Vísir - 20.09.1966, Blaðsíða 9

Vísir - 20.09.1966, Blaðsíða 9
I V í SIR. Þriðjudagur 20. september 1966. mannsöfnuð til að ráða hana af dögum, en cngu fengu þeir áork- að að heldur. Á þessa lund er þjóðsagan um kvenskassið mikla í Henglinum. II. '^7'era má afi-framangreind þjóö saga hafi fengið byr undir vængi er ferðamenn týndust eða uröu úti x vetrarveðrum bæði á Hellisheiðarleiö og öðrum slóð- um í námunda viö Hengilinn. Þarna er villugjarnt, leiðirnar fjölfarnar, en menn oft af van- efnum útbúnir, bæði hvað fatn- að og nesti snertir og urðu því hríðunum fyrr að bráð en ella. Á öndverðri 17. öld, eða nán- ar tiltekið 1621, var norðlenzkur prestur, Jón Gíslason að nafni, á leið suður til Bessastaða, en týndist á leiðinni. Jón þessi gekk ýmist undir nafninu Jón Maríulausi eða „gamli Adam“. Hann var lengi prestur á Mel- stað I Miðfirði og hafði Jón bisk up Arason vígt hann sumarið 1550, enda þótt prestlingurinn hefði þá litla undirbúnings- menntun hlotið og var aðeins venjulegur „fatabúrspiltur“ á Hólum. En biskupi þótti þá i ó- efni komið með trúarbrögðin á Suðurlandi og vígði ýmsa til prests þótt ekki hefðu hlotið tilskilda menntun, og meðal þeirra var séra „gamli Adam“. Þegar séra Jón týndist í Bessa staðaför sinni 1621 var hann orö inn farlama gamalmenni, 87 ára að aldri og í rauninni furðulegt konulík uppi i Henglafjöllum og tveir sauðaræflar hjá, sem hún hafði krækt á hornunum undir styttuband sitt. Gizkuðu menn á að það væri lík Höllu, enda hafði veöur spillzt skömmu eftir að hún hvarf úr byggð. IV. I/'n hvað sem öllum þjóðsögum um útilegumannabyggð í Henglafjöllum líður, er það stað reynd að þar héldust útilegu- menn við, meira að segja oftar en einu sinni. í Fitjaannál er getið um mann að nafni Eyvindur. Var hann kvæntur, en hefur sennilega ekki geðjazt að konu sinni, þvi austur I Ölfusi tældi hann stúlku til samlags við sig. Fluttu þau vestur á land og létust vera hjón. Þetta tiltæki þeirra þótti samt af einhverjum ástæðum ekki gott, voru skötuhjúin því leituð uppi, handtekin og flutt til sýslumanns. Þar voru þau bæði húðstrýkt og að því loknu stíað sundur og send sitt í hvora áttina. Árangurinn varð þó ekki betri en það, að þau náðu sam- an aftur, og til þess að ekkert yfirvald stíaði þeim í sundur á nýjan leik, lögðust þau út í Hengli og lifðu um stund á hnupli. Hvort dvöl þeirra þar varö löng eða skömm er ekki vitað ,en 1678 náðust þau, og voru flutt til Alþingis og réttuð á þinginu. Þannig sameinuðust þau í dauðanum. Voru 2 þeirra settir án frekari umsvifa í snöruna á Þingvöllum enda stutt að fara. Sá þriðji var kagstrýktur, en látið þar við sitja vegna þess hve ungur hann var. í Píslarsögu sinni kemst séra Jón þumlungur þannig að orði, að sá sem fóstrast í Hengla- fjöllum mun ekki haldinn vitn- isbær, þvi þar er þjófabæli. Þetta skrifar maður lengst norð ur á Vestfjörðum og bendir það því ótvírætt til að það orð hafi legiö á Henglafjöllum að þar héldu sig þjófar og illþýði. V. A seinni hluta 18. aldar voru hreindýr flutt frá Finnmörk og sleppt á Reykjanesi. Þar tímguðust þau vel og rásuöu vftt og breitt um Revkjanesskagann, Hellisheiði og Mosfellsheiði og m.a. í Henglafjöll. í 2. árgangi „Náttúrufræðings ins“ lýsir Guðmundur G. Bárð arson náttúrufræðingur hrein- dýraveiðum í Marardal nokkru fyrir miðja 19. öld. Marardalur liggur norðan Hengillins, hann er klettum girtur á allar hliöar en graslendi í botninum og þar er oft hin ákjósanlegasta beit. Einstigi er inn í dalinn gegnum gildrag sem úr dalnum fellur. Á árunuum 1830-40 bjó bóndi sá á Elliðavatni sem Guðmund- ur hét Jakobsson afkomandi snorra prests Bjömssonar á .Húsafelli. Guðmundur var ramm ur að afli og skytta með ágætum Skeggi, einn svipmesti hnúkurinn á Hengli. — fjallbáknið við Hellisheiði að hann skyldi takast svo langa ferö á hendur án fylgdar. Séra Jón þurfti að reka einhver erindi á alþingi, en að þvi búnu hélt hann frá Þingvöllum suður til Bessastaöa. Þangað komst hann þó aldrei, en nokkru siðar fannst reiðhestur hans mann- laus í Dyrfjöllum. Leit var gerð að presti, en gjörsamlega árang- urslaust — hann hefur aldrei fundizt. Þjóðtrúin var ekki í neinum vafa um hvað af presti hafði orðið, því enda þótt hann væri seigur undir tönn, sakir elli, hafði hann samt orðið kven- skassinu Jóru að bráö. III. ' íjjóðsaga er til um það, enda þótt hún fái ekki við neitt að stvðjast að Halla fylgikona Fjalla-Evvindar hafi borið bein sín í Henglafjöllum. Sú munn- mælasögn hermir að þegar Halla náðist síðast og átti að setja hana með öðrum þjófum í Reykjavíkurtukthús, hafi hún verið svo illa á sig komin aö ekki þótti fært að loka hana inni og hafi henni þess vegna verið gefið frelsi. Var hún sett niður á kot eitt i Mosfellssveit, en dag nokkum er hausta tók og Höllu varð litið til Hengilsins, vakn- aði hjá henni fjallaþráin að nýju og nóttina eftir hvarf hún. Nokkrum árum seinna fannst Annálar geta þess ennfremur að árið 1703 höföu 3 útileguþjóf ar verið gripnir I Henglinum Lagði hann sig m.a. eftir hrein dýraveiðum og var í frásögur fært að í einni slíkri veiðiferð hafi hann borið fullorið hrein- dýr austan úr Bláfjöllum og heim til sín a Elliðavatni. En frækilegasta veiðisagan af Guðmundi var þegar hann rakst á 11 hreindýr saman í Marar- dalnum. Það var í svartasta skammdeginu, rétt fyrir jól. Guðmundur varö á undan dýr- unum að einstiginu og varði þeim undankomu úr dalnum. Féllu dýrin fyrir skothríð Guö- mundar hvert af ööm, og í hvert skipti sem dýr féll fyrir skoti, hlupu hin dýrin hring I dalnum. Gafst Guðmundi á með- an gott tóm til að hlaða byssu sína og hafði hana jafnan hlaðna þegar dýrin bar að. Loks hafði hann skotið öll dýrin nema eitt, en það var mikill og stór tarfur með geysistór hom. Þegar tarfurinn sá sér ekki undan- komu auðið réðist hann af heift á skyttuna, en hún kom byssunni ekki við og varð því að takast á við bola. Hvort sá bar- dagi veröi lengur eða skemur lyktaði honum þó með sigri Guð mundar sem gekk af hreinin- um dauðum, énda var Guð- mundur sagöur hafa þriggja manna afl. Fram til 1918-20 sáust hrein- dýr á ferð bæði í Henglafjöll- um og víðar um Reykjanes- skaga, en þá tekið að fækka til muna, enda sóttust skyttur mjög eftir þeim, ekki aðeins vegna kjötsins heldur og einn ig vegna skinnanna og skraut- legra homa. En á þessum ámm gerði mjög harða vetur og þá er sennilegt að flest dýranna, sem eftir lifðu, hafi fallið úr harð- rétti og hor, a.m.k. sást lítið til þeirra eftir það. Þó er um það vitað, að síðasta hreindýrið sem sást á Suðvesturlandi, var unnið á svokölluðum Bolavöll- um, skammt frá Hengli rétt fyr- ir 1930. Það var vesæl kýr, af- Framh. á bls. 6 ■ *

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.