Vísir - 20.09.1966, Blaðsíða 4
a
VIS IR. Þriðjudagur 20. september 1906.
„y
Kertaljós þarf til ljósa og til „galdraiökunar“.
* ,íí
Komiö úr hellinum á leiö til borgarinnar, — ef til vill í leit aö mat.
Á BRETLANDI
jþað lætur í eyrum líkt og lé-
legt aprílgabb í dagblöðum,
að upp sé runnin ný steinöld
á Bretlandi. Auövitað er það
líka oröum aukið, en hefur
samt við viss rök að styðjast.
Svo er mál með vexti, aö nokkr
ir hópar unglinga úr Derbyshire
hafa lagzt út og tekið sér ból-
festu í djúpum hellum í Lin-
tockfjöllum þar í skírinu. Og
þar sem fundizt hafa merki um
dvöl steinaldarmanna, sem lærð
ir menn kalla „troglodytes“,
einmitt í þessum sömu hellum,
kenna útileguunglingarnir sig
við þá og kalla sig einu nafni
„trogga." Og undir því nafni
ganga þeir meðal þeirra sam-
borgara sinna, sem þeir vilja
ekki lengur teljast til.
Öll könnumst við sögur af
Hólasveinum þeim, sem gerðu
uppreisn gegn aganum í skólan
um og samtíð sinni og lögðust
út í Surtshelli, og rændu sauð
fé borgfizkra bænda sér til mat
ar og klæða. Tömdu þeir sér
alls konar íþróttir og garpskap
og uröu ekki sigraðir nema meö
svikum, og hefur löngum staö
ið mikill ljómi af dáðum þeirra
í sögum og sögnum. Varla er
hugsanlegt að mikill ljómi
standi í sögunni af dáðum þess
ara brezku „trogga“, sem virö
ast heldur ógæfuleg útgáfa af
útilegumönnum á okkar mæli-
kvarða, og helzt eiga sér hlið-
stæðu í þeim útigangslýð ungl-
inga, sem sett hefur svip sinn
á Þórsmörkina um verzlunar-
mannahelgina, ef marka má lýs
ingu hins brezka blaöamanns,
George Lindsey, á því þjóðfé-
lagsfyrirbæri. En hann hefur
heimsótt „troggana" í hellum
sínum, og er eftirfarandi úr-
dráttur úr grein hans.
Hellamir, þar sem „troggarn
ir“ hafa tekið sér bólfestu. eru
allt að mílufjórðungur á lengd
og liggja yfir hundrað metra
undir yfirborði jarðar. Hellis-
hvelfingin sjálf er ekki breiðari
en meðalstór húsagarður. Niöa
myrkur er þar inni, og hafa
„troggarnir“ ekki annað til lýs
ingar en vaxkerti, sem megna
ekki að dreifa myrkrinu nema
á smábletti kringum sig. Þungt
loft er þar inni og svo kyrrt
að ekkert bergmál vaknar í
granítveggjunum við tal þar
inni, jafnvel ekki þótt kallað sé.
Þarna hafði um þrjátíu ungl-
inga hópur fast aösetur, þeir
elztu rúmlega tvítugir, en þeir
yngstu ekki nema 13 til 14 ára
— og stúlkur i meirihluta.
Allir bera piltamir hár niður
á heröar, og stúlkur og piltar
klæðast þröngum ■ „gallabux-
um.“ Allir taka þessir ungling-
ar sér ný nöfn þegar í útlegðina
kemur, flest meiningarlaus og
fáránleg — og telja sig margir
hafa gleymt upprunalega nafni
1 sínu. Fullyrt er að alls séu
„troggamir" 1 þessum hellum
um eða yfir eitt þúsund talsins.
Ekkert samband hafa þeir við
heimili sín eða fjölskyldur, enda
hafa þeir flestir lagzt út vegna
einhvers konar ósamkomulags
við aðstandendur sína. Mat
sníkja þeir sér, yfirl. alls konar
úrganga, er til fellur á matsölu-
stöðum í borgunum, eða þeir
stela honum. Þeir skiptast i smá
hópa tuttugu til þrjátíu saman,
lifa við algert sameignaskipu-
lag, og allar stúlkumar eru kyn
kynmakanautar allra piltanria í
hópnum, en frjáls kynmök virð
ist eitt af helztu grudvallaratrið
unum 1 þessu nýja steinaldar-
samfélagi.
Annaö er það sem mjög setur
svip sinn á samlíf þessara ungl-
ingahópa — og jafnvel enn ótrú
legra — þeir leggja mikla stund
á alls konar furðulegt kukl og
galdra eins konar „dulsiðu",
sem beinast einkum að því að
stæla þrek þeirra til kynmaka
annars vegar og hins vegar aö
því, aö þeir öðlist einhvers kon-
ar „algleymi", ellegar aö þeir
geti leyst hugann úr viðjum lík
amans að einhverju leyti og far-
iö þannig ferða sinna um tíma
og rúm — svipað og sagt er
um „Finnana“ í fornsögum okk
ar. Eitt er það í dulsiðum
þeirra, að drekka eins og við-
komandi getur torgað úr vatns-
pollum, sem safnast í hellna-
göngin — og telja „troggamir"
vatn það búa yfir kynngimætti
sem meðal annars geri þá meiri
til kynmaka, og jafnvel hugar-
flakks: Dagsbirtuna forðast þeir
halda sig í myrkri hellanna á
daginn, en fara í mataröflun-
arleiðangra sína um nætúr.
Kristinni trú hafna „troggam-
ir“ eindregið, enda samrýmast
lifnaöarhættir þeirra illa boð-
oröum hennar — og kvað svo
ramt að þvi aö trúboði nokk-
ur frá Suður-Afríku, Kenneth
Terhoven, hefur fundið hjá sér
köllun til að snúa þeim aftur
til réttrar trúar og hafiö kristni-
boð í hellunum — og er sagt að
honum verði lítiö ágengt.
„Heimspeki" þeirra „trogg-
anna“ er ekki margbrotin. Sam-
kvæmt því sem einn af for-
sprökkunum sagöi Lindsey, er
hún fyrst og fremst í því fólg-
in, aö þeir vilja útiloka sig frá
umheiminum, og í þeim tilgangi
láta þeir myrkriö og hellana
skýla sér. „Menn eru til þess
skapaðir að lifa í hellum. Hús
eru þeim ekki eðlilegir dvalar-
staðir, hjónaband og aðrar venj-
ur, sem þeir hafa upp tekið,
samrýmast ekki heldur mann-
legu eöli“. Og forsprakkinn
bætti við: „f myrkri hellanna get
um við hagað okkur eins og
eðlið býður, þar er það okkur
hið eina lögmál, sem við tökum
tillit til“.
Eins og „troggarnir“ afneita
samfélaginu, afneitar samfélag-
ið þeim. Hvarvetna á dyrum
veitingastaða má sjá tilkynning
ar um að „troggum“ sé þar
meinaöur aðgangur — sem er
reyndar alger óþarfi, því að
„troggamir“ nálgast ekki götu-
dyr slíkra staða, þeir koma ein-
ungis að bakdyrunum, þegar
myrkt er oröið til þess að
sníkja sér þann matarúrgang,
sem til fellur.
Blaðburðarbörn
vantar í vetur í Kópavogi. Uppl. í síma 41168.
Dagblaðið VÍSIR
Prentnemi
óskast í handsetningu.
DAGBL. VfSIR
Laugavegi 178
DAGBLAÐIÐ VÍSI vantar
Röska sendisveina
í vetur, hálfan eða allan daginn.
DAGBLAÐIÐ VÍSIR
Sími 11660