnubrögð. Sýningin er jafnframt sölusýn- ing og hefur Listasafn ríkisins þegar fest kaup á einu málverk- anna. Hún veröur opin á verzlunar tíma, alla virka daga næstu þrjár vikur, en til klukkan 22 á laugar- dögum og sunnudögum. — Að- gangur er ókeypis, utan hvað gestum um helgar veröur selt mynd skreytt rit, hvar Þorsteinn skáld frá Hamri rekur feril listamanns- 120 kennslustundir í starfs- fræðslu og hefðu þá nokkra und irstöðumenntun til starfsfræðslu kennslu í skólum gagnfræða- stigsins." Á starfsfræöslunámskeiöinu verður fjallað um atvinnuvegi landsmanna, atvinnusögu og þró un verkmenningar og menntun- arleiðir. /Á námskeiðinu veröur kynnt ný kennslubók STARFS- FRÆÐI eftir Kristin Björnsson sálfræðing og Stefán ÓI. Jóns- son námsstjóra. Kom bókin út hjá Ríkisútgáfu námsbóka'f gær og verður kennd á gagnfræðastig inu í vetur. í bókinni eru m.a. Nicole og Clément Yfirleitt vinsælar myndir í kvikmyndahúsunum Það eru yfirleitt vinsælar mynd ir í kvikmyndahúsunum um þessar mundir eftir aðsókninni að dæma og þvf hve lengi sumar myndir eru sýndar. Það er aðeins nýhætt að sýna Iietjurnar frá Þelamörk í Há- skólabíói og hefur nú verið tekin til sýningar kvikmyndin „Synir Kötu EIder,“ en hana hef ég ekki séð. Myndin er sögð spennandi og er með fsl. texta. Gamla Bíó sýnir enn Hayey MUls-myndina og Hafn arbíó gamanmyndina sem Maurice Chevalier leikur f. Ég spáði þeim báðum vinsældum er hefur rætzt Laugarásbíó hefur sýnt Spartacus um hríð, mikilfenglega mynd, og Stjömubíó sýnir Ástir um víða ver- öld. — Þótt f þessari kvikmynd séu næturlífsatriði sem eru fremur til lýta en hitt eru önnur atriöi sér- lega skemmtileg og vel tekin, enda er myndin gerð af Dino de Laurent is. Austurbæjarbíó sýnir Fantomas kvikmynd, sem er f ætt við James Bond myndimar, ef svo mætti segja. Það er verið að amast viö myndum af þessu tagi, en þær eru vinsælar og góð dægrastytting og tilbreyting að þeim og eru þær á engan hátt hættulegar, en það er öðrú máli að gegna um klámmynd ir, vegna áhrifa þeirra á unglinga sérstaklega, en annars fá menn yfir leitt leiöa á slíkum myndum Kvik myndin „Mjúk er meyjarhús“, sem sýnd er í Nýja Bíó flokkast alls ekki þar undir. Þetta er í rauninni efnismikil mynd og sérlega vel leik in, nokkuð langdregin en um margt athyglisverð. Myndin er frönsk en Frökkum er ólíkt sýnna en öðrum að gera ástalífsmyndir af smekkvísi Aðalleikarar eru 'Nicole, Clément og Francoise Dorleac. upplýsingar um menntabrautir atvinnulífið og fjallað er um val lífsstarfs. Þriðja námskeiðið, sem hefst á mánudag er fyrir stæröfræði- og eðlisfræðikennara. Verður það haldið í Menntaskólanum við Lækjargötu. Nýja stæröfræð in veröur kynnt þar og leiðbeint með eðlisfræöikennslu sér í lagi notkun kennslutækja í eðlis- fræöi. BóBdudolur — Framhald af bls. 16 fleiri framkvæmdum. í haust mun hefjast kennsla í hinum nýja barnaskóla kauptúnsins og verður það mikil bót, því kennt hefur verið í allsendis ófullnægj andi húsnæði til þessa. Þá er verið að leggja nýjan akveg yfir fjallið Hálfdán, sem er milli Tálknafjarðar og' Arnarfjaröar og væntanlega lýkur því verki innan tíðar. Er að þessum nýja vegi mikil samgöngubót. Smokk fiskveiði frá Bíldudal hefur ver- ið með afbrigöum góð. Aðfara- nótt föstudags var veiðin með bezta móti og fengust um 600 kg. á hvert færi yfir nóttina. Hraöfrystihúsið á staðnum kaup ir kg. á 3-5 krónur, þannig að» 2-3000 kr. hafa komið I hlut| hvers manns eftir nóttina. Fisksölumálin — í Framh. af bls. 1. ummæli mín með það I huga. — Ég er kominn hingað í um boöi sambandsstjómar Þýzka- lands, hélt ráðherrann áfram, — og heimsókn mfn er ekki að- eins kurteisisheimsókn, heldur hefur alvarlegri málefni borið á góma í viöræðum mínum við íslenzka ráðamenn. Hafa við- ræður mínar við þá aöallega fjallað um tvennt: Fiskimál og flugmál. 1 sambandi við fiski- • málin vil ég segja, að þýzka stjómin mun ekki gera sig á- nægða með þær uppástungur, sem hafa komið á daginn í sam bandi við fiskveiðipólitík innan Efnahagsbandalagsins. Viljum viö ekki, að stefnumið Efna- hagsbandalagsins hafi nein á- hrif á samskipti Þýzkalands og íslands. Okkur finnst aldrei vera flutt inn nóg af sjávarafurð um til Þýzkalands frá íslandi. Eins og stendur hefur kvótinn ekki einu sinni verið fylltur. í samræðum mínum við Ing- ólf Jónsson landbúnaðar- og samgöngumálaráðherra. komum við mikiö inn á mögulejka á lend ingarleyfi Flugfélags Islands í Frankfurt am Main. Er ég sann færður um, að það mál geti leystst innan skamms. Eftir aö ég varö þýzkur ráðherra og fór að kynna mér sögu þjóðanna tveggja og samvinnu undanfarin 20 ár, komst ég að raun um þvílíkan drengskap Island sýndi Þýzkalandi í erfiðleikum lands- ins eftir stríð og hvernig Is- land studdi Þýzkal. með ráðum og dáð. Ekkert land studdi Þýzkaland eins mikið miöað við fólksfjölda og ísland. Þess vegna finnst mér, aö í sam- skiptum þjóðanna tveggja eigi ekki ávallt að ríkja hreint við skiptasjónarmið heldur dreng- lyndi. Mun ég m.a. þéss vegna leggja fast að flugmálayfirvöld um, að lendingarleyfi fáist í Frankfurt. Einnig tel ég, að i sambandi við fisksölumál í Efnahagsbanda lagi Evrópu muni Þjóðverjar halda á málunum, eins og ís- lendingar vildu gera það. — Við Þjóöverjar teljum þó, að tollar geti aldrei verið nógu lágir og tel ég, að íslendingar gætu mikið þar af lært, þó ég ætli mér ekki þá dul, að kenna ís- lendingum viðskipti. I þeim eru þeir ekki eftirbátar neinna. — Það væri frekar að ég vildi senda 500 þýzka námsmenn til íslands til að læra viðskipta- fræði. Þeir gætu komið í stað- inn fyrir íslenzku námsmennina f Þýzkalandi. 1 sambandi við landbúnaðar- málin sagöi ráðherrann, að hann hefði rætt þau nokkuð við Ing ólf Jónsson en það hefði frekar verið einstefnuakstur í þeim viðræöum. — íslenzki ráðherr- ann gat kennt mér meira, en ég honum og myn ég styðja ráð- herrann í næstu kosningum. Þegar ég hafði rætt við landbún aðarmálaráðherrann um stund kom upp úr kafinu, að hann var einnig samgöngumálaráð- herra, en á samgöngumálum hef ég ekkert vit. Má nærri geta hvemig þær viðræður fóru fyrir Sambandslýðveldiö Þýzkaland I viðræöum mínum við við- skiptamálaráöherra, dr. Gylfa Þ. Gíslason fór ég einnig mjög halloka. Hann hefur verað við- skiptamálaráðherra í 10 ár, en ég aöeins í 9 mánuöi. — Þetta verður dýr ferð fyrir Þýzkaland og er ég hræddur um, að ég fari ekki fleiri í bráö! Ráöherrann gat þess, að hann hefði borðáð íslenzkt lamba- kjöt, sem væri það bezta, er hann hefði fengiö. Lýsti hann yf ir undrun sinni, að lambakjötið skyldi ekki vera oröin mikil- væg útflutningsvara hér á landi Myndi hann sjálfur beita sér fyrir því að kynna lambakjötið á næstu „Allsherjarviku þýzks landbúnaðar," sem haldin er í Berlín ár hvert. 200 metrar — Framh. af bls. 1. vantar töluvert á, að aukningin sé nægileg. Samtals höfðu 9667 synt 200 metrana í Reykjavík kl. 5 e.h. í gær. Vonazt er eftir að þátttak an aukist síðustu daga keppninn ar, sérstaklega vegna þess, að síðustu daga hafa börnin verið að koma úr sveitinni, en mörg þeirra eiga eftir að synda 200 metrana. Hinir 9667 þátt- takendur skiptust þannig niður á sundstaði borgarinnar: Sund- höllin í Reykjavík: 3467, Sund- laug Vesturbæjar: 3360 og Sundlaugarnar við Sundlauga- veg: 2840. Ekki er með öllu von laust að með samstilltu á- taki takist íslendingum að vinna hinn veglega bikar Nor- egskonungs sem sigurvegarinn í keppninni hlýtur og er fólk því eindregið hvatt til að taka þátt í keppninni. Lisfflugvél — Framhald af bls. 16 tii listflugsæfinga, en slík ar æfingar væru flugmönnum mjög gagnlegar. Flugmálastjóri sagði að nú væri bygging flugmála á'lslandi orðin nokkuð heilleg, en listflugæfingar hefði vantað til þessa I keðjuna Taldi hann enga goðgá að ætla að íslenzkir flugmenn yrðu keppnis- færir á alþjóðamælikvarða í list- flugi þegar fram liðu stundir. x ’ Fyrsta listflugkeppni Islendinga verður svo á Sandskeiði 10. sept. n.k. og þar mun Hulka einnig sýna en Svifflugfélagið heldur þá jafn- framt flugsýningu og flíkar þar nýrri tékkneskri svifflugu af Blan ik gerð. Sílslin — Framhald af bls. 1. smá, skal láta ferskfiskeftirlitið vita og það rannsakar málið og kærir, ef þörf krefur. Sagði Sigurður, að til þess hefði aldrei komið, en reglur um þetta hefðu ekki komið fyrr en í vor. — Það hefur sýnt sig, að s.'Idin má vera æði smá til þess að hún brjóti í bága við þessa reglugerð, enda sagði Sigurður: — Ég reikna með að endurskoða þurfi reglurnar, en það er ekki i verkahring Ferskfiskmatsins. KS.fi mmtmrn

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.