Vísir


Vísir - 14.10.1966, Qupperneq 7

Vísir - 14.10.1966, Qupperneq 7
 7 V tS IR . Föstudagur 14. október 1966. II.................................................................»SBE5 ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ UPPSTIGNING Nýtt houstverð 300 kr. daggjald KR. 2.50 á ekinn km. ÞER v' LEIK Erlingur Gislason og Valur Gíslason. Rauðarárstíg 31 sími 22-0-22 ■HHBHnBMaBRinHHHHBBBKw ,UflUHiyiUIMJUniMUfi^a<iá<dCgir.-4^ V. EFTIR SIGURÐ NORDAL - LEIKSTJÓRI: BALDVIN HALLDÓRSSON TÓNLIST: JÓN NORDAL - LEIKMYND: GUNNAR BJARNÁSON Cetjum sem svo, aö dr. Sigurður Nordal hefði engin vísinda- leg afrek unnið. Setjum sem svo, aö ekkert lægi eftir hann í rituðu máli utan þetta eina smásagnakver, þessi eina þula og þetta eina leikrit hans. Samt sem áöur væri næg ástæða til að þjóöin hyhti hann áttræöan í þakkarskyni fyrir merkilegt framlag hans til ísienzkra bók- mennta. Það verður einhvern tíma viðurkennt, að skáldiö Sig- uröur NordaJ *hafi staðið í helzt • til hljóöum skugga af vísinda- manninum, dr. Sigurði Nordal. Þeir höfundar íslenzkir eru telj- andi, sem jafnvel hafa gert smá- sögur í heföbundnum stíl," og „Hel“ er ekki einungis sérstætt heldur og fráhært listaverk. Þul- an er einn af fáguðustu gim- steinum íslenzkrar Ijóölistar. Og síðan „Uppstigning“ var samin, hefur enginn íslenzkur höfund- ur skrifað jafnathyglisvert leik- rit, annar en Laxness. Það er því, vægast sagt, harla ósmekklegt að komast þannig að orði, að Þjóðleikhiisið hafi valið sér þetta leikrit að við- fangsefni til heiöurs Nordal vegnajáttræðisafmælis hans, rétt eins og þar þyrfti einhverrar af- sökunar við. Þá hefði verið nær að leita einhverrar afsökunar á því, að „Uppstigning" skuli ekki hafa veriö sett þar fyrr á svið. í rauninni er'þafð-ófýrirgefanlegt tómlæti. Betra er þó seint en aldrei, og frumáýningin í kvöld leið var með þeim ágætum, að ekki tjóar að vera með neitt nöldur. Þar hefur bersýnilega verið vel til alls vandað, sem auðvitað er gleöilegt en ekki þakkarvert í sjálfu sér. Baldvin Halldórsson svnir enn sem oft- ar, að hann er nærfærinn og smekkvís leikstjóri og leikmynd- ir Gunnars Bjarnasonar eru mjög vel geröar og falla vel að efni leikritsins og stíl, en þó ber leikmynd þriðja þáttar af hin- um, að mínum dómi. Val leikenda í hlutverk hefur tekizt mjög vel. Svo vel, að enda þótt tuttugu ár séu síðan leikritið var samið, gat maður auðveldlega taliö sér trú um að höfundurinn hefði samið aðal- hlutverkin með tilliti til þeirra leikara, sem hafa þau með hönd- um nú, og þá er vel að verið. Flutningurinn veröur því mjög samfelldur, að sjálfsögðu á leik- stjórinn snaran þátt í því, hve þriðji þátturinn stendur í traust- um tengslum viö annan og fjórða, lokaþáttinn. Þar er leik- stjóra og leikurum hvað mest- ur vandi á höndum, og kannski má deila um þaö hvort átökin í þriðja þætti megi ekki verða enn sterkari á kostnað heildar- samræmisins. Fyrri i altaristöflufundurinn tókst með afbrigðum vel. Aftur á móti fannst mér daufara yfir þeim seinni, og þótt undarlegt megi viröast þá var atriöið, þar sem læknisfrúin og presturinn áttust við. Það var eins og Er- lingur héldi ekki í viö Krist- björgu í þeim átökum; prestur- inn yrði um of svipvana í hönd- um hans, þannig að sterkur leik- ur Kristbjargar fékk ekki þá svörun, að hann nyti sín. En þar. er hlutverk prestsins líka hið erfiðasta, einmitt vegna þess hvílíkur guðsgemlingur hann er og átakalítill. Frú Petrína Skagalín er sann- arlega í traustum höndum, og hef érr sialdan séð ftnnu Guð- mundsdóttur takast eins vel á leiksviði — þaö var öldungis eins og hlutverkið væri samiö fyrir hana sérstaklega, eins og ég gat um áður. Þá lék Helga Valtýsdóttir fröken Johnson af mikilli snilld. Annars voru kon- urnaf hver annarri snjallari á altaristöflufundunum báðum, Guðbjörg Þorbjarnardóttir leik- ur frú Jónínu Davíðsen af ó- svikinni kímni, sem hún getur bersýnilega beitt á leiksviði, þó að hún geri það ekki oft, og Kristbjörg Kjeld lék læknisfrúna af miklum skörungsskap. Og ég verð að nota áöur sagða setn- ingu einu sinni enn — það er eins og hlutverk Jóhönnu Einars sé samið sérstaklega fyrir Brí- etu Héðinsdóttur, sem sýnir þarna ákaflega sannfærandi leik og heilsteyptan; leikur hennar i næturatriöinu er eitt af því bezta, sem ég hef séð til hennar. Margréti Guðmundsdóttur er ekki ýkjamikill vandi á höndum í hlutverki Dúllu, sem hún skil- ar eins og til er ætlazt. Róbert Arnfinnsson ætti að vera farinn að kunna tökin á útgerðarmönn- unum, enda er Haraldur Davíð- sen þar í traustum höndum. Rúrik Haraldsson leikur Kol- bein Halldórsson listmálara af smekkvísi, en það er lítið hlut- verk, og læknirinn, Ásbjörn Baldvinsson, verður einkar trú- verðug manngerð í túlkun Bessa Bjarnasonar. Þeir Jón Sigur- björnsson og Valur Gíslason leika hlutverk hæstvirts höfund ar og leikhússtjórans slétt og fellt. Jónína Jónsdóttir leikur vinnustúlku, lítið hlutverk. Hlut verk prestsins er mest og vanda- samast, en Erlingur Gíslason túlkar þá mótsagnakenndu og tættu manngerö af vandvirkni og nærfærni. Átök hans á fjall- inu við sjálfan sig verða kann- ski ekki eins sterk og þau mættu vera, en um þ,að má deila eins og áður er getið — hóf- stillingin, sem hann sýnir þar, hefur líka sinn kost hvað snertir heildarsvipinn. Efni leikritsins verður ekki rakið hér, en mér finnst viðeig- Erhngur Gíslason og Briet Heðmsdottir. andi að láta höfundinn sjálfan gera nokkra grein fyrir verki sínu, og leyfi mér því aö taka stuttan kafla úr eftirmála hans að „Uppstigningu“, útg. 1946, sem birtur er í leikskránni „Aö leikslokum11; „Frá almennu sjónarmiði eru yrkisefni miklu færri og oftar endurtekin en flesta grunar. Svo er um þetta: einlyndi og marg- lyndi, baráttu einstaklinga við umhverfi sitt, viöleitni til sjálf- ræðis gegn kröfumvborgaralegs ; skipúlags o. s. ffv., sem er al- gengt og áö líkindum'æVárandi 1 vandamál lífs og viðfangsefni skáldskapar. Hitt varðar mestu, hvernig tilbrigði þess veröa lífi gædd í persónum, orðum og at- vikum. En þegar að því kemur, — eða ’ ef til þess kemur, að per- sónurnar vilji taka til sinna ráöa og höifundurinn sampínist þeim í kröggum þeirra, rekast bæði þær og hann á aðrar skorður en í lífinu — og þó náskylds eðlis: þær skorður formsins, sem öll- um skáldskap eru settar. Að vísu möglar öll skepnan meira eða minna, leyndara eða Ijósara, gegn því, sem forlögin leyfa henni að verða, vera og gera. En hún verður að sætta sig viö þessar skefjar í reynd — og er enn fúsari að gera þaö í skáld- skap, svo aö ekki sé talaö um aðrar listir, sem hafa ennþá krappara svigrúm. Það má vel vera, að flest . skáld urii því mætavel að hafa í öllum hönd- um við afkvæmi sfn, stjórna þeim með einræöisvaldi, upp- hefja þau eða niðurlægja, gera þau að hetjum, píslarvottum eða fíflum, kála þeim tímanlega eða andlega eftir hentugleikum og þar fram eftir götunum. En hví skyldi það ekki geta komið fyrir, að óharðnaður viðvaning- ur afsalaði sér slíkum völdum og gengi í lið með fórnarlömb- unum — eða að minnsta kosti einhverju þeirra? Þá er höfund- urinn (með litlum staf!) orðinn - öndveröur Hæstvirtum Höfundi, sem hefur allan lagarétt listar- innar sín megin, — og hlaupin snurða á hin venjulegu vébönd formsins“. Leikhúsgestir tóku „Uppstign- ingu“ mjög vel, og í lokin var höfundurinn hylltur, ásamt leik- urum og leikstjórn, lengi og innilega. En þeir, sem viðstaddir voru frumsýninguna í Iðnó forð- um, hafa eflaust saknaö óviss- unnar og spennunnar, sem gerði hana með eftirminnilegustu frumsýningum, sem sögur fara af hér f borginni — slíkt verður ekki endurtekið af góðum og gildum ástæöum. Nú er enginn lengur í vafa um höfundinn, og kannski er ádeilan á lífið í „þorp inu“ orðin okkur stórborgarbú- um svo fjarlæg, að við getum notiö hennar án þess aö brodd- arnir rispi hörundið hið minnsta. Þetta eiga þeir í kaupstöðunum úti á landi, og verði þeim að góðu, háhýsin eru upp yfir slíkt hafin ... eða hvaö? , , 'l ' i. Loftur Guðmundsson.

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.