Vísir - 14.10.1966, Qupperneq 1
VÍSIR
56. árg. — Föstudagur 14. október 1966. — 235. tbl.
farið hefur alltaf verið í bíl, en
sá sem leitaði á litlu stúlkuna í
gær var gangandi.
Málsatvik í gær voru þau,
að litla stúlkan var að leik á
leikvellinum fyrir neðan Laugar
nesskóla við Reykjaveg ásamt
tveimur yngri drengjum. Mað-
urinn kom þar að og bauð
krökkunum brauð, sem hann
hafði með sér í tösku og sagð-
ist mundu gefa þeim mikla pen
inga ef þau vildu koma með sér
yfir götuna og á svæðið, sem er
milli sundlaugarinnar nýju og
íþróttavallarins í Laugardaln-
Framh. á bls. 6.
Þessi mynd er tekin kl. 4 í gærdag, er véibátnum Öðlingi var náð
á flot. Sjá frétt á bls. 16. (Ljðsm. Þórir Davfðsson).
Lögreglan leitar mannsins
Rannsóknarlögreglan Ieitar
nú að manni, sem í gærdag
gerði sig sckan um að leita á
f jögurra ára stúlku. Var i fyrstu
haldið að hann hefði fengið
vilja sínum framgengt en sam-
kvæmt læknisúrskurði í morgun
kom í ljós að hann hafði ekki
unnið likamlegt tjón á baminu.
Lögreglan hefur að undanfömu
leitað að manni; sem hefur leit
að á litlar stúlkur, en ekki þyk
ir sannað, að hér sé um
sama mann aö ræða. Maðurinn,
sem leitað hefur verið að undan
Forsætisráðherra á Aiþingi í gær:
STCFNT AD VCRDSTODVUN
Ríikisstjórnin æskir samvinnu við launk>ega og atvinnurekendur um naubsyn-
legar ráðstafanir. Sagt frá umræbum á Alþingi um yfirlýsingu stjórnarinnar
íslenzka ríkisstjórnin
hefur í undirbúningi ráð
stafanir tii að stöðva
verðhækkanir innan
lands, þannig að verðlag
hækki ekki frá því sem
var 1. ágúst s.I. Mun
ríkisstjómin leita sanr
starfs við samtök laun-
lega og atvinnurekenda
um þær ráðstafanir.
Sagði forsætisráðherra Bjarni
Benediktsson á fundi Sameinaðs
Alþingis £ gær, að skilyrði fyr-
ir stöðvun verðlags fyrir atbeina
rikisvalds væri að ekki yrðu
geröar aðrar ráðstafanir, sem
leitt gætu til verðhækkana. —
Þetta kom fram í yfirlýsingu
ríkisstjómarinnar er forsætis-
ráðherra flutti í gærdag. (Yfir-
lýsingin er birt í heild á bls. 9.).
í yfirlýsingunni var gerð grein
fyrir viðhorfum ríkisstjómarinn
ar til ýmissa vandamála, er nú
krefjast úrlausnar strax eða
mjög fljótlega, t. d. á sviði efna-
hagsmála, togaraútgerðar og
frystiiðnaðar. Jafnframt var get-
ið fjölmargra mála er stjómin
hyggst leggja fyrir Alþingi á
næstunni. Þá var tekið fram, aö
meginstefna ríkisstjómarinnar
væri hin sama og Ólafur Thors
lýsti í nóvember 1959 að
„tryggja heilbrigðan grundvöll
efnahagslífsins, svo að fram-
leiðsla aukist sem örast, atvinna
haklist almenn og örugg og lífs-
kjör getí enn farið batnandf“.
Nokkrar umræður spurmust
út af yfirlýsingunni. Tóku til
máls foringjar stjómarandstöðu
flokkanna, Eysteinn Jónsson og
Einar Olgeirsson. TöJdu þeir, aö
stjóminni heföi ekki tekizt aö
fylgja yfirlýstri stefnu sinni. Ey
steinn taldi stjóm ríkisins of
handahófskennda, en Einar Ol-
geirsson kvað „verzlunarauð-
valdið“ hafa ráöið mestu um
stefnu stjómarinnar með þeim
Framh. á bls. 6.
I si
Lóðahafar í Fossvogi undirbúa félagsstofnun:
Miklir erfiðleikar við grunna —
Óánægja með ýmis byggingarákvæði
Lóðahafar einbýlishúsa-
lóða í Fossvogi eru nú að
undirbúa félagsstofnun til
þess að sameinast um þá
byrjunacörðugleika, sem
fylgja húsbyggingum þar í
Fossvogsmýrinni. Mættu
milli 50 og 60 lóðahafar á
fund að Hótel Sögu í gær
til þess að ræða félagsstofn
unina og létu 53 áhuga í
Ijósi þar að lútandi.
Á fundinum var rætt um að
sameinast þyrfti um ýmsar nauð- [
synlegar athuganir varðandi dýpt
mýrarinnar, en hún er víðast ókunn
og sums staðar 8—9 metrar að
kunnugra áliti. Einnig þótti nauð-
synlegt að taka jarðvegsprufur úr j
mýrinni þar sem grunur leikur á I
að þar séu sýrur skaðlegar steypu.
Þá kom í ljós á fundinum megn
óánægja með ýmis byggingar-
ákvæði er fylgja lóðunum og þótti
mörgum rétt að væntanlegt félag
hefði á stefnuskrá sinni að fá þeim muni kosta allt upp undir 100
breytt. Var þar aðallega um að
ræða 22 metra langan skjólvegg,
sem skylt er að byggja á hverrii
lóð. Telja kunnugir að veggur þessi I
þúsund í byggingu. Vildu fundar-
menn að félagið réðist gegn þessum
vegg og fleiri ákvæðum, sem bindi
Framh. á bls. 6.
20-30 stjórnar-
frumvörp
væntanleg
Ríkisstjómin boðar að hún
muni á næstunni leggja fram á
Alþingi millj 20 og 30 frumvörp.
Kom fram í yfirlýsingu ríkis-
stjórnarinnar er Bjami Bene-
diktsson forsætisráðherra las
upp í gær að væntanleg eru
frumvörp, m.a. um staðgreiðslu
opinberra gjalda, ný heildarlög
Framh. á bls. 6.
Lóðahafar í Fossvogi á fundinum að Sögu. Kristján Friðriksson, sem var fundarritari, skýrir frá sjónarmiði sínu varðandi félagsstofnunina.